Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2005, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2005, Síða 32
32 MÁNUDAQUR 14. MARS 2005 Menning TfV liíl Bók vísindanna Mál og menning hefur sent frá sér þykka bók og silfurgráa: Vísinda- bókina ! þýöingu Ara Trausta Guð- mundssonar. Þetta er að upplagi verk sem unnið er á vegum Cassel í Bretlandi og safnað saman undir breskri rítstjórn margra höfunda. Vísindabókin er afar aðgengilegt og rlkulega myndskreytt rit um sögu og vöröur I þróun vísindanna. Hér er greintfrá250 merkum vís- indaafrekum frá upphafi vega til dagsins í dag i máli og myndum.Sag- an errakin frá uppruna talsins þrjátíu og fimm þúsundárum fyrir Krist til erföamengisrannsókna árið 2000. Þannig fæst ítarleg og yfírgripsmikil sýn á hvernig skilning- ur mannsins á umhverfi sínu hefur þróast í tímans rás. Bókin varpar Ijósi á þaö að vísindaleg hugsun hefur ekki aðeins gjörbreytt hvers- dagsllfi okkar, heldur líka skyn- bragði okkar á það hver við erum og hvernig heimurinn er. Fjallaö er um merkileg framfara- spor I líffræöi, eðlisfræði, stjörnu- fræði, heimsfræði, jarðfræði, læknis- fræði og stæröfræði og er gerð grein fyrir hverjum atburði, upp- götvun eða uppfinningu á einni opnu með Ijós- um og liprum texta og lýsandi myndverki. Bókin er fallega prentuö á Itallu og er I límdu bandi, 528 slður I með- alstóru broti. Vlsindabókin er bók sem á erindi til allra, ungra og aldinna, sem vilja fræöast um vlsindi og sögu manns- andans. Vísindabókin verður á tilboðsverði í mars kr. 3490, en slðan verðurhún seld á krónur4990. Ritfregn Erró kemur fram á tveimur sýningum þessa dagana, norðan og sunnan heiða. í Lista- safni Reykjavíkur má sjá hvernig hann vinnur úr myndasögum samtímans og í Lista- safni Akureyrar eru til sýnis verk hans sem byggja á tilvísunum í verk eldri málara. lljMS t \ \ \ \ \ 7$ \ ' \ vv i A yV yvs/ X / |)1 ■ wi Á laugardag var opnuð sýning á verkum Errós í Listasafninu á Akur- eyri og stendur hún til 8.maí. Meginuppistaðan á sýningunni eru átta risastór málverk úr myndröð- inni Listasagan sem gerð voru 1991-1992. Til að gefa innsýn í vinnuaðferðir og hugmyndaheim Errós má einnig sjá fjögur verk þar sem hann klippir saman myndir annarra listamanna frá ýmsum tímabilum 20. aldar. Sýningin er gerð í samvinnu við Listasafn Reykjavlkur. Aðalstyrkaraðili sýn- ingarinnar á Akureyri er KB banki. Klippiverk fara á stóran flöt Erró málar í þriðju persónu og hann notar myndir sem hafa áður birst á prenti sem efnivið í verk sín. Frásagnarmátinn í þessum myndum er ýmist á þann hátt að Erró steypir saman í eitt rými ólík- um myndbrotum héðan og þaðan og býr til nýjar tilvísanir, eða hann notar einskonar net þar sem mynd- unum er raðað inn í og skapar á þann hátt framvindu eða hreyfingu í frásögnina. Þetta má sjá bæði í sýningunni á Akureyri og parti Er- rós á Níunni - myndasögumess- unni í Listasafni Reykjavíkur. Verk meistaranna Erró hefur alltaf verið óhræddur við að takast á við nýja tækni og í myndaröðinni Listasagan notar hann samskonar aðferð og iðn- hönnuðir, netmöskva til að ramma inn hverja mynd. f verki eins og t.d. Magritte endursegir Erró okkur listasöguna; hann sýnir okkur brot af þekktustu myndum súrrealist- ans Magritte (1898-1967), ásamt persónum sem voru honum ná- komnar. Nálgun Errós er með svip- uðum hætti í verkunum Matisse, Gaugain, Picasso, Miro, Otto Dix, Léger og Andlitsmyndir ex- pressjónistanna. Æskuljóminn Erró er alltaf ungur í anda: „Ég hef gaman af því að leika mér með form og búa til minn eigin heim þar sem ég get dvalið um stund. Hver mynd er fýrir mér, ný og göm- ul saga sem ég segi sjálfum mér til að viðhalda þráhyggju barnsins sem ég hef aldrei hætt að vera.“ Þannig bjóða öll verkin á þessari sýningu upp á margskonar túlkun. Þótt frummerking myndanna sé 77/ að gefa innsýn í vinnuaðferðir og hug- myndaheim Errós má einnig sjá fjögur verk þarsem hann klippir saman myndir annarra listamanna frá ýmsum tímabilum 20. aldar. skýr í huga Errós þá eru túlkunar- möguleikum áhorfandans lítil sem engin takmörk sett og það er í raun þekking hans, menning og andagift sem mestu ræður um hvernig hann les eða upplifir verkin. Gægjuárátta og sýniþörf Þaö er af sem áður var þegar fólk leit á heimili sitt sem griðastað fjöl- skyldunnar og bar harm sinn og gleði í hljóði. Að minnsta kosti er aldrei hörgull á heitasta slúðrinu í Séð og heyrt og á skjánum opnar fólk líf sitt upp á gátt. Hjá Sirrý er grátið og hlegið yfir mismeinlegum örlögum mannanna. í Innliti/útliti sýnir landinn stoltur flottu hús- gögnin frá Epal og eplaskreytingar í gluggum. í glænýjum þætti, Allt í drasli, er bakteríubönum boðið í heimsókn í sóðabæli bæjarins en áður en tiltektin hefst híma subbumar hoknar og skömmustu- legar undir skammarræðum ræsti- tæknanna. Allt er þetta ósköp frjálst, sogið upp í ófá nefin og tár hrynja af hvörmum. En sitt sýnist hverjum um frelsiö, hispursleysið, gægjuáráttuna og sýniþörfina og rithöfundagrínistinn Þorsteinn Guðmundsson eygði í öllu þessu efhi í sögu. Sú heitir Fífl dagsins og kom fyrir sjónir landsmanna seint á sfðasta ári. Sagan segir af manni nokkrum sem tekur sér fyrir hendur að skrá- setja líf frægasta íslendings sam- tímans, Sigga Tex, sem einn góðan veðurdag flytur f íbúðina beint á móti sögumanni ásamt íðilfögrum kvenmanni. Sögumaður veðrast allur upp og tekur til við að njósna um skötuhjúin af miklum móð og áöur en langt um líður er hann fluttur inn á gafl til hjónakornanna. Þau sjá fátt athugavert við stöðuga návist sögumanns og ekki amast þau heldur við öðrum gestum sem hreiðra um sig í húsi þeirra um langa eða skamma hríð. í upphafi er sögumaður hreykinn af því að hafa komist í náin kynni við þenn- an ffæga mann og svo upphafinn að hann lætur hjá líða að mæta til vinnu meö óþægilegum afleiðing- um. Smátt og smátt renna á hann tvær grímur því hann uppgötvar að allar sögusagnir um Sigga Tex, bæði jákvæðar og neikvæðar, virð- ast rangar og því hefst hann handa við skrásetningu sem hann hyggst hafa kórrétta. Nú skal sannleikur- inn sagður í eitt skipti fyrir öll. En því meira sem sögumaður hamast viö skrásetninguna því ruglings- legri verður frásögnin og lesandi veit aldrei hvaöa sögu er verið að segja; sögu skrásetjarans sjálfs eða Sigga Tex. Fífl dagsins er að mörgu leyti forvitnileg saga, eða öllu heldur viðfangsefriið. Höfúndur ætíar sér mikíð, m.a. að sýna að sannleikur- inn verður aldrei fangaður til fulls. Hann reynir að koma í orð hug- myndum um „ffæga“ fólkið sem sumt hvert liggur undir grun um að vera frægt af endemum en felur skandalana í glamúr og tíma- bundnu rikidæmi. Reynir, segi ég, því bókin er í heild sinni tilraun sem mistekst. Tilraun til aö sýna hvemig líf þeirra sem slúðurþiggj- endur þrífast á er í raunveruleikan- um, tilraun til að afhjúpa innræti „venjulega" fólksins og tilraun til að sýna hvað þotuliðið má þola. Þorsteinn Guðmundsson gerir í Fífli dagsins heiðarlega en ónýta tilraun til að afhjúpa gægi- og sýni- þörf landans. Hann reynir við fýndnina, sem er hans helsta aðals- merki, en svo illa vill til að útkoman er í formi langdregins og algjörlega mislukkaðs brandara. Hér er á ferð- Fífl dagsins Þorsteinn Quðmundsson Mál og menning 2004 Verð kr. 4.290 kr. m Bókmenntir inni dágott og frumlegt hugmynda- safn, nokkurs konar sketsur, sem hugsanlega hefði mátt vinna úr góða bók með betri yfirlegu. En sú bók sem á haustdögum var keyrð í bókabúðir með orðunum „frum- leg, ögrandi og töfrandi" á baksíðu stenst ekki væntingar. Hún er þvælukennd, illa upp byggð og alls ekki til vimis um þær snjöllu hug- myndir sem greinilega hafa kvikn- að í huga höfúndar í upphafi. Þor- steinn Guðmundson getur betur en þetta, hin virðulega útgáfa Edda getur betur og lesandinn hefur margt betra við tímann að gera en að þrælast í gegnum bók af þessu tagi. SigríðuiAlbertsdóttk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.