Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2005, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2005, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 2005 Helgarblað DV snu/'tí/jucuuifia Meikfrá Helenu Rubenstein „Ég nota Color clone-meik núm- er 24 frá Helenu |Rubenstein en Iflestar mínar |snyrtivörur eru frá því merki. Ég nota líka Magic concealer nr '02 medium til faö jafna út meikið. í>Eg kaupi Helena Rubenstein-vörurnar í snyrtivöru- versluninni Myrru á Selfossi en sú stofa styrkti mig í öll- um keppnunum. Þjónustan þar og fagmennskan eru hreint út sagt frábær. Sólarpúður sem eykur fersk- leikann Ég nota Golden Beauty-sólar- púður tO að fá roða í kinnarnar og auka ferskleikann. Sanseraðir augnskuggar Maskarinn minn er að sjálf- sögðu frá Helenu líka, heitir Wild black og er númer 01. Hann nota ég dagsdaglega en þegar ég fer á 'djammið mála ég mig meira Halldóra Rut Bjarnadóttir varð 13. sæti í Ungfrú fsland í fyrra. Hún erfrá Hveragerði en er að flytja í borgina með kærastanum sínum. Þessa dag- ana eru þau að koma sér fyrir, rétt búin að setja rúmið saman og eyða kvöldunum f að pússa og bora og gera fallegt f kringum sig. Hún segist alltaf vera með tösku fulla af alls kyns dóti, hafurtaskið sem fylgi henni hvert sem hún fer. Dagbókin, tyggjóið, sfminn og veskið er það . < mikilvægasta sem þar er að finna og svo auðvitað allt snyrtidót- '0>\ ið. Halldóra gefur ekki mikið upp um það hvað er á döfinni hjá \ , \ henni en bendir fólki þó á að fylgjast vel með á Popptfvf á næst- , , unni. Það verður spennandi að sjá hvað þessi fegurðardís er að bar- * dúsa en hún gaf sér tfma f að leyfa okkur að kfkja f snyrtibudduna. Gunnhildur Eyja Oddsdóttir Lund rekur Stúdentakjallarann ásamt kærastanum sínum, Fabrizio. Þau opnuðu staðinn í september í fyrra eftir að hafa eytt ágústmánuði í breytingar. um augun. Þá nota ég tvenns konar augnskugga. Þeir eru í jarðlitum með sanseringu, Nightsepia 01 og Daylight 02. Auk þess nota ég sanseraðan svartan blýant. Mér flnnst fallegast að nota náttúrulega liti en það er líka gaman að prófa aðra liti. Ljóst gloss Ég keypti gloss frá Lancome þeg- ar ég var á leið frá London til fslands, það er mjög flott, heitir Mangue og er númer 32. Annars nota ég 9 dag- _ lega •ljóst gloss sem heitir Star sun- stone og er númer 21. Þegar ég fer út á lífið er ég með varablýant númer 09 og Star Brown- gloss númer 16. Ilmvatnið Beyond paradise Ég nota Ilmvatn frá t • ■ Esteé Lauder heitir Beyond para- dise. Ég átti aðra ilmi en var búin að skoða Beyond paradise í nokkurn tíma og lét svo verða af því að kaup það í fríhöfninni í Japan. Gunnhildur Eyja íStúdentakjall- aranum sem hún hefur nú opnað að nýju eftir miklar endurbætur. Studentakjallarinn vakinn með ítalskri sveiflu Síðastliðið haust var Stúdenta- kjallarinn opnaður eftir sumar- dvala og þá með breyttu sniði og áherslum. „Við gerðum nú reynd- ar ekki mikið, máluðum og svona en breyttum ekki miklu annars. Við gerðum þetta alveg upp á eig- in spýtur, fengum enga styrki eða neitt svoleiðis svo þetta mátti ekki verða of dýrt enda bæði að koma úr námi,“ segir Gunnhildur. Stúd- entakjallarinn verður 30 ára á þessu ári en fyrstu flmm árin voru blómatíð staðarins. „Fyrstu fimm árin gekk mjög vel og það var ekta stúdentastemning í kringum staðinn en eftir það fór hann að dala smám saman án þess þó að leggja upp laupana," segir Gunn- hildur sem boðar endurreisn Stúdentakjallarans eftir gagngerar endurbætur. Færa bókhald og elda mat- inn sjálf „Þetta hefur gengið vel en markmið okkar með þessu er að reyna að endurvekja stemninguna sem var hér áður. Við sjáum fram á að reka staðinn í að minnsta kosti ár í viðbót til að árangur sjá- ist. Annars erum við alls ekki að gera þetta til að græða, ef svo væri stæðum við ekki í þessu," segir hugsjónakonan Gunnhildur og bætir því við að þau sjái um allan rekstur, allt frá því að elda matinn sem er á boðstólum til þess að sjá um bókhaldið. Þau eru aðeins með einn starfsmann þannig að mestum tíma sínum eyða þau á staðnum enda er opið alla daga nema sunnudaga frá 11-01 en til þrjú eftir miðnætti á föstudögum og laugardögum. í námi meðfram rekstrinum Gunnhildur er með BA-gráðu í félagsfræði og hóf mastersnám eftir það. Hún hefur þó tekið sér smápásu vegna anna í Stúdenta- kjallaranum en hefur tekið ítölsku með rekstrinum til að læra móð- urmál kærastans. Þau bjóða upp á mat allt frá 11 á morgnana til hálf- tíu á kvöldin. „Við erum með mat með ítölsku ívafi, Fabrizio sér að- allega um að elda hann,“ segir Gunnhildur sem ber hitann og þungann af rekstrinum á meðan kærastinn hennar einbeitir sér að gómsætri ítalskri matargerðarlist fyrir viðskiptavini þeirra. ítalskur matur á vægu verði „Við leggjum áherslu á að hafa matinn góðan og ódýran þar sem stúdentar hafa yfirleitt ekki mik- inn pening milli handanna. Það sem helst er í boði er brauð að ítölskum hætti sem steikt er á pönnu, salat af ýmsum gerðum og súpa dagsins. Við höfum líka verið með tónleika og aðra viðburði og fengið mjög góð viðbrögð en það er að sjálfsögðu frítt inn á allar uppákomur." Þess má líka geta að þau eru með þráðlaust netsam- band þannig að öllum er frjálst að koma með fartölv- una sína og fá ;ér góðan kaffibolla eða eitthvað ljúf- fengt í gogg- inn. Færlr út kvíarnar og flytur til Danmerkur Ingibjörg Þorvaldsdóttir er aðeins 28 ára en hefur rekið og átt tískuverslunina Oasis í fjögur ár. „Ég var búin að vera íjögur ár í framhaldsskóla, tvö ár í Versló og tvö í MK. Ég hafði unnið í tísku- verslun lengi og var mjög áhuga- söm um þennan bransa. Fyrir ^órum árum bauðst mér síðan þetta frábæra tækifæri sem ég varð að grípa." Oasis er staðsett í Kringlunni og svo er deild innan Debenhams í Smáralindinni þar sem Ingibjörg er með sitt starfsfólk og sínar vörur. Hún er mjög mikið sjálf í búðinni en er með 14 starfsmenn bæði í fullu starfi og hlutastarfi. Athafnakonan „Það skiptir öllu máli fyrir reksturinn að vera með gott starfs- fólk og ég hef alla tíð verið heppin með það. Ég legg mesta áherslu á góða þjónustu og ferskleika og hef ávallt gert. Það er nauðsynlegt til að hlut- irnir gangi eins vel og raun ber vitni." Maðurinn hennar JónArnar og sonur hennar Natan sem er fimm ára eru farnir til Danmerkur en hún fer þangað í vikunni. „Við erum að færa út kvíarnar og ég mun vera með annan fótinn í Danmörku á næstunni. Strák- arnir eru farnir út og ég fer tO þeirra um leið og ég verð búin að ganga frá öllu hér.“ Hvað Natan varðar segir Ingibjörg skipta miklu máli að hennar vinna bitni ekki á honum. „Ég hef alltaf pass- að að setja hann í fýrsta sæti, sama hvað mikið er að gera hjá mér. Ég er svo heppin að eiga yndislegan mann og hans hjálp er ómetanleg. Hann er kokkur en í Danmörku munum við vinna saman, hann fær bara að elda fyr- ir mig þarna úti" segir Ingibjörg og glottir við tönn. Framtíðin er björt hjá þessari glæsfiegu konu og það verður spennandi að fylgjast með fram- gangi mála hjá fjölskyldunni í Danmörku. Ingibjorg Þorvaldsdóttir Eigandi tískuverslun annnarOasis ÍKringlunni ætlarsérstóra hluti oq er a leiðmm til Danmerkur þar sem fjölskyldan biðurhennar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.