Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2005, Qupperneq 3
DV Fyrst og fremst
MÁNUDAGUR 14. MARS 2005 3
Götuspilarinn JóJó hefur glatt hjörtu margra vegfarenda í
gegnum tíðina. Á föstudagskvöld var hann á sínum vanalega
stað í Austurstræti og „spilaði
og söng“ eins og segir í ein-
hverju lagi. „Hey, Símon.
What heart are you going to break tonight?" kallaði JóJó þegar
hann sá mig með kameruna hinumegin við götuna. Útlending-
ar sem greinilega hafa alið manninn í öðruvísi menningarsam-
félagi hentu nokkrum krónum í gítartöskuna. Sjálfur var ég bara
með kort eins og flestir alvöru Islendingar.
Og alvöru götuspilari eins og JóJó er ekki með posa.
„What heart are you going to break tonight?" Hverju er hægt
að svara manni eins og JóJó? Hann er nánast eins og guð. Al-
gjörlega á sínum eigin forsendum. Sinn eigin herra sem berst
fýrir betri heimi meðan við hin gerum okkar til að skemma
hann. Enn einn útlendingurinn hend krónum í gítartöskuna.
Túristar eru góð fyrirmynd.
í gegnum næstum því skopleg gleraugun virðir götuspilar-
inn JóJó fyrir sér mannlífið. Virðir fyrir sér strauminn af
skemmtanaglöðu fólki. Og þannig sinnir JóJó sínu hlutverki.
Spilar slagara fyrir krónur, meðan hjörtu eru brotin í miðborg
Reykjavíkur.
Skyndimyndin
Spurning dagsins
Hvað gerðir þú um helgina?
Við strákarnir á Popptíví renndum
í Bláa lónið á föstudaginn
„Það var nóg að gera hjá mér um helgina. Við strák
arnir á Popptíví renndum í Bláa lónið á föstu-
daginn, slökuðum á með nokkra bjóra og höfð-
um það gott. Síðan var brunað í bæinn og við
tókum pítsu og Idol. Á laugardaginn byrjaði ég á
því að fara í skvass en það er ótrúlega skemmti-
legt sþort. Síðan fór ég á Pilobulus-sýninguna.
Mjög flott sýning nema að hún var aðeins
listræn fyrir mig.“
Ásgeir Kolbeinsson sjónvarpsmaður
„Þetta var
skemmtiieg
helgi. Kærastan
mín hún Tinna
hélt upp á af-
mælið sitt á
föstudaginn.
Það var svona fyrsta alvöru
partíið í nýju íbúðinni okkar og
það varmjög gaman. Á laugar-
daginn fórég í góugleði sem
haldin var í Klink og bank en ég
er með aðstöðu þar. Eftir það fór
ég í afmæli til Birgis vinar míns
og þaðan á Mínus-tónleika á
Gauknum."
Birgir Örn Thoroddsen fjöl-
listamaður
„Ég kíkti í
Smáralindina á
föstudaginn og
fylgdist með
Idolinu. Á laug-
ardaginn fór ég
svo í afmæli til
kollega míns. Annars var ég líka
eitthvað að reyna að sinna
náminu en ég stefni á að klára
MHmeð sóma."
Helgi Rafn Ingvarsson nemi
„Á föstudag-
inn horfði ég
náttúrulega á
Idolið og á
laugardaginn
fór ég á
Pilobulus í
Laugardalshöllinni. Það var al-
veg ótrúleg upplifun, mjög
skemmtilegt."
Kristín Rós Hákonardóttir
ólympíuverðlaunahafi
„Það var nóg
að gera. Ég var
að sýna Óliver
Twist á Akur-
eyri, síðan var
ég að syngja á
Hótel Glym í
Borgarfirði.Á laugardaginn fór
ég svo á sýningu Kvennaskól-
ans, Iþágu þjóðarinnar en ég
leikstýrði þeirri sýningu. Þetta er
verk sem aldrei hefur verið sýnt
hér og er mjög skemmtilegt."
Margrét Eir Hjartardóttir
söngkona
Viðmælendur DV höfðu í mörg horn að líta um helgina.
Magni kemur heim með íslandsmyndir
Það er staðreynu...
..aðtilþessað vera oi
um aðvinnaílottomí
aðkaupaS01.942ta'
Hverröð kostar75 kr
kostaraðirnarsamtc
rúmar 37,6 milliomr
Gamla myndin
„Þarna er ég að sýna gamlar ís-
landsmyndir sem ég hafði uppi á á
einhverjum markaðnum í Danmörku,
segir
Magni
R.
Magnússon kaupmaður og safnari.
„Ég hefmikið ferðast um I Danmörku,
Frakklandi og Englandi i leit að gömlum Is-
landsmyndum. Þetta eru
yfirleitt myndir frá
lB.öldsemferða-
menn teiknuðu af
landinu á ferðalög-
um sínum. Þessar
myndirernúað
fínna víða á antik-
mörkuðum. Ég eyði
litlum tíma á kránni þegar ég er er-
lendis.Ég eyði yfírleitt öllum mínum
tima i antíksölunum, stundum ranka
ég við mér í lok dagsins þegar garna-
gauliö gerir vart við sig, þá er ég kannski
búinn að eyða heilum degi i grúskið. Þetta
er samt yndisleg tilfínning og sérstaklega
gaman þegar maður fínnur eitthvað
skemmtilegt," segir
Magnisem hyggst
hætta með búðina
sína fljótlega:
„Égferaðveröa
sjötugur og ég ætla
að eyða næstu þrjá-
tíu árum með
konunni, enda á ég
góðakonu."
Hendi
I slangurorðabókinni er svona fjallað
um oröið hendi: (upphaflega þgf. af
höndj: I. dómur íknattspyrnu (auka-
spyrna, vítaspyrna) vegna
þess að knöttur hefur ver-
ið handleikinn; 2. í sams. skothendi sú
höndsem leikmaður í körfuknatt-
leik/handknattleik notar til markskota.
Málið
rithöfund- t
disem
I tókst að verða
öfundar, hvorki
éeftireigið
r örn Norðdahl
an.com.
ÞEIR ERU BRÆÐRASYNIR
Rokkstjarnan og knattspyrnugoðið
Kristján Frosti Logason, gítarleikari og dagskrárgerðarmaður, og Rik-
harður Daðason, fyrrum atvinnumaður í knattspyrnu og
leiklýsandi á Skjá Einum, eru bræðrasynir. Faðir Kristjáns
Frosta, Logi heitinn Runólfsson, var bróðir Daða Runólfs-
sonar, föður Rlkharös. Bræðurnir sem eru Reykvikingar i
húð og hár hafa vafalaust notið hylli kvenpeningsins á
«#T árum áður, að minnsta kosti efmarka má hyllina sem
synirnir hafa notið enda báðir eftirsóttir afkvenþjóöinni og
* jafnan á listum yfir kynþokkafyllstu karlmenn sinnar kyn-
' slóðar.
Komdu og sjáðu
Sængurgjafaúrvallð
hjá okkur
yUóðwm st
Dalbrekku 28 • Kópavogi • Sími 5641451
www.modurast.is