Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2005, Síða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2005
Lífið DV
* \
Eiver
í Salnum
Sunnudaginn 13.febrúarverður
Eivar Pálsdóttir, söngkona og laga-
smiður, með óvenjulega tónleika í röð
*■ Tíbrár i Salnum góða í Kópavogi og
hefjast þeir kl. 20.00 stundvíslega.
Með Eivaru leikur hið fræga band
KaSa, eða Kammersveit Salarins eins
og bandið heitir, og er ekki skipað
neinum smátittlingum.Á tónleikun-
um verða flutt frumsamin lög eftir
Eivaru Pálsdóttur sem Hilmar Örn
Hilmarsson, Árni Harðarson, Pétur
Grétarsson og Kjartan Valdimarsson
hafa útsett sérstaklega fyrir söngkon-
una og hópinn. Þá mun KaSa-hópur-
inn fiytja píanókvintett eftirJón Ás-
geirsson. Flytjendur auk Eivarar þetta
kvöld verða þau Áshildur Haralds-
’ dóttiráflautu,SifM.Tulinius
fiðluleikari, Bryndís Björgvinsdóttir á
selló, Helga Þórarinsdóttir á viólu og
Nína Margrét Grímsdóttir á píanó.
Tæknimaður er Lárus H. Grimsson.
Árangur samstarfs KaSa-hópsins
og hinnarfrábæru listakonu frá
Færeyjum getur ekki orðið annað en
tilhlökkunarefni segir i fréttatilkynn-
ingu Salarins, en tónleikarnir verða
endurteknir i Noröurlandahúsi Fær-
eyja þann 19. febrúar næstkomandi.
Eivar Pálsdóttir hefur flutt tónlist
sína við frábærar viðtökur víða um
heim, unnið til tveggja íslenskra tón-
«. listarverðlauna og hljóðritað þrjár
geislaplötur. Hún hefurenn fremur
unnið með ýmsum listamönnum, svo
sem saxafónleikaranum John Purcell,
DR Bigband og kanadiska þjóðlaga-
söngvaranum Bill Bourne. Einkenni
söngkonunnar eru hrífandi einlægur
tónlistarflutningursem á ræturað
rekja til færeyskrar þjóðlagahefðar.
KaSa-hópurinn hefurstarfað á
* höfuðborgarsvæðinu frá árinu 2001
við mjög góðgn orðspr. Afverkefnum
KaSa-hópsins á undánförnum miss-
erum má nefna velheppnaða tón-
leika á Myrkum músíkdögum 2005,
tónleikaferð tilJapans með Dimitri
Ashkenazy á síðasta ári, tónleika á
Listahátíð i Reykjavík 2004 sem helg-
aðir voru íslenskri kvikmyndatónlist,
metnaðarfulla tónleika iSalnum,
Tónlistarhúsi Kópavogs undir merkj-
um TlBRÁR,kammertónlistarhelgi í
Ráðhúsi Reykjavíkur með tónlistar-
nemum frá Islandi og Færeyjum og
hljóðritun geisladisks með Skólakór
Kársnesskóla í desember2003.
Miðasala er þegar hafmog er
áhugasömum bent á að takmarkað
magn miða er i boði þvíTíbrár-rööin
* er í áskrift og því er þegar búið að
selja talsvert marga miða.
Jónas frá Hriflu og sönn
íslensk mynd
Guðni Tómasson listsagnfræðingur
heldur í dag fyrirlestur i Listasafni
Islands um svokallaðar Gefjunarsýn-
ingar 7 942 og nefnir fyrirlestur sinn
Jónas frá Hriflu og sönn íslensk
myndlist.
I fyrirlestrinum verðursagt frá mynd-
listarsýningum Jónasar Jónssonar frá
Hriflu á vormánuðum árið 1942, hina
svokölluðu háðungarsýningu og
einnig það sem honum þótti frekar við
hæfí þegar kom að íslenskri myndlist.
ist
Sagt verður frá tilraunum þessa merki-
lega stjórnmálamanns til að hafa áhrif
á framþróun íslenskrar myndlistar sem
formaður menntamáiaráös Alþingis
og hörðum viðbrögðum listamanna
við þeim tilraunum. Einnig veröur
fjallað um stýringartilburði ráða-
manna í Þýskalandi nasismans til að
„bæta"þýska myndlist og samanburð-
ur gerður á þessum tveimur tilraunum
til þjóðnýtingar listanna.
Guðni Tómasson stundaði BA-nám i
Komposition
(Höfnin) frá 1938
eftir Þorvald
Skúlason (LÍ 585).
sagnfræði við Háskóla íslands
þaðan sem hann lauk prófí
árið2001. Lokaritgerðin hans
heitir Gallerí og sýningarsalir i
Reykjavík 1900-2000. Guðni
stundaöi M.Litt-nám í lista-
sögu við St. Andrews háskóla í
Skotlandi veturinn 2002-2003.
Lokaritgerö hans þaðan ber
heitið Jónas Jónsson and his Precepts
for lcelandic Art. Frá árinu 2001 hefur
Guðni fengist við dagskrárgerð og
pistlaskrifá Rás 1, meðal annars i
þættinum Víðsjá, auk sjálfstæðrar dag
skrárgeröar um menningu og mynd-
list. Hann starfar nú hjá þjóðgarðinum
á Þingvöllum.
Fyrirlestur Guðna er haldinn i
tengslum við sýningu Listasafnsins Is-
lensk myndlist 1930-1945 og hefst í
fyrirlestrasal safnsins við Frikirkjuveg
kl. 17.30.
Á fimmtudag opnar Bára K. Kristinsdóttir ljósmyndari sýningu á ljósmyndum
sínum úr gróðurhúsum í Ljósmyndasafni Reykjavíkur í Grófarhúsi. Þetta er sjötta
einkasýning hennar en sýninguna kallar hún Heita reiti. Verkin eru stór og kóp-
eruð beint á pappír. Allar myndirnar eru til sölu.
Hetr reitir
Á fimmtudag opnar Bára K. Krist-
insdóttir ljósmyndari nýja einkasýn-
ingu í sölum Ljósmyndasafns
Reykjavíkur í Grófarhúsi. Á sýning-
unni, sem hún kallar Heita reiti,
sýnir Bára ljósmyndir sem hún tók á
nær sex mánaða trmabili í gróður-
húsum víða um land - í Mosfellsdal,
í Borgarfirði, á Flúðum og víðar.
Myndirnar eru allar teknar á
filmu, slides 4x5’ sem margir
kannast við og framkallaðar beint á
pappírinn með svoköliuðum R-
process. Voru myndirnar unnar í
New York. AUar verða myndimar til
sölu en þær eru á pappírinn komnar
ístærðinni 1x1.20.
Svíþjóð, Ameríka, Reykjavík
Bára er að góðu kunn sem auglýs-
inga- og iðnaðarljósmyndari hér á
landi. Bára fæddist árið 1960 í
Reykjavík, lærði ljósmyndun í
Gautaborg og lauk þar námi 1989.
Hún vann síðan sem aðstoðarljós-
myndari í Svfþjóð og Ameríku í þrjú
ár en fluttist heim 1992 og hóf störf
sem ljósmyndari. Meðfram þeirri
vinnu hefur hún einnig sinnt eigin
listsköpun á sviði ljósmyndunar,
haldið einkasýningar í tvígang í
Gaileríi Sævars Karls, sýnt í Schwules
Museum Berlin, Regnbogasal Sam-
takana 78 og hjá Jóa og félögum.
Hún hefur einnig tekið þátt í fjölda
samsýninga frá byrjun ferils síns,
bæði heima, á Norðurlöndunum og í
Þýskalandi.
Bára segist hafa kosið að taka
myndimar í filmu en ekki stafrænar
vélar. í því felist ekki andúð á nýrri
tækni. Ljósmyndavélin með gamla
laginu sé að hverfa af sjónarsviðinu
og ýmis kunnátta sem hafi tengst
þessu miðlunarformi sjónlistanna sé
brátt að hverfa. Sú framköllunar-
tækni sem hún valdi sé að verða lið-
in tíð; þeir aðilar sem unnu afrit
myndanna í New York em að verða
uppiskroppa með pappír til að vinna
myndir á þennan hátt. Hann er ekki
lengur framleiddur.
Ónátturuleg náttúra
Heitirreitir sýnir gróðurhús. „Þau
em svo spennandi myndefni," segir
Bára. Myndirnar gefa innsýn inn í
ónáttúnílega náttúm og leitast hún
við að fanga það sjónarspil sem
skapast út frá andstæðum; innan-
dyra og utandyra. „Aðeins gler og
járngrind skilur á milli og hafa
umhverfisþættir eins og birta, hiti og
kuldi afgerandi áhrif á útkomu
myndanna sem í senn endurspegla
fegurð og framandleika. f myndun-
um má einnig greina skírskotanir til
listasögunnar og minna margar
þeirra á hollenskar kyrralffsmyndir
þar sem draumurinn um Edensgarð-
inn var hafður í hávegum" segir í
kynningartexta safnsins.
í viðtali sem birtist í sýningarskrá
segir Bára. „Eftir að ég ákvað að
mynda í gróðurhúsum leitaði ég
uppi fólk sem hafði þekkingu á
þessu sviði og fékk ýmsar ábending-
ar um hvert ég gæti leitað. Ég ók af
stað með nafn á einni manneskju
sem hafði samþykkt að hleypa mér
inn í gróðurhús. Svo vatt þetta upp á
sig og ég ók vítt og breitt um landið, í
alls konar gróðurhús. Þótt ég væri
nokkuð fljótlega komin með ágætan
affakstur þessara ferða, þá vildi ég
sífellt bæta við myndum og fór all-
nokkrum sinnum út á land til þess.
Myndirnar eru flestar teknar um
vetur þannig að ég hef verið háð
veðri og birtu. Ég hef heldur ekki
notast við neitt leifturljós heldur
eingöngu dagsbirtuna og ljósin í
gróðurhúsunum."
Gróður undir gleri
Gróðurhúsið er raunar óeðlilegt
fyrirbæri á íslandi. Hér eru sumur of
stutt og sólargangur þannig að
ræktun í gróðurhúsum er afar erfið. í
nágrannalöndum eru gróðurhús
aldagamalt fyrirbæri og notuð til sér-
ræktímar á jurtum sem eru frá heit-
ari beltum jarðar. Við flytjum lofts-
lagsbeltin tU með gróðurhúsinu. Hér
bætist við að fyrir tUstilli heits reits
undir landinu urðu gróðurhús hér
fjölmörg og þau eru talin tU sjálf-
sagðra hluta í tilveru landsmanna.
En fyrir hvað standa gróðurhús?
Við njótum góðs af því sem þar er
ræktað, en sjaldnar er augum okkar
beint að fyrirbærinu sjálfu og það
sett fram á sjómænan hátt, hvorki í
grósku hitans né í hnignun vanhhðu
og aldms. Þau eru ónuminn vöUm
fyrir myndfistina og inn á þann vöU
hefm Bára arkað með vélina sína.
Sýningin verðm opin frá 12.00-
19.00 virka daga, en frá 13.00-17.00
um helgar, en safiiið er staðsett í
Grófarhúsi í Tryggvagötu við gömlu
höfnina. Vefur Ljósmyndasafns
Reykjavíkm er www.ljosmyndasafn-
reykjavikur.is. pbb@dv.is