Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2005, Blaðsíða 6
6 MÁNUDAGUR 14. MARS 2005
Fréttir DV
Knattspyrnumaðurinn Valur Fannar Gíslason fékk 35 þúsund krónur frá Strákunum
á Stöð 2 fyrir að drekka sex bjóra á mettíma. Valur Fannar sat við lestur í Háskóla
íslands og ældi í ruslafötu eftir fjóra bjóra. Jón Bóasson umsjónarmaður segir
drykkju innan veggja Háskólans brottrekstrarsök. Áskorunin var hluti af þáttaliðn-
um Allt fyrir aurinn sem íslandsbanki kostar.
Gúrkuupp-
skera soðnaði
Lögreglan á Selfossi var
kölluð út vegna hugsan-
legra skemmdarverka í
gróðurhúsi í uppsveitum
Árnessýslu í gærdag. Að
sögn lögreglunnar var til-
kynnt um vatnstjón í gróð-
urhúsi að bænum Stóra-
Fljóti í Laugarási í Biskups-
tungum. Lögregla var ný-
lögð af stað þegar DV hafði
samband. Samkvæmt upp-
lýsingum lögreglunnar var
hugsanlega talið að um
skemmdarverk væri að
ræða en ekkert hafði verið
staðfest með það. Verulegt
tjón varð í vatnstjóninu þar
sem heil uppskera af gúrk-
um soðnaði.
Gestir
gengu út
Stórhljómsveitin Hot
Chip hélt tónleika á
Nasa á laugardagskvöld.
Var fullt hús og uppselt
á tónleikana enda
hljómsveitin gríðarvin-
sæl. Fjölmargir gestir
voru þó ósáttir við töf á
tónleikunum. Húsið
opnaði klukkan tíu og
tónleikarnir áttu að
hefjast klukkan ellefu.
Hot Chip steig hins veg-
ar ekki á svið fýrr en
klukkan var farin að
ganga tvö um nóttina.
Fannst mörgum nóg
komið af hinu góða þeg-
ar liðið var vel fram yfir
miðnætti og gengu út.
Hvemigfannst
þér Idoí
keppnin?
Atli Heimir Sveinsson,
tónskáld.
„Þvíer fljótsvarað. Ég hefekkert
fylgst með þessari keppni og
hefþví enga skoðun á málinu.
Mér leiðist sjónvarp og geri lítið
afþví að horfa á það."
Hann segir / Hún segir
„Þetta varmjög skemmtileg
keppni og ég er mjög sátt við
úrslitin. Ég fór í Smáralindina
að fylgjast meö úrslitakvöld-
inu og það var mjög gaman
þar. Ég er samt ekki frá því að
keppnin f ár sé stærri ísniðum
og svolítið flottari en I fyrra,
það er til dæmis búið að
stækka sviðið og svoleiöis."
Ardfs Ólöf Vfkingsdóttir,
keppandi i Idol-keppninni
árið 2004
Fégráöug fótboltahetja
ældi efQr kappdrvkkju
„Þetta er algjörlega óheimilt," segir Jón Bóasson umsjónarmað-
ur Odda, húss félagsvísindadeildar Háskóla íslands. Á föstudag-
inn borguðu Strákarnir á Stöð 2 knattspyrnuhetjunni og
stjórnmálafræðinemanum Vali Fannari Gíslasyni 35 þúsund
krónur fyrir að drekka sex bjóra á sem skemmstum tíma.
„Neysla áfengis og bjórs innan
veggja Háskólans er ekki eitthvað
sem við viljum sjá. Við teljum að
þetta sé algjörlega óheimilt. Að fara í
einhvers konar kappdrykkju innan
veggja Háskólans, það má ekki,“
segir Jón Bóasson í Háskólanum um
þennan fjöruga dagskrárlið Strákana
á Stöð 2 sem trúlega á eftir að draga
dilk á eftir sér.
Allt fyrir aurinn
Það mætti kannski kalla Val
Fannar, sem er fyrirliði Fylkis í
knattspyrnu, saklaust fórnarlamb í
þessu erfiða máli. Auk þess að vera
fótboltamaður stundar hann nám í
stjómmálafræði við Háskólann og
segja vitni að atburðarrásinni í skól-
anum að hann hafi setið sveittur yflr
námsbókunum í marga tíma áður
en sjónvarpsmennina bar að garði.
Þá var það trúlega græðgin sem varð
Vali að falli sem gerði svo sannarlega
- allt fyrir aurinn.
Peningar fyrir drykkju
„Nei, ég vil ekkert tjá mig um
þetta mál,“ sagði Valur Fannar þeg-
ar DV hafði samband við hann í
gærkvöldi. Af rödd hans mátti þó
ráða að hann væri ekki sáttur við þá
stöðu sem hann er í vegna gríns
Strákanna.
• Samnemandi Vals Fannars segir
Val hafa tekið áskoruninni að drekka
sex bjóra á ákveðnum tíma. Hann
hafi ídárað fjóra á svona tveimur
mínútum en þá hafi hann ælt í
ruslafötu. Fatan mun vera eign skól-
ans. Vitnið segir Val svo hafa klárað
hina tvo bjórana á þrem til fjórum
mínútum og orðið 35 þúsund krón-
um ríkari.
Banki styrkir drykkju
Kristófer Dignus framleiðandi
Strákana segir atriðið með Vali ekki
birtast fyrr en í næstu viku. Aðspurð-
ur sagði hann þáttinn ekki hafa
kannað reglur Háskólans
um drykkju nemenda
innan stofnunar-
innar. „Við
vissum
ekki
að þetta væri bannað," segir hann.
Kristófer staðfesti einnig að ís-
landsbanki kostaði þennan lið í
þáttunum. Það var því einn stærsti
banki á landinu sem kostaði fyllerí
fyrirliða knattspymuliðsins Fylkis.
Og miðað við viðbrögð
starfsmanna Háskól-
ans er málinu ekki
lokið.
simon@dv.is
* a
gfe
Valur Fannar Gísla- IÆF
son knattspyrnu- IW
hetja Drakk íóleyfi i f
Háskóianum.
ÍStrákarnir á Stöð 2
Þátturinn nýtur grið-
arlegra vinsxlda
meðal unga fólksins.
Þrettán og fimmtán ára strákar í gæsluvarðhaldi yfir helgina
Unglingar í einangrun á Litla-Hrauni
„Það er fangelsismálastofnunar
að ákveða hvar gæsluvarðhalds-
fangar eru vistaðir. Lögreglan fer
einungis fram á gæsluvarðhaldið,"
svarar Ómar Smári Ármannsson að-
stoðaryfirlögregluþjónn, aðspurður
um af hverju tveir fimmtán ára
drengir voru látnir sitja í gæsluvarð-
haldi á Litla-Hrauni yfir helgina. Þeir
eru grunaðir um fjölda innbrota.
Drengirnir tveir voru úrskurðaðir
í gæsluvarðhald á föstudag og losna
úr því í dag, mánudag. Einnig var
þrettán ára drengur úrskurðaður í
gæsluvarðhald vegna sama máls og
er hann vistaður á meðferðarheimil-
inu Stuðlum. Hvers vegna eldri
drengirnir hafi ekki líka verið
vistaðir á Stuðlum segir Ómar að
þeir séu komnir á sakhæfan aldur,
orðnir nógu gamlir til að taka ábyrgð
á eigin gjörðum.
Að sögn Ómars Smára er þetta
ekki í fyrsta skipti sem drengir á
þessu reki eru sendir í gæsluvarð-
hald. Hann viðurkennir að það sé
erfitt úrræði að senda svo unga
drengi í gæsluvarðhald á stað eins
og Lida-Hraun. Staðan hafi hins
vegar verið metin svo að gæsluvarð-
hald þyrfti til að tryggja óhindraða
rannsókn á málinu.
„Það er aldrei gott að þurfa að
senda svona unga drengi í gæslu-
varðhald. En þegar slíkt gerist er
reynt að flýta málum eins mikið og
hægt er. Þetta á til dæmis við um
þetta ákveðna mál. Þeir eru einung-
is dæmdir í þriggja daga varðhald á
meðan eldri einstaklingi hefði verið
haldið lengur," segir Ómar Smári.
Aðspurður um önnur úrræði til
gæsluvarðhalds fyrir unglinga á sak-
hæfum aldri svarar Ómar Smári að
stundum séu þeir vistaðir á Níunni,
við Skólavörðustíg. „Litla-Hraun
bíður hins vegar upp á bestu aðstöð-
una til að geyma gæsluvarðhalds-
fanga og er nútímalegast í hönnun,"
segir Ómar Smári.
Ómar vildi ekki segja hvort
drengirnir hefðu játað á sig öll brot-
in sem þeir eru ákærðir fyrir en sagði
að rannsóknin gengi vel.
Litla-Hraun Fleiri dæmi eru um að afbrota-
menn á ungiingsaidri séu settir ígæsiuvarð-
hald á Litla-Hrauni.