Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2005, Side 39
DV Síðast en ekki síst
MÁNUDAGUR 14. MARS 2005 39
Við borgum ekki!
Umsækjendum um starf frétta-
stjóra Ríkisútvarpsins finnst þeir
hafðir að fíflum. Formlegt mat á
hæíni umsækjenda fer fram með
ærinni fyrirhöfn og málefnaleg til-
laga gerð um ráðningu. Þá kemur í
ljós að Framsóknarflokkurinn telur
sig eiga stöðuna!
Mér finnst ég líka hafa verið hafð-
ur að fífli. Afnotagjöldin eru lögboð-
in skylda og stofnunin er eign lands-
manna allra. Nú er komið í ljós að
þetta er allt misskilningur. RUV er í
eigu stjórnmálaflokka og þeir fara
með það eins og þinglýsta eign sína.
Ef ekki er farið eftir eðlilegum leik-
reglum á Ríkisútvarpinu, er réttast
að landsmenn hætti að greiða af-
notagjöldin. Tími borgaralegrar
óhlýðni er runninn upp.
Borgaraleg óhlýðni
Með borgaralegri óhlýðni er átt
við lögbrot af prinsippástæðum.
Lögin eru brotin, því er ekki leynt,
heldur beinh'nis látið vita af því.
Mikilvægt er að viðkomandi hagnist
ekkert persónulega á lögbrotinu,
enda er það ekki tilgangurinn. í
þessu tilfelli yrði stofnaður banka-
reikningur og afnotagjöldin greidd
inn á hann, en Ríkisútvarpið látið
vita af því. Peningarnir eru síðan
geymdir á reikningnum uns leikregl-
ur eru virtar og eðlilegt ástand skap-
ast.
Best væri auðvitað að einhver fé-
lagasamtök gættu reikningsins og
héldu utan um það hverjir greiddu
inn á hann. En þetta er þó engin
nauðsyn, hver einstaklingur sem
getur ekki samvisku sinnar vegna
greitt afíiotagjöldin, getur stofnað
slíkan reikning sjálfur.
RÚV getur ekki rukkað
Spumingin sem eðlilega vaknar
er þessi: Hvað gerist þegar RÚV fer
að rukka inn afnotagjöldin? Svarið
við því er einfalt. RÚV verður bent á
það kurteislega að upphæðin hafi
verið greidd inn á reikning og kvitt-
un sýnd fýrir því. Óhlýðnin byggist á
virðingu fýrir hlutverki Ríkisútvarps-
ins og því er erfitt fyrir stofnunina að
ganga hart fram. Þeir sem grafa
undan RÚV er ekki hinir óhlýðnu,
heldur þeir stjórnendur stofnunar-
innar sem grafið hafa undan lög-
mæti hennar með ákvörðunum sín-
um. Að siga lögmönnum og lögreglu
á yfirlýsta stuðningsmenn stofnun-
arinnar er hreint glapræði. Daginn
sem reynt verður að siga lögreglunni
á fólk sem ekki hefur greitt mun
RÚV hrynja til gmnna. Hér þarf í
Birgir Hermannsson
talar um hætturta wB á því að einfalda illskuna. \ ML 'é
Kjallar i I
rauninni ekki nema einn til, en því
fleiri sem ekki greiða, því betra.
Ríkisútvarpið verður ekki í neinni
stöðu til að rukka inn afnotagjöldin
af þeim sem greitt hafa þau inn á
sérstakan reikning. Ég hygg að
stofnuninni muni ekki einu sinni
detta það í hug. RÚV hefur ekki
hreinan skjöld í þessu máli, enda
augljóslega brotið eðlilegar leikregl-
ur í lýðræðissamfélagi.
RÚV og réttarríkið
Nú mun sjálfsagt heyrast hljóð úr
horni um réttarríkið og hættuna á
því að borgaramir taki lögin í sínar
hendur.
Svarið við þessu er einfalt: Var
ráðning fréttastjóra útvarpsins
dæmi um virðingu fýrir réttarríkinu
og lýðræðislegum stjórnarháttum?
Bar ráðningin vimi um háleita virð-
ingu fyrir jafnrétti borgaranna? Er
ekki augljóst að stjórnendur RÚV
nota réttarríkið sem skálkaskjól og
réttlætingu fyrir athöfnum sem aug-
ljóslega ganga þvert gegn þeim hug-
sjónum sem það byggist á?
Birgir Hermannsson
vill að íslendingar
bregðist við ráðningu
nýs fréttastjóra á Rík-
isútvarpinu með því
að greiða ekki af-
notagjöldin beint til
RÚV heldur inn á sér-
stakan geymslureikn-
ing. Peningarnir eru
síðan geymdir á
reikningnum uns leik-
reglur eru virtar og
eðlilegt ástand skap-
ast.
Staðreyndin er sú að hvergi í Evr-
ópu myndu stjórnvöld komast upp
með dellu af því tagi sem ráðning
fréttastjóra Ríkisútvarpsins er dæmi
um. Sérstaklega yrði slíkt litið horn-
auga í Austur-Evrópu, enda kannast
menn við aðferðirnar. Engin ástæða
er til að láta slíkt yfir sig ganga hér
heldur. Hefur einhver ástæðu til að
greiða afnotagjöldin eftir það sem á
undan er gengið?
Talstö6in
FM 90,9
DAGMAL ODDS ASTRAÐSSONAR OG
RAGNHEIÐAR GYÐU JÓNSDÓTTUR
Alla virka daga kl. 9.
með Kristjáni Guy Burgess
• Það var ekki nóg með
að fréttamenn á útvarpi
og sjónvarpi lýstu yfir
vantrausti á Markús
ömAntonsson út-
varpsstjóra og nánast
allir starfsmenn Ríkisútvarpsins
skomðu á hann að draga ákvörðun
sína um að skipa Auðun Georg
aÓlafsson sem frétta-
stjóra til baka, heldur
virðist sem sjálft út-
varpshúsið hafi snúist
gegn Markúsi. Hinn
pólitískt skipaði Mark-
ús, sem kallaður er Markús nýi til
mótvægis við Markús gamla sem
hafði metnað fyrir hönd RÚV áður
en hann varð borgarstjóri, fékk ekki
einu sinni lyftuna til að virka þegar
Brynja Þorgeirsdóttir þjarmaði að
honum í fréttum á Stöð 2...
• Fréttamenn urðu
öskureiðir þegar þeir
hlustuðu á Pétur
Gunnarsson fulltrúa
framsóknar í útvarps-
ráði tala um það að
ráðið hefði viljað
rekstrarmann í stól fréttastjóra frek-
ar en einhvern sem þekkti til frétta.
Pétur sem sendi harkalegt bréf á
Friðrik Pál Jónsson og
Boga Ágústsson fýrir
skömmu og býsnaðist
yflr fréttum RÚV í
tengslum við íraks-
málið, virðist hafa
verið í sérstökum
hefndarhug og alls ekki viljað styðja
neinn af þeim sem fyrir vom...
• Framsóknarmenn tala nú um að
spunakerlingarnar, Kasper, Jesper
og Jónatan hafi farið fram úr sjálf-
um sér og beinast
spjótin að guðföður
þeirra, HalldóriÁs-
grímssyni, sem hafi
veitt drengjum sínum
umboð til að valsa um
og velja fréttastjóra. Er
óánægjan með Halldór að magnast
víða í flokknum og rótgrónir fram-
sóknarmenn tala sín á milli um að
það þurfi að munstra nýjan mann í
brúna. Einn af þeim sem er nefndur
er Jón Sveinsson lögfræðingur...
• Víst er að margur landsbyggðar-
framsóknarmaðurinn er ekki hrif-
innafþvíaðmissa
Jóhann Hauksson
sem hefur verið einn
helsti varðhundur um
að landsbyggðarmál
hafi verið til umfjöll-
unar í fréttum RÚV.
Hann reif upp svæðisstöðina á
Austurlandi og hefur verið á Akur-
eyri upp á síðkastið. Víst er talið að
Japansreynsla Auðunar Georgs
fleyti honum skammt í að ná í
landsbyggðarfréttirnar sem voru
sérsvið Jóhanns...
• Á 70 ára afmæh Vöku í háskólan-
um hélt Stefán Eiríksson í dóms-
málaráðuneytinu ræðu en fllugi
Gunnarsson, aðstoð-
armaður Davíðs
Oddssonar, var veislu-
stjóri. f ræðunni talaði
Stefán um eitt helsta
baráttumál Vöku árið
1992 þegar Ulugi
leiddi lista Vöku til háskólaráðs en
til stúdentaráðs leiddi Börkur nokk-
ur Gunnarsson list-
ann. Baráttumálið
var um að búa til at-
vinnumiðlun fyrir út-
skrifaða og þótti
skondið í ljósi þess að
IUugi er nýbúinn að
redda Berki vinnu hjá NATO í írak
fram hjá öUum hefðbundnum skfl-
yrðum um menntun og reynslu...