Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2004, Side 49

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2004, Side 49
DV Jólablað FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 2004 49 Svona eru jólin Síðan í byrjun nóvember hafa útvörpin baulað á mann fagnaðar- erindinu: Jólin eru að koma! Jólin eru að koma! Já, einmitt, jólin eru að koma og það er ekkert sem mað- ur getur gert í því. Þau verða ekki flúin nema maður sé Votti, alveg trylltur úr trúleysi, þunglyndur ein- búi eða ákveði það bara upp á eigin spýtur að vera ekki með. Tilhlökkunin Ég man ekki mikið úr æsku minni, en man þó sæmilega eftir því þegar ég og vinir mínir föttuðum einn dag- inn að það væri bara vika til jóla. Við vorum svona ellefu ára og úti að leika okkur. Það var dimmt og það kom gufa út úr manni. Þegar þetta var nefnt, að það væri bara vika eftir í jól- in, brast á hvflíkur fögnuður - við vissum ekki hvert við ætluðum. í þessu, eins og svo mörgu öðru, er til- hlökkunin stærsti hlutinn í heildar- pakkanum. Hamrað er á niðurtaln- ingunni, kerti eru brennd, dagatöl opnuð, skór eru fylltir af lúsiðnum jólasveinum. Hjálparkokkar tilhlökk- unarinnar eru auglýsingamar sem flæða yfir og allt plöggið og áreitið, sem er reyndar auðveldasta mál í heimi að losna við ef maður vill. Það er bara að ýta á takkann framan á kassanum. „Við vorum á ein- hverju skítahóteli og eina jólaskrautið í herberginu var gervi- skítur úr plasti sem ég hafði keypt á markaði og hengt upp á vegg." Dr. Gunni skrifar um jól upp úr niðursuðudós þýsks bakpokaferðalangs í PortBou. Kiallari Það sem byrjar í nóvember nær hámarki á Þorláksmessu en svo dettur allt í dúnalogn á aðfangadag. Hangikjötslykt í loftinu, fréttir klukkan eitt, pakkar keyrðir í hús. Klukkan sex er skrúfað frá Rás 1 og prestur jarmar yfir steikinni. Eftir átið leggst maður fyrir með beltið slakt. Svo eru kortin rifin upp og loks pakkarnir. í þessu stenda flest- allir landsmenn svona á bilinu sex til níu og það er þetta sameiginlega bauk sem er svo sérstakt og skemmtilegt við jólin. Megnið af árinu eru allir að vesenast eitthvað í sínu horni en á aðfangadagskvöldi eru allir nokkurn veginn að gera það sama. Prestarnir tala um samkennd. Epli og dauðar hórur Það er ekki ólíklegt að þegar fólk hittist um jólin minnist þeir sem eldri eru á það hvernig jólin voru í „gamla daga". Það er ekki ólíklegt að einhver minnist á eplakassá. Þegar sá sjaldséði munaður var dreginn í kot sannfærðust börnin um að nú væru jólin komin. Flest eldra fólk segist enn muna lyktina af eplunum. Þeir sem nú eru ungir segja kannski afkvæmum sínum eftir 60 ár frá því hvernig þeim fannst jólin alltaf vera komin þegar þau tóku utan af tölvuleiknum og fóru að slátra hórum og glæpalýð á sjónvarpsskjánum eftir jólasteik- ina. Jólakúkur uppi á vegg Eftirminnilegustu jólin sem ég hef upplifað voru jólin 1986 og þau eru eftirminnileg af því að þau eru ekkert lflc öðrum jólum sem ég hef upplifað. Á aðfangadag var ég stadd- ur í Madrid. Þetta var fyrir tíma Visa- kortsins, á fornöld semsagt, og ég skil ekkert í því hvernig maður fór að. Ég og vinur minn bjuggum á þessum tíma í Lyon í Frakklandi en höfðum ætlað til Portúgals um jólin. Nú vorum við í Madrid og blank- heitin gífurleg. Við vorum á ein- hverju skítahóteli og eina jólaskraut- ið í herberginu var gerviskítur úr plasti sem ég hafði keypt á markaði og hengt upp á vegg. Gervikúkurinn og þokkaleg jólamáltíð á veitingarhúsi höfðu endanlega farið með fjárhaginn og því skildust leiðir á jóladag, ég fór aftur til Lyon með lest (átti þar nokkra frarika undir koddanum) en vinurinn hélt áfram til Portúgals. Á landamærum Frakklands kom óvænt babb í bátinn því franskir lestarstarfsmenn voru farnir í verk- fall. Það var jóladagur, ég var fastur í Port Bou og átti ekki pening til þess einu sinni að kaupa mér samloku. Mér fannst þetta frekar aumt þá, en núna eru þessi jól sveipuð dýrðar- Ijóma, kannski sama ljómanum og hjá fólkinu sem man tímana tvenna og eplalykt. Kolkrabbi í jólamatinn Á leiðinni hafði ég talað eitthvað smávegis við þýskan bakpokaferða- lang, sem var í sama lággjaldaklassa og ég. Hann kom nú til hjálpar og bauð mér helminginn af því sem hann átti, niðursoðínn kolkrabba úr dós og enda af franskbrauði. Ég gleymi lfldega aldrei þessari kærleiksríku jólamáltíð þótt kol- krabbinn hafi verið ógeðslega vond- ur. Þarna tók Þjóðverjinn upp á því að „gleyma ekki sínum minnsta bróður'1, sem í þessu tilfelli var ég. Þótt ekki hafi ég verið mjög nálægt hungurdauða þá komst ég allavega nær því á þessum jólum en ég á eftir að upplifa aftur, að öilu óbreyttu. Eins og segir í vísunni sem Bono kenndi okkur þá er það jú betra að það séu þau en ekki við sem drep- umst, eitt á ijórðu hverri sekúndu. Verst að þau hafa ekki samanburð- inn og geta rifjað upp allsnægtajól í andarslitrunum. Gleðileg jól! j(iiv C

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.