Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2004, Síða 18
78 FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 2004
Jólablað DV
„Þetta er ekki hamingjusamur maður. Það held
ég sé alveg augljóst," segir Gáttaþefur um mynd-
ina af sjálfum sér.
„Ég er ekki frá því að þessi maður hljótí að vera
á rangri hillu í lífinu. Hann er reyndar mjög fínn til
fara en það er eins og allar heimsins áhyggjur hvfli
á herðum hans. Og hann virðist alveg útkeyrður.
Ef ég reyni að geta mér til um hvað hann starfar
þessi maður þá gæti ég best trúað því aö hann væri
' einhvers konar yf-
B'iJJWWJ'TPrjl Í irmaður, liann
gæti starfað við
hlutabréfamarkaðinn eða þá jafnvel að hann væri
í stjórnmálum. Þar félli hann í hópinn. Og slíkur
svipur sem þessi hlýtur að segja okkur að hann sé
hátt settur, jafnvel einn ráðamanna. En um það er
auðvitað ómögulegt að segja. Hann er þunglyndur
nema þá að hann sé svona góður leikari. Ég er ekki
frá því að hann ættí að velta fyrir sér þeim mögu-
leika að skipta um starfsvettvang. Og mér sýnist á
nefi hans að þefskynið sé í góðu lagi. Þessi maður
ættí að starfa sem matreiðslumeistari eða við eitt-
hvað í tengslum við matargerðarlist."
Portrettið
Tveir aðfangadagar á þessu ári
Síðastliðinn föstudag var Páll lúh'-
us Kristinsson kosinn Herra ísland
2004 á Broadway í Reykjavflc en hann
hafði áður hlotið títilinn Herra Norð-
urland. „Undirbúningurinn er búinn
að vera stífur undanfarnar vikur en
föstudagurinn var frjáls, engar lyft-
ingar eða lflcamsrækt. Ég vaknaði upp
úr níu og tók því bara rólega, fékk mér
hollan og næringarrflcan morgunmat
í mestu makindum. Tilfinningin
minnti mig svolítið á aðfangadag, ég
fæ sem sagt að upplifa tvo aðfanga-
daga á þessu ári.
í hádeginu kom kærastan í bæinn
að norðan og við fómm saman til
einkaþjálfarans míns í fitumælingu.
Ég kom vel út úr henni og við skelltum
Páll Július Kristinsson rifjarupp daginn þegar
hann varkosinn Herra Island 2004.
okkur á Kaffi Borg þar sem ég fékk mér
eggjaköku með haframjöli í hádegis-
mat. Eftir hádegið skráði ég minn inn á
hótelið en svo þurftum við að fara í
bæinn að útrétta og kflcja á jólagjafir.
Ég mætti svo á Broadway um
fimmleytið að taka til föt og græja alls
konar smáatriði. Svo dreif maður sig í
jakkafötin, var greiddur og farðaður og
keppnin byrjaði.
Mér fannst ánægjulegt að komast í
fimm manna úrslitin og varð í raun-
inni mjög hissa á að sigra því mér
fannst mjög jafht á með okkur komið.
En á meðan á þessu stóð leið mér bara
ljómandi vel. Þegar niðurstöður vom
fengnar var húrrað og skálað dágóða
stund en svo haldið í rúmið. Laugár-
daginn þurfti ég nefnilega að nota vel í
bænum, því að á sunnudaginn varð ég
að fara norður og mæta í vinnu á
mánudag.“
Þátttakendur (fegurðarsamkeppninni 2004 „Mér fannst mjög jafnt á með okkur komið."