Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2005, Síða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2005, Síða 34
34 LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2005 Helgarblaö DV / Kanebo „púðurmeik" „Kanebo púðurmeikið er alveg frábært, hvorki þykkt né þunnt. Þetta er sá hlutur í snyrtibuddunni sem ég er ekki tilbúin að skipta út. Þetta er frábært fyrir þá sem nenna ekki að standa í að hafa bæði fljótandi meik og púður, sparar tíma og fyrirhöfn." i uppa- Kinnalitir haldi “Ég hef ótrúlega gaman kinnalitum en þeir eru sá farði sem ég vil helst vera án. Þessir þrír eru frá Mac og heita þeir: Pinch me, Pink Swoon og Folish me, sem sagt skemmtilegum og frísklegum nöfn af dökki er aftur á móti fyrir hátíðlegri tilefni og heitir hann því skemmti- lega nafni Phone number." Varaglossinn hávísindalegur “Gloss er lífsnauðsyn og eigin- lega má segja að þeir séu orðnir að hálfgerðri vísinda- grein hjá mér og hika ,lv , ég ekki við að blanda þeim saman til að fá sem besta útkomu. Ég hugsa að ég eigi um það bil 50 stykki en þessir tveir hafa algerlega vinning- inn. Þessi minni heitir Pink Lemonade og kemur frá Mac en hinn heitir Cerise og er hann einn af Juicy tubes glossunum frá Lancome." I Augnskugginn “Augnskugginn minn heitir Satin taupe og kemur frá Mac, hann hefur al- veg haft vinninginn af þeim sem ég hef prufað." Oökkt og Ijóst eftir því sem við á "Ég á tvo augnblýanta frá Mac, annar er ljós og heitir Dig it! og hann nota ég hversdagslega, sá Þóra Sigurðardóttir umsjónarmaður Stundarinnar okkar ætlar að ieyfa okkur að kfkja ofan f snyrtibudduna sína f þetta skipti. Þóra er, eins og flestir landar okkar hafa tekið eftir, með frísklegt og fallegt útlit sem flestum finnst afar eftirsóknarvert. Mesti snilldar maskari í heimi “Maskarinn minn kemur frá Christian Dior og heitir Diorshow. Þetta er mesti snilldar maskari í heimi en hann gerir augnhárin ótrú- lega löng og falleg, akkúrat eins og maður vUl hafa þau. Eftir að hafa prufað hann verður ekki aftur snúið." Somjai Sirimekha kom frá Tælandi til íslands sem barnapía fyr- ir 10 árum. Hún féll fyrir landi og þjóð og ákvað að búa áfram á íslandi þar sem hún er nú verkefnastjóri í Alþjóðahúsinu. „Ég kom fyrst tU landsins af ein- skærri forvitni og starfaði þá sem au pair. Þó mér þætti svakalega kalt hérna og maturinn oft hálf undar- legur, þá féll ég algerlega fyrir landi og þjóð" segir Somjai Sirimekha verkefnisstjóri túlkaþjónustu og þýðingasviðs Alþjóðahússins. Somjai eða Jai, eins og hún er venju- lega kölluð, kom hingað fyrir um það bU tíu árum síðan og líkar vel. Sérstaklega er hún ánægð með það hvað matarmenning íslendinga hef- ur batnaði mikið með árunum. Nú sé hægt að náigast flest allt sem hug- urinn girnist í næstu matvörubúð, segir Jai feginsamlega. „Ég hef mjög góða reynslu af ís- lendingum, þeir eru skemmtUegt og faUegt fólk og hér hef ég eignast frá- bæran vinahóp og góða félaga. Tæland togar samt oft í mig. Þegar ég verð eldri væri ég til að fara tU baka og stofna veitingastað eða ferðafyrirtæki, en það verður ekki strax." Gaman að geta hjálpað Jai hefur unnið hjá Alþjóðahús- inu frá árinu 2001 eða allt frá stofn- un þess. „Mér finnst starf mitt hér í Alþjóðahúsinu mjög skemmtilegt og spennandi því það gefur manni tækifæri til að hjálpa fólki með svo ótal margt. Þegar fólk kemur fyrst inn í landið þarf það hjálp við svo margt, til dæmis við húsnæðisleit og þegar það leitar sér læknis. Það tek- ur alla dálítinn tíma að læra og ekki er hægt að ætlast tU þess að fólk kunni strax inn á alla þætti samfé- lagsins. Við í Alþjóðahúsinu viljum efla þekkingu og skilning fólks á öðrum löndum. Hér veitum við ráðgjöf bæði fyrir údendinga sem íslend- inga og fría lögfræðiaðstoð." Erfitt að trúa því að svona geti gerst Það verður ekki hjá því komist að spyrja Jai um þær hörmungar sem Somjai Sirimekha Saknar Tælands en finnst gott að bua d Islandi. nýlega riðu yfir heimaland hennar. „Mér líður auðvitað hrikalega illa yfir þessu. Ég á nokkra félaga og vini sem enn er saknað og því hverfandi líkur á að þau eigi eftir að finnast á lífi, maður reynir samt að halda í vonina." Þar fyrir utan slösuðust tveir fjölskyldumeðlimir hennar en sem betur fer var það ekki alvarlegt. „Mér hefur liðið mjög Ula eftir þessa atburði eins og svo ótal mörgum öðrum víða um heim. Mér finnst ég ekki enn geta trúað því að svona nokkuð geti gerst." Þykir vænt um bæði löndin „Það hefur bæði kosti og galla að kynnast öðrum löndum. Mér þykir innilega vænt um ísland en Tæland togar samt £ mig eins og ég hef áður sagt. Menningarmunurinn er ekki jafn mikið vandamál og margir halda. Vissulega var undarlegt að koma frá landi þar sem Búddatrú ríkir og til kristins lands en það hef- ur samt gengið vel hjá mér. Það ætti samt ekki að vanmeta þau vandamál sem tungumálið veldur, auðvitað vill fólk læra málið en það reynist mörgum erfitt og þess vegna snúa margir aftur. Við í Alþjóðahúsinu reynum samt að aðstoða alla eins og við getum." í verslun hennar kennir ýmissa grasa úr fjölbreyttri flóru íslenskrar hönnunar. „Helst leggjum við áherslu á að vera með fallega, ís- lenska hönnun, þó í bland við inn- fluttar vörur eins og kínaskó, thai- buxur og ýmislegt skart. Við fókuserum einna helst á götutísk- una og gætum okkar á því að vera ekki með mikið af sömu vöru, held- ur einbeitum við okkur að því að skapa ferska strauma í fatalínum samtímans. Við byrjuðum á því að vera með marga hönnuði en með tímanum höfum við valið úr hópn- um og þeirra merki eru í raun orðin föst merki í búðinni. Þetta gengur nú mjög vel og mjög greinilegur áhugi er nú á öllu því sem tengist hönnun og þá sérstaklega ís- lenskri," segir Bryndís ísfold Hlöðversdóttir, sem greinilega er stödd á réttri hillu. Reyndar veltir maður því samt fyrir sér hvort kraftakona eins og hún sé ekki alltaf stödd á réttri hillu. i „Ég var í háskól- ) anum og var orðin 2 örlítið leið á því að sitja á skólabekk. Mér datt svo í hug að opna búð og ákvað bara að drífa í því,“ segir kraftakonan okkar, hún Bryndís ísfold Hlöðversdóttir, 28 ára Bryndís fsfold Hlöðvers- dóttir Eigandi verslunarinnar Oni, háskólanemi og ungpólitlkus. verslunareigandi, hönnuður, há- skólanemi og ungkrati. Bryndís er ein af þeim fáu sem má með sanni Kraftakonan og stolti kalla sig athafnakonu. Þó hún hafi stofnað verslun til að hvíla sig á lærdómnum, lét hún ekki af náminu heldur minnkaði við sig, en hún situr nú kúrsa í stjórnmála- og viðskiptafræði. Lét draumlnit rætast og opnaði búð

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.