Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2005, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2005, Blaðsíða 27
DV Hér&nú MÁNUDAGUR 14. MARS 2005 27 Rod á skeljarnar í París Hinn rámi söngvari Rod Stewart ætlar að giftast kærustu sinni, Penny Lancaster. Rod er orðinn sex- tugur og bað Penny, sem er 33 ára, íEiffelturninum þegar þau voru þar í fríi á dögunum.„Ég elska þig - viltu giftast mér?"sagði Rod, flottur á þvísem fyrr. „Ég faðmaði hann strax og grét eftir að hafa séð þennan ótrúlega hring sem hann gaf mér," sagði Penny. Þau hafa verið saman í rúm fimm ár en þetta mun verða þriðja hjónaband Rod Stewart. Lærir karate til að ida McCartney Scarlett í Indiana Jones Scarlett Johansson mun leika í næstu mynd um Indiana Jo- nes, eftir að Tom Cruise valdi hana sjálfur til verksins. Leikkon an unga mun fá það hlutverk að vera aðstoðarkona Harrison Ford. Sagt er að Cruise hafi sannfært leikstjór- ann Steven Spielberg um ágæta Johansson þegar þeir unnu saman að War Of The Worlds á dögunum. „Steven fannst ekki margar ungar leikkonur koma til greina. Þeir ræddu Natalie Portman en fannst hún of tengd Star Wars svo Scarlett var sú eina sem kom til greina," sagði heimildarmaður. Bíður spennt eltir sumrinu • •• /' ‘ <%>v- Fyrirsætan Ósk Norfjörð bíður spennt eftir sumrinu en þessa dagana eiga synir hennar og búslóðaflutningar hug hennar allan. „Ég er heimavinnandi eins og er, að hugsa um strák- ana mína sem eru eins og hálfs árs, fjögurra og sex ára. Svo er ég á fullu að pakka og ganga ff á en ég er að flytja um þessar mundir," segir Ósk Norfjörð fyrirsæta sem er 26 ára gömul. Ósk hefur þó ekki alveg sagt skilið við fyrir- sætustörfin. „Ég tek að mér verkefni af og til svo það er alltaf eitthvað að gera í fyrirsætustörfun- um hjá mér.“ Þegar tími gefst til nýtur Ósk þess að fara í lengri og styttri gönguferðir. „Ég hef mjög gaman að útivist og nota fntíma * minn til að fara í gönguferðir. Hálendið er mjög fallegt og það er gaman að fara í gönguferðir um JJ* það en ég hef margoft gengið Laugaveginn." Ósk fer einnig í skipulagðar gönguferðir. „Já, ég hef •* • farið í skipulagðar gönguferðir en það er líka ■' mjög gaman að fara í ferð með góðum hóp af fólki og njóta náttúru landsins með þeimJj|(^^ sagði Ósk að lokum. tfœ' |i I -íwmmgrn ■ , ■sM ■ Kröfuhörð í svefnherberginu Lífið leikúr við stjörnuleikarann Tom Cruise þessa dagana enda hefur hann nælt sér i eina af eftirsóttustu konum í skemmtanaiðnaðinum. Sú heitir Sofia Vergara og er uppnefnd Sofia Viagra vegna þeirra áhrifa sem hún hefur á karlmenn. Sofia segist ánægð með sam- band sitt við Krúsa. „Það er gaman að hitta karlmenn eina kvöldstund en mér finnst þó betra að eiga í sambandi við þá karl- menn sem ég er með svo maður fái allan pakkann," segir hún.„Mér finnst það heimskulegasta sem konur geta gert er að gera sér upp fullnægingu," segir Sofia sem greinilega gerir miklar kröfur til ástmanna sinna. „Ég var að verða 18 ára þegar ég missti meydóminn. Það var ágætt en ég nýt kynlífsins meira núna. Þvi meira sem þú gerir af því, þeim mun betri verður þú!" Sofia hefur áður verið með mörgum stórstjörnum, mönnum á borð við Puff Daddy, Enrique Iglesias, Craig David og Mark Wahlberg. Hún virðist þó hafa fundið ástina með Tom Cruise en setur honum eina skýra reglu: „Ef ég kæmist að því að maðurinn minn héldi framhjá mér þá myndi ég drepa hann!" Dugleg að rækta ást- Þau Álfrún örnólfsdóttir, leikkona, og Friðrik Friðriksson, leikari, hafa í nógu að snúast þessa dagana. „Ég er að leika í leikritinu Segðu mér allt sem er sýnt á nýja sviðinu í Borgar- leikhúsinu. Svo er ég að æfa dans og bakraddir fyrir Eurovisionlagið en ég syng bakraddir við lagið og dansa ásamt þeim Ambjörgu Hlíf Valsdóttur, Lovísu Gunnarsdóttur og Aðalheiði Halldórsdóttur. Ég er mjög spennt yfir þessu öllu saman og hlakka til að fara út með hópnum," segir Alfrún. Álf- rún er nú í æfingafríi frá leikhúsinu svo hún hefur nægan tíma fyrir áhugamálin og kærastann, en þau Friðrik hafa verið sam- an í rúmt hálft ár. Friðrik er í leikritinu Brotið eftir Þórdísi Elvu Þorvalds- dóttur Bachman en leikritið er sýnt í Flafnarfjarðarleikhúsinu og hefur fengið góð viðbrögð gagnrýnenda. „Ég er líka að æfa og undirbúa fyrir leikrit sem ber vinnuheitið Glæpur gegn diskóinu sem er byggt á eintölum þriggja leikara sem eru auk mín, Ólafur Darri Ólafsson og Guðmundur Ingi Þorvaldsson." Það er Agnar Jón Egilsson, leikari, sem leikstýrir leikritinu og það verður frumsýnt í byrjun maí á litla sviðinu í Borgar- leikhúsinu. Friðrik er einnig í sýningunni Ég er ekki hommi sem sýnt er í Loftkastalanum en á milli leiksýninga og æfinga notar hann tímann til að vera með Álfrúnu og vinum og fjöl- skyldu. „Ég á engin týpísk áhugamál. Ég er enginn golf- eða lax- veiðimaður og hestamennska heillar mig ekki heldur. Við Álf- rún byrjuðum í fimleikum fyrir stuttu og það er mjög skemmtilegt og æfingarnar ganga vel,“ segir Friðrik. Þau Friðrik og Álfrún eru ástfangið par og eru dugleg að rækta ástina. „Við erum að fara út til London um páskana og ætlum að hafa það huggulegt, kynna okkur leikhúslífið í London og njóta þess sem borgin hefur upp á að bjóða,“ segir Friðrik að lokum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.