Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2005, Qupperneq 48
48 LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 2005
Sport DV
Southampt.-Portsmouth
Þessi stórlið mætast á knatt-
spyrnuvelli sem er líkari hliðarhalla-
þraut í torfærunni. Konfeeeeekt!
„En, hann tekur hérna dekk og fær
290 stig“ Redknapp hleypur beint
upp í stúku og lemur Mandaric hinn
serbneska eiganda Portsmouth.
, Serbneska mafían hefnir sig og
tekur Jamie, son Harry, í gíslingu og
krefst þess að Harry borgi
lýtaaðgerð á illa förnu andliti
Mandaric. Harry bíður honum eitt
kíló af undirhöku til græða sárin og
allir eru vinir. Lau. ki. 12.15
Derby-Fulham
Adam Boulder hefur verið á mik-
illi siglingu undanfarið og hefur ekki
sparað yftrlýsingamar fýrir leikinn
við úrvalsdeildarliðið. Lau. kl. 14.50
Man. Utd.-Middlesbrough
Rooney skilur fyrr en skellur í
tönnum Reizigers, en Ferguson þarf
að fá Þorazín ef þeir detta út úr báð-
um dollunum. Lau. kl. 16.55
Oldham-Bolton
Heimamenn leika Karmina
Burana þegar Sammi Sopi og hans
menn verða teknir og jaaaarðaðir!
Ekki missa af víkingalóttóinu.
Sun.kl. 13.35
Chelsea-Birming
ham
Meginlands-
metróinn tyggur
sig undir skinnið
á Bruce, sem lít
ur út fyrir að
leika
einhvers
„Frúin fer
leið“. I alvöru
þessir stjórar eru
holdgerfingar
breytinga í enska
boltanum.
Sun M 15.35
Arsenal-Wolves
Palli Tomma er hvergi nærri laus
við Arsenal-gremjuna frá dögum
sínum með Djöflunum. Ef þetta er
ekki rautt spjald...
Blackburn-Colchester
Hughes lenti illa í tísku-
löggunni um síðustu
helgi... Ekki vissum við að
hann væri búinn að
klippa sig!
Charlton-Yeovil
Hefur svipað aðdráttar-
afl og kvefaður veðurfræð-
ingur í Ríkissjónvarpinu að
lýsa lægðardragi yfir Jan
Mayen.
Örvfættir eiga
ekki að spila
í samtali blaðamanns við
Freysa vélbyssukjaft, viðraði
kappinn ansi frumlegar skoðanir
(eins og svo oft áður) og fullyrti að
örvfættir gætu ekki spilað fót-
bolta. „Það er náttúrulega út af
því að örvfættir eru fatlaðir,"
sagði Freysi. „Það er sama hvort
þú reynir að gera eitthvað með
vinstri, það er ailtaf betur gert
með hægri. Þú ferð bara ekki að
æfa fótbolta örvfættur. Þú getur
náttúrulega hlaupið eins og vit-
leysingur en ekki sparkað. Þeir
ættu náttúrulega að velja sér
íþróttir þar sem sést ekki að þeir
FREYSI FRÍKAR ÚT
séu örvfættir. T.d. skíðastökk,
skautar, píanó, railí og hjóla-
íþróttir. Það er nóg annað í boði
dýrir þetta fólk.
Örvfættir ættu helst að spila í
svona ballettskóm, með svona tá.
Þá gætu þeir dúndrað með tánni,
í staðinn fyrir að vera í takkaskóm
þar sem boltinn fer út um allt.
Veit einhver um einhvem
góðan örvfættan fótboltamann?
Það eina sem Maradona gat gert
var að hlaupa hratt á miili með-
ferðarheimila og skora með hend-
inni.
Það ætti í rauninni að setja í
gang sérstaka deild fyrir þetta
fólk, rétt eins og Ólympíuleikar
^itlaðra. Við erum ekki að gera
neinum greiða með því að halda
því fram að þetta fólk sé heilbrigt,
síst af öllu því sjálfu.
Eins og í skólum í gamla daga,
þá vom örvhentir neyddir til að
skrifa með hægri og tíl þess var
ónýta höndin, þ.e.a.s. sú vinstri,
bundin fyrir aftan stólinn. Þetta er
eina leiðin til að kenna þessu fólki
og mætti td. prófa að tjóðra
vinstri löppina einhvem veginn
niður svo þeir fari nú ekki að
asnast til að sparka með henni,
alveg eins og fífl. Jafiivel festa
bara steðja við hana. Svo þegar
þeir klúðra einhveiju, þá má bara
grípa í eitt stykki stálrör og
dúndra aðeins 1 lappimar.
Þessi tegund fólks á sér við-
reisnarvon en alls ekki í fótbolta.
örvhentir geta verið í þjónustu-
störfum og öðm slíku. Jafnvel að
senda þetta lið á Kárahnjúka, það
væri fín lausn,"
sagði Freysi
vélbyssu-
kjaftur, í at-
vinnuleit
austurá
fjörðum.
BOLTINN EFTIRVINNU
Dagar Craig Bellamys hjá Newcastle eru taldir. Hann mun þó
mæta á bikarleikinn gegn Coventry í dag eftir að hafa fengið
boðsmiða. Það gæti farið illa.
Kveikir Bellamy
bálkösl?
Svo gæti farið að velski
skaphundurinn Craig Bellamy eyði-
leggi stemninguna á bikarleik
Newcastle og Coventry í dag en
hann fékk boðsmiða á leikinn til að
horfa á hann úr stúkunni.
Bellamy er kominn í hunda-
kofann hjá manninum með bringu-
hárin, Graeme Souness, knatt-
spyrnustjóra Newcastle, og hefur
æft einn alla þessa viku. Bellamy
lenti enn einu sinni upp á kant við
Souness í síðustu viku og gerir
Newcastle nú allt sem þess valdi
stendur til að losna við kappann.
Bellamy kallaði Souness lygara
eftir að hann hafði sagt að Bellamy
hafði gert sér upp meiðsli til að
sleppa við að spila þá stöðu sem
hann vildi ekki spila og það fór ekki
vel í Souness.
Það er semsagt ljóst að Bellamy
verður í stúkunni í dag og hafa
forráðamenn áhyggjur því hann er
enn eftirlæti marga stuðnings-
manna liðsins. Það væri ekki gott til
afspurnar ef stuðningsmenn félag-
sins myndu tvístrast í mikilvægum
bikarleik út af Bellamy. Ef hans fólk
byrjar að styðja hann með ráðum og
dáðum þegar hann sést á vellinum
má fastlega búast við því að einhver
læti muni eiga sér stað á
St. James' Park í dag.
Eins og áður sagði leita
forráðamenn Newcastle
logandi ljósi að liði sem er
tObúið til að taka við velska
vandræðagemlingnum
fyrir rétta upphæð, sem
eru 900 milljónir íslenskra
króna.
Hingað til hafa fjögur
félög, Birmingham,
Norwich, Portsmouth og
Blackburn sýnt áhuga á
kappanum en Ports-
mouth þykir vera í bestu
stöðunni. Þeir eiga innan
sinna raða nígeríska
markahrókinn Aiyegbeni
Yakubu sem Newcastle
hefur mikinn áhuga að fá.
Portsmouth hefur þegar
hafnað tilboði Newcastíe
upp á milljarð í kappann og
vilja fá 1,2 milljarða. Það
gæti liðkað til fyrir frekari
viðræðum ef Bellamy
fylgdi með í kaupunum.
Birmingham og Norwich
vilja bæði fá hann að
sem kemur ekki
greina.
'm
Vandræðagemlingurinn
Craig Bellamy Feryfirleitt létt
með að gera allt vitlaust i
kringum sig. Hann er á leiðinni
frá Newcastle efrétt upphæð
fæst fyrir hann og telja flestir að
hann muni ganga í raðir
Portsmouth þar sem hann
getur þá byrjað að
skaprauna Velemir
Zajec, stjóra liðsins.
Reuters
Hvað á ég að
kaupaidag?
Kolla veit fátt
skemmtilegra en
að eyða
peningum
kærasta sins i
löngum verslun-
arferðum.
Dýrar töskur eru ekki mikið vandamál fyrir
sumar konur.
Kolla eyddi 250 þúsund
kalli í þrjár töskur
Kolla, kærasta Wayne-„ég er
hrifmn af gömlum vændiskonum"-
Rooney, er aðeins átján ára gömul
en hún gefur eldri konum lítið sem
ekkert eftir þegar kemur að því að
eyða peningum.
Það má heita nær daglegur við-
burður að fréttir af henni í versl-
unarferðum birtist í ensku slúður-
blöðunum enda fátt annað gáfulegt
við tímann að gera fyrir unga snót
sem á forríkan kærasta.
Kolla komst í fréttirnar í gær eftir
að hafa eytt um 250 þúsund kalli í
þrjár handtöskur í einni verslun-
arferð. Hver taska kostaði
rúmlega áttatíu þúsund
krónur en hún keypti,
svarta, bleika og ljósgræna
tösku.
Þetta voru hinar víðfrægu
Balenciaga-töskur sem
engin kona með snefil af
sómatilfinningu getur látið
sjá án. Kolla frumsýndi svörtu
töskuna á leik Manchester United
og Chelsea á Old Trafford á
miðvikudaginn og vakti taskan
mikla lukku meðal viðstaddra á
vellinum.
Everton-Sunderland
Ferguson les fýrir börnin í hálf-
leik. Tugthúslimurinn knái gerir
gæfumuninn fyrir þá bláu eins og
alltaf.
Newcastle-Coventry
Bellamy er að gera Sounes
grá(bringu)hærðan á ruglinu.
Newcastle skorar ekki fram hjá
draugi Ogrizovic.
WBA-Tottenham
Shrek Jol og félagar veita svein-
um Robsons verðurga samkeppni
þegar kemur að detta út úr bikar-
keppnum.
psnrai
LIÐIÐ MITT
Synirnir
smituðu
mig
Hjalti Úrsus Árnason, kraft-
lyftingamaður, verður í fullu
fjöri í Valsheimilinu í dag þar
sem fram fer íslandsmótið í
bekkpressu. Þar munu
menn á borð við Auðun
Jónsson reyna að lyfta 300
kílóum í bekk, eitthvað sem
engum fslendingi hefur
tekist áður. Hjalti hefur
mikinn áhuga á enska bolt-
anum og er stuðningsmaður
Manchester United.
„Ég hélt reyndar með Leeds í
gamla, gamla daga. Þá gat maður
farið í Sportbúð Ingólfs Óskars-
sonar og fengið litla möppu með
öllum merkjum sem til voru í.
Maður þurfti helst að taka eitt-
hvað sem var ekki frátekið. Sem
unglingur var ég alltaf Leeds-ari.
Svo datt þetta út þegar kraftlyft-
ingaandinn var sem mestur, þá
var maður lítið að skipta sér af
þessu," sagði Hjalti.
Að sögn Hjalta var áhuginn
fljótur að koma aftur þegar synir
hans fóru að fylgjast með bolt-
anum. „Þeir smituðu mig aftur af
boltaáhuganum. United-liðið var
náttúrulega mikið í umfjölluninni,
synirnir héldu með þeim þannig
að ég varð að styðja þá í barátt-
unni. Svo bræddu United-menn
mig bara sjálfir," sagði Hjalti.
Það er iðulega mikil stemning á
heimOinu þegar United spOar og
sagði Hjalti að menn lifðu sig vel
inn í leikinn. „Greipur, eldri sonur
minn, hefði átt að verða liðsstjóri
því hann finnur Ferguson allt tO
foráttu þegar við horfum á leOd.
Hann fer í knattspyrnustjórastell-
ingar í stofunni, stíllir upp liðinu
o.s.frv."
Hjaltí var ekki bjartsýnn á að
United myndi hampa titíinum í
vor. „Ég þori ekki að spá United
hærra en öðru sætinu, Chelsea er
á txúkdli siglingu og virðist ekki
ætla að missa úr taktinn. En ef
Chelsea byrjar að tapa, þá gæti
það komið í áskrift, rétt eins og
sigrarnir. Þannig að það er aldrei
að vita hvað gerist," sagði Hjalti
Úrsus Árnason.