Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2005, Qupperneq 8
8 MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 2005
Fréttir DV
Tortryggir
Ijósabekki
Sesselja Bjarnadóttir
á Grenivfk hefur sent
sveitarstjóm athuga-
semdir vegna áforma um
að bjóða upp á sólböð í
nýrri íþróttamiðstöð.
Sesselja spyr lflca hvort
hægt sé að hafa heitan
pott inni í nýbyggingu
íþróttamiðstöðvar.
Einnig hvort hægt sé að
hafa innangengt £ gufii-
bað. Sveitarstjómin segir
að leitað sé leiða til að
hafa innangengt í gufu-
bað og heitan pott. Sól-
böð verði ekki bönnuð
nema eftir tilmæli frá
heilb rigðiseftirliti. En
áhersla sé á að kynna
„mögulegar slæmar af-
leiðingar óhóflegra sól-
baða".
Sjálfstæðis-
flokkur
stærstur
Sjálfstæðisflokkurinn er
vinsælasti stjórnmálaflokk-
urinn samkvæmt nýrri
könnun Frjálsrar verslunar.
Fylgið er 39% sem þýðir að
flokkurinn myndi bæta við
sig þremur þingmönnum ef
kosið yrði nú. Samfylkingin
er næststærst, með tæplega
30 prósent. Fylgi Fram-
sóknar hrynur og er undir
10 prósentum. Vinstri
grænir bæta við sig og em
með 17 prósent í þessari
könnun en frjálslyndir em
með 5 prósent. Könnunin
bendir til þess að Sjálfstæð-
isflokkur og frjáls-
lyndir hafi
meira fylgi
meðal karla
en kvenna en
þessu sé öfugt
farið með Sam
fylkinguna.
SUSfagnar
Sigurði Kára
Hafsteinn Þór Hauks-
son, formaður Sambands
ungra sjálfstæðismanna,
fagnar frumvarpinu sem
Sigurður Kári Kristjánsson
og fjórtán aðrir þingmenn
Sjálfstæðisflokksins lögðu
fram á Alþingi í gær. Haf-
steinn Þór segir að niður-
staða útvarpsréttarnefndar
um að Skjár einn megi ekki
senda út fótboltaleiki án
þular eða texta, getið valdið
því að úrval á íþrótta-
útsendingum minnki.
Verktakafyrirtækið GT verktakar, sem er undirverktaki Impregilo við Kárahnjúka,
hefur sagt upp að minnsta kosti þremur íslendingum og ráðið í þeirra stað flóra
Litháa sem fullyrt er að vinni á lakari kjörum.
Senja upp íslendingum
lyrir ódýru Lithúu
Litháamir hófu störf við Kárahnjúka nú um helgina en sam-
kvæmt heimildum DV hafa þeir íslendingar sem reknir voru
þjálfað þá upp í akstur rútubfla á virkjanasvæðinu. Gissur
Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, segir stofnunina nú
rannsaka málið og Kta það alvarlegum augum. Litháarnir em
hér á dvalarleyfi á þeirri forsendu að um þjónustuviðskipti sé að
ræða og því em þeim greidd laun í gegnum starfsmannaleigu í
heimalandinu.
„Mér finnst skrýtið að
þetta sé hægt en
sennilega er þetta sú
leið sem smærri verk-
takar á Reykjavíkur-
svæðinu nota og er nú
til rannsóknar. Þetta
ber einfaldlega að
stöðva."
yfirtrúnaðarmaður starfsmanna við
Kárahnjúkavirkjun, Oddur Friðriks-
son, fékk nýverið vitneskju um
málið.
Árekstrar stofnana
Hann segir málið grafalvarlegt og
ekki síst í ljósi þess, ef rétt reynist, að
stofnanir fari á mis. Þannig eigi
Vinnumálastofnun að hafa umsjón
með útgáfu atvinnuleyfa til útlend-
inga en samkvæmt því sem nú eigi
sér stað í máli GT verktaka og Lithá-
anna sé það í raun Útlendingastofn-
un sem leggi blessun sína yfir störf
mannanna hér á landi með útgáfu
90 daga dvalarleyfis.
„Fyrirtækið hefúr fullyrt við mig
að atvinnuleyfið sé til staðar en þær
upplýsingar sem við höfum segja að
dvalarleyfi sé einungis til staðar.
Mér finnst skrýtið að þetta sé hægt
en sennilega er þetta sú leið sem
smærri verktakar á Reykjavíkur-
svæðinu nota og er nú til rannsókn-
ar. Þetta ber einfaldlega að stöðva,"
segir Oddur, sem kveðst ætla að gera
kröfu um að fá að sjá launaseðla og
ráðningarsamninga mannanna,
eins og hann á rétt á.
Mótmælir uppsögnum
„Það sem þarna er á ferð snýst
auðvitað bara um að draga úr launa-
kostnaði því með því að ráða Lithá-
ana í gegnum eins konar starfs-
mannaleigu þar í landi sýnist mér að
menn ætli sér að sleppa við að
greiða launatengd gjöld og skatta
hér á landi. Um þetta snýst málið og
þetta er ástæða þess skjálfta sem hér
rfldr á vinnumarkaði," segir Oddur.
Eftir því sem næst verður komist
stendur uppsögn íslendinganna enn
óhögguð af hálfu GT verktaka. Odd-
ur kveðst hins vegar æda að gera
kröfu um að þær verði dregnar til
baka.
Telja sig í fullum rétti
Trausd Finnbogason, annar
eiganda GT verktaka segir fyrirtækið
visst í sinni sök, mennirnir megi
vinna hér í níud'u daga. „Ástæðan
fyrir því að við erum að segja upp
mönnum er sú að við erum að færa
þá til," segir Traustí sem segir upp-
sögnina í raun snúa að því að starfs-
menn við Kárahnjúka séu á hærri
launum en starfsmenn við önnur
verkefni á vegum fyrirtækisins og
því sé sú leið farin að segja mönnun-
um upp og ráða þá að nýju á lægri
launum.
„Þarna hafa verið tvítugir strákar
sem eru ekki hæfir til að keyra rút-
ur," segir Traustí sem telur fýrirtæk-
ið í fullum rétti enda séu Litháarnir
ekki á vegum þess heldur litháískrcir
starfsmannaleigu.
Ekki náðist í Hildi Dungal, nýráð-
inn forstjóra Útlendingastofnunar, í
gær.
helgi@dv.is
Maður játaði fyrir lögreglu í Kópavogi
Kveikti í húsinu sínu
Fíkniefnalögreglan rannsakar stórt smygl
„Það liggur fyrir að þetta fyrirtæki
hefur ekki fengið atvinnuleyfi fyrir
þessa menn en við erum að kanna
það núna hvort rétt sé að þeir séu
með uppáskrifað 90 daga dvalarleyfi
frá Útíendingastoftiun á þeirri for-
sendu að um svokölluð þjónustu-
viðskipti sé að ræða. Reynist það rétt
er þetta auðvitað enn eitt dæmið um
svokallaðar starfsmannaleigur hér á
landi," segir Gissur.
íslendingum sagt upp
Gissur segir alvarlegasta hluta
málsins vera þann að fyrirtækið sem
um ræðir hafi sagt upp jafnmörgum
íslendingum til að rýma til fyrir
Litháunum en leiða má líkum að því
að þeir séu ráðnir hér á landi en þeim
sé greitt í heimalandi sínu og þá sam-
kvæmt þarlendum samningum.
„Við höfúm reynt að afla okkur
upplýsinga um þetta í dag og mun-
um halda því áfram," segir Gissur en
Fordæmið til staðar Svo virðistsem vinnu-
brögð Impregilo við ráðningar starfsmanna
séu að smita út frá sér. Verktakafyrirtækið
GT-Verktakar hefur nú sagt upp Islendingum
en ráðið ódýrari Litháa i þeirra stað í gegn-
um starfsmannaleigur.
„Það liggurmest á að koma útþriðju árbók Nýhils, Af ijóðum," segir Eiríkur Örn
Norðdhal skáld sem staddur er í Reykjavík um þessar mundir.„Maður þarfað hitta fóik
og ráða ráðum. Það er gott að spjalla um Ijóð á barnum."
Kanna hvort Gunnar átti
að kaupa amfetamínið
Maður á miðjum aldri hefur við-
urkennt að hafa kveikt í húsi sínu
við Kársnesbraut í Kópavogi í fyrra-
dag. Hann var handtekinn eftir að
kviknaði í húsinu og haldið um sinn
á lögreglustöðinni í Kópavogi. „Það
liggur fyrir játning og manninum
hefur verið sleppt," segir Svanhvít
Ingólfsdóttir lögreglufulltrúi. Mað-
urinn var einn í húsinu þegar
kviknaði í. Hann hefur ekki getað
gefið skýringar á því hvers vegna
hann kveikti í húsinu og ekki liggja
fyrir upplýsingar um það nákvæm-
lega hvernig eldurinn kviknaði.
Tæknideild lögreglunnar í Reykja-
vík var kölluð til til að rannsaka
Kársnesbraut 7 Húsráðandi hefur viöur-
kennt Ikveikju.
eldsupptök eins og venjan er í slík-
um málum. Samkvæmt upplýsing-
um DV var maðurinn drukkinn
þegar hann kveikti í húsinu.
Meðal þess sem fíkniefhadeild
lögreglunnar í Reykjavflc rannsakar í
tengslum við stórsmygl á amfeta-
míni er hvort ungur íslendingur,
Gunnar Viðar Árnason, hafi átt að
kaupa efnið og dreifa því hér á landi.
Ásgeir Karlsson, yfirmaður fflcni-
efnadeildarinnar, segir að rann-
sóknin muni meðal annars leiða í
ljós hvort Þjóðverji sem var hand-
tekinn með 4 kíló af amfetamíni í
fölskum töskubomi þar sem hann
var að koma frá Frankfurt, hafi verið
burðardýr og hvort íslendingurinn
hafi átt að kaupa efnið. Gunnar Við-
ar er er rúmlega tvítugur vesturbæ-
ingur sem hefur ekki áður komist í
kast við fíkniefnalögin í svo stóru
máli. Hann hefur eina viðurlaga-
ákvörðun á bakinu en engan dóm.
Lögreglumenn í umferðinni Lögreglan
veitti Gunnari Viðari Árnasyni eftirförþar
sem hann átti að taka við amfetamíni sem
Þjóðverji kom með inn I landið.
Gunnar var handtekinn í vesturbæ
Reykjavíkur eftir að lögreglan veitti
honum eftirför. Ásgeir staðfestir að
lögreglan hafi veitt honum eftírför á
bíl en handtekið hann síðan á
göngu.
Frá Kárahnjúkum Islendingum er
nú hikstalaust sagt þar upp störfum
til að rýma fýrir Litháum sem hingað
koma á vegum þarlendra starfs-
mannaleiga. Ódýrari starfskraftar að
sögn yfirtrúnaðarmanns.