Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2005, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2005, Blaðsíða 17
DV Sálin MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 2005 16 sláttur á ALNO sýningarinnrétting- um. Hægt er að sjá myndir af þess- um fallegu innréttingum, auk ann- arrar fallegrar hönnunar, á vefsíð- unni www.panorama.is. • í hljóðfæraversluninni Gítarinn, Stórhöfða 27, er verið að taka á móti nýrri sendingum af hljóðfærum. Því er boðið upp á tilboð á trommusettum með öllu, ásamt æfingarplöttum og kennslumyndbandi á 54.900 kr.en áður kostaði settið 73.900 krónur. Einnig er hægt að fá rafmagnsgítarpakka á 27.900 kr. en innifalið £ verðinu er gítar, magnari, poki, ól, snúra og gítar- neglur. • í versluninni Parketsal- an Hringbraut 119 standa yfir tilboðs- dagar 3.-12 febrúar- verð. Verð á fermeter á eikar- og furuparketi er frá 2350 kr. en nánari upplýsingar um það sem er í boði er að finna á vefsíðunni www.parketsalan.is. DV hvetur fyrirtæki til að senda tölvubréf til að láta vita af góðum tilboðum, helst með myndum, á netfangið neytendur@dv.is. Neytendasíða DV birtist í blaðinu alla virka daga. Flestir þeir sem hafa prófað að spila skvass segja íþróttina þá skemmtilegustu í heimi enda virðast spilararnir óhræddir við hin ýmsu uppátæki. „Við erum bara svo uppátækja- samir við skvasspilararnir," segir Hilmar Hafsteinn Gunnarsson, annar eigandi líkamsræktarstöðv- arinnar Veggsport, þegar hann er spurður um ástæður þess að næst- komandi föstudagskvöld stendur til að halda þar náttfata-skvass- mót. Hver og einn spilari kemur í þeim náttfötum sem þeim þykir hæfa og þeir treysta sér að spila í. Segir Hilmar að þetta mót gangi fremur út á það að hafa gaman og því sé þeim „lakari" leyft að byrja með nokkur stig í plús. „Það er æðislegt að spila í nátt- fötum," segir Hilmar og hlær. Hann viðurkennir þó fúslega að stórir náttserkir og viðamiklar nátthúfur geti gert leikmönnum svolítið erfitt fyrir en gleðin sem það veiti sé algerlega þess virði. Við frekari eftirgrennslan kemst fólk fljótlega að því að skvassspilar- ar eru ekki allir þar sem þeir eru séðir. í fyrra var haldið furðufata- skvass með góðum og miklum árangri og er ekki búist við lakari þátttöku í þetta skiptið. Þetta er því greinilega íþrótt sem á sér margar og fjölbreyttar hliðar, eða eins og Hilmar segir, „við tökum upp á ýmsu héma í skvassinu og höftim alltaf gaman af.“ Þeim sem vilja kynna sér svassí- þróttina og mótin betur er bent á heimasíðuna www.skvass.co.is karen@dv.is að skera niður neyslu á fitu og sykri. vel til að draga úr verkjum f brjóst- um. Hreyfðu þig 4-6 sinnum í viku, Forðastu salt síðustu til dæmis eróbik eða hlaup. dagana fyrir blæðingar Ekki drekka rétt því salt bindur vökva í f áður en þú ferð á Hvíldu þig nægilega mikið, átta líkamanum og er því m ▲ % blæðingar því það tímar á nóttu er mjög gott viðmið. aðalorsök þyngdar- M ■ eykur líkur á þung- aukningar á þessum I Jm I lyndiseinkemium. Reyndu að borða, sofa og æfa tíma auk þess sem það % jJ M reglulega. hindrarþarmeðeðlilegt ” M Reyndu að vökvaflæðiílíkamanum. borða sex litíar mál- Reyndu að skipuleggja atburði ^tíðir yfir daginn í stað og uppákomur sem valda álagi Dragðu úr neyslu kofft'n- hefðbundinna þriggja þannig að þeir lendi í vikunni eftir ríkra drykkja, þeir ýta undir kvlða matmálstíma í stærri kant- að þú hefur verið á blæðingum. og pirring. Þetta ráð virkar einnig inum. Ertu fjandsamleg persóna? Einstaklingar sem hafa fjandasamlegt viðmót eru sínir verstu óvinir Þeir byrgja reiðina en missa svo stjóm á sér ef minniháttar vandamál koma upp. Þeir sem eiga við þennan vanda að etja bregðast oft illa við því þegar einhver brosir til þeirra, þeir þola afar illa að „tapa“, þeir eiga til að vera mjög gagn- rýnir á aðra en bregðast ókvæða við sé gagnrýninni beint að þeim sjálfúm. Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt fram á að fjandsemi er ekki aðeins skaðleg andlegri heilsu fólks heldur skaðar hún líka fjöl- marga líkamlega þætti, ónæmiskerf- i þessa einstaklinga er oft veikara, blóð- þrýstingurinn hærri og svo mætti lengi telja. Hafir þú vanið þig á svona háttemi skaltu venja þig af því strax, þú hefúr margt að vinna. Það er ekki alltaf auðvelt að vera til. öll eigum við eftir að upplifa mjög erfiðar stundir einhvem tíma á ævinni. Þessar erfiðu stundir valda oft mikiili streitu sem oft hefur það í för með sér að við eigum erfiðara með að takast á við það álag sem á okkur hvflir. Því er mikilvægt fyrir okkur öll að finna leiðir til að takast á við stress og áföll á heilbrigðan og jákvæðan máta. Með því mótí eigum við auðveldara með að komast í gegnum erfið tímabil auk þess sem við styrkjum andlega heilsu okkar. Það ber þó að taka það með inn í reikninginn ekld er til nein töfralausn. Mismunandi leiðir henta misunandi fólki og það er mikilvægt aö þú komist að því hvaða ráð henta þér til að vinna bug á streitu og öðrum erfiðum tilfinningum. Nýttu sköpunargleðina Skapandi tómstundir eins og myndUst, ljósmyndun, skriftir, hljóðfæra- leikur, söngur, leiklist og dans eru eru að mati margra mikilvægar aðferðir til að tjá tilfinningar. HJeyptu tilfinninqum pinum lausum Láttu fólk vita hvemig þér h'ður, talaðu um vandamálin við náinn vin eða fjöl- skyldumeðlim. Það að byrgja inni tilíinn- ingar sínar verður ekki til neins annars en að skapa fleiri vandamál en fyrir em. Taktu frá tíma fyrir þig Illustaðu á góða tónlist, lestu bók, horfðu á kvikmynd, farðu í notalegt bað, hvað sem er sem gerir þér kleift að vera með sjálfum þér. Gerðu þér qlaðan dag Samverustundír með vinum gera þér gott. Einnig gefst mörgum vel að taka þátt í ein- hvers konar félagsstarfi eða áhugamáh. Láttu gott af þér leiða og eigðu um leið góðar stundir. Hreyfðu þig Líkamleg áreynsla er góð leið til að fást við álag. Fyrir utan það hvað hreyfing get- ur gert andlegri heilsu þinni gott þá styrk- ir hún líkama þinn og það eykur sjálfs- traust ílestra. Finndu þér eitthvað sniðugt að gera og það mun skila sér í bættri líðan.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.