Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2005, Page 12
72 LAUGARDAGUR 16.APRÍL 2005
Fréttir DV
Rættaf kappi
um flugvöll
EgUl Helgason sjónvarps-
maður og Jón Karl Ólafsson
forstjóri Icelandair verða
málshefjendur á kapp-
ræðum um framtíð
Reykjavikurilugvallar á
mánudaginn. Kappræð-
urnar verða
klukkan átta um
kvöldið í Öskju,
náttúrufræða-
húsi Háskóla
íslands. Að
því er segir í
fréttatilkynningu verður
meðal annars spurt hvert
mikilvægi flugvallarins er,
hvort einhverjar málamiðl-
anir náist og hvemig borg
við eigum að byggja. Það
eru félög sjálfstæðismanna í
Reykjavík sem standa fyrir
kappræðunum.
Ódýrara
eftir hádegi
Á Akranesi skoða
bæjaryfirvöld möguleika
á því að taka upp lægra
gjald í leikskóla eftir há-
degi þar sem eftirspurn
eftir dagvistarplássum er
ekki eins mikil og fyrir
hádegi. Einnig á að
kanna hver yrðu áhrif
þess að fimm ára börn
fengju vistun fyrir hádegi
án endurgjaids. Enn-
fremur hver áhrif þess
að gæsla bama hjá dag-
mæðrum yrði niður-
greidd þannig að gjaid
fyrir dagvistun væri sú
sama og almennt gjald
fyrir vistun á leikskólum
bæjarins. Á meðan þetta
allt saman er kannað
segist bæjarráð ekki vilja
ræða lækkun leikskóla-
gjalda.
Fær góðar
gjafir
AronPálmi
Ágústsson mim á
næstu dögum fá
sendan til sín
pakka frá íslandi
en í honum verð-
ur íslensk tónlist og fleira
sem hann á erfitt með að
nálgast í stofufangelsinu
ytra. Smekkleysa, Geim-
steinn og fleiri aðilar brugð-
ust skjótt við þegar óskað
var eftir efni í pakkann
handa Aroni Pálma og
þarna verað t.d. þrír geisla-
diskar Bjarkar Guðmunds-
dóttur sem er einn af hans
uppáhaldstónlistarmönn-
um.
A leið út úr héraðs-
dómi Magnús Einars■
son leiddur i burtu af
lögreglu.
Hagstæðara að fá lánaðar hjólbörur undir kælt kampavín en leigja
Kostar tíu þúsund krónur að leigja sex hjólbörur
Bláa Lónið í
flugstöðina
Bláa Lónið hf. og Flugstöð
Leifs Eiríkssonar hf. hafa gert
með sér samning um rekstur
Blue Lagoon-verslunar innan
verslunar íslensks markaðar í
flugstöðinni. Grímur Sæmund-
sen, framkvæmdastjóri Bláa
Lónsins, og Höskuldur Ásgeirs-
son, framkvæmdastjóri Flug-
stöðvar Leifs Eiríkssonar, undir-
rituðu samninginn. Blue Lag-
oon-húðvörur hafa um árabil
fengist í íslenskum markaði. Bláa
Lónið mun fá til umráða afmark-
að svæði innan verslunarinnar
þar sem fyrirtækið mun reka
sjáifstæða verslun.
Ef sex hjólbörur yrðu leigðar frá
tækjaleigu BYKO myndi kosmaður
við leiguna í tvo daga vera tæpar tíu
þúsund krónur. Þá er ekki reiknuð
með vinna eða akstur tO og frá
tækjaleigunni.
Steinunni Valdísi Óskarsdóttur
borgarstjóra fannst h'tið koma til
gagnrýni á hjólbörulán borgarinnar
til Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur
vegna fimmtugsafmælis hennar
síðastliðinn gamlársdag. Sömu
sögu er að segja af formanni fram-
kvæmdaráðs borgarinnar, Önnu
Kristinsdóttur, sem sagði lánið
sparðatíning.
Ingibjörg Sólrún kvaðst ekkert
sjá að láninu sömuleiðis. Þess utan
hefðu hjólbörumar ekki verið not-
aðar þegar til kastanna kom. Stein-
unn Valdís sagði það raunar athygl-
isverðast við máhð að flokksmenn I
öðrum flokkum væm famir að
skipta sér af for-
mannsslagnum í
Samfylkingunni, og
átti þar við Kjartan
Magnússon, borgar-
fulltrúa sjálfstæðis-
manna, sem vakti
fyrstur athygli á mál-
inu á fundi í ffam-
kvæmdaráði borgar-
innar. Kjartan vísar
þesu alfarið á bug.
Hann ítrekar að
lánið sé ekki aðal-
málið - heldur
það hvemig stað-
ið var að því.
„Ég lagði málið einfaldlega fram
í framkvæmdaráði og gerði það af
fyllstu hófsemi," segir Kjartan. „Ég
krafðist þess ekki að neinn reikn-
ingur yrði gefinn út né heldur var ég
að gera það að neinu aðalatriði hver
ætti þamaíhlut.“
Kjartan segir svör
R-listans, og þá ekki
síst það að hann sé
sakaður um að vera að
blanda málinu saman
við formannsslag í
Samfylkingunni út í
hött.
„Það er auðvitað
ekkert rétt enda var ég
fyrir löngu farinn að
afla gagna í þessu
máli eftir að hafa
fengið ábendingu um
það frá starfsmönn-
um borgarinnar,"
segir Kjartan. „Þetta snýst auðvitað
um að þama vom starfsmenn borg-
arinnar að leggjast í fjárútlát og
akstur við þetta lán, auk þess sem
mennimir vom að standa í þessu á
helgidagakaupi."
Ekki (Samfylkingunni Kjartan
Magnússon borgarfulltrúi. Vísarþví
á bug hlæjandi aö hann taki þátt í
formannsslag Samfylkingarinnar.
Dýrara fyrir almenning Kostar tíu þúsund aö leiga
sex hjólbörur i tvo daga í BYKO - án heimsendingar.