Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2005, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2005, Blaðsíða 34
34 LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 2005 Helgarblað DV Bush vekur hroll Morgunblaðið lýsti svo ræðu þeirri sem George W. Bush hélt þegar hann sór embættiseið í annað sinn að hann vildi „láta hendur standa fram úr ermum með enn metnaðarfyllri og meir ögrandi stefnu“ en hann boðaði fyrir fjórum árum. öðrum þyk- ir „metnaður" Bush heldur hroilvekjandi - bæði erlendis, þar sem tal forsetans um að hann vilji breiða út yfir allt sinn skilning á freisi þykir gera heim allan ófriðvænlegri, og heima fyrir, þar sem stefnumál hans ganga gegn pólitískri samstöðu um það velferðarkerfi sem enn hjarir í Bandaríkjunum allt frá dögum Roosevelts og harðsnúnir hægrimenn telja ígildi einskonar sósí- alisma. Breska útvarpið BBS hefur spurt menn í 21 landi að því, hvaða áhrif þeir telji að endurkjör Bush til forseta muni hafa á friðar- horfur í heiminum. Niðurstaðan er sú að meira en 60% telja að á seinna kjörtímabili hans verði heimurinn enn hættulegri og ófriðlegri en fyrr. Mikil vantrú á áform Bush ríkja t.d. meðal gam- alla bandamanna Bandaríkjanna í Evrópu. Ekki nóg með að meira en 70% Frakka og Þjóðverja telji Bush háskalegan friði en aðeins 14% nytsamlegan - 64% Breta er líka um og ó og ekki nema 27% þeirra hafa trú á Bandaríkjaforseta til góðra hluta á alþjóðavettvangi. Mönnum þykir það ills viti að hann hefur hátt um að frelsa heiminn undan harð- stjórum. Það boði bæði fleiri styrjald- ir og auk þess sið- ferðilega ringul- reið sem rís af því, Árni Bergmann veltir fyrir sér framtlðar- stefnu George W. Bush. Heimsmálapistill að Bush og hans menn munu vissulega taka sér sjálfdæmi um það hvaða „harðstjórar" standa í vegi fyrir hagsmunum þeirra og beri því að steypa - með hervaldi ef ekki vill betur - og hvaða valds- herrar teljast aftur á móti nytsam- legir sem „okkar tíkarsynir" og megi því sitja áfram í friði. Nú síðast óttast margir að Bush stefni að stríði við íran. Hvíta hús- ið reynir að vísu að slá á þann ugg og segir, að eitt sé að tala hátt um • frelsið við hátíðleg tækifæri og annað að ráðast í raun og veru í ný stríð. En svo mikið er víst að breska stjórnin, tryggust bandamanna Bush, hefur áhyggjur af vopna- skaki vina sinna í Washington og segir sig með nokkrum hávaða fyrirfram frá vopnaðri íhlutun um mál írans. Ekki orð um írak í Bandaríkjunum sjálfum þótti mörgum hneykslanlegt, að í há- tíðarræðu sinni minntist Bush ekki einu orði á Íraksstríðið - sem þó er það mál sem heitast brennur á löndum hans eftir að um 1400 bandarískir hermenn eru fallnir þar og 10 þúsund særðir. Aftur á móti talaði hann tuttugu og sjö sinnum um frelsið. Ekki nema von GITARINN EHF. * * * * * m m m m m m m m m í m m m m m m m m m m m m m 1 www.gitarinn.is STÓRHÖFÐA 27 -SÍMI: 552 2125 gítarinn#gitarinn.ís Trommusett með öllu, ásamt kennslu- myndbandi og æfingaplöttum á allt settið. Rétt verð 73.900. - Tilboðsverð 54.900. - ÞIÓÐLAGACÍTAR: KR. 14.900.- W POKA. ÓL SmtlFtAUTU OG NÖGL ÞJÓÐLAGAGÍTAR: KR. 17.900.- W P|.CK-W.(HÆCT Afl TENCJA 1 MACNARA) M/ÖLLU AÐ OFAN. KLA5SÍ5KUR GÍTAR FRÁ KR. 9.900.- Januarútsalan í fullum gangi RAFMAGNSSETT: KR. 27.900.- (RAFMAGNSGÍTAR - MAGNARI - POKI - KENNSLUBÓK - STILIIFLAUTA - GÍTARNEGLUR OG 2 SNÚRURiH!) t m m m m m m m m m m m m m m m m m m m m m m m m m m m m m m m m George W. Bush Fagnar með frúnni embættiseiðnum sem hann sór Iannað sinn. að dálkahöfundar þar vestra tali margir hverjir með grimmu háði um það, að Bush og hans menn séu gjörsamlega veruleikafirrtir og vilji hvorki sjá og heyra þær hörm- ungar sem ganga yfir íraka né heldur sína eigin menn, banda- ríska herliðið þar. Bandarískir öldruðum og ýmsum þeim þegnum sem amríski draumurinn sneiðir hjá lífið bærilegra. Nú er byrjuð mikil herferð, segir Blumenthal, sem á að sannfæra Bandaríkjamenn um að hið félags- lega öryggiskerfi sé gjaldþrota og dauðadæmt og verði að stokka það /Bandankjunum sjálfum þótti mörgum hneykslan- iegt, aö í hátíðaræðu sinni minntist Bush ekki einu orði á Íraksstríðið - sem þó er það mál sem heitast brennur á löndum hans eftir að um 1400 banda- rískir hermenn eru fallnir þar og 10 þúsund særðir. ráðamenn telji sér trú um að frels- ið og lýðræðið sé á einhvers konar sigurgöngu í því hrjáða landi þar sem hundrað þúsund manns hafa týnt lífi, borgir eins og Fallujah eru lagðar í rúst til þess að frelsa þær og væntanlegar kosningar verða í skötulíki, enda áræði margir frambjóðenda ekki einu sinni að láta nafns síns getið. Ófriður heima fyrir Sumir greinahöfundar hafa og lagt áherslu á að stjórn Bush hygg- ist ekki aðeins breyta stjórnarfari í öðrum löndum heldur og heima fyrir. Einn slíkur, Sidney Blumen- thal, staðhæfir að nú eigi að gera að veruleika gamlan draum her- skárra hægrimanna um að losna við þann „sósíalisma" sem Roose- velt forseti lagði grundvöll að á sín- um tíma og felur í sér þjóðarsátt um velferðarkerfi. Það kerfi mun flestum Evrópumönnum þykja meingallað og víst hafa forsetar repúblikana nartað í það á undan- förnum kjörtímabilum, en það hefur samt verið við lýði og gert upp. Reyndar er haft eftir ýmsum sem til þekkja, að þetta sé alrangt: það kerfi sem nú er við lýði gæti staðið að öllu óbreyttu undir núgildandi útgjaldaramma allt til ársins 2042 og þyrfti þá ekki mikilla lagfæringa við til að geta haldið áfram. En hvað um það: áróðurinn er hafinn og stjórnar honum sjálf- ur Karl Rove, harðsnúnasti áróð- ursmeistari Bushmanna. Og mark- miðið er ekki smátt: það á að leggja félagslegt öryggiskerfi niður í núverandi mynd og með því á að „stuðla að því að breyta pólitísku og heimspekilegu landslagi í þessu landi“ eins og haft er eftir einum af ráðgjöfum Bush, Peter Wehner. Skortur og ótti Því miður gefa þær greinar, sem hér er stuðst við, ekki nógu skýra mynd af því hvernig Bush og hans menn hyggjast fara að. Megin- hugsunin mun sú, að beina eigi því fé sem farið hefur til þess að tryggja lágmarksafkomu aldraðra og annarra sem höllum fæti standa inn á einkareikninga á hlutabréfa- markaði. Ætlunin viðist, að venja hvern og einn á að bjarga sér sjálf- ur með hlutabréfaviðskiptum - enda standi það til síðar meir að skera mjög niður heildarútgjöld hins opinbera til þessara félags- legu þarfa. Við þetta hafa menn margt að athuga, bæði demókratar eins og fyrrnefndur Blumenthal, og sumir raunsæir menn í flokki Bush sjálfs. Þeir taka það fram, að kerfisbreyt- ingarnar yrðu mjög dýrar og myndu á næstunni enn magna að miklum mun þann fjárlagahalla sem Bushstjórnin hefur steypt sér í af fágætu ábyrgðarleysi - m.a. með því að létta sköttum af ríkasta fólki landsins. í annan stað sé það afar vafasamt, að gera afkomuöryggi aldraðra háð því hvort gott ástand er á hlutabréfamarkaði eða hvort þar eru stórar bólur að springa eins og hvað eftir annað hefur gerst. Öfugmælastefna Sjálfur segist Bush vera að byggja upp þjóðfélag sem verði sífellt „réttlátara og frjálsara und- an skorti og ótta". Þetta þykir eins og margt annað hjá Bush mjög í ætt við öfugmæli eins og „Stríð er friður" í frægri skáldsögu Orwells, 1984. Bush hefur áður kallað til- slakanir sínar við stórfyrirtæki sem valda mikilli mengun því snotra nafni „Heiður himinn". Hann kallaði stefnu sína á liðnu kjörtímabili „Samlíðunarkapítal- isma" - sem kom fram í eindreg- inni samstöðu hans við hina ríku og voldugu. Hann kallar nýmæli sín nú „Eignaþjóðfélag” - og þá er raunsætt að búast við því, að þeim sem mikið eiga muni enn gefast en frá þeim sem þurfandi eru verði flest tekið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.