Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2005, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 75. JANÚAR 2005
Helgarblað DV
Framhaldaf
fyrriopnu
Ragna Aðalsteinsdóttir missti dóttur sína og barnabarn í snjó-
flóðinu á Súðavík fyrir 10 árum. Það eru ekki einu ástvinir
hennar sem látist hafa í snjóflóðum því sonur hennar lést í
Óshlíð árið 1989. Ragna er þess fullviss að hægt hefði verið að
komast hjá þessum mikla harmleik ef hlustað hefði verið á snjó-
flóðaeftirlitsmanninn Heiðar Guðbrandsson.
Hefði verið hægt að afstýra þessu
„Hannvar alltaf
að reyna að
vara fólk við en
ekkert mark var
á honum tekið."
I Ragna Aðalsteins-
I dóttir Hefur misst fjöl■
j marga vini og fjölskyldu-
I meðlimi í snjóflóðum um
j ævina. Hún er er sáryfir
I þvl að ekki hafi verið
| hlustað á Heiðar snjó-
I flóðaeftirlitsmann sem
| sá hörmungarnar fyrir.
„Það eru vægast sagt blendnar til-
finningar sem brjótast um í bijósti
manns á þessum tímamótum," segir
Ragna Aðalsteinsdóttir, bóndi á Lauga-
bóli, en hún missti dóttur sína og dóttur-
dóttur í Snjóflóðinu á Súðavík fyrir 10
árum. Áður hafði hún horft á eftir öðru
bami sínu þegar sonur hennar lést í
snjóflóði sem féll á Óshlíð árið 1989.
Marga misst í snjóflóðum
„Nú á að minnast snjóflóðsins með
einhverri athöfn en mér finnst það bara
vera gert 10 ámm of seint," segir Ragna
sem hefur þurft að þola fleiri raunir í
gegnum ævina en það að missa tvö börn
og bamaböm í snjóflóði. Hún hefur
þurft að gh'ma við mikla sorg um ævina
en ávallt haldið ótrauð áffam að lifa
h'finu eins vel hún getur.
„Síðan vom þrír piltar héma hjá mér í
sveit sem fórust líka. Einn lést þegar flóðið
féll á Flateyri, annar á Þingeyri og sáþriðji
hreinlega fyrirfór sér í kjölfar þess. Alagið
var hreinlega of mikið," segir Ragna. Fyrir
þremur árum misstí hún svo annað
barnabam þannig að hún hefúr kynnst
meiri sorg en flestir gera um ævina.
„Nú á ég bara eitt barn eftír, son sem
býr í Reykjavík og hann á börn sjálfúr,"
segir Ragna en henni hefur þrátt fyrir
mikið erfiði aldrei komið til hugar að lina
þjáningar sínar með því að taka eigið h'f.
„Það þýðir ekkert að leggjast með
tæmar upp í loftið og velta sér of mikið
upp úr þessu. Ég hef alltaf séð til þess að
ég hafl nóg að gera við vinnu og annað
Cí r~ . A
og þannig hefur mér tekist að taka á
þessu. Ég veit reyndar ekki hvort mér
hefur tekist að vinna úr þessari sorg og
þegar ég hugsa um það þá hefur mér
ekki tekist að sætta mig við þetta og mér
mun seint takast að vinna mig fyllilega út
úr þessari sorg," segir Ragna.
Ætlar að sækja minningarathöfn
Ragna er alls ekki sátt við hvernig
staðið var að málum á Súðavík nóttína
fyrir morguninn örlagaríka þegar 14
manns létu lífið í snjóflóðinu. Hún ætlar
samt sem áður að vera viðstödd minn-
ingarathöfnina um þá sem fórust á
morgun.
„Ég hugsa nú að ég geri það. Ég var
lengi á báðum áttum en læknir minn,
sem er jafnframt minn bestí vinur, ætlar
með mér þannig að þetta ættí að vera í
lagi. En þetta er nú engin gleðihátí'ð og ég
skil hreinlega ekki hvers vegna verið er
að halda þetta. Það á að vera búið að
þessu fyrir löngu. Mér finnst eins og það
sé verið að teygja lopann með því að vera
alltaf að rifja þetta upp ár eftir ár. Það er
alltaf verið að pikka í sárin og það finnst
mér ekki góð aðferð til að takast á við
þetta. En ég er samt nokkuð ákveðin í að
mæta," segir Ragna.
Gefst aldrei upp
Sem betur fer þurfa fæstir hér á landi
að ganga í gegnum raunir llkt og Ragna
hefur þurft að þola um ævina en hún seg-
ir það hjálpa að geta talað um hiutina.
„Já, saga mín er kannski ekki sú
skemmtilegasta en maður reynir alltaf að
halda áfram. Ég hef verið dugleg við að
vinna og halda mér þannig gangandi. Þá
hugsar maður minna um þetta," segir
Ragna sem hefur samt alltaf getað rætt
dauða bama sinna og bamabama við þá
sem henni þykir vænt um.
„Ég get talað um þetta og það hjálpar
mikið. Ég byrja nú ekki að tala um þetta
að fyrra bragði en ég hef alltaf getað svar-
að spumingum og rætt um þetta svoleið-
is. Það fer ekkert í taugarnar á mér, það
fer hins vegar í taugarnar á mér að það er
eins og verið sé að reyna að græða á
dauða þessa fólks sem þama fórst með
því að vera stöðugt að rifja þetta upp og
reisa minnisvarða og annað slíkt," segir
Ragna. Henn þykir sárast að ekki hafl
verið hlustað á snjóflóðaeftírhtsmann-
inn Heiðar Guðbrandsson sem hafði
varað við flóðinu kvöldið áður.
Heiðar sá þetta fyrir
„Hann Heiðar Guðbrandsson snjó-
flóðaeftirhtsmaður, sem reyndar er dáinn
núna, sá þetta fyrir áður en það gerðist.
Það áttí auðvitað að fara eftír hans matí
enda Heiðar maðurinn sem hafði vit á
þessu en ekki sveitarstjórinn," segir
Ragna og bætir við að þáverandi sveitar-
stjóri Súðavíkur og formaður almanna-
vamanefiidar þar í bæ, Sigríður Hrönn
Eh'asdóttir, hafi ekki viljað hlusta á Heið-
ar.
„Ég er frekar sár út af þessu því fólk á
ekki að taka að sér embættisverk og
sinna þeim ekki. Það hefði verið hægt
að komast hjá dauða alls þessa fólks ef
hlustað hefði verið á hann Heiðar.
Hann var alltaf að reyna að vara fólk við
en ekkert mark var á honum tekið,"
segir Ragna og bætír við að flestir sem
fómst í flóðinu væm á besta aldri í dag
ef hörmungamar hefðu ekki átt sér stað.
„Það þýðir samt ekkert að beina reiði
sinni að einhverju fólki eftír á en þetta er
sorgleg staðreynd. Bæði ég og Hafsteinn
Númason, sem misstí börnin sín þrjú
þennan dag, höíúm verið mjög fúl yfir
þessu síðan þetta áttí sér stað. En ég ætla
nú samt að sækja minningarathöfnina á
morgun þótt ég sé allt annað en sátt við
hvemig að þessu var staðið á sínum tíma
og hvernig staðið er að þessu enn þann
dag í dag."
Ómar Már Jónsson sveitar-
stjóri á Súðavík segir Súð-
víkinga bratta í eðli sínu.
Eyðileggingin
blasti við þegar
rofaði til
„Ég var reyndar búsettur á ísafirði þegar þessir at-
burðir áttu sér stað en um þær mundir var ég stýrimað-
ur á Bessanum," rifjar Ómar Már Jónsson, núverandi
sveitarstjóri á Súðavík, upp. Togarinn Bessi kom nokkuð
við sögu í björgunaraðgerðum þennan örlagaríka dag
sem Ómar sem og aðrir sem þetta upplifðu muna vel.
Sá eyðilegginguna
„Við gátum ekld lagst að bryggjunni vegna veðurs en
maður tók þátt í björgunaraðgerðum á fsafirði og líka á
Súðavík þegar það mesta var afstaðið. Þetta hafði mikil
áhrif á mann, fyrstu fréttir sem við um borð fengum
voru að vísu mjög óljósar og um tíma héldum við að
flóðið hefði farið yfir stærri hluta bæjarins," segir Ómar.
„Það er mér minnisstætt þegar ég gekk frá höfninni
ásamt kunningja mínum í svartasta byl. Síðan, rofaði
stuttlega til og við sáum yfir bæinn. Þá blastí eyðilegg-
ingin við manni og maður áttaði sig á því að það var stór
eyða í bænum," segir Ómar en segir lífið á Súðavfk vera
gott í dag.
„Súðvíkingar eru brattir í eðh slnu, hafa aðlagast
breyttum aðstæðum vel og það er hugur í þeim. Sveitar-
félagið stendur nokkuð vel fjárhagslega og öfugt við aðr-
ar byggðir hefur verið hér talsverður húsaskortur síðustu
ár. Það stendur því til að byggja tvö ný einbýlishús og
atvinnuhúsnæði á næstunni," segir sveitastjórinn sem
eins og aðrir Súðvfldngar mun vera viðstaddur minning-
arathöfn um þá sem létust á morgun.
Komu hvarvetna að opnum dyrum
„Við ætlum að hafa minningarathöfn hérna í íþrótta-
húsinu á morgun. Við höfum gert þetta áður en ekki lát-
ið fara mikið fyrir því en vegna þessara tímamóta hefúr
kastljósið aðeins beinst að okkur
og þess vegna höfúm við boðið
þeim sem vilja að mæta og
láta sjá sig," segir Ómar Már.
„Það sem situr eftir að
loknum þessum atburðum
eru þakkir tíl þeirra sem
tóku þátt í björgunarað-
! gerðum. Þetta eru hetjur
sem Jdífðu sér í engu við að
leita dag sem nótt og svo var
ómetanlegt hversu vel þjóð-
in stóð á bak við okkur.
Samhugurinn var mikill og
að loknum þessum atburð-
um komu Súðvfldngar hvar-
I Sveitastjórinn Ómar vetna að opnum dyrum,"
I Már segir mikinn hug i segir Omar Már.
I Súðvikingum.
Kistur hinna látnu koma til Reykjavíkur Þjóðin
sýndi mikinn samhug eftir snjofloðið en fæstir
trúðu þvi i fyrstu að svona nokkuð gæti gerst.
Björgunarmenn og -hundar Björgunarmenn frá
Isafirði sem komu fyrstir til hjálpar höfðu med sér
leitarhunda sem skiptu sköpum við leitina.
L_J .Jm
AÐGANGUR
Vorleysingar Þegar snjóa tók að leysa um
vorið mátti sjá föt, húsgögn, leikföng og
aðrar eigur fólksins hvarvetna.