Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2005, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 2005
Helgarblað DV
Sérútbúnir
,jðaliansól3rtH’
Sæmundur Kr. Sigurlaugsson, fram-
kvæmdastjóri Hreyfils. Segirheiminn
farn versnandi. Erlendis hefur notkun ör-
yggisbúnaður ileigubita aukist.
Sæmundur Kr. Sigurlaugsson segir
flesta farþega vera til sóma en þó séu
alltaf einhverjir sem eru erfiðir.
Tímabært að skoða ör-
yggisbúnað
Sæmundur Kr. Sigurlaugsson,
framkvæmdastjóri Hreyfils, segir
árásir á leigubflstjóra áhyggjuefni.
Hann segir öryggiskerfi vera til
staðar í leigubflum en ljóst að það
þurfi að skoða það betur. „Það er
neyðarhnappur í bflunum sem
kveikir á talstöð bflanna en þegar
alvarlega árásir verða kernur eðli-
lega fát á menn og þeir fatta ekki
að ýta á hann. Við þurfum að brýna
fyrir mönnum að hann sé til staðar
og það eigi að nota hann,“ segir
Sæmundur.
Víða erlendis hafa leigubflstjór-
ar GPS-staðsetningartæki í bflun-
um svo hægt er að miða út stað-
setningu þeirra þegar neyðarkall
íleigubílum
berst. Sæmundur segir það ekki
vera í leigubflum hérlendis. „Það
hefur verið rætt um að setja
myndavélar í bflana, en ekkert orð-
ið úr því. I Danmörgu hafa fleiri og
fleiri leigubflstjórar til dæmis sett
myndavélar í bflana." Sæmundur
segir það vera alveg ljóst að hættur
sem steðja að leigubflstjórum séu
fyrir hendi. „Heimur versnandi fer.
Það kemur lfldega að því að þessi
öryggisbúnaður verði settur í bfl-
ana en hann er gríðarlega dýr. Við
erum þó heppnir miðað við þann
Qölda farþega sem við keyrum
daglega. Upp tfl hópa er þetta fólk
til sóma, en það eru alltaf einhverj-
ir sem eru með læti."
Aðfaranótt 28. júlí var hringt í Neyðarlínuna. „Ég var skorinn
á háls af rónum,“ sagði leigubflstjóri staddur í Vesturbænum.
í annarri hendi hélt hann á farsímanum, með hinni hélt hann
fyrir blæðandi svöðusár á hálsinum. Hann hafði orðið fyrir
fólskulegri árás af hendi farþega. Leigubflstjórinn lifði árásina
af fyrir kraftaverk en engu mátti muna að slagæðin færi í
sundur. Líf leigubflstjórans er breytt eftir árásina en hann
þjáist af streitu, kvíða og svefnleysi.
„Ég man ekki effir þessu,“ sagði
Guðbjartur J. Sigurðsson fyrir rétti f
gær. Honum er gefið að sök að hafa
skorið leigubflstjórann á háls. Hann
var farþegi í bflnum ásamt þremur
félögum sínum. Leigubflstjórinn tók
mennina upp í og keyrði þá um
Reykjavík. í Vesturbænum fara þrír
þeirra út úr bflnum. Einn situr eftir í
bflnum og leitar eftir peningum til að
greiða iyrir keyrsluna. Ákærði stend-
ur fyrir utan bflstjóragluggann sem er
opinn. Leigubflstjórinn veit ekki fyrr
en hann finnur eitthvað heitt leka
niður bringuna á sér. Hann sér mikið
blóð og þreifar hálsinn á sér og finn-
ur þar opið sár sem nær frá barka og
undir eyra. Hann sér ákærða draga
að sér höndina.
Munaði litlu
Leigubflstjórinn bar vitni í hér-
aðsdómi f gær og lýstí atvikum. Eftir
árásina dró fljótt af honum enda
blæddi mikið úr hálsinum á honum.
Hann fer út úr bílnum, nær að
hringja í Neyðarlínuna úr farsíma
sínum og ráfar að nálægu húsi.
Ákærði gengur í burtu. „Hlutimir
gerðust hratt,“ segir leigubflstjórinn.
Von bráðar kom lögreglan sem
handtók hina farþegana í bflnum.
Síðar sama kvöld var ákærði hand-
tekinn. Leigubflstjórinn má teljast
heppinn að ekki fór ver. Skurðurinn
náði djúpt en skaðaði hvorki barka
né slagæð. Litlu máttí þó muna.
Sár á sálinni
Stórt og áberandi ör er greinilegt
á hálsi leigubflstjórans. Framundan
er Qöldi lýtaaðgerða til að reyna að
fjarlægja það. En sárið innra með
honum er ekki hægt að afiná. Leigu-
bflstjórinn sagði fyrir dómi í gær að
eftir atburðinn hefði hann misst
löngun til að vera innan um fólk, fé-
lagsveran sem hann var er horfin.
Hann vill aldrei framar keyra leigu-
bfl. Hjúkrunarfræðingur bar fyrir
réttí að leigubflstjórinn þjáðist af
áfallastreitu vegna atburðarins,
hann lentí í alvarlegri árás og var í
lífshættu. Afleiðingamar fyrir sálarlíf
hans séu ljósar og líklega þurfi hann
að fara í sálfræðimeðferð.
Iðrast en neitar sök
Lögreglan bar vitni og sagði að
Guðbjartur hefði verið afar drukkinn
umrætt kvöld. Tveir samferða-
manna hans bám einnig vitni, þeir
sögðust hafa verið undir áhrifum
áfengis umrætt kvöld en mundu þó
eftir atburðinum. Allir em þeir
þekktir óreglumenn. Guðbjartur
man ekki eftír árásinni. í skýrslu geð-
læknis kom fram að Guðbjartur væri
sakhæfur en ættí við áfengisvanda
að sm'ða. Við neyslu áfengis verða
breytingar á honum og hann þjáist af
óminni. Geðlæknirinn sagði Guð-
bjart hafa verið fullan iðmnar, en
neitað sök. Hann sagði þó að ef hann
hefði verið sá sem framdi verknað-
inn væri það hræðilegt.
Öryggismál í óefni
Árásir á leigubflstjóra em að
þeirra sögn mun algengari en ætla
mætti. Leigubflstjórinn segist ekki fá
neitt greitt út úr tryggingum vegna
árásarinnar þar sem tryggingar
leigubflstjóra virðist eingöngu gilda
þegar bfllinn er á ferð og gjaldmælir
í gangi. Hann hafi hins vegar verið
stopp þegar árásin var gerð og segir
þetta sæta furðu. „Það felst miklu
meira en bara keyrsla í okkar starfi.
Við hjálpum fólki í og úr bflum og
fleira." Honum finnst undarlegt
hvernig er komið fyrir tryggingamál-
um leigubflstjóra og öryggismálum.
Starfið er hættulegra en marga
grunar. Umrætt mál ber þess glöggt
vitni. toi@dv.is
Guðbjartur J. Sigurðsson gengur út úr réttarsal. Hann segist ekki muna eftirþvf að
hafa skorið leigubilstjóra á háls þar sem hann var ofurölvi þegar verkanðurinn átti sér stað.
Það á ekki af leigubílstjórum að ganga. Tvö önnur alvarleg
mál hafa komið upp síðustu mánuði þar sem ráðist hefur
verið á leigubílstjóra við störf sín.
Einn bitinn í barkann og annar
laminn í hausinn á ferð
Tvö mál hafa komið upp á síðustu
mánuðum þar sem leigubflstjórar
hafa orðið fýrir alvarlegum árásum. í
lok nóvember bijálaðist farþegi í
leigubfl sem var á leið yfir Hellisheið -
ina og sló leigubflstjórann, Jón Hall-
dórsson, í hnalckann. Bfllinn var á 90
km hraða. Við árásina brotnuðu tvær
tennur í Jóni og nef hans brotnaði
einnig. Ölóður farþeginn mölvaði
síðar rúður og gekk berserksgang í
Litlu kafflstofunni. Jón sagðist í sam-
tali við DV áður hafa lent í árás en þá
réðst stúlka á hann og hárreytti.
Um áramótin síðustu varð svo
Magnús Sigurðsson fýrir fólskulegri
árás vel klædds manns sem réðst að
honum eftír að hafa neitað að inna af
hendi greiðslu upp á 340 krónur. „Ég
sá að ég gæti ekkert í boxi á mótí
honum en ég er þungur, 115 kfló,
þannig að ég skellti honum niður og
hélt honum þannig," sagði Magnús í
viðtali við DV. Magnús segist hafa
passað sig á að slasa ekki manninn.
„Þegar hann lofaði að hætta þessari
vitleysu, slepptí ég honum og fékk þá
annað högg á kjammann og sá
stjömur aftur. Ég hrópa á hjálp og þá
reisir hann sig upp og bítur mig á
barkann." Það stórsá á Magnúsi eftir
bitíð. „Hann var eins og Hannibal
Lecter þar sem hann beit í barkann á
mér og hékk þannig," sagði hann.
Bæði Jón og Magnús segja árás-
imar hafa verið fyrirvaralausar.
Magnús sagði það vera voðalegt
hvemig fólk héldi að það gæti látíð
við leigubflstjóra. „Svona er djobbið
orðið," sagði hann.
Bitfar á hálsi leigubílstjóra Farþegi beit
sig fastan og hékk þar eins og Hannibal
Lecter.
■ ■' ■
Fréttaskýring Furöu sætir að leigubílstjóri sem var skorinn á háls síðasta sumar sé á lífi. Hann
ber stórt ör á hálsi eftir árásina og hefur þjáðst af áfallastreitu. Ofdrykkjumaðurinn Guðbjartur
J. Sigurðsson sem er ákærður fyrir verknaðinn segist ekki muna neitt.
Man ekki eftir að hafa
skoriö leigubílstjóra á háls