Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2005, Blaðsíða 32
J~* J* (í t t íljjj í 0 Í! Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem
birtist, eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið íhverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar
^nafnleyndar er gætt. Q ZJ 0 (J 0
SKAFTAHLÍÐ24, Í05REYKJAVÍK [ST0FNAÐ 7970] SÍMI5505000 5 6907Í0 TlTÍT?
r
• Þjóðemiskennd
íslendinga fer á yf-
irsnúning þegar
eina landslið okkar
í hópíþrótt sem náð
hefur teljanlegum
árangri keppir. ís-
lenska handbolta-
landsliðið keppti við smáþjóð
Slóvena á heimsmeistaramótinu
í gærkvöldi og tapaði. Athygli
vakti að einungis 8 af 14 lands-
liðsmönnunum sungu þjóð-
sönginn fyrir
leikinn. Eða í
það minnsta
hreyfðu varirn-
ar. Roland Er-
atze og Alexand-
er Peterson em
reyndar stikkfrí,
því þeir eru af erlendu bergi
brotnir...
Eru þau búin að
prófa Glæsibæ?
Ásttangnan Idol-stjörnur Ofsottar
af grislingum í Kringlunni
Heigi Arason Idol-söngvari á fót-
um sínum fjör að launa á almanna-
færi ef marka má skrif hans sjálfs á
netinu.
„Úff, hvað þetta er farið að verða
skrýtíð! Maður getur ekki orðið farið í
Kringluna eða Smárann og fengið sér
að borða án þess að það myndist bið-
röð af galandi grislingum,11 skrifar
Helgi og bætir við:
„Hvað þá þegar við Brynja förum
eitthvað saman:) En já, það er sem
sagt ekki lengur leyndó að við erum
saman! Og hananú;)."
Ofangreint innlegg Helga er skrif-
að inn á mánudaginn var, sama dag
og DV greindi frá ástarsambandi
Helga við keppinaut hans í Idol,
Brynju Valdimarsdóttur frá Akranesi.
Sást til parsins þar sem þau voru í
keilu í Öskjuhlíðinni.
„Annars fórum við í keilu í gær...
mættum á svæðið og keyptum einn
leik en nei, það var allt KRÖKKT af
krökkum (krökkt, krökkum...
hmm...) þarna og við lentum í að
skrifa nafnið okkar þar til við vorum
orðin handlama," lýsir Helgi aðkomu
þeirra Brynju að Keiluhöllinni og
skrifar síðan:
„Svo fórum við og tókum keiluna
okkar sem ég TAPAÐI!.. með 1 stígi!
Vill kalla þetta stelpuheppni í keilu,
stelpur grísast alltaf til að gera fellur í
keilu með því að sleppa kúlunni á
brautína á meðan við strákamir puð-
um við að þrykkja henni eins beint og
við getum!"
Eins og flestir vita er keppendum í
Idol harðbannað að ræða við fjöl-
miðla á meðan á keppninni stendur
en geta þó vitanlega ekki rönd við
reist verði þau á vegi ljósmyndara á
opinberum stöðum.
„Við sem sagt vorum þarna og fór-
um svo út og í þann mund sem við
fórum út tökum við eftir þessum ljós-
myndara. Við gerðum ekkert, fórum
sinna.
bara út í bíl og settumst inn og hann
bara eltí okkur og tók myndir af okkur
að keyra í burtu og lætí! Maður vissi
ekkert hvernig maður átti að hegða
sér, en við ákváðum alla vega að
vera ekkert að hjóla í hann eins og
alvöru celebs (enda hefði ég varla
tekið hann) hehe..,“ skrifar Helgi
sem fyrr um daginn hafði farið
með Brynju og hinum Idol-
krökkunum í vélsleða-
ferð. „Dúndurstuð
Mikið af tökum
og svona en
samt; frá-
bær dag-
ur!
Helgi og Brynja„Þoð ersem
sagt ekki lengur leyndó að við
erum saman! Og hananú," skrifar
Helgi Arason á bloggsíðu sina.
Næsta föstudag er sálarþema í
Idol. Helgi segist ætla að gera sitt
besta. „Treysti á ykkur sem eigið síma
að taka til hendinni og
hjálpa litla mannin-
um,“ biðlar hann til
lesenda
Minkaveiðar
Á Sauðárkróki
hefuröllum
brögðum verið
beittgegn mink
ogref.
Ferðamenn í stríðið gegn
minkum
Hugmyndir em uppi í
Skagaflrði um að leyfa
almenningi og ferða-
mönnum að skjóta ref og
mink undir eftirliti leið-
sögumanna. Það er Jón
Garðarsson bóndi sem kom
með hugmyndina að veið-
unum og telur hann að þær
gætí haft viðlíka gildi fyrir ferða-
mannaiðnaðinn og hreindýra- og lax-
veiði. Minkafaraldur var í Skagafirði í
sumar og haust. Minkurinn athafnaði
sig hinn spakasti í görðum íbúa á
Sauðárkróki, við litla hrifningu
mannfólksins. Nú á sem sagt að snúa
vöm í sókn.
Hingað til hefur sveitarfélagið
borgað talsverð-
ar upphæðir til manna fyrir að veiða
ref og mink. En með nýjum hug-
myndum bóndans á Neðra-Ási n
munu útgjöld breytast í tekjur þegar
almenningur skýtur dýrin undir leið-
sögn þaulvanra refaveiðimanna.
Atvinnu- og ferðamálanefnd hefur
samþykkt tillöguna og er nú unnið að
nánari útfærslu á því hvemig al-
menningur getur drepið ref og mink.
Aldraðir standa siq í
hálkunni
Undanfama daga hefur mikil
hálka vegið að undirstöðum ís-
lendinga og er ljóst að gangandi
vegfarendur þurfa að passa sig.
Samkvæmt upplýsingum frá slysa-
deild Landspítalans er ekkert meira
að gera nú en áður. Eldri borgarar
eru stór hluti gangandi vegfarenda
og því koma þessar upplýsingar
talsvert á óvart. Þrátt fyrir að ávallt
sé mikill erill á þessum tíma er ekk-
ert meira að gera nú en venjulega.
Upplýsingar frá Landspítalanum
herma að svo virðist sem fólk passi
sig meira nú síðla vetrar en áður.
Athygli er vakin á því að um er að
ræða fólk á öllum aldri og virðist
samkvæmt upplýsingum slysa-
deildar að eldri borgarar séu farnir
að hafa meiri vara á en áður. Ekki
hefur slysum Qölgað meðal eldri
borgara frekar en hjá öðrum
aldurshópum sökum hálkunnar.
Eldri maður Svo virðistsem
eldra fólk venjist hálkunni
þegar llður á veturinn.
Gangandi vegfarendur eru beðnir
um að fara varlega á göngu sinni
um borgina þar sem hált er og nota
mannbrodda.
Magnaður einleikur!
„Jóhann Sigurðarson segir okkur þessa sögu á látlausan
og fallegan hátt og heldur okkur við efnið frá upphafi
,til enda með dyggum mótleik tónlistar Agnars Más
Magnússonar píanóleikara, sem hefur samið með
snilldarlegu handbragði áhrifamikla og sterka músík."
Hafliði Arngrimsson, Viðsjá, RÚV, 22.11.2004
„... einn af þessum listrænu viðburðum sem getur
fengið fólk til þess að hægja aðeins á hasarnum og
leyfa sér einfaldlega að hrífast með í atburðarrás sem
máluð er í orðum og tónum."
Elisabet Brekkan, DV, 23.11.2004
„...við mælum eindregið með Nítjánhundruð ef fólk
hefur gaman af að hlusta á góða sögu..."
Lisa Pálsdóttir, Rás 2, 23.11.2004
ÞJOÐLEIKHliSIÐ