Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2005, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2005, Side 8
8 LAUGARDAGUR 16. APRÍL 2005 Fréttir DV Sigurjón Þórðarson Þingmað- urinn fékk afhent umslag spari- sjóðsstjórans fyrrverandi með 18 blaðsíðna rafmagnsreikningi uppá lóOprósenta hækkun. Björgvin Brynjólfsson Hefur alltafstaðiö ískilum á82ára langri ævi sinni þartilnú. Ofsaakstur við Blönduós Lögreglan á Blönduósi stöðvaði þrjá ökumenn á yflr hundrað og þrjátíu kílómetra hraða á þjóðvegi eitt í gær. Allir ökumennimir eiga von á sektarboði. Þá voru sjö aðr- ir ökumenn hirtir fyrir væg- ari brot á hraðatakmörkun- um. Allir ökumennimir tíu vom teknir á milli klukkan tólf og fimm í gærdag. Að sögn lögreglunnar á Blöndu- ósi var mikil umferð ffam hjá bænum. Helst var þar um ungt fólk að ræða og taldi lögreglan það tengjast söngvakeppni framhalds- skólana sem haldin verður á Akureyriíkvöld. HASKOUNN t RtYKIAVÍK Háskóli í Nauthólsvík Tekin verður ákvörðun um staðsetningu nýs sam- einaðs háskóla Tæknihá- skóla íslands og Háskólans í Reykjavík á miðvikudaginn í næstu viku. Að sögn Þorkels Sigurlaugssonar verkefna- stjóra fyrir hönd Háskólans í Reykjavík koma aðeins tveir staðir til greina - Urðarholt í Garðabæ og Vatnsmýrin, milli Loftleiða og Nauthóls- víkur, í Reykjavík. Borgarráð Reykjavíkur samþykkti í vik- unni þá staðsetningu þanni að „nú er valið undir nefnd- inni komið," eins og Þorkell orðar það. 160 prósenta hækkun hefur oröið á rafmagnsreikningi hins 82 ára gamla fyrrver- andi sparisjóðsstjóra á Skagaströnd, Björgvins Brynjólfssonar Ástæðan er breytt raforkulög. Björgvin er hættur að borga rafmagnsreikninginn. Fyppverandi bankastjóri hættir aö borga rafmagns- reikninginn „Ég borga aldrei þennan rafmagnsreikning nema ég verði dæmd- ur til þess af yfirvöldum," segir Björgvin Brynjólfsson, 82 ára gam- all fyrrverandi Sparisjóðsstjóri á Skagaströnd, sem fékk rafmagns- reikning á 18 blaðsíðum inn um bréfalúguna fyrir skemmstu. Reikningurinn hækkaði 160 prósent eftir skipulagsbreytingar sem Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra náði í gegn. Björgvin er eitt af fórnarlömb- um nýrra raforkulaga sem tóku gildi í byrjun ársins, meðal annars í þeim tilgangi að gera fyrir- tækjum auðveldara um vik að stofna til stór- iðju. Þá er ætlunin að auka samkeppni milli framleiðenda og flytjenda raforku. Reglusamur borgunarmaður Síðasta reikning átti hann að greiða 6. apríl síðast- liðinn, máli aldrei þessu vant borgaði hann ekki. „Ég hef aldrei átt neina ógreidda reikninga. Þetta verður þá í fyrsta skiptið.á ævinni sem mér verður stefnt fyrir vanskil, enda er þetta ósvífnasti reikningur sem ég hef fengið," segir Björgvin, sem hefur víðtæka reynslu á sviði reikninga. „Ég hef unnið á skrifstofu stóran hluta æv- innar og lesið alls konar plögg en ég botnaði ekkert í þessum reikningi. Þessir pappírar eru ekki á manna- 35 þúsunda króna hækkun Reikn- ingur Björg- vins hækk- aði um 35 þúsund krónur á Tv Nýtt á Islandi Sýning í Kringlunni 14. - 20. apríl Arftaki fellihýsa hjólhýsi með fellanlegu þaki RUBIS I Stærðir: 310 - 430 cm. > Svefnpláss fyrir 2 - 5. 1 :: I Kemst í bílskúr EUROSPORT • Sími 662 0700 milli mánaða, úr 22 þusundum í 22 þi 1. „Eg rúmlega 57 þúsund. „Ég las í blöð- um og heyrði í hljóðvarpi að reikn- að væri með 5 lil 6 prósenta hækk- un í mesta lagi. En þetta hjá mér er brjálæði. Kjarni málsins er sá að það hefur ekkert breyst á milli mánaða nema reikningsaðferðin," segir hann og bætir við að hann hafi rætt við þingmann um málið. Þingmaður í Kántrýbæ Þingmaðurinn sem Björgvin ræddi við er Sigurjón Þórðarson hjá Frjálslynda flokknum. Björgvin gerði sér ferð í Kántrýbæ í fyrra- kvöld og afhenti þingmanninum plöggin án málalenginga. „Hann rétti mér rafmagnsreikninginn í stóru umslagi. Við talningu reynd- ist hann vera á 18 blaðsíðum. Og illskiljanlegur eftir því. Þetta er eins og í lygasögu. Þessar breytingar eru kynntar með því að það verði eng- inn aukinn kostnaður í kerfinu," segir þingmaðurinn sem telur dæmi sparisjóðsstjórans fyrrver- andi á Skagaströnd ekki til fyrir- myndar fyrir markaðsvæðingu raf- orkukerfisins. „Ég hefunnið á skríf- stofu stóran hluta æv- innar og lesið alls konar plögg en ég botnaði ekkert í þess- um reikningi" Ódýrara fyrir stórfyrirtæki Breytt raforkulög fela í sér að dreifing og sala orku eru aðskilin. Rafmagnsveita ríkisins greindi frá því á vef sínum tveimur dögum áður en lögin tóku gildi að vegna breyttra aðstæðna myndi upp- bygging verðskrár breytast. „Þessar breytingar geta komið misjafnlega út hjá viðskiptavinum, en að jafn- aði er nú aðeins um að ræða verð- hækkun til að mæta verðlagsþróun undanfarin misseri, tæplega þó.“ Þó segir Rafmagnsveitan einnig að húshitunarkostnaður muni þó hækka töluvert, en orkukostnaður stærri notenda, iðnfyrirtækja og þess háttar, lækki umtalsvert. jontrausti@dv.is Magnús vann ekki Rangt var farið með frétt af ákæru á hendur knattspyrnumannin- um Magnúsi Má Lúðvíkssyni í gær. Sagt var að Eyja- menn hefðu unnið sigur í leik gegn Valsmönnum í Portúgal á dögun- um. Hið rétta er að Valur vann leikinn og er beðist velvirð- - ingar á þessu. Magnús Már var hins vegar r meðal leikmanna í ' leiknum en var skipt út af í seinni hálfléik.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.