Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1970, Page 183
utanverðum og 17. nóvember á fíngurtoppinum og er þá
sunnudagur.
Til þess að finna 28. nóvember árið 1700 í nýja stíl, byrjum
við með 1900 á fmgurtoppinum, 1800 er á miðlið innanverð-
um og 1700 á upplið utanverðum. Síðan teljum við 4 fyrir
nóvember: 1 á upplið utanverðum, 2 á miðlið utanverðum,
3 á framlið utanverðum og 4 á toppinum. 1. nóvember verður
þá á framlið innanverðum, og sömuleiðis verða þar 8.,
15. og 22. nóvember. 23. nóvember lendir á miðlið innan-
verðum, 24. nóvember á upplið innanverðum, 25. á upplið
utanverðum, 26. á miðlið utanverðum, 27. á framlið utan-
verðum og 28. á fingurtoppinum. Við höfum því aftur feng-
ið sunnudag eins og vera bar.
Töflur til að finna vikudag hvers mánaðardags.
Með því að nota töflur I til III er auðvelt að finna þann
vikudag sem svarar til sérhvers mánaðardags, hvaða ár sem
er. Tölurnar í töflu II og töflu III sýna aðfarardaga áranna í
nýja stíl og gamla stíl. (Talan 1 merkir sunnudag, talan 2
mánudag, o.s.frv.). í hlaupárum eru tilgreindar tvær tölur, og
gildir þá fyrri talan fram á hlaupársdag, þ.e. fyrir janúar og
febrúar. Svigar eru settir um sum ártölin til að minna á það,
að nýi stíll gekk ekki í gildi á íslandi fyrr en árið 1700.
Þegar finna skal vikudaginn er fyrst fundin lykiltala mán-
aðardagsins í töflu I og hún lögð við töluna sem svarar til ár-
talsins í töflu II (eða töflu III, ef um gamla stíl er að ræða).
Útkoman gefur þá vikudaginn samkvæmt eftirfarandi reglu:
Ef útkoman er 2 eða 9 er dagurinn mánudagur
3 eða 10 — þriðjudagur
4 eða 11 — miðvikudagur
5 eða 12 — fimmtudagur
6 eða 13 — föstudagur
7 eða 14 — laugardagur
8 — sunnudagur
(181)