Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2005, Page 24
24 MÁNUDAGUR 14. MARS 2005
Sport t>V
-f
Þegar Karl Malone lagöi skóna á hilluna á dögunum urðu ákveöin þáttaskil í
sögu NBA-deildarinnar. Malone var síðasti spilandi leikmaðurinn úr
Draumaliði Bandaríkjanna sem vann frækilegan sigur á Ólympíuleikunum í
Barcelona árið 1992. Það lið er almennt álitið sterkasta körfuboltalið sem
nokkru sinni hefur verið sett saman. í því voru leikmenn sem komu inn í NBA
deildina á árunum 1979 til 1987, sem hver um sig skipar stóran sess í körfu-
boltasögunni.
MAGICJOHNSON
leikstjórnandi
Magic Johnson er einn besti leikmaður sem stigið hefur fæti
á körfuboltavöll og það sem gerir hann einstakan er að hann
gat skammlaust spiiað hvaða stöðu sem var á vellinum sökum
fjölhæfni sinnar. Hann bylti leikstjórnandastöðunni þegar hann
kom inn í deildina, því hann var yfir tveir metrar á hæð en réð
yfir boltatækni sem fáir gátu státað af. Þessir eiginleikar gerðu
það að verkum að hann var illviðráðanlegur
þvihann var iðulega mun stærri en and-
stæðingurinn, en hafði engu að síður
hraða til að bera til að verjast minni and-
stæðingum. Tölfræði hans var frábær og
auk þess að vera góður skotmaöur og með
stoðsendingahæstu mönnum í deildinni,
varhann einnig mikill frákastari.
Leikskilningur hanns og leiðtogahæfi-
leikar verða þó ekki mældir í tölum, því
hann var mikill sigurvegari og nærvera
hans á vellinum skilaði mörgum sigr-
um i hús fyrir lið hans Los Angeles
Lakers.
CLYDE DREXLER
skotbakvörður
Drexler var mikill háloftafugl og var mjög vinsæll leikmaður
þegar hann lék i NBA-deildinni, iengst afmeð Portland Trail-
blazers og síðar með Houston Rockets. Eins og svo margir þurfti
Drexler aö láta i minni pokann fyrir Michael Jordan og félögum í
Chicago Bulls í úrslitunum og urðu ein-
vigi hans og Jordans sögufræg. Þegar
Drexler gekk loks til liðs við Houston
Rockets, þar sem hann lék við hlið félaga
sins úr háskóla, Hakeem Olajuwon, náði
hann að klófesta titilinn árið 1995. Það var
ekki sist fyrir fjölhæfni Drexlers að Rockets
urðu meistarar það árið, en hann kom með
mikla leikreynslu með sér inn i liðið. Hann er
einn afaðeins þremur leikmönnum ísögu NBA
til að skora 20.000 stig, hirða 6000 fráköst og
gefa 3000 stoðsendingar á ferlinum. Árið 1996
varhann valinn einn afSO bestu leikmönnum i
sögu NBA í tilefni afSO ára afmæli deildarinnar.
MICHAEL JORDAN
skotbakvörður
JOHN STOCKTON
leikstjórnandi
Efbúið yröi til módel afhinum fullkomna leikstjórnanda yröi
það sennilega steypt eftir John Stockton, sem lék í 19 ár með liði
Utah Jazz í NBA-deildinni. Stockton leiddi NBA-deildina í
stoðsendingum í átta ár í röð og met sem hanná yfir heildar-
stoðsendingar á ferlinum, er eitt afótrúlegustu metum í sögu
amerískra hópiþrótta. Stockton hafði einstakt
, auga fyrir sendingum og var fádæma öruggur
3 með knöttinn ihöndunum. Hann var lika góð
skytta og vandaði skot sín vel, en
hugsaði alltaffyrst og fremst um að
spila liðsmenn sina uppi og gera
þá betri. Hann var fullkominn
liðsmaður og mikill keppnis-
maður sem sýndi fádæma
) sínum ferli
\
">r 0
—s, keppnishörku og úthald á öllum sín
<8aijy með liði Utah Jazz.
.Jr
Flestir eru sammála um að Michael Jordan sé besti
körfuboltamaður allra tíma. Ferill hans er einstakur
og fáir íþróttamenn í sögu hópiþrótta geta státað af
öðrum eins afrekum. Jordan tók við kyndlinum afMagic
Johnson og Larry Bird þegar þeir stigu afstalli sem bestu
leikmenn deildarinnar og hóf körfuknattleikinn í nýjar
hæðir á heimsvísu með leik sínum. Fyrstu ár hans í
deildinni var hann þekktur fyrir glæsilegar troðslur og
háloftatilþrif, en þau afrek féllu siðar i skuggann af
sigrum hans með liði Chicago Bulls.Jordan vann sex
meistaratitla með liðinu og hefði hann ekki tekið
sér frí frá iðkun leiksins um miðjan tiunda
áratuginn til að reyna fyrir sér i hafnabolta,
má vel vera að titlarnir hefðu orðið enn
fleiri.Jordan varð tiu sinnum stigakóng-
ur deildarinnar og skoraði um 30 stig
að meðaltali í leik yfir feril sinn og
vann i raun til allra verðlauna og titla
sem hægt var að vinna.
ItSit
tÉl!
CHARLES BARKLEY
stór framherji
Barkley er einn litrikasti leikmaður sem stigið hefur á fjalir NBA-
deildarinnar. Hann var lágvaxinn miðað við kraftframherja og þótt
hann væri skráður tveggja metra maður, var hann ekki nema um 195
cm á hæð. Barkley var sannkallað náttúrubarn og þrátt fyrir að hafa
lítið tekið i lóðin, varhann tröll að burðum og hrundu varnarmenn af
honum eins og flugur þegar hann hirti fráköstin i gríð og erg. Barkley er
minnsti leikmaðurinn í sögu NBA sem hefur leitt deildina i fráköstum.
Barkley lá aldrei á skoðunum sínum og hafði mikið keppnisskap. Hann lék
með Philadelphia, Phoenix og Houston á ferlinum og náði í lokaúrslitin árið
1993 með liði Phoenix Suns, en það ár var hann valinn besti leikmaður
deildarinnar. Barkley lék á ferlinum 11 stjörnuleiki og er einn afaðeins fjór-
um leikmönnum í sögu deildarinnar sem skorað hafa 20.000 stig, hirt
10.000 fráköst og gefið 4000 stoðsendingar.
)
I