Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2005, Side 13
DV Fréttir
LAUCARDAGUR 16. APRÍL 2005 73
Magnús Einarsson, banamaður Sæunnar Pálsdóttur, var
leiddur fyrir rétt í gær. Hann sýndi enga iðrun í réttarsal
og sagði að um manndráp af gáleysi væri að ræða. For-
eldrar Sæunnar eru nú með forræði yfir börnum hennar
og hafa selt íbúðina sem var vettvangur hroðalegs glæps í
nóvember á síðasta ári.
Enga iðrun var að finna í orð-
um Magnúsar Einarssonar,
morðingja Sæunnar Pálsdóttur,
sem færður var í réttarsal í gær.
Hann viðurkenndi að hafa banað
Sæunni en svaraði þyí ekki hvort
hann sæi eftir því. Á baugfingri
bar Magnús enn giftingarhring-
inn sem hann setti upp fyrir
fáeinum árum.
Réttarhöld hefjast
„Ég, héma, hef ákveðið að tjá
mig ekki um efni ákæmnnar á
þessustigi," sagðiMagnús skjálf-
andi röddu í dómsal í gær. Aður
hafði hann stormað inn í hús
Héraðsdóms Reykjavíkur með
svarta möppu fyrir andlitinu,
beðið eftir lögfræðmgi sínum og
að lokum fjarlægt möppuna og
sýnt sitt rétta andlit.
Sú ákvörðun Magnúsar að tjá
sig ekki um málið olli vandræða-
gangi í dómssalnum. Slíkt er nán-
ast óheyrt í málum sem þessum.
Ósáttur við ákæru
Eftir orðaskipti Kolbrúnar
Sævarsdóttur, fufltrúa ríkissak-
sóknara í málinu, og lögffæðings
Magnúsar komst skriður á málið.
Magnús lýsti því yfir að hann
væri ósáttur við orðalag
ákæmnnar á hendur honum. Þar
stendur að Magús sé ákærður fýr-
ir manndráp, „með því að bregða
þvottasnúru um háls hennar og
þrengja að með þeim afleiðing-
um að hún lést af völdum kyrk-
ingar.“
Magnús sagði að þetta væri
ekki alveg rétt.
Ekki ásetningur
„Það hefur aldrei komið fram í
yfirheyrslum að svona hafi þetta
verið," sagði Magnús og viður-
kenndi að hafa þrýst þvottasnúr-
unni að hálsi eiginkonu sinnar en
ekki að hafa bmgðið henni um
hálsinn. Hann bætti við: „Ég tel
þetta því ekki að varða við 211.
grein almennra hegningarlaga."
Þögn sló á salinn. Lögfræðing-
ur Magnúsar kvaddi sér hljóðs og
sagði: „Það sem Magnús á við er
að það hafi ekki verið hans ásetn-
ingur að verða henni að bana."
Enn með hringinn
Sæunn Pálsdóttir er látin og
það fyrir hendi Magnúsar sem
ber enn giftingarhring þeirra
hjóna á baugfingri vinstri handar.
Hringurinn sem Sæunn bar er í
umsjá foreldra hennar. Hún var
ekki jörðuð með hringinn.
Réttarhöldunum í gær lauk
með ákvörðun um framlengingu
gæsluvarðhalds yfir
/---------
Magnúsi. Að því loknu var hann
leiddur út úr salnum þar sem
blaðamaður spurði hann hvort
hann sæi virkilega ekki eftir
neinu.
Magnús svaraði engu heldur
þétti takið á svörtu möppunni og
hljóp út.
Skaðabætur fyrir börnin
Foreldrar Sæunnar Pálsdótt-
ur, þau Sólveig Bogadóttir og Páll
Einarsson í Kópavogi, gera kröfu
um þrjár milljónir í skaðabætur
vegna láts dóttur sinnar. Fyrir
hönd barna Sæunnar er gerð
krafa um tæpar 14 milljónir í
skaðabætur. Spurður um afstöðu
sína til þessara krafna við réttar-
höldin í gær vísaði Magnús á lög-
fræðinginn. Hann gat. ekki veitt
svör við því hvort hann teldi
sanngjarnt að börnin fái bætur
fyrir móðurmissinn.
Forræðið til ömmu og afa
Dóttir Sæunnar og Magnúsar
er fjögurra ára gömul og sonur
þeirra aðeins eins árs. Sólveig og
Páll, foreldrar Sæunnar, hafa
fengið tímabundið forræði yfir
börnunum. Var það gert með
samþykki
Magnúsar,
sem sér ekki
I Páll Einarsson og Sólveig
I Bogadóttir ForeldrarSæunnar
I sem nú eru með forræðiyfir
I börnum hennar.
berjast íyrir forræðinu. Þegar
dómur fellur munu Sólveig og
Páll fá fullt forræði yfir börnun-
um.
„Nú verðum við bara að horfa
fram á veginn og koma börnum
Sæunnar á legg," sagði Páll í við-
tali við DV skömmu eftfr morðið.
„Því þótt dóttir okkar sé látin lifir
hún enn í þeim."
íbúðin seld
Þau Sólveig og Páll hafa einnig
selt íbúðina þar sem morðið
hrottalega var framið. Hluti
þeirra peninga sem fengust fyrir
íbúðina hefur verið lagður inn á
lokaða reikninga í eigu barna Sæ-
unnar. Og börnin hafa síðustu
mánuði fengið að heimsækja
föður sinn á Litla-Hraun.
Foreldrar Sæunnar hafa hins veg-
ar ekki viljað mæta augum bana-
manns dóttur þeirra.
Hroðalegur glæpur
Fyrsti hluti réttarhaldanna yfir
Magnúsi Einarssyni er lokið. Næst
tekur aðalmeðferð við og þar fær
Magnús ekki að sitja hljóður líkt
og hann gerði í gær.
Morðið á Sæunni Pálsdóttur
vakti mikinn óhug meðal þjóðar-
innar. Mörgum þótti óskiljanlegt
að eiginmaður hennar, virtur
verkfræðingur og vel liðinn mað-
ur, skyldi fremja svona hroðaleg-
an glæp.
Magnús á yfir höfði sér langan
fangelsisdóm verði hann fundinn
sekur. Málsvöm hans mun hljóma
í réttarsal þegar aðalmeðferð
tekur við.
simon@dv.is
T/p*.*x
* * . ,* » ■* * *
Stúlka sem fór í afdrifaríka sólarlandaferð
Dæmdar 11 milljónir fyrir látinn kærasta
Tryggingamiðstöðin hf. var í gær
dæmd til að greiða Hafdísi Perlu
Hafsteinsdóttur tæplega 11 mill-
jóna króna í dánarbætur.vegna láts
sambýlismanns hennar, Hlyns Þórs
Sigurjónssonar.
Hlynur lést af slysförum þegar
hann og Hafdís voru saman í fríi á
Spáni í janúar árið 2000.
Tryggingamiðstöðin hafði áður
greitt foreldmm Hlyns 10 milljónir
króna í bætur vegna láts sonar
þeirra en Hafdís taldi sig eiga rétt á
bótunum vegna tryggingar sem
Hlynur hafði fengið þegar hann
borgaði ferð þeirra beggja með
VISA-korti sínu. Umdeilt var hvort
hún ætti rétt á bótunum þar sem
kortið og tryggingin var á hans
nafni.
Við meðferð málsins greindi
Hafdísi og foreldmm Hlyns á
hversu lengi sambúð þeirra hafði
varað. Hafdís, sem nú er 25 ára,
sagði sambúðina hafa staðið yfir
í rúmlega eitt ár en foreldrarnir
sögðu að um enga raunveru- _
lega sambúð hafi verið að isT
ræða. Tryggingin hefði ekki ==
náð til Hafdísar nema sannað
væri að sambúðin hafi staðið ~
yfir í að minnsta kosti eitt ár. S
Dómurinn komst að þeirri
niðurstöðu að framburður Haf-
dísar væri áreiðanlegur. Sannað
væri að fjárhagur þeirra hafi
verið sameiginlegur auk þess -
sem óyggjandi væri að þau hafi 1
verið í sambúð. á
yggingamiðstöðin Hefurþegar
eitt forleldrum látins manns tíu
ilijónir króna i bætur ogernú gert að
eiða kærstunni sömu bætur.
Kærastan vill aiilljana-
bætur íoreldranna
DV 22. september 2004 Vildi miiijóna-
bæturnar og fær þær ef dómurinn helst
óbreyttur.
Borgarstjóri
fékkflugu
Kristján Þór Júlíusson færði
Steinunni Valdísi Óskarsdóttur
nýja veiðiflugu sem hann kallar
gjaldfrjálsa gæðaflugu á árlegum
samráðsfundi Landsvirkjunar í
síðustu viku. Nafn flugunnar vís-
ar til slagorðs Akureyrarbæjar
„öll lífsins gæði“ og umræðu um
gjaldfrjálsa leikskóla sem Akur-
eyrarbær hafði frumkvæði að.
Steinunn Valdís var himinlifandi
með þessa sérhönnuðu flugu en
veiði er sameiginlegt áhugamál
þeirra Kristjáns.