Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2005, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 2005
Fréttir DV
Taka lán til að
borga lán
í greinargerð um fjár-
hagsáætlun Hafnar í
Hornafirði fyrir
árið 2005 sem
Albert Eymunds-
son bæjarstjóri
skrifar undir og
birtist á horna-
fjordur.is segir
meðal annars:
„Áætlað er að taka
milljón króna lán á vegum
bæjarsjóðs og greiða eldri
lán um 90 m.kr. þannig að
skuldaaukning verður um
10 milljónir króna á milli
ára. Sömuleiðis þarf hafn-
arsjóður að taka 25 millj-
óna króna lán en greiðir af
eldri lánum 7 milljónir."
Fjárhagsáætlunin var
samþykkt í lok síðasta árs.
Verðbólgan
yfir þolmörk
Verðbólga hefur auk-
ist að undanförnu og
mun að öllum líkindum
fara yfir efri þolmörk
verðbólgumarkmiðs
Seðlabankans í vikunni,
þ.e. 4%. Verðbólgan
mun þó lfklega hjaðna
er líður á árið. Verð-
bólga mun vaxa á síð-
ustu mánuðum þessa
árs og næsta ár mun
einkennast af verð-
bólguskoti ef gengisspá
gengur eftir. Þannig má
reikna með 4,6% verð-
bólgu yfir þetta ár og
8,2% verðbólgu yfir
næsta ár. Greining
íslandsbanka segir frá.
Með LSD og
amfetamín
Um helgina stöðvuðu
lögreglumenn akstur bif-
reiðar á Selfossi sem í voru
tvö ungmenni. Grunsemdir
vöknuðu um að ökumaður-
inn væri undir
áhrifum ffkni-
efna og voru
ökumaðurinn
og farþegi
handteknir á
vettvangi. í bifreiðinni
fundust áhöld til fíkniefna-
neyslu og í framhaldi af því
var gerð húsleit á heimili á
Selfossi og í sumarbústað í
Grímsnesi. í þessum leitum
fundust um 60 grömm af
amfetamíni og 6 skammtar
af LSD auk áhalda til neysl-
unnar. Fjórir voru yfir-
heyrðir vegna málsins sem
telst upplýst. Fólkið hefur
allt komið áður við sögu
ffkniefnamála og er á aldr-
inum frá 20 til 30 ára.
#*' ©@ «
Sex manna Qölskylda við Granaskjól sem lenti í bruna í desember 2003 undrast að
lögregla skuli hafa hætt rannsókn á íkveikju á heimili þeirra. Heimilisfaðirinn,
Örn Ingólfsson. lá sjálfur undir grun en rannsókn lögreglu hreinsaði hann af ásök-
unum um að hafa stefnt konu sinni og börnum í voða. Hann vill að þáttur konu
sem var gestkomandi á heimilinu verði rannsakaður.
Börnin misstu vlni ug fnðirinn
vinnn eftir pitsukassabrunn
Þórunn Baldursdóttir, eiginkona Arnar, varð eldsins fyrst vör
snemma um morguninn. Hún vaknaði við skerandi væl í reyk-
skynjurum. Tveir ungir synir hennar voru þá sofandi í rúmum
sínum auk ungrar konu sem var gestkomandi í húsinu. Þórunn
vakti drengina og ungu konuna og hélt með þau á neðri hæð
hússins þar sem faðir hennar býr. Slökkvilið og lögregla komu á
vettvang og færðu fólkið á sjúkrahús vegna gruns um reykeitrun.
Þetta var klukkan átta um morg-
uninn. Hálftíma áður hafði heimilis-
faðirinn farið til vinnu sinnar og
orðið einskis var. Rannsókn lögreglu
leiddi í ljós að kviknað hefði í þrem-
ur pitsukössum sem legið höfðu á
tveimur af fjórum eldavélarhellum
sem kveikt hafi verið á.
Nýbúið að mála eldhúsið
öm og Þórunn höfðu verið að
mála eldhúsið kvöldið fyrir brunann
og því vom málningardollur og
penslar í eldhúsinu. Örn segir að
þegar hann hafi yfirgefið heimilið
hafi pitsukassarnir hins vegar verið á
borðstofuborði hússins.
„Við höfðum pantað þessar pits-
ur kvöldið áður þar sem verið var að
mála eldhúsið og því var borðað í
stofunni," segir örn sem fékk símtal
í vinnuna fljódega eftir að slökkvilið
kom á vettvang. Hann dreif sig heim
til að vitja um fjölskyldumeðlimi
sem þá vom komnir á slysadeild og
fór í framhaldinu í yfirheyrslu hjá
lögreglu. Stimpilkort hans var meðal
annars notað til að vita um ná-
kvæmar tímasetningar.
Barninu kennt um
öm, kona hans og unga konan
vom öll yfirheyrð vegna málsins.
Sonur hjónanna, sem þá var fjög-
urra ára, var meðal annars grunaður
um að bera ábyrgð á eldinum í
óvitaskap, í kjölfar skýrslugjafar
ungu konunnar, en Öm kveðst ekki
trúa því að sú geti verið raunin enda
hafi drengurinn verið sofandi.
„Við höfðum engan hag af því að
kveikja hér í, töpuðum sjálf miklum
fjármunum vegna innbús og dóts
sem skemmdist en fékkst aldrei
bætt. Hverslags maður væri það sem
reyndi að kveikja í með ung börn sín
„Hverslags maður
væri það sem reyndi
að kveikja í með ung „
börn sín og konu
sofandi í næstu her-
bergjum?"
og konu sofandi í næstu herbergj-
um?“ spyr öm.
Einelti í kjölfar ásakana
Hann segir fjölskylduna hafa þurft
að líða fyrir grunsemdir lögreglu á
hendur sér; bömum hafi verið bann-
að að leika við syni þeirra, gert að
forðast heimilið, auk þess sem hann
hafi þurft að skipta um vinnu í kjöl-
farið á fréttaumfjöllun um málið.
„Málið var auðvitað reifað í fjöl-
miðlum og þar haft eftir lögreglu að
ég hefði játað, sem er auðvitað al-
rangt. Ég hrökklaðist úr vinnu í kjöl-
farið enda fóru illar tungur af stað
sem leiddu til þess að það átti að færa
mig til í starfi. Ég ákvað þá að skipta
um vinnu," segir Örn sem vill að lög-
regla rannsaki hlut ungu konunnar
sem var gestkomandi á heimilinu.
Hver kveikti í?
„Þessi kona hafði verið heima-
gangur hér en er ekki lengur," segir
öm. „Hún þarf að gera betur grein
fýrir sínum hlut finnst mér enda
virtist henni mikið í mun að koma
sök á annað hvort mig eða barnið
auk þess sem við bentum lögreglu á
að hún hefði verið tvísaga þegar hún
ræddi málið," bætir hann við en
samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu þótti ekki ástæða til að gefa út
Vill vita hver kveikti í Örn Ingólfs-
son lá sjálfur undir grun um aö hafa
kveikt I heima hjá sér, þar sem kona
hans og tvð ung börn lágu sofandi
auk konu sem var þar gestkomandi.
Vill aö hlutur konunnar veröi rann-
I „
Slaem aðkoma Eldhúsiö íibúö-
gJ inni gjöreyöilagöist i eldinum auk
■ þess sem sót og reykur unnu mik-
■ iö tjón á mestallri íbúðinni. Þór-
■ unn og Ingólfur höföu nýtokið viö
■ að mála eldhúsið, kvöldinu áður.
kæm í málinu, þrátt fyrir að sannað
þætti að kveikt hefði verið í, og var
máhð því látið niður falla.
„Ég vil að lögregla rann-
saki hvað þarna gerðist,
mér finnst við eiga
heimtingu á því," bætir
hann við.
Málið hefur ekki ver-
ið rannsakað frekar eftir
að saksóknari tók
ákvörðun um að gefa
ekki út ákæm í málinu,
samkvæmt upplýsingum
frá lögreglu.
helgi@dv.is
DV-mynd E.ÖI
A.
Jónsson trommuleikari
hljómsveitarinnar Nilfisk frá
Stokkseyri.„Það er ekki mikiö
um að vera hér þessa dagana.
Veðrið er reyndar ágætt fdag.
Viö í Nilfisk erum mest íþví að
æfa og svo kíkjum við líka á
Draugabarinn sem er hérna í
bænum. Flnn bar, mæli með
því að fólk kíki úr bænum og
tékki á honum."
Húsráðandi sem beittur var valdi á eigin heimili
Ekki refsað fyrir að ógna með hnífi
Þrítugur bóndi í önundarfirði
hefur verið fundinn sekur um að
ógna lífi manns sem kallaður hafði
verið á heimili árásarmannsins til að
skakka leikinn milli hans og eigin-
konu hans.
Það var í júní í fyrrasumar að eig-
inkona mannsins sem dæmdur var
hringdi í vinkonu sína og bað hana
að koma á heimili sitt þar sem henni
stafaði ógn af manninum sem væri
þar drukkinn. Þau höfðu verið að ríf-
ast og slást. Vinkonan kom ásamt
manni sínum. Eru þau vinafólk
hjónanna á bænum.
Þegar fólkið bar að garði sat
húsbóndinn ásamt móður sinni í
þvottahúsinu og reykti sígarettu.
Aðkomumaðurinn vildi freista þess
að fá húsbóndann með sér inn í
hjónaherbergið á meðan húsfreyjan
tæki saman föggur sínar og barna
þeirra hjóna. Ætíaði konan að yfir-
gefa heimilið með aðkomufólkinu.
Húsráðandinn var beittur valdi
og færður í hjónaherbergið en tókst
að rífa sig lausan. Náði hann í
eldhúshníf og hrakti gestinn óvel-
komna út úr húsi og út á hlað.
Hugðist hann veita gestinum eftirför
niður heimreiðina en vildi þá ekki
betur til en að hann flaug á hausinn.
Móðir hans koma þá aövífandi, tók
hnífana sem hann hafði misst og
faldi innandyra.
Héraðsdómur Vestfjarða frestaði
að gera manninnum refsingu í mál-
inu og fellur hún niður haldi hann
skilorð í tvö ár. Dómurinn taldi hon-
um til málsbóta að aðkomumaður-
inn beitti hann valdi og að ósannað
væri að hann
hefði ætíað að
hefta för konu
sinnar með
börnin.
Kamerúnum
vísað úr landi
Sýslumaðurinn á Keflavfkurflug-
velli vísaði í gær tveimur mönnum
með ríkisfang í Kamerún úr landi.
Mennimir vom stöðvaðir við komu
hingað til lands frá Bretíandi á laug-
ardag en þeir munu hafa haft
námsmannadvalarleyfi í Svíþjóð.
Mennirnir munu ekki hafa haft
neina ijármuni meðferðis né heldur
getað gert grein fýrir ástæðum
komu sinnar hingað til lands og var
því vísað úr landi.