Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2005, Blaðsíða 12
72 LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2005
Helgarblað DV
Dagskrárgerðarmenn X-ins uppi á Höfða Þessi mynd er tekin árið 2002 og hérgetur að
líta þá Reyni sem var með Breakbeat, Baila með fönkþátt, Robbi með Chronic, Frosti með
Babylon og Andri Már aka Freysi.
í Framhald frá
l fymopnu J
um. f dag er þetta allt komið á Netið.
Færst hefur yflr á aðra miðla að bera
fram heitustu músíkina. Ég man til
dæmis þá tíð þegar þetta var eina stöð-
in sem var að spila músík sem ekki var
alveg steingeld."
Hver verður til að gera næstu
sprengju skil?
Jón Atli segir þær tónlistarstefnur,
hipp-hopp, electromska tónlist og
fleiri stefhur sem X-ið bar á borð fyrir
hlustendur sína og andann í tengslum
við það, hliðstæðan því þegar diskóið
tröllreið öllu og svo kom pönkið sem
hnefahögg í andlit þess. „Eg er að bíða
eftir næstu sprengju og synd að ekki sé
útvarpsstöð í gangi sem verður tif þess
að spila þetta nýja „shit“ þegar það
kemur. Og sprengjan er þama úti,
sprungin, en það er ekki verið að spila
þessa tónlist."
Rödd Guðs nefnir til sögunnar
ýmsa plötusnúða sem mættu með
safiúð sitt og létu til sín taka: Ámi súri
með Sýrðan rjóma, Robbi með Chron-
Þossi á X-inu Þossi var andiitX-ins um
langa hríð. Fiann ernú búsettur úti í Dan-
mörku.
ic, Party Zone („þeir sofa reyndar hjá
öllum“), Skýjum ofar - Dmm and Base
þáttur Adda og Eldars. Og svo var einn
burðarása stöðvarinnar vitaskuld hann
Simmi á X-inu sem margir þekkja nú
betur sem Sigmar Guðmundsson í
Kastljósi Ríkissjónvarpins.
„Ég sé mikið eftir X-inu. Ég hlusta
ekkert mjög mikið á útvarp orðið nema
í bílnum. Eg er rokkhundur og þama
var hægt að fýlgjast með einhverju af
því nýja sem er í gangi. Oft líka að spila
eldri rokktónlist í og með. Þetta var og
hefur alla tíð verið sú tónlistarstöð sem
ég hef hlustað hvað mest á. Reyndar
Skonrokk líka,“ segir Simmi.
Hver með sitt plötusafn undir
hendi
Að sögn Simma var Bastinn aðal-
sprautan í þessu og hann tekur í sama
streng og Þormóður, það kom á daginn
að Aðalstöðvarmenn vom famir að
spila alltof pönkaða tónlist fyrir gamla
fólkið. „Menn vildu bara breikka sviðið
og sáu mikla eftirspum. Ég var orðinn
mjög klofinn persónuleiki, vann á báð-
um stöðvunum á túnabili."
Simmi segir að það hafi verið erfitt
að hólfaX-ið, svo mikill suðupottur var
útvarpsstöðin og klofinn. „Þama vom
fengnir inn allir dr. Gunnar landsins,
menn sem höfðu ákveðnar hugmyndir
um hvaða tegund tónlistar skyldi leika
og rifu kjaft. Sumum fannst J)að sjar-
merandi en menn vildu með tímanum
flokka þetta eftir markaðsfræðilegum
kúnstarinnar reglum til að geta selt
auglýsingar. X-ið mildaðist þar af leið-
andi með árunum. Það gat verið erfitt
að hlusta á X-ið í árdaga þegar hver um
sig mættí með sitt plötusafn."
Markaðsfræðin og anarkisminn
togast á
Þama togast sem sagt á sjónarmið
markaðsfræðinnar og arðsemiskröf-
umar og svo byltingin og nýjasta nýtt í
tónlistinni. Sá sem á peningana sína
undir kann að segja: Þetta á ég erfitt að
selja. Fyrst þeir gátu ekki selt þetta
núna þá hlýtur það að hafa verið erfitt
„Ég er að bíða eftir
næstu sprengju og
synd að ekki sé ut-
varpsstöð í gangi sem
verður til þess að spila
þetta nýja„shit.“
í byrjun. Falleg hugsun sem þróaðist
eðlilega út í hardcore bissness. Við vor-
um þama saman í þessu, einkum Jón
Atli og Þossi, sem vom þama mest í
upphafi. Það var anarkí í þessu sem svo
breyttist yfir í þetta sem við þekkjum í
dag, þá stöð sem nú er fýrir bý, því
miður. Ég hef reyndar þá trú að það
verður búið að opna einhverja rokk-
stöð innan tíðar. Það gerir það einhver
hugsjónarmaðurinn."
Markaðsfræðingar milli tónlist-
ar og krakkanna
Síðan gerist að sögn Þormóðs að
Aflvakinn, fyrirtækið sem rakAðalstöð-
ina ogX-ið, sameinaðist FM 957 1. júlí
1997. „Bæði fyrirtækin vom með skil-
greinda markliópa og ágætan rekstur.
Þó þurfti að ná fram meiri hagræðingu.
Ákveðið var að sameina stöðvamar
undir merki Fíns miðils og flytja í
Moggahúsið. 1. maí 1998 seldum við
Baldvin því við vorum ekki sammála
hugmyndafræðinni sem varð ofan á.
Það var þá sem Ameríkanamir í fyrir-
tækinu Saga communicatíons kaupa
sig inn í fýrirtækið. Svo endar þetta
upp á íslenska útvarpsfélagi 1999 til
2000. Tfmabil Kanans var eitt og hálft
ár, en þeir gáfúst svo bara upp á þessu
amstri öllu."
JónAtli segir að með tilkomu Amer-
íkanana hafi farið að súma verulega í
þessu og alltaf hafi stöðin þokast
lengra og lengra frá sínu markmiði sem
var að senda út tónlist sem átti eigin-
lega hvergi heima. Og það nýjasta nýtt.
„Það var séð til þess að liðið fengi þann
skammt sinn beint f æð. Oftar en ekki,
ef við tökum innlenda músík, vom
hljómsveitir leiknar, sem hvergi fengu
inni annars staðar með sína músík. Svo
man ég að þegar 36 Chambers með
Wu-tang kom út árið 1993, þá var hún
spiluð allan sólarhringinn. Svolítið
öðmvísi en er í dag. Ekki einhverjir
markaðsmenn milli þeirrar tónlistar og
krakkanna sem vildu heyra hana. Ég
kveiki ekki orðið á útvarpinu til að
komast inn í það sem er að gerast í tón-
list. Þetta er allt orðið einhver drulla og
engin stöð sem spilar electromska
músík til dæmis."
TUNGUMAL Portfolio Söngnámskcið fyrir börn Matjurfagarðurinn jiinn
íslciiskn fyrir útlciKlinga Tcikning Hljómborð Garöahönnun & skipulag
I>vska Olíumálun Hljómborð - Blucs/Jass íslcnskar lækningajurtir
F.nska Skopmyndateikning Fiðla Fy rir dýracigcndur
Spænska Myndlist - morgunhanar Harmonikka Fluguhný tingar
ítalska Skrautritun Gítarnámskciö Fluguköst
Franska Vatnslitir, akrýl, pastel o.fl. Rafgítar Fyrir dagmæður
Rússncska Lcir og mósaik (íítar - Blucs / .lass Atak í stærðfræði og
Hollcnska Rafliassi íslcnsku f. 8. og 9. bckk
Danska SAUMANÁM Sviðslistanám (lcik- dans
Norska Prjónað og jtæft TÖLVUR, REKSTUR OG og sönglist)
Sænska Biitasaumur - ('razy Quilt BÓKHALD
Réttritun og málfræði Fatasaumur Stofnun & rckstur smá- MATUR
Páskanámskcið fyrirtækja Fy ri r sau makl ú b b in n
SAMRÆMDU PRÓFIN Opið námskciö Microsoft Busincss Fyrir matarklúbbinn
Undirb. f. 10. bekkinga Solutions - Navision Vciðar, villibráð og vín
Danska HEILSA, ÚTLIT OG HREYSTI Autocat 2005 Að elda fisk og villibráð
Enska Fyrir&cftir Hcilsustudio Autocad 2005 & 31) Sludio 7 Eldun smárctta
Særdfræöi Bctri hcilsa og mciri orka Almcnnt tölvunám Smurbrauösnámskcið
íslcnska mcð rcttri næringu No Name -Förðunarnám Töh upóstur og intcrnct Povvcrpoint glærugcrð Að halda góða vcislu
HANDVERK & LISTIR Stafagauga Bloggnámskcið PRÓFAÁFANGAR
Þæfing Nuddnámskeiö Stafræna mvndavélin í samstarfi við Flensborg
Myndlist fyrir börn Svæðanudd Myndbandsupptökuvélin Spænska 103
Trcútskurður Fölvur - cldri borgarar Spænska 203
Tálgunániskcið f. alla TÓNLIST Spænska 403
Eklsmíði Cospclnámskciö ÝMIS NÁMSKEIÐ íslenska 102
Kcrtaskrcytingar Að hlusta á klassíska tónlist Tc og kalfi Enska 102
Skartgripagcrð Tónlist fyrir börn Sjálfstyrking fyrir konur Enska202
Clcrskurður Blokkilauta Dra u mlcik u r St rind bcrgs Stærðfræði 103
(ilcrbræðsla Söngnám - Einkatímar Leiklist-börn og unglingar
jakob@dv.is