Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2005, Qupperneq 64
JT* /* 11 iJjJ í 0 J Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrirhvert fréttaskot sem
birtist, eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið íhverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar
^nafnleyndar ergætt. q (J(J (J
SKAFTAHLÍÐ24, W5REYKJAVÍK [STOFNAÐ 1910] SÍMISS05000 5 n690710N1111241
Tengdapabbinn
Sveinbjörn Einarsson
gerir ekki upp á milli
tengdabarna sinna.
Doubletrouble!
/
• f lagadeild Háskóla fs-
lands ganga þær sögur
fjöllunum hærra að
Birgitta Haukdal sé með
bami. Unnustí Birgitm,
Benedikt Einarsson,
stundar nám við lagadeildina og þykj-
ast skólabræður hans nokkuð vissir í
sinni sök. Benedikt er sonur Einars
Sveinssonar, fyrrum forstjóra trygg-
ingafélagsins Sjóva-Almennar,
sem er af Engeyjarætt. Tími til
kominn að poppa þá ætt aðeins
upp...
• Allt að sjóða upp tír í innan-
flokksátökum í Framsóknarflokknum.
Nú síðast þegar eiginkonur Ama
Magnússonar félagsmálaráðherra og
Páls bróður hans yfirtóku Freyju, félag
framsóknarkvenna í Kópavogi.
Þykir það sérkennilegt þar sem eig-
inkona Páls var lengi framákona í
Alþýðuflokknum og kona Áma býr
í Hveragerði en ekki Kópavogi. Nú
verður Guðni Agústsson að fara að
skoða sinn gang því hann er ekki í upp-
áhaldi hjá þessu fólki...
• Umsóknarfrestur um starf frétta-
stjóra Rfldsútvarpsins
rennur út á bolludag-
inn og lfldega verður
nýr fréttastjóri kynntur
á sprengidag. Þykir
þetta koma sér vel fýrir
umsókn Óðins Jónssonar fréttamanns
sem einmitt startaði vinsælu morgun-
útvarpi sínu á boUudegi með sprengi-
viðtaU við Davíð Oddsson...
„Ég verð 86 ára í vor, um svipað
leyti og kosið verður á miUi tengda-
barnanna minna," segir Sveinbjörn
Einarsson, fyrrum kennari í Mela-
Stólanum og faðir Hjörleifs, eigin-
manns Ingibjargar Sólrúnar, og
Árnýjar, eiginkonu Össurar Skarp-
héðinssonar.
En þú ert brattur?
„Ég er að ná mér eftir bílslys í
sumar. Ég fékk aðsvif og ók á Ijósa-
staur."
Líka hálfgert slys aö tengdabörn-
in skuli vera að kljást svona?
„Þetta er eiginlega leiðindamáf
hjá okkur öUum og reyndar feimnis-
mál þegar öll fjölskyldan kemur
saman. Þá er þetta bara
alls ekki rætt.“
Með hvoru heldur
. þú?
„Með báðum en
samt hvorugu. Það er
ekki annað
hægt.“
En efþú
t stæðir fyr-
, ir framan
aftöku-
, sveit?
„Þá
' léti ég
' skjóta
' sjálfan
mig."
Hver er
| munurinn á
' tengdabörnun-
um?
„Össur er
I dálítið til baka
[ og hefur sig ekki
I mUdð í frammi í
] fjölskylduboð-
[ um. Þó held ég
ekki að hann
sé feiminn.
Þá gæti hann
vart verið að
rífa svona
kjaft á þingi.
____ ______' Ingibjörg Sólrún
er bara eins og
venjulega manneskja og frekar létt í
skapi."
Kýstu Samfylkinguna?
„Já, ég ég geri það núna. Byrjaði
að kjósa Alþýðuflokkinn og síðar
Alþýðubandalagið. Ég hef aUtaf
verið dáh'tið tfl vinstri."
Hvort tengdabarnanna vinnur?
„Ég hvorki þori né má spá um
‘ifvernig úrslitin verða. En einhvern
veginn haUast ég frekar að því að
Ingibjörg vinni þó þau séu bæði jafn
hæf til starfans," segir Sveinbjörn
Einarsson, tengdafaðir Ingibjargar
Sólrúnar og Össurar Skarphéðins-
sonar.
Egilshöll 13. mars 2005 mmm*
Ana Maria Martinez • Operukórinn í Reykjavík • Sinfóníuhljómsveit íslands • Eugene Kohn
sópran ‘ ‘ stjiiriwiuli
Miðasala er í BT Akureyri, BT Selfossi og verslunum Skífunnar
á Laugavegi, Kringlunni, Smáralind, Egilsstöðum og á www.skifan.is
Miðaverð*er: 9.900 kr., 14.900 kr. og 30.000 kr.
Tónleikarnir hefjast kl. 20.00 Húsið opnar kl. 17.30
*15% afsláttur fyrir VISA-korthafa á tónleikana.
Þessir eru
styrktaraðilar tónleikanna:
Landsbankinn
IH
ICIlANDAIRHOmS
Hi-dirf
r