Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2005, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2005, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 15.JANÚAR2005 Helgarblað DV Tuttugu og sex manns grafast undir Flóðið féll á Súðavík kl. 06.25 og íjórum mínútum síðar hafði lög- reglunni á staðnum borist tilkynn- ing um málið. Heimamenn hófu þegar björgunaraðgerðir og gerðu Almannavörnum á Isafirði viðvart. Þegar í stað var komið upp björgun- armiðstöð við hraðfrystihúsið Frosta niðri við höfnina þar sem öll- um íbúum var safnað saman. Fjórir þeirra sem höfnuðu í flóðinu fund- ust strax og aðrir ellefu voru grafnir WðÍKtik . ' upp á næsta klukkutímanum. Af þeim voru fimm látnir en hinir slös- uðu voru fluttir í Frosta. Ellefu manns var þá enn saknað. Ekki þarf að taka fram að veðrið var hið versta þegar þessir atburðir áttu sér stað þannig að mjög erfitt reyndist að koma björgunarsveitar- fólki og öðrum hjálparstarfsmönn- um til Súðavíkur. Ofært var land- leiðina frá Bolungarvík og því ákveðið að senda skipið Fagranes af stað frá ísafirði með björgunarfólk. SkipiðkomtilhafharíSúðavíkkl. 10 með 44 björgunarsveitarmenn, þrjá lækna og fjóra leitarhunda. Því næst héldu togaramir Bessi og Stefnir til Súðavíkur með fleiri björgunar- menn. Bessi snéri svo aftur til ísa- fjarðar með hina slösuðu og aðra íbúa upp úr hádegi og Fagranesið fór aðra ferð til ísafjarðar að ná í björgunarfólk. „Þegar ég kom heim með skip- inu til Isafjarðar eftir leitina í Súða- vík var ég svo örmagna að ég treysti mér ekki til að aka heim og fékk far hjá björgunarsveitarmanni. Þegar ég var kominn heim var ekki á mér þurr þráður eftir allt vökvatapið um nóttina og daginn. Ég klæddi mig úr með hjálp, fór í bað og fór með bæn. Þá komu eftirköstin og algjört nið- urbrot. Ég bara grét eins og barn. Þá rann upp fyrir mér hvað hafði gerst," sagði björgunarsveitarmað- Stöku veggur stóð enn Krafturinn í flóðinu var gríðarlegur eins og sjá má á þessari mynd sem tekin var rúmum mánuði eftir flóðið. EfSi.áí Bilífs iK.mgit. í. mm Wslifiiii ur frá ísafirði í samtali við DV tveimur dögum eftir að atburðirnh áttu sér stað. Fannst eftir fimmtán tíma Vegna vonskuveðurs gekk illa að koma fleira björgunarfólki til Súða- víkur fyrstu klukkutímana eftir að snjóflóðið féll. Upp úr kl. 15 lagði varðskipið Týr af stað frá Reykjavík- urhöfn með björgunarlið og alls kyns búnað. Á sama tíma kom tog- arinn Stefnir til hafnar í Súðavík með fleira björgunarfólk sem hófst þegar handa við björgunaraðgerðir og togarinn Júh'us Geirmundsson byrjaði að safna saman björgunar- fólki af suðurhluta Vestfjarðanna. Fleiri skip voru send af stað en voru lengi á leiðinni vegna veðurs. Tog- arinn Margrét EA fékk til dæmis á sig brotsjó á leiðinni og varð fyir nokkrum skemmdum án þess þó að nokkur um borð slasaðist. Þegar klukkan var farin að ganga sjö um kvöldið fundust ijórir til viðbótar grafnir í snjónum. Ein stúlka, lún 14 ára Elma Dögg Frostadóttir, fannst á hfi en hinir þrír voru látnir. Um tveimur tímum síðar féll svo annað snjóflóð úr Traðargih, flóðið sem menn óttuðustu svo mikið í upphafi, og olh það miklum skemmdum á nokkrum húsum en enginn varð fyrir flóðinu. Flóðið lneif aftur á móti með sér nokkra rafmagnsstaura sem olh því að Súðavík varð nánast alveg raf- magnslaus og ekki var það til að auðvelda björgunarstörf. Um nótt- ina voru um 140 björgunarsveitar- menn að störfum á svæðinu sem skiptust á við að leita að þeim sem saknað var. „Ég gerði mér ekki grein fyrir þessu strax, það var ekki fyrr en að ég var kominn inn í hús sem ég áttaði mig á því að ég hafði lent í snjóflóði. Ég vaknaði við að rúðan í svefnherberginu mínu sprakk og fataskápurinn datt ofan á mig. Ég hélt að þakið á húsinu hefði rifnað af og beið eftir því að bróðir minn, I Allt í rúst Hreinsunarstarf á Súðavik tók I margar vikur enda hreifflóðið allt sem á I vegi þess varð með sér. sem hafði gist annars staðar, kæmi að hjálpa mér. En hann komst auðvitað ekkert að bjarga mér,“ sagði Elma Dögg Frostadóttir í sam- tali við DV fyrir skemmstu þegar hún rifjaði atburðina upp. Á lífi eftir sólarhring í snjón- um Rétt fyrir klukkan sex morgun- inn eftir fannst svo sá síðasti á lífi, tæpum 24 tímum eftir að flóðið féll. Það var hinn tíu ára gamh Tomasz Lupinski sem fannst vafinn inn í sængina í rúmi sínu, grafinn undir milhvegg og annað brak úr húsi sínu. Hann var við furðu góða heilsu þegar björgunarmenn fundu hann og spurði strax hvar hann væri staddur enda hafði hann ekki hug- mynd um hvað hafði gerst. Dreng- urinn var mikið marinn í andliti og kaldur á fótum en annars í sæmi- legu ástandi. „Ég var ekki búinn að grafa lengi þegar ég fann drenginn. Ég var að moka frá vegg og fann að það var mjúkur snjór undir. Þegar við ago Aðalsteinn Rafn Kristján Númi Hafsteinsson, 2 ára Hafsteinsson, 4 ára Aðalsteinn Rafn Hafsteins- Kristján Númi Hafsteins- son fæddist 29. september son fæddist 7. október 1992 og var því ekki nema 1990 en hann lést ásamt rétt rúmlega tveggja ára systkinum sínum tveimur, þegar hann lést ásamt Adalsteini Rafni og Hrefnu eldri bróður sinum og Björk. Þau voru börn hjón- systur ísnjóflóðinu sem anna Hafsteins Númason- féll á Súðavik. Aðalsteinn ar og Berglindar M. Krist- litli var sonur hjónanna jánsdóttur. Hann svaf við Hafsteins Númasonar og hlið móður sinnar nóttina Berglindar M. Kristjáns- örlagaríku en hún bjarg- dóttur. aðist úr flóðinu. Hafsteinn faðir Kristjáns var um borð i togaranum Bessa sem lá úti fyrir Súðavíkurhöfn þegar snjóflóðið féll á bæinn. Hrefna Björg Hafsteinn Björnsson, Hafsteinsdóttir, 7 ára 40 ára Hafsteinn Björns- Hrefna Björg Hafsteins- son fæddist 9.júli árið dóttir fæddist 10. ágúst 1954. Hann bjó að Tún- 1987 en fórst i snjóflóðinu götu 6 á Súðavik sem varð á Súðavik ásamt bræðrum fyrir snjóflóðinu mikla sem sínum tveimur. Hún var tók íþað heila með sér 14 elst þeirra systkina og mannslíf, þar aflífHaf- barna hjónanna Hafsteins steins og fósturdóttur Númasonar og Berglindar hans, Júliönnu. Hafsteinn M. Kristjánsdóttur sem og fjölskylda hans höfðu misstu öll börnin sín þenn- ekki búið lengi á Súðavik an viðburðarikadag íjanú- þegar atburðurinn áttu sér armánuði fyrir 10 árum. stað. Hafsteinn skildi eftir Hrefnu Björgu var lýst sem sig eiginkonu, Björk Þórð- einstaklega kurteisu,glað- ardóttur, móður Júliönnu væru og kátu barni sem sem einnig fórst i flóðinu. hafði gaman afþviað leika sér með vinum sinum og passa litlu bræður sina. Júlíanna Bergsteins- Bella Aöalheiður dóttir, 12 ára Vestfjörö, 39 ára Júlianna Bergsteinsdóttir Bella Aðalheiður Vestfjörð fæddist i Sviþjóð 21. mars fæddist í Hafnarfirði þann árið 1982. Fósturfaðir 15. mars árið 1955. Hún hennar, Hafsteinn Björns- átti dótturina Petreu son, lést einnig i flóðinu. Vestfjörð sem einnig fórst i Júlianna var nýflutt til flóðinu. Móðir Bellu, Súðavikur ásamt fjöl- Ragna Aðalsteinsdóttir, skyldu sinni þegar hamfar- þurfti að horfa á eftir dótt- irnar áttu sér stað en áður ur sinni og dótturdóttur og hafði hún búið i Mosfells- var það ekki i fyrsta skipt- bæ þar sem hún gekk i ið sem snjóflóð tók barn skóla. Henni var lýst sem hennar þar sem sonurinn hvers manns hugljúfi og Gunnar Bjarki, bróðir Bellu var sögð eitt afþessum Aðalheiðar, lést i snjóflóði börnum sem allir kunna á Óshlíð árið 1989. Bella vel við. Hún var alltafkát Aðalheiður var alin upp i og skemmtileg í fasi og nágrenni Súðavikur þar framkomu. Júlianna átti sem hún siðar settist að tvö hálfsystkini. ásamt dóttur sinni. Þeim og Wiestawu og Tómasz Lupinski sem björguðust úr flóðinu við illan leik var vel til vina. Mæðgurnar höfðu skipulagt ferðalag um Pólland ásamt þeim Wieslawu og Tómaszi sem fara átti sumarið 1995 en vegna hamfaranna komust þær aldrei i þá ferð. Petrea Vestfjörð, 12ára Petrea Vestfjörð fæddist þann 21. mars árið 1 982 og var þess vegna ekki nema 12 ára þegar snjóflóðið varð henni og móður hennar að bana. Petrea, sem í daglegu tali var aldrei kölluð annað en Pettý, þótt lífsglöð ung stúlka sem ávallt stóð sig vel i námi og öðru þvi sem hún tók sér fyrir hendur. I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.