Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2005, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2005, Blaðsíða 30
30 MÁNUDAGUR 14. MARS 2005 Hér&nú ÖV « ♦ Scott Weiland segist vera hættur al eiturlyfj missa eii i < [avrvi.'B í [• í rm A n h Leikstjórinn Alexander Payne og eiginkona hans, Sandra Oh, eru skilin.„Þau hafa sam- mælst um þá ákvörðun að skilja en munu vera vinir áfram," sagði talsmaður parsins. Pay- ne og Oh kynntust fyrir fimm árum og gengu í hjónaband árið 2003. Payne skrifaði handrit- ið að og leikstýrði Sideways sem tilnefnd var til fimm Óskarsverðlauna.Oh lék í myndinni. Hatch segist saklaus Richard Hatch, sigurvegari i fyrstu þáttaröðinni af Survivor segistekki hafa greitt skatta af vinningi sín- um, einni milljón dollara, vegna þess að hann hafi talið að CBS- sjónvarpsstöðin hafi ótt að gera það.„Ég er ekki sekur," segir Hatch. Lögfræðingur Hatch segir að aldrei hafi komið fram hvort vinningurinn væri ein milljón dollara eða ein milljón dollara, mínus skattar.„Það er verið að gera eitthvað fordæmis- mál úr mér. Ég er saklaus af þessu," segir Hatch. Hætti í dópinu ti missa -söngvarinn Pilots. Síðustu tfu árum i þakkar fjölskyldu sinni þennan árangur. „Sú tilhugsun að hefur Weiland eytt í vfmu en ekki a og bömin breytti öllu. Mig langar ekkert að komast f vímu lengur: „í fyrsta sinn í lífinu er ég ' ára gamli söngvari sem áður gerði það gott með Stone ánægður." Jse. Ég mun horfa áfram „Ég hafði voða gaman að þessum þætti og kem eflaust til með að fylgj- ast vel með þeim áfram. Þátturinn er gríðarlega vinsæll í Bandaríkjunum og víðar og ég veit til þess að Norðmenn eru mjög hrifnir af þáttunum. Fullkomnunarsinninn, Bree, er mjög skemmtilegur karakter og alveg frá- bært að sjá hversu snobbuð og stíf hún er, allt er tipp topp hjá henni og hún eyðir þremur tímum í að undirbúa kvöldmatinn! Svo fannst mér ein- stæða mamman lika skemmtileg en hún er frekar taugaveikluð en er alltaf hress og kát. Þetta er léttur þáttur l£kt og Beðmál í borginni en mér finnst ekki vera fleira sameiginlegt með þáttunum. Þættimir em auk þess nokkuð raunverulegir en ég held að margir þekkt mæður eins og Lynette sem á í fullu fangi með börnin sín.“ . Sigríður Beinteinsdottir Sjónvarpsþáttur- inn Aðþrengdar eiginkonur, eða Depsperate Housewives, var I frumsýndur á Ríkissjónvarpinu á fimmtudaginn var. Hér og Nú hafði samband við konur úr söngkvenna- klúbbnum Gör- óttu gyðjurnar og fékk að heyra álit þeirra á þættinum. ■*$?> 4* Skemmtilega óraunverulegir . . „Þessir þættir eiga greinilega að vera svolítið ýktir enda er þetta sjón- varpsþáttur og ég myndi segja að þættimir séu svona skemmtilega óraun- verulegir. Ég efast um að það séu margar konur alveg eins og karakterarnir. Mér leist samt ágætíega á þennan fyrsta þátt en ég vissi ekkert við hverju ég átti að búast. Mér finnst þessi söguþráður sem kraumar undir mðri frekar spennandi en persónulega er ég meira fyrir breskan húmor. Þessi þættir eru kannski tilraun til að dýpka bandarískra þáttagerð en húmorinn er svolítið svartari en gengur og gerist í bandarískum sjónvarpsþáttum." Margrét Eir Hjartardóttir Raunverulegri en Beðmálin „Mér leist bara mjög vel á þáttinn, humorinn er svoh'tið svartur og ég fQa það Það er áberandi hversu skýrir karakterar em í þættinum og hver kona er á vissan hátt olflc hmni. Mér finnst þessir þættir aðeins meira raunverulegir en Beðmál í boreinni og nær íslenskum veruleika. Ég hugsa að flestar konur geti séð eitthvað af sjálfum sér t karakterum þáttanna og þá kannski frá- skyldar og giftar konur sem halda heimili íyrir maka og böm. Til dæmis þegar Lvnette var spurð að því hvort það væri ekki æðis- iegt að vera heimavinnandi húsmóðir en hana langaði ekkert frekar en að segja nei. etta er kannski eitthvað sem sumar konur ættu að kannast við en það er ekki viður- kennt i samfélaginu að mæður fái leið á að hugsa um börnin og heimilið. Beðmál í borgmni voru að mínu mati stundum ftdfflr áraunliæí en það má vera að Beð- máim hófði frekar til einhleypra kvenna og þessi þattir komi til með að höfða frekar tfl giftra og fráskyldra kvenna." Regína Úsk Óskarsdóttir Ég er stundum eins og Lynette „Ég myndi ekki segja að þættimir væm raunverulegir en vissulega em konur í þess- ari stööu bæði hér og í Bandaríkjunum. Þátturinn var góður og ég ætla að fylgjast með honum áfram en húmorinn var goður og karakterarnir sömuleiðis. Maður hefur kynnst konum eins og þeim sem þættimir fjafla um til dæmis eins og konan sem kom að Mary Alice þar sem hún lá í blóði sínu, en konan kippti sér lítið upp við það og hélt eftir blendernum. Mér finnst stundum að ég sé í svipaðri aðstöðu og Lynette þegar ég er að reyna að ná stjórn á börnunum. Svo fannst mér Susan fyndin týpa en henni er mikið í mun að ná sér í annan mann og lendir svo í því að keppa um athygli ptpar- ans við aðra konu. Ég myndi ekki segja að þættirnir kæmu í stað Beðmálanna í borg- inni enda varla hægt að líkja þessum þátt- um saman þó markhópurinn sé sá samt. Beðmálin fjöfluðu fýrst og femst um hvernig konumar gæm náð sér í mann, á meðan konumar í Aðþrengdar eiginkonur em meira að einbeita sér að því að halda það út að vera með mönnum sínum. Eg bið spennt eftir næsta þætti." Hera Björk Þórhallsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.