Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2005, Page 22
22 MÁNUDAGUR 14. MARS 2005
Sport DV
Baros vill
ítalskt lið
Tékkneski framheijinn Milan
Baros, sem leikur með Liverpool,
vill fá ítalska mótherja í átta liða
úrslitum meistaradeildarinnar en
dregið verður næstkomandi
föstudag. Liverpool sló Bayer
Leverkusen sannfærandi út úr
sextán liða úrslitunum
og Baros vili helst
losna við að mæta
tveimur liðum. ‘4
„Ég veit að við
viljumsleppa 3
við að mæta JÚLbcn
Chelsea, Á ?,
sem við /
höfum iJf'
þegar “
spilað þrívegis
við á þessu * 4
tímabili, og W
Lyon sem er
ekki með
neinar
stórstjörnur en
er gífúrlega
sterkt lið. Það “5^
væri gaman að mæta einhverju
af ítölsku liðunum. Liðið er
komið með sjálfstraust eftir
leikina gegn Leverkusen og við
erum ekki liræddir við neinn,"
sagði Baros.
Pizarro vill
sleppa við
Chelsea
Claudio Pizarro, framherji
Bayern Múnchen, vill helst
sleppa við að mæta Chelsea
þegar dregið verður í átta liða
úrslit meistaradeildarinnar á
föstudaginn. „Ég vil frekar mæta
Chelsea seinna í keppninni þó
mér sé sama hverjum við
lendum á móti," sagði Pizarro en
hann og félagar hans slógu
Arsenal út úr sextán liða
úrslitunum.
Frisk hættur
að dæma
Sænski knattspymudómarinn
Andreas Frisk, sem hefur verið f
hópi bestu dómara heims á
undanfömum ámm, hefur
ákveðiö að hætta að dæma
jafnvel þótt hann eigi þijú ár eftir
sem alþjóðlegur dómari. Þetta
tímabil hefur verið atburðarfkt
hjá Frisk og óhætt að segja að
ekki hafa ríkt mikil lognmolla í
kringum þennan súkkuiaðibrúna
Svía. Frisk segist hafa tekið þess
ákvörðun af ótta við öryggi sjálfs
síns og íjölskyidunnar en hann
hefur fengið fjölmargar morð-
hótanir eftir leik Barcelona og
Chelsea í meistaradeildinni þar
sem hann var sakaður um að
draga taum spænska liðsins
meira en góðu hófi gegndi. „Ég er
enn sannfærður um að það sem
ég gerði í Barcelona var rétt. Því
miður virðast sumir ekki geta
sætt sig við tap og þegar hótanir
em farnar að berast í stórum stíi
þá er þetta ekki lengur þessi
virði," sagði Frisk. Hann fékk
kveikjara í hausinn í leik Roma
og Dynamo Kiev í meistara-
deildinni fyrr í vetur og þurfti að
aflýsa leiknum. Claudio Ranieri,
þjálfari Valencia, var heldur ekki
sáttur við Frisk eftir að hans
menn töpuðu fyrir Werder
Bremen og misstu af sæti í sextán
liða úrslitum meistaradeildarinn-
cir. Ranieri sagði eftir leikinn að
hann skildi vel að áhorfendur
hefðu kastað kveikjara í
Friskí . jftJ
Róm. > Æ)
Argentínski varnarmaðurinn Gabriel Heinze hefur heldur betur vakið athygli i
vetur fyrir frábæra frammistöðu með Manchester United, bæði í ensku úrvals-
deildinni og meistaradeildinni. Heinze kom frá franska liðinu Paris St. Germain og
vissu fáir hver hann var áður en hann lék sinn fyrsta leik á Old Trafford.
Argentínumenn hafa framleitt marga af bestu fótboltamönnum
heims á undanförnum árum. Þeir eru flestir að spila í bestu lið-
unum á Ítalíu og á Spáni en eins og dæmin sanna með þá Juan
Sebastian Veron og Hernan Crespo þá hafa þeir átt erfitt upp-
dráttar í ensku úrvalsdeildinni. Gabriel Heinze hefur hins vegar
gefið þeirri hefð langt nef og fallið eins og flís við rass inn í hinn
harða heim sem enska úrvalsdeildin er.
Gabriel Heinze spilaði aðeins
átta leiki í argentínsku deildinni
áður en hann hélt til Evrópu aðeins
nítján ára gamall. Hann spilaði með
Real Valladolid á Spáni og portú-
galska liðinu Sporting Lissabon en
það var ekki fyrr en hann gekk í raðir
í franska liðsins Paris St. Germain
sem hann fór að vekja almenna eft-
irtekt. Frammistaða hans með
franska liðinu gerði það að verkum
að Alex Ferguson, knattspyrnustjóri
Manchester United, greiddi tæpar
sex milljónir punda eða rúmar 620
milljónir íslenskra króna fyrir kapp-
ann síðasta sumar.
Góð byrjun þó sein væri
Ferill Heinze hjá Manchester
United byrjaði ekki vel því hann gat
ekki byrjað að æfa með liðinu fyrr en
í september vegna anna með
argentínska landsliðinu. Fyrst spil-
aði hann með liðinu í Ameríkubik-
amum og síðan var hann einn af
aðalmönnunum í sigurliði Argen-
tínu á Óiympíuleikunum í Aþenu.
Alex Ferguson var mjög mótfallinn
því að Heinze spilaði á Olympíuleik-
unum og gaf í skyn í blaðaviðtölum
að hann væri hugsanlega búinn að
eyðileggja feril sinn hjá félaginu
áður en hann spilaði sinn fyrsta leik.
„Það verður ekki auðvelt fyrir
hann að komast í liðið þegar hann
kemur í september og ef til vill er
ferill hans hjá okkur búinn áður en
byrjar," sagði Ferguson fúll. Hann
þurfti að taka þessi orð til baka því
að eftir að Heinze spilaði sinn fyrsta
leik gegn Bolton 11. september
hefur hann verið einn af bestu leik-
mönnum Manchester United.
Heinze gerði sér lítið fyrir og skoraði
gegn Bolton og var það mál manna
eftir þann leik að Ferguson hefði
loksins fúndið manninn sem gæti
leyst vandræði hans f vinstri bak-
verðinum. Það hefur gengið eftir og
nú myndi Ferguson varla vilja skipta
á neinum bakverði í heiminum fyrir
Heinze.
Stórkostlegur stríðsmaður
Heinze hefur vakið mikla athygli
Rio Ferdinand
Heinze spil-
arafástríðu
„Gabriel er fiábær leikmaður
sem hefúr náð að Jaga sig að
raska boltanum á stuttum tíma.
Hann hefúr mikiim sigurvilja er
áSZ h sterkrog spaar
ástríðu. Honum fer fram í ensk-
unm á hverjum degi
og er virkilega
ffnn náungi,"
sagði Rio
Ferdinand,
félagi hans í
vöminni
hjá Man-
chester
United.
„Leikstíll minn er
svona. Ég er vanur að
leggja mig alltaffram
í hverju sem ég tek
mér fyrir hendur og
fer í öll návígi til að
vinna þau."
fyrir leikstíl sinn en hann er baráttu-
maður mikill og gefur sig allan í
hvert einasta návígi. Hann er lítill og
léttur en sú staðreynd að hann hefur
fengið tíu gul spjöld á tímabilinu
segir sitt um hörkuna í Heinze. Alex
Ferguson, stjóri Manchester United,
hefur látið hafa eftir sér að Heinze sé
„stórkostlegur stríösmaður" en sú
Iýsing á við þennan stuttvaxna gaur
úr stáli. „Leikstíll minn er svona. Ég
er vanur að leggja mig alltaf fram í
hveiju sem ég tek mér fyrir hendur
og fer í öll návígi til að vinna þau,"
sagði Heinze.
Frábært að vera í Manchester
Heinze hefur fallið vel inn í hóp-
inn hjá Manchester United og er gíf-
urlega ánægður hjá félaginu. „Það er
frábært að vera í Manchester. Ef satt
skal segja þá var ég smeykur við að
koma til Englands því Argentína og
England hafa marga hildi háð í
gegnum tíðina. Að koma til félags á
stærð við Manchester United vakti
líka hjá mér spennu við að takast á
við óþekktan hlut. Ég þurfti samt
engu að kvíða því mér hefur verið
tekið frábærlega. Ég er afskaplega
þakklátur fyrir stuðninginn sem ég
hef fengið. Það hafa allir komið fram
við mig sem hluta af hópnum frá
fyrsta degi og það á jafnt við um leik-
menn sem og fólkið sem sér um
búningana. Það er sérstakt fýrir út-
lending eins og mig að koma hingað
og vera strax orðinn hluti af hópn-
um. Strákarnir í liðinu reyna meira
að segja að tala spænsku við mig
sem er mjög sérstakt og sýnir að þeir
reyna allt til að láta mér líða sem
einn af hópnum."
Riginingin leiðinleg
Það eina sem Heinze hefur út á
Manchester að setja er að það rignir
meira í borginni en hann að venjast
ffá fyrri tíð. „Þegar ég kvartaði yfir
því hversu oft það rigndi hér þá
svaraði Ruud van Nistelrooy mér að
ef sólin skini hér á Manchester þá
væri þetta paradís, besti staður í
heimi. Hann sagði mér að það væri
ekki hægt að fá allt í lífinu og hann
hefur rétt fýrir sér - það er ekki
hægt," sagði Heinze sem trúir því að
United geti unnið alla tida á næstu
árum.
„Fólk ætti að gera sér grein fyrir
því að ég er að spila í stórkostlegu
Iiði. Það er eintómar stórstjörnur í
liðinu en þær eru allar með fæturna
á jörðinni. Við erum að ná saman og
þegar allt smellur þá veit ég að við
munum vinna stóru tidana," sagði
Heinze. oskar@dv.is
Gabriel Heinze
Fæddur; 19.apríll978
bHæð' 172 cm
70 kg
Landsleikir: ^
Deildarleikir fyrir United: 22/1
Ferill:
1997-1998
1997- 1998
1998- 1999
1999- 2000
2000- 2001
2001-2002
2002- 2003
2003- 2004
2004- ? |
1 Newell's Old Boys
Real Valladolid
Sporting Lissabon
Real Valladolid
Real Valladolid
Paris St. Germain
Paris St. Germain
Paris St. Germain
Manchester United
Gabriel Heinze Þessi baráttuglaöi Argentlnumaður hefur staðið sig frábærlega með
Manchester United f vetur.
Heinze vildi frí yfir jólin
Gabriel Heinze er strangtrúaður
kaþólikki og hafði miklar áhyggjur
vegna gríðarlegs álags á leikmönn-
um ensku úrvalsdeildarinnar yfir
jólin. Heinze hefúr alltaf spilað í
deildum sem hafa verið í frfi yfir
jólin og sagðist vera vanur að
dvelja meö Qölskyldu sinni yfir jól-
in.
„Ég er vanur að nýta tímann
með fjölskyldunni og fara í messur.
Það verður eitthvað öðruvísi núna
en ég vona að ég nái að laga mig að
því aö einbeita mér að því að spila
vel,“ sagði
Heinze en
hann spil-
aði alla
þijá leiki
United á
milli
jóla og
nýárs
°g
virðist
ekki hafa
orðið
meint af.