Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2005, Side 13
DV Fréttir
MÁNUDAGUR 14. MARS 2005 13
Smáhundar vinsælir
aukahlutir
Það verður æ algengara að myndir af stjörnum birt-
ist í blöðum og tímaritum þar sem þær eru með smá-
hunda sína með sér, Ifkt og um hvern annan aukahlut
væri að ræða. Stjörnur eins og Paris Hilton og Nicole
Richie sjást ansi oft með smáhunda sína upp á arminn
við hvers kyns uppákomur. Paris Hilton tók Tinkerbell,
smáhund sinn af chihuahua-kyni með sér í viðtal við
Jay Leno, en hvað Tinker-
bell finnist um alla
athyglina er ekki gott að
segja. Kannski elskar
hún sviðsljósið líkt
og eigandi hennar.
Chihuahuatík gengur hænuunga í móðurstað
Huahua, tík af Chihuahua-kyni, hefur gengið hænuunga í móður-
stað en hún hugsar um ungann líkt og hann væri hennar eigin af-
kvæmi. „Ef unginn fer of langt í burtu frá henni, fer Huahua og tek-
ur hann í kjaftinn og fer með hann í fleti sitt,“ segir Liu Bangyang,
eigandi Huahua. Liu segir tíkina sérlega móðurlega en hún passi
hænuungann mjög vel. „Við munum reyna að haida eftir unganum
og ala hann upp ef það er það sem Huahua vill,“ segir Liu Bangyu-
ang.
Bergljót Davíðsdóttir
skrifar um dýrin
sín og annarra á
mánudögum í DV.
FuU búð
Opið alla daga
Tokyo Hjallahrauni 4 Hafnarfirði S: 565 8444
Hundurinn Lucy
verður brúðar-
mey eiganda síns
Lucy Brown, þriggja ára gömul
tík af blönduðu kyni, mun gegna
því einkennilega hlutverki að vera
brúðarmey fyrir eiganda sinn,
Soniu Wilde, en hún mun gifta sig
í október næstkomandi. „Þetta var
bara grín í fyrstu en þegar prest-
urinn sem mun gifta okkur, sam-
þykkti þetta, þá ákvað ég að Lucy
yrði brúðarmey mín,“ segir Sonia.
Steve Begley, tilvonandi eigin-
maour Soniu hefur ekkert út á
þessa hugmynd að setja. „Sonia
einfaidlega elskar dýr, stundum
tekur hún að sér heimilislausa
hunda og gefur þeim að borða."
„Ég er ekki skrítin eða neitt
svoleiðis. Ég elska Lucy, hún er
mér sem dóttir. Ég get ekki hugs-
að mér neina aðra brúðarmey."
Þess má geta að Lucy mun klæð-
ast sérstökum brúðarmeyjakjól í
giftingu þeirra Soniu og Steve.
Hyggurþú á
hundaræktun?
Þeim sem hafa áhuga á að
hefla hundaræktun er bent á að
kynna sér starfsemi Hundarækt-
arfélag íslands en félagið er til
húsa að Síðumúla 15.
Á heimasíðu félagsins,
http://wvw.hrfi.is, má einnig
finna ýmsar upplýsingar um
ræktun hunda og þar er
einnig að firma dagskrá
sýninga, upplýsingar
um ýmiss hunda-
námskeið og margt,
margt fleira. Þess I M
má einnig geta að meist-
arastigssýning verður haldin dag-
ana 24., 25., 26. júní og alþjóðleg
ræktunarsýning verður haldin
dagana30. september, 1. og2.
október næstkomandi. Sýning-
arnar eru öllum opnar en þar
ættu tilvonandi hundaræktendur
að geta kynnt sér þau kyn sem
eru ræktuð hér á landi.
Eva Kristinsdóttir segir hundaræktunina samræmast vel fjölskyldulífinu og öfugt
við það sem margir halda, þá sé ekki dýrt að eiga og rækta schaferhunda.
Eva Kristinsdóttir, hundaeigandi
og kærastinn hennar, Guðmundur
Ásgeirsson, eru að stíga sín fýrstu
spor í ræktun schaferhunda.
Gunnarholts Kount eða Hugo
eins og hann er kallaður af eigendum
sínum er sex ára schaferhundur sem
kom til þeirra fyrir um einu ári. „Við
fengum hann eiginlega vegna þess að
hann vantaði heimili og nú erum við
að byija að rækta hvolpa undan hon-
um í samvinnu við fyrrum ræktanda
hans, Hjördísi Ágústsdóttur", segir
Eva.
Margt sem huga þarf að við
ræktun hunda
Það er ýmislegt sem huga þarf að
hyggi fólk á ræktím hunda en hund-
amir þurfa að uppfylla ýmiss skilyrði
svo þeir teljist hæfir til undaneldis, að
mati Hundaræktendafélags íslands.
„Hundar þurfa að fara í skapgerðar-
próf og ljúka minnst fýrsta stigi á
vinnuprófi eða svokölluðu spora-
námskeiði. Svo þarf hann að fá að
minnsta kosti aðra einkunn á hunda-
ræktendasýningu til að teljast hæfur
til undaneldis." Vinnupróf eða spora-
próf eru námskeið fýrir verðandi
sporhunda en stigin eru alls þrjú og
hverju námskeiði eða stigi lýkur með
sporaprófi þar sem hundamir em
látnir rekja slóð.
„Stigin eða prófin verða alltaf erf-
iðari og erfiðari eða þeir rekja eldri og
eldri spor,“ segir Eva. Sporanámskeið
er alls tí'u vikur og fara þá eigendum-
ir með hunda sína einu sinni í viku og
taka fullan þátt í þjálfuninni. „Hugo
er búinn með fyrstu stigin en við för-
um með hann á sporanámskeið
núna í vor.“ Eva segir goðsögnina um
að erfitt sé að kenna gömlum hundi
að sitja eigi ekki við hjá schaferhund-
unum. „Þegar það er einu sinni búið
að kenna þeim að rekja spor þá
gleyma þeir því aldrei."
Hundaræktunin samræmist
vel fjölskyldulífinu
Eva segir ekki mikinn kosmað
fylgja hundaræktuninni.
„Ég myndi ekki segja að þetta væri
rosalega dýrt. Það kostar um 5000 kr.
að fæða Hugo á mánuði. Við förum
með hann á eitt sporanámskeið á ári
en námskeiðið kostar 12.000 kr. Það
em svo hundaræktendasýningar
þrisvar á ári en maður sýnir minnst
einu sinni á ári. Sýningargjald fyrir
hverja sýningu er 4.000 kr. og svo em
félagsgjöld í Hundaræktendafélagi
íslands 4.000 kr. á ári. Ég myndi því
ekki segja að kostaðurinn væri sér-
lega hár,“ segir Eva.
Þau Eva og Guðmundur eiga rúm-
lega ársgamla dóttur, Tinnu Ýr, og
margir myndu eflaust veigra sér við
að hafa svo stóran hund á heimilinu.
„Þetta gengur mjög vel og þeim
Tinnu Ýr og Hugo kemur vel saman.
Himdaræktunin samrýmist fjöl-
skyldulífinu vel en við gefum okkur
góðan tíma og erum dugleg að fara út
að labba með Hugo. Þegar Eva er
spurð hvort lítill smáhundur hefði
ekki hentað þeim betur segir hún
hlæjandi; „Nei það held ég ekki, þeir
em svo svakalega ffekir.
Schaferhundar em skemmtilegir og
vitrir, það er gott að eiga við þá,“ seg-
ir Eva að lokum.
Ingenya snyrtivörumar tryggja fljótvirkari
árangur og eru það fullkomnasta í
gæludýraumönnun á frábæru verði.
Allar vörumar eru framleiddar án natríum
klóríös sem er ekki einungis skaölegt fyrir
þig heldur lika gæludýrið þitt.
RARIKIÐ
Grensásvegi s:5686668 - Dýrarikið Akureyri s:4612540 - www.dyrarikid.is
Kettlingar þurfa mikinn svefn
/ Kattholti að Stangarhyl 2 eru
ávallt fjölmargir heimilislausir kettir
sem vantar gott heimili, en flestir
hafa fundist á víð og dreifum borg-
ina, sumir hafa villst frá heimilum
sinum og aðrir hafa einfaldlega
verið bornir út af eigendum sínum.
Alla virka daga milli kl. 14 og 16
eru kettir til sýnis I Kattholti og er
fólki velkomið að koma og skoða
kettina. Á heimasíðu Kattholts;
http://www.kattholt.is er að finna
fjöldann allan afmyndum afheimil-
islausum kött-
um eða köttum
sem hafa villst
að heiman og
bíða nú eigenda
sinna.
Á heimasíð-
unni er einnig
ráðieggingar um
hvað hafa skal i
huga þegar fólk velur sér nýjan fjöl-
skyldumeðlim. Þar segir að ungir
kettlingar eiga til að mynda að vera
fjörugir og duglegir að
leika sér en það er eðli-
legt að þeir sofi mikið
fyrstu mánuðina. Hafa
skal I huga efkettir
virðast hræddir eða
taugaveiklaðir að slíkt
getur átt sér orsakir I
uppeldinu eða á fyrra
heimili kattarins. Það er ólíklegt að
slikir kettir róist niður með aldrinum
og venjist fljótt breyttum heimilisað-
stæðum.