Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2005, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2005, Page 10
10 MÁNUDAGUR 14. MARS 2005 Fréttir DV Kostir & Gallar Auðun Georg er góður og Ijúf- ur drengur sem er óhræddur við að takast á við ný verkefni. Vel máii farinn og góður ræðumaður. Auðun er helst til óhræddur við að vaða í nýævintýri. Vantar harðari skráp og lítt sjóaður í að takast á við það pólitíska vafstur sem hann hefur komið sér í. Get- ur ekki allt. „Mér dettur bara eitt orð i hug sem nær utan um það sem mér finnst um Auðun Georg: Góður. Annað læt ég ekki hafa eftir mér um vin minn." Steingrímur S. Óiafsson, upplýsingafull- trúi forsætisráðuneytisins „Helstu kostir Auðuns ”1 Georgs er að hann er af- skaplega góður og ijúf- " ur drengur, sem og kiár L —~ j og hugmyndarikur. Þá er hann óhræddur við að takast á við ný verkefni, sama hvort það er að rjúka afstaö tilAsíu eða sækja um stöðu fréttastjóra Ríkisútvarpsins. Það getur líka komið út á hinn veginn og taiist galli. Það sýnir sig í þeirri stöðu sem hann er kominn i núna, með öll spjót standandi að sér. Hann er ekki með mjög harðan skráp og lítið sjóaður I hörðu pólitísku vafstri þannig að það erspurning hvernig hann bregst við þeim öldusjó sem hann er stadduri." Stefán Pálsson sagnfræðingur „Ég hefi sjálfu sér ekkert nema gott um Auðun Georg að segja frá þvi ég umgekkst hann í menntaskóia i kringum ræðumennsku. Hann er mjög vel máli farinn og góður ræðu- maður og í alla staði hinn ijúfasti drengur. Galla get ég ekki munað sem nöfnum tjáir að nefna. Nema þá helst að hann getur ekki allt, sem auðvit- að aimennur gaiii á öllu fóiki." Sverrir Jakobsson sagnfræðingur Auðun Georg ólafsson erfæddur29.april 1970 og er kvæntur Fernanda Nakayama, sem er tannlæknir að mennt. Auðun Georg er menntaöur í þjóðfélagsfræði frá háskól- um I Danmörku og Japan. Hann var ráðinn sem fréttastjóri Ríkisútvarpsins íslðastlið- inni viku en starfaði áður hjá Marel við uppbyggingarstörfog söluíAsíu. Hefðbundið fyllerí Fimm gistu fanga- geymslur lögreglunnar í Reykjavfk vegna ölvunar aðfaranótt sunnudagsins. Ástæðan var, að sögn lög- reglunnar, ölvun og var öll- um sleppt eftir að þeir höfðu sofið úr sér. Helgin var annars róleg að öðru leyti, fyrir utan hefðbundið fyllerí. Eitthvað var um stympingar á laugardags- nóttina, en samkvæmt upplýsingum lögreglunnar leystust þau mál án frekari vandkvæða og engir eftir- málar munu af þeim. Ung stúlka hefur kært til lögreglu mann sem hún segir hafa nauðgað sér á hrotta- legan hátt. Stúlkan þurfti að eyða viku á spítala eftir meðferð mannsins. Hópur af stúlkum bera manninum sömu söguna og íhuga að kæra hann til lögreglu. Maður- inn er sagður nota nauðgunarlyf til að koma vilja sínum fram. Hann nái í fórnar- lömbin á skemmtistöðum borgarinnar. Raönauögari gengnr laus Ung stúlka dvaldi í viku á spítala eftir að hafa verið nauðgað á hrottalegan hátt af manni sem hún hitti á skemmtistað í mið- bænum. Hún hefur kært manninn en hópur af stúlkum íhuga nú að gera það sama. Segja þær manninn raðnauðgara sem notist við lyf til að koma vilja sínum á framfæri. DV hefur rædd við fjölmarga sem könnuðust við sögur af um- ræddum manni. Hann leggi leið sína á sömu skemmtistaðina um helgar þar sem hann leiti uppi ungar stúlkur til að koma vilja sín- um fram við. „Af hverju er þessi maður ekki stoppaður?" spurði vinkona stúlku sem var nauðgað. En svona mál taka langan tíma. Leiðin frá kæru til dóms getur tek- ið mánuði. Jafnvel ár. Á netinu Fyrir um viku síðan komst DV fyrst á snoðir um raðnauðgarann. Á svipuð- um tíma skrifaði Egill „Afhverju erþessi maður ekki stoppaður?" Helgason á vef sinn að honum hafi verið sagt frá manni sem gengi laus í skemmtanalífinu í miðbænum. „Og er sagður hafa misþyrmt og jafnvel nauðgað þremur konum. Mér var tjáð að ég gæti fundið mynd af manninum á netsíðu veitingahúss í bænum. Þetta er á vitorði margra en enginn leggur í að kæra,“ skrifaði Eg- ill Helgason. Nauðgunarlyf Nú hefur fyrsta kæran verið lögð fram og samkvæmt heimildum DV eru fleiri stúlkur á leiðinni að kæra. Segjast sumar þeirra muna lítið eft- ir atburðunum en minnisleysi er fylgifiskur nauðgunarlyfa eins og Ryhopnol. Slík lyf bera oft á tíðum engan lit, ekkert bragð eða lykt. Því er auðvelt að blanda þeim inn í drykki fórnarlambanna án þeirrar vitundar. Sumar tegundir af nauðgunarlyfj- um er meira að segja hægt að útbúa heima hjá sér. Þá eykur áfengi virkni þessara lyfja. Alvarlegt mál Lögreglumenn sem DV ræddi við í tengslum við málið sögðu það grafalvarlegt ef raðnauðgari gengi laus í miðbænum. Á þessum tíma- punkti væri þó lítið sem þeir gætu íátið uppi. Einn lögreglumaður orð- aði það sem svo: „Þó ég vissi eitt- hvað mætti ég ekki segja það.“ Eins og fram kemur í pistli Egils Helgasonar má finna myndir af meinta raðnauðgaranum á heima- síðum skemmtistaða á netinu. Þær stúlkur sem hafa upplýsingar um manninn eða hafa lent sjálfar í hon- um er hvattar til að hafa samband við blaðið. simon@dv.is Fjarstýrðar endur eru sagðar brjóta gegn fjarskiptalögum Fær ekki að flytja inn tálbeitu „Ég skil bara ekkert í þessu," seg- ir Halldór Haukson veiðimaður sem er afar undrandi á tollayfir- völdum. „Þeir neita að láta mig fá fjarstýrða önd sem ég keypti á net- inu. Þeir segja hana ólöglega." Halldór segist fara af og til á gæsaveiðar og þá noti hann oft tál- beitur sem líkjast öndum. „Ég fann þessa önd á netinu. Hún er fjarstýrð þannig að maður þarf ekki að vaða lengst út í vatn til að koma henni fýrir. Maður getur staðsett hana nákvæmlega eins og maður vill með fjarstýringunni. Þetta er í raun bara eins og fjar- stýrður bátur," segir Halldór og upplýsir að öndin hafi kostað hann sex þúsund krónur. Þegar Halldór ætlaði að sækja öndina sem hann hafði keypt af netinu kom babb í bátinn: „Strák- arnir í tollinum sögðu mér að önd- inn væri ólögleg út af einhverjum eldgömlum fjarskiptalögum. Þeir segja að það að hún sé fjarstýrð geri það að verkum að hún gæti truflað einhver fjarskipti uppi á hálendi." Halldór segist ekki getað séð að þessi fjarstýring sé eitthvað öðru- vísi en hvert annað fjarstýrt dót eins og til dæmis bíll eða bátur eða flug- vél: „Þetta er fjarstýring af einföld- ustu gerð, bara upp, niður, hægri og vinstri." Halldór Hauksson Meö veiðidellu og ætl- aði að flytja inn fjarstýrða öndsem hann fann á netinu. Asi á öku- mönnum Asi var á ökumönnum í Kópavogi í gærdag. Um miðjan dag í gær hafði lögreglan í Kópavogi stöðvað fimm bíla fyrir of hraðan akstur. Að sögn lögreglunnar var ökumaðurinn sem hraðast ók tekinn á 125 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 70 kílómetrar á klukkustund. Sá var tek- inn á Reykjanesbraut við Fífu- hvamm. Tveir aðrir voru stöðvaðir á sama stað. Þá voru tveir ökumenn yfir hámarkshraða á Nýbýlavegi. Allir ökumenn fá sektarboð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.