Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2004, Page 41
DV Jólablað
FIMMTUDACUR 23. DESEMBER 2004 41
Kristján Björnsson, sóknarprestur í Vestmanna-
eyjum, messar á aðfangadagskvöld eins og alltaf.
Honum hefur tekist vel að sameina helgihald um
jólin og samveru með Qölskyldunni.
Iólahald hjá okkur er blanda af hefð-
um frá fjölskyldum okkar beggja. Ég
held að okkur hafi tekist að sam-
ræma það mínum störfum prýðilega
i gegnum árin,“ segir Kristján Björns-
son sóknarprestur í Vestmannaeyjum en
lengi vel var hann einnig sóknarprestur á
Hvammstanga. Þá voru jólin oft anna-
söm hjá heimilisföður sem þjónaði sem
prestur í fjórum sóknum.
Kristján messar alla jafna um jól og
segir það hefð hjá fjölskyldunni að koma
með til kirkju klukkan sex á aðfangadags-
kvöld. „Þá höfum við gert allt klárt fyrir
matinn og förum saman í kirkju. Þegar
heim er komið er ekki annað að gera en
hita upp sósuna og brúna kartöflurnar
áður en sest er til borðs. Við höfum líka
þann sið að hafa stofuna lokaða og opn-
um hana um leið og fjölskyldan samein-
ast yfir matnum,“ segir Kristján en hann
á þrjá stráka á aldrinum 14 og 15 ára og
einn ellistyrk sem orðinn er 17 mánaða.
„Já, það eru nokkuð mörg ár þarna á milli
en það er mjög skemmtilegt að vera með
lítið barn eftir svona langan tíma, kom-
inn á miðjan aldur," segir hann hlæjandi
og bætir við að auk þess eigi hann tvær
dætur frá fyrra hjónabandi, en þær eru
nú fullorðnar og dvelja í Bandarflkjunum
um jólin.
Aðventan hluti jólahaldsins
Kristján telur að talsverðar breytingar
hafi orðið á jólahald landsmanna á síð-
ustu árum. Sumar þeirra til góðs en aðrar
ekki. „Mér finnst gott að fólk skuli nú
njóta aðventunnar betur en áður. Margir
gefa sér tíma til að hlusta á góða tónlist,
heimsækja vini, og njóta þessa tíma sem
getur verið svo yndislegur. Jóladagarnir
eru síðan nokkurs konar hápunktur á
þessu öllu en dagarnir eftir jól eru ekki
lengur þeir hátíðisdagar sem þeir áður
’ bendir hann
Kristján Björnsson
prestur í Vestmanna-
eyjum Hann er ánægð-
ur með hvað teygst hefur
úr aðventunni en ekki
eins sáttur við hvað dag-
arnir eftirjóiin hafa misst
hátíðarbraginn.
voru,
á.
Þegar betur er
að gáð er nokkuð
tilíþessuhjáKrist-
jáni því yfir ára- _____
mótum hvílir ekki sama
helgi og margir minnast frá æsku. Þá
runnu upp jól númer tvö hjá landsmönn-
um, en mikill hátíðarbragur var yfir ára-
mótum. Nú eru þau eins og hver önnur
tímamót. Kristján er sammála þessu og
bendir á að því miður hafi Alþingi gengið
nokkuð langt í að afnema allar hömlur
sem voru á helgidagalöggjöfinni. „Á síð-
asta kirkjuþingi þegar helgidagalöggjöfin
til umræðu þá lagði ég til að þessi löggjöf
yrði þrengd í stað þess að víkka hana út.
Menn voru ekki á því.“
Allir daga eins
„Ég var að hugsa um allt það starfsfólk
sem sjaldan fær frí, eins og afgreiðslufólk
í verslunum. Þeim fjölgar ár frá ári dög-
unum sem verslanir eru hafðar opnar.
Þetta er engin hemja lengur og verður að-
eins til að allt rennur saman og við hætt-
um að finna kaflaskil í lífinu. Ég er ekki
sáttur við það,” segir BCristján og bendir á
hvað allt verður hversdagslegt þannig.
Helgi sunnudaganna dofnar - allir dagar
verða eins."
Kristján hlakkar alltaf til jóla og er
spenntur nú sem endranær. Hann segist
þó vera nokkuð seinn með undirbúning
og á til að mynda enn eftir að skrifa jóla-
kort. „Ég sé samt um fasta liði eins og
setja upp ljósaseríur og annað sem til
fellur fyrir jólin. Það verður allt komið á
sinn stað og annað sem mér ber að gera
verður klárt þegar hátíðin rennur upp,"
segir klerkur þeirra Vestmannaeyinga,
Kristján Björnsson tilbúin að flytja Eyja-
mönnum jólaguðspjallið í ár.
FRÁ KEFLAVÍK
TIL FRANKFURT
Á 21JJDD PUNKTUM
FÓR í SKÍÐASKÓLA
í AUSTURRÍKI
Síðast þegar við fjölskyldan fórum
í sktðaferð þá gátum við notað
Vildarpunktana fyrir stelpuna
okkar. Við flugum til Frankfurt
með lcelandair og keyrðum svo
til Lech í Austurríki. Myndin er
tekin þegar við erum að sækja
hana í skíðaskólann þar sem hún
eignaðist fullt af vinum, m.a. frá
Ástralíu, Portúgal og
Ungverjalandi.
FARÐU UT A VILDARPUNKTUM
Viltu komast t hóp þeirra 21.205 VISA korthafa sem nú þegar eiga
næga vildarpunkta til að fljúga frttt út með lcelandair? Þú safnar
punktum m.a. þegar þú notar Vildarkort VISA hér heima.
Ert þú ekki örugglega að safna? Kannaðu málið á
www.visa.is/vildarkort til að vera viss.
V/SA