Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2005, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2005, Page 11
DV Fréttir MÁNUDAGUR 14. MARS 2005 11 Sleppa ekki við skattinn Djúpavogsdeild Rauða kross íslands sleppur ekki við að greiða fast- eignagjöld vegna hús- i. ' | eignar sinnar á Mörk L_ ___I 14 á Djúpavogi. Sveitar- I I stjórnin segist fara eftir meginreglum um niðurfell- ingu fasteignaskatts hjá ellilífeyrisþegum og öryrkj- um. Einnig eigi að leiðrétta augljósar rangfærslur við álagningu ef skráning eigna er röng og beita sanngimi. „Að öðru leyti verður ekki um afslætti eða niðurfell- ingu að ræða, til dæmis vegna ónýttra útihúsa í sveitum," segir sveitar- stjórnin. Útfarirá afslætti Viðskipti rúmensku út- fararstofunnar „Eilífðar- innar" blómstra þessa dagana eftir að fýrirtækið fór að senda auglýsinga- bæklinga á heimili eldra fólks. í auglýsingabæk- lingnum em kynningar á afsláttarkjörum á líkkist- um, útförum og legstein- um. Eldri borgarar í héraði útfararstofunnar em eink- ar áhugasamir um afslátt- inn og hefur síminn ekki stoppað. Vinsælustu til- boðin em trékrossar á um áttatíu krónur og lfkkistur, sem kosta tæplega tvö þúsund krónur. Hætta við kindareglur Ekkert verður af því að yfirdýralæknisembættið setji sérstaka reglur um flutning sauðfjár milli Ausmr-Skafta- fellssýslu og Álftafjarðar. Sveitarstjómin á Djúpavogi sem óskað hafði eftir sem- ingu slíkra reglna dró beiðni sína til baka eftir að meiri- hluti hagsmunaaðila, það er að segja meirihluti sauðfjár- bænda, í Álftafirði lýsti sig andvfgan því að reglumar yrðu settar. Yfirtrúnaðarmaður við Kárahnjúka, Oddur Friðriksson, óskar skýringa á uppsögnum sjö Portúgala. Oddur segir Árna Magnússon félagsmálaráðherra ábyrgan fyrir þvi að verkalýðshreyfingin sé vopnlaus gagnvart starfsmannaleigum. Lýsip stjórnvöld ábyrg fyrir starfsmannaleigum Oddur Friðriksson, yfírtrúnaðarmaður starfsmanna við Kára- hnjúkavirkjun, kveðst ósáttur við skyndilegar uppsagnir sjö portúgalskra starfsmanna véladeildar við aðalbúðir virkjunar- innar á fimmtudag. Mennirnir fengu þær skýringar frá Impregilo að samningar við þá yrðu ekki endurnýjaðir og því skyldu þeir snúa til síns heima. Oddur Friðriksson kveðst ætla að árétta það við Vinnumálastofnun að ný atvinnuleyfi verði ekki gefin út á Impregilo meðan að verið sé að segja upp mönnum. „Ég áréttaði í bréfi til Vinnumála- stofhunar að nóg væri komið af at- vinnuleyfum fyrir Kínverja á meðan verið sé að segja upp fólki hér og vonast til að eftir því verði farið. Samkvæmt þeim reglum sem gilda hér í gegnum EES-samninginn eiga íbúar á því svæði að ganga fýrir í störf hér,“ segir Oddur. Impregiio ræður Oddur átelur stjórnvöld harðlega fyrir skort á aðgerð- um við því sem hann nefnir vopnleysi verkalýðshreyfing- arinnar gagn- vart ein- hliða ákvörðunum Impregilo í mál- efnum erlendra starfsmanna sem flestir starfi samkvæmt erlendum ráðningarsamningum. Hann segist ekki skilja að ekki sé búið að ná sam- stöðu um reglur sem ná eiga yfir starfsmannaleigur á íslenskum vinnumarkaði. „Það er eins með þetta mál og mörg önnur að við stöndum vopn- lausir gagnvart starfsmanna- leigunum," segir Oddur. „Ef við hyggðumst sækja rétt þessara manna þyrfti það að vera fyrir portú- gölskum dómstól- um þar sem samn- ingarnir eru gerðir þar. Þetta er auðvitað allt saman spurning um skort á reglum hér á landi sem næðu yfir þessa starfsemi." Árni Magnússon Nefndsem fé- lagsmálaráðherra skipaði fyrir ári varðandi reglur um starfsemi starfsmannaleiga hér á landi hef- ur ekki skilað niðurstöðu en henn- ar er að vænta á vormánuðum. Oddur Friðriksson Yfírtrúnaðarmaður við Kárahnjúka segir félagsmálaráðherra bera ábyrgð á vopnleysi verkalýðshreyfingar- ; innar gagnvart starfsmönnum starfs- ? mannaleiga á ísienskum vinnumarkaði. Reglur með vorinu Að sögn Hönnu Sigríðar Gunn- steinsdóttur, formanns starfshóps félagsmálaráðherra um starfs- mannaleigur, hefur nefndin enn ekki skilað niðurstöðu í málinu sem hún segir mjög flókið og viðamikið. Hennar sé þó að vænta á vormánuð- um. Ráðherra taki í framhaldi af því ákvörðun um hugsanlega lagasetn- ingu sem samkvæmt orðum Hönnu yrði því ekki lög fram fyrr en á næsta þingi. helgi@dv.is Halldór Jakobsson hélt uppi skothríð á Hofsósi. Sótti haglabyssuna eftir verðdeilu „Ég var ósáttur við verð á dekkj- um," segir Halldór Karel Jakobsson, Hofsósbúi á sjötugsaldri, um ástæð- ur þess að hann hleypti af að minnsta kosti tveimur skotum við bifreiðaverkstæðið Pardus áHofsósi í vikunni. Bjöm Mikaelsson lög- reglumaður segir að Halldór Karel hefði skotið á bíl sem mun vera í eigu hans sjáifs og gamalt traktors- hús á lóð bifreiðaverkstæðisins. Hann segir að Halldór eigi við vandamál að stríða. „Við gerðum upptæk skotvopn sem vom á heimili hans og létum þar við sitja,“ segir Björn lögreglumaður. Nokkrir íbúar á Hofsósi sem DV ræddi við vegna málsins em ósáttir við að Halldór skuli ekki hafa verið handtekinn vegna málsins og látinn sofa úr sér. Björn Mikaelsson segir að engin ástæða hafi verið til þess. Enginn áfengislykt hafi verið af Hall- dóri þótt hann hafi áður átt í vand- ræðum með áfengisneyslu. Björn sagði að málið væri samt litið mjög alvarlegum augum. Steinar Skarphéðinsson sem vinnur á bifreiðaverkstæðinu Pardus segist lítið vilja tjá sig um málið en þakkar fyrir að ekki hafi orðið neinn skaði á fólki í skothríð- inni. Halldór Karel segist ekki hafa ver- ið undir áhrifum áfengis þegar hann lét skotin ríða úr haglabyssunni. „Mér þykir bjór ágætur en honum var ekki til að dreifa þennan dag,“ sagði hann í samtali DV. Halldór segist aðeins hafa verið að prófa haglabyssuna sína og skot- hríðin hafi ekkert tengst deilum hans við starfsfólk bifreiðarverk- stæðisins. Björn lögreglumaður býst við einhverjum eftirmálum. Athæfi Halldórs Karels sé refsivert athæfi og hann megi búast við því að verða ákærður. Húsbréf Innlausn húsbréfa Frá og með 15. mars 2005 hefst innlausn á útdregnum húsbréfum í eftirtöldum flokkum: 4. flokki 1992 - 45. útdráttur 4. flokki 1994 - 38. útdráttur 2. flokki 1995 - 36. útdráttur 1. og 2. flokki 1998 - 27. útdráttur Innlausnarverðið er að finna í Morgunblaðinu mánudaginn 14. mars. Innlausn húsbréfa fer fram hjá íbúóalánasjóði, i bönkum, sparisjóðum og veróbréfafyrirtækjum. Ibúðalánasjóður Borgartúni 21 | 105 Reykjavík I Sími 569 6900 | Fax 569 6800 andri@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.