Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1970, Blaðsíða 156
nefndir strómatólítar. Ég hefi nýlega lesið skilmerkilega
greinargerð fyrir því, að þeir hafi myndazt í sambandi við
sjávarföll líkt og nútímahólarnir. Munurinn er hins vegar sá,
að fornu hólarnir eru oft töluvert stærri en þeir sem nú mynd-
ast, og er það túlkað sem meiri munur flóðs og fjöru. En fyrst
og fremst sýna þessir steingerðu þörungahólar, ef túlkunin er
rétt, að sjávarföll hafa verið meiri en svo, að sólin ein hafi
getað valdið þeim. Tunglið hlýtur því að hafa verið komið til
skjalanna á þessum tíma.
Rannsóknir á strómatólítum frá því sjónarmiði, að lesa út
úr þeim stærð sjávarfalla fyrir 2000 milljón árum, eru alveg á
byrjunarstigi. En ég ætla þó, til að sýna hvílíkt gildi slíkar
rannsóknir gætu haft, að taka sem dæmi að flóðkraftarnir
hafi áður verið tvisvar sinnum meiri en nú, en það svarar
nægilega vel til þeirra fáu mælinga á hæð fornu hólanna, sem
enn er völ á. Með útreikningum fæst þá, að tunglið hafi á þess-
um tíma, þ.e. fyrir 2000 milljón árum, verið í tæplega 80% nú-
verandi fjarlægðar.
Aður var ég búinn að segja, að ef sjávarskilyrðin í flóð-
hemluninni hefðu jafnan verið hin sömu og nú, hefði tunglið
verið í þessari fjarlægð fyrir 1000 milljón árum, svo að þarna
skakkar helmingi. Það mundi þýða, að sjávarskilyrðin út af
fyrir sig hafi leitt til miklu minni flóðhemlunar á þessum fjar-
lægu tímum en þau gera nú. Ónákvæmni margfaldarans á
flóðkraftana sem byggðir voru á hæð hinna fornu strómatóiíta,
skiptir hér ekki mjög miklu máli. Því að ef sjávarskilyrði hefðu
jafnan verið hin sömu og í dag, sýna útreikningarnir að tungl-
ið hefði verið niður við jörð fyrir 1200-1400 milljón árum.
Þess í stað sýna strómatólítarnir, að fyrir 2000 milljón árum
var tunglið enn í mikilli fjarlægð. Þetta eitt sýnir, að sjávar-
skilyrðin út af fyrir sig hljóta að hafa leitt til miklu minni
hemlunar á fyrri tímum en þau gera nú.
Það er þá svo að sjá, að við getum fylgzt með stöðu tungls-
ins með hjálp líffræði og jarðfræði aftur í miðja jarðsöguna.
(154)