Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2005, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2005, Blaðsíða 17
DV Heilsan MÁNUDAGUR 14. MARS 2005 17 Heit krabbameinslyf ,c.:' , ‘vr Eftir því sem fram kemur í fréttum BBC er nýjasta ráð sérfræðinga í krabbameinslækningum að hita upp lyfin og sprauta þeim inn í kvið og meltingarveg sjúklinga sem hafa krabbamein á því svæði líkamans, þar með talið í eggjastokkum og ristli. Sé þessi meðferð notuð samhfiða skurð- aðgerðum eru fifslikur og bætt líðan langtleiddra sjúklinga taldar mun meiri en þegar eldri lækningarráð eru notuð. Er talið að hitinn í lyfjunum auki verk- un lyfjanna en einnig bein snerting lyfj- anna við krabbameinið. Segja þeir sem hafa haft umsjón með tilraunum um þessi mál að þeir sjúkfingar sem hljóti meðhöndlum með heitum lyfjum ferð fifi að meðaltafi 45,1 mánuði lengur en þeir sem njóta hefðbundinnar læknis- meðferðar. Þeysi um á krossaranum „Ég á mótorhjól, svokallaðan kross ara sem ég þeysi um á, mér til heilsu- bótar," segir Ragnar Jónasson hár- greiðslumaður, betur þekktur sem Raggi á Space, fullur sannfæringar- krafts. „Þetta tekur mikið á og er þar að auki hin besta skemmtun. Svo var ég að byrja í ræktinni þannig heilsuræktin er öll á leið í rétta átt um þessar mundir.“ Þótt ótrúlegt megi virðast er gert upp á milli þeirra barna sem þurfa á gleraugum á halda. Sum þeirra fá gleraugun sín að hluta endurgreidd frá Tryggingarstofnun ríkisins og önnur ekki. Öll börn njóta sömu réttinda þegar kemur að tannviðgerð- um og notkun heyrnartækja. Áratugagamlar ástæður liggja því að baki að nær- sýnir fá ekki sín gleraugu að hluta endurgreidd og hefur þróunin síðan þá þróast í að þessi hópur barna er einn undanskilinn sjálfsögðum réttindum sínum. 0 S| | f1' f i ■' • ■ , ! - % ik, Gleraugnakostnaður fyrir hvert nærsýnt barn í fjölskyldunni er um 30 þúsund krónuráári. Um 10. hvert barn þarf á gleraug- um að halda. Kostnaður foreldra bama sem þurfa gleraugu, sem ekki eru niðurgreidd af hálfu hins opin- bera, er um 30 þúsund krónur á ári. Fjarsýn böm fá sín gleraugu reyndar niðurgreidd að stærstum hluta, en ekki nærsýn. Þetta misræmi finnst mörgum ósanngjamt en stjómvöld hafa á undanfömum árum hafitað því að breyta þessum reglum. Barátt- unni er þó ekki lokið, Jóhanna Sig- urðardóttir alþingismaður hefúr lengi staðið í þessari baráttu oggerir enn. Hún vill leggja fram reglugerð- arbreytingu sem myndi koma til móts við öll böm sem þurfa á gler- augum að halda. Guðmundur Vigg- ósson augnlæknir er formaður Sjón- stöðvar Islands segir að þetta sé spurning um réttindi og réttlæti. Gleraugu Ekkiódýr og nærsýn börn njóta ekki sömu réttinda og til dæmis fjarsýn börn. Sum niðurgreidd „Það hefur all lengi tíðkast að tryggingarstofnun hafi niðurgreitt bamagleraugu," segir Guðmundur. „En bara fyrir ákveðinn hóp bama. Hugmyndin var að þetta væm gler- augu sem notuð væm í lækningaleg- um tilgangi. Tilgangurinn var að koma í veg fyrir að bam fengi síðar á ævinni letiauga eða sjóndepurð á öðm auga. Letiauga stafar af notkun- arleysi á öðm auganu f frumbemsku. Það verður til þess að viðkomandi mun aldrei sjá vel með auganu það sem eftir er ævinn- ' , ar. Ástæðumar geta verið nokkr- ar, sú algengasta er að barnið er til- eygt, sér skakkt með öðm auganu, eða að sjónlagið á augunum, ljós- brotið, sé misjafiit. Smám saman fer heifinn að hunsa óským myndina sem kemur frá öðm auganu og það er rótin að þessu ástandi sem hefur verið kallað sljósýni. í mjög mörgum tilvikum er hægt að koma í veg fyrir þetta með notkun gleraugna svo lengi sem upp komist um ástandið nógu snemma." Guðmundur segir að sjón bama sé í mótun allt til sex ára aldurs. Upp- haflega hafi verið byrjað að skoða sjón bama reglubundið við fjögurra ára aldur en að það hafi nú verið fært fram til þriggja og hálfs árs aldurs. Guðmundur var meðal þeirra sem barðist fyrir því að færa sjónprófið framar en hans reynsla segir honum að böm geti tekið prófið þó svo að þau séu þetta ung. 7,5% barna þurfa meðferð „Það er algengt að sjö og hálft pró- sent bama þurfa einhvers konar meðferðar við hvað sjónina snertir. 99% bama á íslandi fara í sjónprófið og um sjötta hvert bam er sent til frekari skoðunar. Helm- ingur þeirra þarf með- ferð, ýmist gleraugu eða jafnvel aðgerð." Að sögn Guðmund- ar er þetta hugmyndin á bak við endurgreiðsl- umar. Þetta sé ekki almennur fjárhags- stuðningur við fjöl- skyldur barna sem þurfa að nota gleraugu, heldur til að lækna þessa kvilla. Að bömin þurfi ekki að láta þetta heilsufarsástand láta koma niður á sér síðar á ævinni til að mynda vegna úrræða- leysis efnah'tilla foreldra. „En svo ganga menn alltaf á lagið og fara smám saman að greiða niður öll gler- augu fyrir fjarsýna, öll gleraugu fyrir þá sem em með sjónskekkju og svo framvegis," segir Guðmundur. „Þeg- ar þangað er komið fara menn að sjá meira misrétti því að undanskilja alla sem em nærsýnir. Nærsýni er jafn mikil ástæða fyrir því að nota gler- augu og það setur engin gleraugu á barn án þess að tilefni sé til. Þetta er mikið álag fyrir krakkana að þurfa að ganga með gleraugu. Niðurgreiðslur, hver sem ástæðan er fyrir notkun gleraugna, er réttindaatriði." Mikið misræmi í upphafi var semsagt þessi lækn- isfræðilegi rökstuðningur hafður til gmndvallar um hvað réði endur- greiðslu vegna gleraugnanotkunar bama. Sú þróun sem hefur átt sér stað síðan, að láta einfaldlega alla fjarsýna og einstaklinga með sjón- skekkju njóta þessara réttinda er í mikilli mótsögn við sjálfan sig þar sem nærsýnir em þessu undanskild- ir. Þá em frá taldar þær staðreyndir að heyrnartæki og tannviðgerðir barna njóta niðurgreiðslu ríkisvalds- ins. „Maður spyr sig hvort ekki eigi að vera eitthvað samræmi þarna á milfi. Mér skfist að þessi nýja reglugerð sem verður lögð fyrir þingið gangi út á að samræma einmitt þessa mis- munandi hjálpartækjahópa og auka réttindi og réttlætið f þessum máfi." Þær fjöldamörgu íjölskyldur þar sem bam þarf að ganga með gler- augu vita sem er að það er ekki ódýrt. Guðmundur segir að ekki sé óvarlegt að áætla að kostnaðurinn hljómi upp á 30 þúsund krónur á hvert barn á ári. „Hjá ungu börnunum þarf að skipta árlega, jafnvel tvisvar á ári fyr- ir þau allra yngstu. Hjá unglingum fer svo sjónin að breytast mjög ört, sérstaklega fyrir nærsýna. í mörgum tilfellum þarf að skipta um gler á hverju ári. Þar að auki em sjónlags- gallar, eins og nærsýni, ættgengt fyr- irbrigði. Maður sér oft heilu systkina- hópana þar sem þau öll þurfa á gler- augum að halda. Þetta er því töluvert stór biti fyrir fjölskylduna." eirikurst@dv.is Matargatið Heilsa og næring 1. Til eru margar tegundir græn- metisæta, þær sem oft eru kallaðar vegan: 1. Borða engar afurðir af dýrum 2. Borða fisk og kjúkling 3. Borða egg og mjólk 4. Forðast rautt kjöt og sykur 2. Uppistaða mataræðis þíns ætti að vera: 1. Kornvörur, mjólkuraf- urðir, kjöt og baunir 2. Grænmeti, ávextir og mjólkurvörur 3. Kornvörur, grænmeti og ávextir 4. Grænmeti, ávextir, kjöt og baunir 3. Næringarefni sem sérstaklega er mælt með fyrir þungaðar konur og á að fyrirbyggja að barn fæðist með klofinn hrygg er: 1. Kalslum 2. Fólínsýra 3. Járn 4. D vítanmín 4. Þegar þú eldist er gott fyrir þig að: 1. Draga úr neyslu hitaeininga 2. Auka neyslu á kalsiumi, D vítamini og B12 3. Reyna að drekka nægan vökva 4. Allt að ofangreindu Rétt svör: Spurnlng 1 rétt svar er svar nr. 1 Vegan-grænmetisætur borða engar dýraafurðir. Spurning 2 rétt svar er nr. 3 Flestir mæla með þvi að stærstur hluti hitaeininganeyslu okkar eigi að koma úr trefjarlkri fæðu, svo sem grófu brauði, höfrum, hrisgrjónum og pasta. Mælt er með þv( að maður fál sér um það bil fimm skammta af grænmeti og tvo til þrjá ávexti daglega. Spurning 3 réttsvarernr.2 Fullorðnu fólki og konum sem ekki eru barnhafandi er ráðlagt að neyta 0,3 milligramma á dag. Fyrir þungaðar konur og þær sem hyggjast eignast barn er mælt með að neyslan sé 0,4 milligrömm á dag þar sem fólinsýra minnkar líkur á fósturskaða. Spurning 4 réttsvarernr.4 Þegar við eldumst er nauðsynlegt að endurskoða neyslu okkar á hitaein- ingum og næringarefnum. Margrét Lára Viðarsdóttir, knattspyrnukorta. Hver er fyrsta matarminningin? „Ég held bara ekki að ég eigi einhverja sérstaka æskuminn- ingu tengda mat. Ætli það sé ekki bara barnamaukið eða eitthvað álíka." Hvað borðaðiru i morgunmat? „Cheerios og Trópi - og lýsi auðvitað. Þetta er fremur hefð- bundinn morgunmatur hjá mér.“ Hvaða matar gætiru ekki verið án? „Ég hélt áður en ég flutti að heiman að ég gæti ekki verið án matarins hennar mömmu. En það get ég greinilega/ Hvaða mat þolirðu ekki? „Humar og rækjur fínnst mér vera fremur ógeðfelldur matur, þó svo að hann sé borðaður heima nánast tvisvar I viku. Svo finnst mér feitt súpukjöt alls ekki gott." Hvaða mat myndiru taka með þér á eyðieyju? „Kjúkling enda borða ég mikið afhonum og elda á mismunandimáta.“ Hvað finnst þér skemmtilegast að elda? „Kjúklingarétti, helst með fersku grænmeti, feitu hvitlauksbrauði, sósu og kartöflum sem eru matreiddar á einhvern skemmtilegan hátt.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.