Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2005, Síða 17
DV Helgarblað
LAUGARDAGUR 16. APRÍL 2005 17
„íþví felst viðurkenning og
traust á því sem Árni hefur
verið að fást við og mér þykir
vænt um að Árna skuli treyst
fyrirsvo mikilvægu verkefni."
*
umhverfi og hrista dáh'tið upp i okk-
ur. Þegar við komum til baka var
verið að auglýsa eftir presti í Grafar-
vogssókn og vinir mínir bentu mér á
að sækja um. Ég gerði það og var
ráðinn. Þar með var teningunum
kastað og ekki aftur snúið," segir
hann brosandi og tekur fram að
hann hafi aldrei séð eftir því. Þessi
sextán ár hafi verið afar góð.
Föst regla að fá börn og
maka í mat á sunnudögum
Séra Vigfús er vinsæll prestur í
þessari stærstu sókn landsins. Graf-
arvogssókn nálgast óðfluga að telja
tuttugu þúsund manns en þegar
hann kom til starfa fyrir sextán
árum síðan voru meðlimir aðeins
3.300. Síðan hafa fleiri prestar og
starfsmenn ráðist til starfa en prest-
ar eru nú fimm talsins ef með er tal-
in sr. Anna Sigríður Pálsdóttir sem
er í námi í Svíþjóð.
Vigfús segist þekkja fjölmörg
sóknarbama sinna en það segi sig
sjálft að einn maður geti ekki hent
reiður á öllum þessum fjölda sem nú
býr í Grafarvogi. „Auk þess hafa
samband við mig mjög margir Sigl-
firðingar sem eru brottfluttir og óska
eftir þjónustu minni," segir hann og
sýpur úr kaffibollanum.
Þau hjón, Vigfús og Elín, byggðu
sér hús við Logafold þegar afráðið
var að þar myndi hann þjóna. Börn-
in gengu í skóla í hverfinu en Árni
var á fermingaraldri þegar þau
komu í Voginn. Vigfús segir að síðan
hafi sonur hans ákveðið að fara í
Verslunarskólann, en dætumar
Þórunn Hulda og Björg hafi farið í
menntaskóla. Björg er ljósmyndari
en hún lærði í New York og Þómnn
Hulda er snyrtifræðingur. Nú em
þau öll fullorðin og Þómnn, sú
yngsta, hefur gert foreldra sína að
afa og ömmu.
„Já, hún er fyrst til þess og á litla
Elínu Helgu. Það er yndislegt og við
höfum mjög gaman af að fá hana til
okkar. Ég er einmitt á leið að passa
hana um stund eftir vinnu en böm-
in koma oft til okkar," segir hann
brosmildur og hagræðir sér í sætinu.
Bætir síðan við að krakkarnir komi
alltaf í mat á sunnudagskvöldum.
„Það hefur verið regla hjá okkur að
þau komi alltaf með mökum, þegar
þau geta, og það er ómetanlegt að fá
þau. Það skiptir svo miklu máli að
vera í góðu sambandi við bömin sín.
Mariko og Árni Þór á mynd sem var tekin áður en þetta leiðindamál kom upp
Mariko hefur sýnt mikinn styrk og staðið eins og klettur við bakið á Árna unnusta slnum I
þessu erfiða máli.
Vænt um að Árna skuli treyst
Vigfús dregur enga dul á að frá
því erfiðleikarnir gerðu vart við sig
hafi fjölskyldan þjappað sér saman.
Hann bendir á að það sé ekkert
eðlilégra en foreldrar styðji börn
sín. „Konan mín er þannig að henni
finnst slíkar spurningar út í hött.
Hún spyr einfaldlega hvort þurfi að
ræða það. í okkar huga er það aug-
ljóst að sonur okkar sé saklaus af
„Ég fagna því að brátt
verði þetta á enda og
lífið taki á sig eðlilega
mynd að nýju. Við
höfum átt miklu lífs-
láni að fagna í gegn-
um árin, en tökum því
sem að höndum ber."
þeim áskökunum sem á hann em
bornar.
Árni var á fullum krafti að hasla
sér völl, stóð sig vel og hafði margar
áætíanir á prjónunum. Það hefur
samt bjargað þeim félögum að þeir
hafa haft heilmikið að gera við að
setja upp sýningar," segir Vigfús.
Vigfús fylgist greinilega með og
af orðum hans má ráða að gott
samband sé á milli þeirra feðga.
Þeir tala mikið saman og Árni segir
föður sínum hvað hann sé að fást
við. Vigfús segir að það hafi glatt
hann að Gunnar Smári skyldi ráða
hann til vinnu hjá 365 miðlum við
að búa til sjónvarpsefni fyrir ungt
fólk. „í því felst viðurkenning og
traust á því sem Árni hefur verið að
fást við og mér þykir vænt um að
Árna skuh treyst fyrir svo mikilvægu
verkefni."
Bjartsýnn á sýknu
Séra Vigfús er bjartsýnn á niður-
stöður Hæstaréttar en ekki er langt
þar til endanlegar niðurstöður fást í
þessu erfiða máli. Það er einlæg trú
hans að sonur hans og félagar verði
sýknaðir. „Ég fagna því að brátt
verði þetta á enda. og lífið taki á sig
eðlilega mynd að nýju. Við höfum
átt miklu lífsláni að fagna í gegnum
árin, en tökum því sem að höndum
ber," segir hann um leið og hann
fylgir blaðamanni til dyra. Handtak
hans er fast og öruggt: Um leið skín
sólin beint framan í hann og það
hvarflar að okkur að það kunni að
vera fyrirboði þess sem koma skal.
„Aldrei að vita,“ segir hann bosandi
og bætir við: „Gull prófast í eldi og
guðhræddir í nauðum ef rétt er á
haldið."
bergljot@dv.is
Tilfinningaþrungin stund i Hæstarrétti
Vigfús faðir Árna Þórs telur að verjandi sonar síns hafi fært góð rök fyrir sakleysiÁrnaen það sé ímesta falli hægt að segja að hann hafi sýnt af
sér gáleysi en sonur hans sé ekki sekur það sé hann viss um.