Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2005, Side 11
DV Fréttir
MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 2005 11
Kynvilltar
mörgæsir
Dýragarður í Þýskalandi
hefur fengið fjórar kven-
kyns mörgæsir
frá Svíþjóð eftir
að í ljós kom að
sex af þeirra eig-
in mörgæsum
voru kynvilltar
og mynduðu þrjú samkyn-
hneigð pör. Ætlunin er að
reyna að nota sænsku mör-
gæsirnar til að fá hinar til
að snúa frá villu sfns vegar.
Upp komst um kynvilluna
þegar þýsku „pörin“ höfðu
ekki verpt árum saman og
farið var að rannsaka
ástæður þess nánar. Ekki er
búist við miklum árangri af
þessum innflutningi „Sví-
anna" því fyrri tilraunir til
að brjóta upp samband hjá
kynvÚltum mörgæsapörum
hafa borið lítinn árangur.
Snjóboltar
gegn eldsvoða
Rúmönskum slökkvi-
liðsmönnum tókst að ráða
niðurlögum elds með því
að kasta snjóboltum inn
um glugga á brennandi
húsi. Til þessa
ráðs þurftu
þeir að grípa
þar sem
slökkviliðsbíl-
ar komust
ekki að húsinu í héraðinu
Siba vegna ófærðar og
snjóþyngsla. Slökkviliðs-
stjórinn á staðnum, Florian
Chioar, segir í samtali við
dagblaðið National að þeir
hafi þurft að grípa til ein-
hverra ráða þegar bflarnir
komust ekki á staðinn. „Við
notuðum snjóinn og tókst
þannig að ráða niðurlögum
eldsins á um 30 mínútum,"
segir Florian.
Fjöqurra ára
keyrði bfl
Lögreglan í Grand
Rapids í Michigan var
nokkuð hissa er hún
stöðvaði bfl um miðja
nótt sökum þess að ekki
var kveikt á ljósunum.
Ökumaður bflsins
reyndist fjögurra ára
gamall strákur á leið
heim eftir að hafa sótt
myndband á næstu
myndbandaleigu. Snáð-
inn mun hafa farið út
skömmu eftir miðnættið
er aðrir fjölskyádumeð-
limir voru í fasta svefni.
Hann tók bfl föðurs síns
og ók á myndbandaleig-
una. Gekk þessi ökuferð
að óskum þar til lögregl-
an stoppaði snáðann
vegna ljósanna.
Þriggja stiga karfa Sturlu
Sturla samgönguráðherra fær
mörg stig fyrir það sem hann gerði
fyrir íslendinga í sambandi við
Reykjanesbrautina. Ég fagna þessu
eins og örugglega flestir lands-
Óli ÓmarÓlafsson
er ánægöur með
Reykjanesbrautar-
yfirlýsinguna.
Leigubílstjórinn segir
menn. Nú á að drífa í að klára ein-
hverja af þessum brautum. Þetta
voru margar þriggja stiga körfur hjá
honum Sturlu á þessum fundi. Það
er rosalegur munur að keyra
Reykjanesbrautina eftir að hluti af
henni var tvöfaldaður. Það var Ijós £
myrkrinu en um leið fékk maður
sting fyrir brjóstið þegar tækin fóru
burt.
Sturla fær líka stig frá mér fyrir
að blása á hugmyndir Halldórs
Blöndal um hálendisveginn. Það er
rétt hjá honum að það þarf fyrst að
klára einbreiðar brýr og gera veg-
ina þannig að Vestfirðingar geti
ferðast um frekar en að dekra við
eitthvert vinsældadæmi hjá Hall-
dóri fyrir sitt kjördæmi.
Þetta er greinilega góður þrýsti-
hópur hjá þeim suðurnesjamönn-
um og það mættu vera svona hóp-
ar um fleiri mál. Svo þarf líka að-
haldshópa fyrir stjórnarmennina.
Mér fannst Sturla klaufalegur í
kringum Símamálin öll sömul.
Hann er samt ekki verstur af þeim
öllum saman og vinnur mildð á
með yfirlýsingunni um Reykjanes-
brautina. Hann er núna kominn
yfir lækinn og hættur að vera í
Kolgrafarfirðinum. Með útspilinu
um Reykjanesbrautina er hann bú-
inn að negla þetta með blómvendi
sem er ánægjulegt fyrir alla.
Réttarhöld yfir Michael Jackson hefjast með frestun vegna andláts í Qölskyldu verj-
anda hans. Ef Jackson verður fundinn sekur um kynferðislega misnotkun á 15 ára
gömlum krabbameinsveikum dreng býður hans erfið vist í ríkisfangelsinu Corcor-
an þar sem fangarnir kalla ekki allt ömmu sína.
Skiptir út gullbúpiiiu
fyrir lítinn langaklefa
Fangelsi og Neverland Þótt Corcoran-
fangelsið sé nálægt Neverland, búgarði
Jacksons, er himinn og hafá milli aðstæðna
hans I fangelsinu og á heimilinu.
Michael Jackson verður að sleppa snyrtiboxinu, klippa lokka sína
niður í brustaklippingu og skipta á sérhönnuðum fötum sínum
fyrir fangabúning ef hann verður fundinn sekur um kynferðis-
lega misnotkun á nú 15 ára gömlum krabbameinsveikum dreng.
Hann verður að skipta út gullbúr-
inu sem hann hefur lifað í allt sitt líf
fyrir lítinn átta fermetra fangaklefa í
Corcoran-rfldsfangelsinu í Kaliforn-
íu þar sem harðsoðnir fangarnir
kalla ekki allt ömmu sína. Og sem
dæmdur barnamðingur byrjar hann
vist sína á neðsta þrepi í virðingar-
stiga fangelsisins þótt hann eigi að
vísu næga peninga til að kaupa sér
vernd innan múra Corcoran.
Frestað í viku
Réttarhöldunum hefur verið
frestað um viku vegna andláts í fjöl-
skyldu eins af verjendum Jacksons
en nota átti þessa viku til að velja
kviðdóm í málinu. Verði Jackson
fundinn sekur um glæp gegn hinum
15 ára Galvin Arvizo á hann yfir
höfði sér allt að 20 ára fangelsi.
Bróðir hans Jermaine Jackson segir
að bróðir sinn fari aldrei í fangelsi,
fyrr fremji hann sjálfsmorð. Of svo
er spurningin hvort hann flýi land
og kaupi sér nýtt nafn og líf einhvers
staðar utan Bandaríkjanna. Að vísu
er búið að taka af honum vegabréfið
en auðæfi Jacksons eru enn nóg til
að kaupa sér dvalarstað í einhverju
þriðja heims landi.
Nálægt Neverland
Þótt Corcoran-fangelsið sé ná-
lægt Neverland, búgarðijacksons, er
himinn og haf á milli aðstæðna hans
£ fangelsinu og á heimilinu. Jackson
er vanur að fá það sem hann vill og
hefur búið £ guUbúri frá þv£ hann var
fimm ára gamaU. Þekkt vöruhús
hafa opnað fyrir hann dyrnar um
miðjar nætur svo hann gæti verslað £
friði, hvert sem hann fer hefur
Jackson verið umleikinn aðstoðar-
fólki og lflvörðum og á Neverland-
búgarðinum er bæði einkatfvolf og
dýragarður.
í einangrun
f grein £ Ekstra Bladet um h'f
Jacksons £ Corcoran kemur m.a.
fram að hann yrði að öllum lfldnd-
um hafður £ einangrun £ klefa sínum
þann tfma sem hann sæti inni. Ekki
af þvi Jackson er fræg poppstjarna
heldur vegna þess að hann yrði þar
sem dæmdur barnaperri. Og regl-
urnar eru strangar. Hárið má ekki
vera meira en sex sm sitt, hann yrði
að vinna eins og hinir fangarnir i
þvottahúsi fangelsins, á smiðaverk-
stæðinu eða ökrunum i kringum
staðinn. Fangar mega þar að auki
Jackson Hárið má ekki vera meira
en sex sm sitt, hann yrði að vinna
eins og hinir fangarnirí þvottahúsi
fangelsins, á smíðaverkstæðinu eða
ökrunum i kringum staðinn. Fangar
mega þar að auki ekki klæðast eigin
fötum. Allir eru í sömu Ijósbláu
fangadraktinni.
ekki klæðast eigin fötum. Allir eru £
sömu ljósbláu fangadraktinni.
Fengi ekki að sjá börnin sín
Jackson ætti rétt á einni heim-
sókn i fangelsið um hverja helgi.
Hins vegar yrði honum sennilega
meinað að sjá börnin sin. Um slfkt
gilda einnig strangar reglur. Þeir
sem hafa hlotið dóma sem barna-
perrar þurfa að fá undanþágu til að
fá börn sin £ heimsókn samkvæmt
reglugerðum fangelsins og er hvert
tilfelli metið fyrir sig.
Slökkvistöð í Sydney gat ekki sinnt útkalli
Kúba - land vindlanna
Hélt framhjá
með konunni
Jórdanskur maður skildi
við eiginkonu sína eftir að
hann uppgvötvaði að hún
var einnig við-
haldið hans á
netinu. Bakr
Melhem hafði
daðrað við
konu eina á spjallsíðu á
netinu í nokkra mánuði
áður en þau ákváðu að hitt-
ast. En þegar stóra stundin
rann upp á strætóstöð í
Zarqa nálægt Amman kom
í ljós að konan var eigin-
kona hans, Sanaa. Bakr
sagði um leið „Ég skil við
þig“ þrivar sinnum sam-
kvæmt múhammeðstrú og
þau voru skilin. Sanaa mun
hafa náð að kalla mann
sinn lygara áður en hún féll
í yfirlið á strætóstöðinni.
Brunabíllinn fór í
sendiferð eftir pitsu
íbúar í hverfi einu í Sydney í Ástr-
alíu eru ævareiðir eftir að slökkvi-
stöðin í hverfinu gat ekki sinnt út-
kalli þar sem brunabfll stöðvarinnar
var í sendiferð eftir pitsu. Þeim sem
ók bflnum hefur verið vikið frá störf-
um meðan á rannsókn málsins
stendur. Svo virðist sem þar að auk
þess að ná í pitsuna hafi viðkomandi
hitti vini sina í ferðinni og boðið
þeim í ökutúr með bflnum.
Atvik þetta kom upp í úthverfinu
Maroubra. Aðstoðarslökkviliðsstjóri
borgarinnar, John Benson, segir í við-
tali við ABC-sjónvarpsstöðina að at-
vik sem þetta sé óþekkt í gervallri
sögu slökkviliðsins í New South
Wales. Ekki hafi þó verið nein hætta á
ferðum því aðrar slökkviliðsstöðvar
hefðu getað brugðist við útkalli og
Brunabíll Þeim sem ók bilnum hefur verið
vikið frá störfum meðan á rannsókn málsins
stendur. Svo virðist sem auk pitsunnar hafi
viðkomandi hitti vinisina iferðinni og boðið
þeim i ökutúr með bilnum.
slökkt eldinn sem var í íbúðarhúsi.
Einn af talsmönnum stjórnarand-
stöðunnar í Sydney gagnrýnir málið
harðlega og segir: „Þetta er spurn-
ingin um að almenningur geti treyst
því að slökkviliðið geti brugðist við
og bjargað mannslífúm og eignum
og að það hafi forgang fram yfir...
pitsur," segir hann.
Reykingar bannaðar
á opinberum stöðum
Þekktasta útflutningsvara Kúbu
um langt skeið hefur verið vindlar
en í vikunni bönnuðu stjórnvöld á
eyjunni allar reykingar á opinberum
stöðum. Þar að auki verður bannað
að reykja á veitingastöðum nema á
sérstökum svæðum. Með þessu vilja
stjórnvöld bregðast við skaðlegum
áhrifum reykinga.
Samkvæmt upplýsingum frá
stjórnvöldum á Kúbu munu fjórir af
hverjum tíu landsmanna reykja og
um 30% af 15.000 andlátum vegna
krabbameins á hverju ári má rekja
beint til reykinga. Fyrirætlanir
stjórnvalda voru gerðar opinberar í
síðasta mánuði en þær fela m.a. í sér
að sígarettusjálfsalar verða fjarlægð-
ir af götum borga og bæja, bannað
verður að selja tóbak fólki undir 18
Havana Tóbaksiðnaðurinn ereftirsem áður
ein mikilvægasta peningauppspretta eyj-
unnar og veitir um 200 milljónum dollara
eða 12 milljörðum króna árlega.
ára aldri og ekki má selja tóbak í
minna en 100 metra fjarlægð frá
skólum.
Tóbaksiðnaðurinn er eftir sem
áður ein mikilvægasta peningaupp-
spretta eyjunnar og veltir um 200
milljónum dollara eða 12 mflljörð-
um króna árlega.