Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2005, Síða 30
30 LAUGARDACUR 16. APRÍL 2005
Helgarblað DV
Elín Reynisdóttir förðunarfræðingur var fyrsta stúlkan til að
vera valin andlit No Name. Hún var líka valin ungfrú
Hollywood á sínum tíma og hefur búið bæði í Los Angeles og
London. Elín ætlaði sér ekki að staldra lengi við heima en
örlögin gripu í taumana og nú er hún tveggja barna móðir í
Vesturbænum auk þess að vera ein eftirsóttasta sminka
landsins.
tr
Q
Dnn ðrnumurinn nnn
Eg lenti eiginlega óvart í
þessum bransa," segir
Elín Reynisdóttir förð-
unarfræðingur og bætir
við að þótt hún hafi
mjög mikinn áhuga á förðun í dag
hafi hún aldrei stefnt að því að
leggja fagið fyrir sig. „Ég slysaðist
eiginlega inn í þetta en það var
aidrei planið. í dag er ég samt him-
inlifandi með þetta starfsval enda
gæti ég ekki verið í betri vinnu.'*
Ungfrú Hollywood
Elín flutti oft á æskuárum sín-
um og segist varla hafa stoppað
lengur en tvö ár í hverjum skóla.
Þegar hún var átta ára flutti fjöl-
skylda hennar til Svíþjóðar en
tveimur árum síðar fluttu þau
heim og á Seltjamamesið þar sem
hún gekk í gagnfræðaskóla. Eftir
að hafa farið nokkrar annir f
Menntaskólann við Hamrahlíð var
Elínu boðið að taka þátt í keppn-
inni Ungfrú Hollywood, sem hún
sigraði í, enda stórglæsileg og jafn-
vel enn glæsilegri en nú 15 árum
síðar. „Þetta var í síðasta skiptið
sem þessi keppni var haldin og
það var gert rosalega mikið úr
þessu," segir Elín og bætir við að
hún hafi verið elsti keppandinn.
„Ég var 22 ára og fannst þetta alveg
æðislega gaman. í verðlaun fékk
ég svo ferð til Hollywood sem var
alveg frábært."
Eftir heimkomuna langaði
Elínu að upplifa fleiri ævintýri og
„Þetta gerðist alveg
óvart en ég er afar
hamingjusöm með
þetta allt í dag enda
fékk ég heilbrigð og
fullkomin börn
dreif sig því aftur út til Bandaríkj-
anna. Hún ákvað að fara til Los
Angeles til að reyna að fá vinnu en
segist aldrei hafa stefnt á að meika
það í leiklistinni enda sé hún
skelfileg leikkona. „Ég hafði kynnst
fullt af fólki þarna og langaði að
prófa eitthvað nýtt. Eg hef aldrei
verið hrædd við nýjungar og ef til
vill mætti segja að ég væri svolítið
kærulaus. í rauninni langaði mig
mest að fara eitthvað burt frá ís-
landi."
Ráðsett tveggja barna móðir
Elín hitti íslenskar stelpur í
Bandaríkjunum sem vom að læra
förðun og báðu hana að sitja fyrir
hjá sér. Hún segist síðan hafa smit-
ast af áhuga þeirra á faginu. „Ég
dvaldi þarna úti í tvö ár, skólinn
tók eitt og hálft ár og svo var mað-
ur meira og minna að vinna ffítt.
Ég var að safna upp í ferilskrá enda
ætlaði ég mér á þessum tíma að
vinna við þetta í framtíðinni þarna
úti," segir Elín og bætir við að hún
hafi aðeins komið til íslands aftur
til að redda græna kortinu. „Ég
ætíaði ekkert að stoppa heima,
bara rétt að redda peningamálun-
um, fá græna kortið og drífa mig
svo út aftur. En þá hitti ég mann-
inn minn og varð ófrísk fljótíega,"
segir hún brosandi.
Eiginmaður Elínar heitir Ingv-
ar Már og starfar sem flug-
umferðarstjóri. Þau eiga tvö
börn, Oliver sem er 10 ára, og
Kolbrúnu Maríu sem er 4 ára.
„Við emm búin að vera sam-
an í 11 ár. Hann er alveg rosa-
lega traustur og skemmtilegur
maður og næstum of fullkominn
og við erum mjög góðir vinir," seg-
ir Elín og bætir við að hún geri oft
grín að sjálfri sér að vera orðin ráð-
sett, tveggja barnamóðir í Vestur-
bænum. „Þetta var mjög ólíkt mér
á þessum tíma enda sá ég mig
aldrei fyrir mér í þessari aðstöðu.
Þetta gerðist alveg óvart en ég er
afar hamingjusöm með þetta allt í
dag enda fékk ég heilbrigð og full-
komin böm. Ég hefði samt alls ekki
viljað missa af allri þessu reynslu
sem ég öðlaðist, bæði í LA og svo í
London, en þangað fór ég sem au-
pair þegar ég var 18 ára. Ég er búin
að gera mjög margt í lífinu og gæti
ábyggilega skrifað um það bók,“
segir hún kímin og bætir við að
henni hafi liðið afar vel aleinni úti í
löndum.
Á leið á Eurovision
Það er nóg að gera hjá Elínu í
förðuninni enda ein vinsælasta
sminka á landinu. Hún starfar hjá
Sjónvarpinu auk þess að vera
frílans svo vinnutími hennar er
afar fjölbreytilegur. Þegar hún
kom heim frá Bandaríkjunum
fékk hún strax vinnu en hún starf-
aði hjá Þjóðleikhúsinu í nokkurn
tíma og svo í Borgarleikhúsinu í
sjö ár. „Ég hætti þar enda var
kominn tími til að breyta til. í dag
er alveg brjálað að gera, ég er að
vinna á RÚV og svo hingað og
þangað fyrir auglýsingar, blöð,
tónlistarmyndbönd og fyrir árs-
hátíðir og brúðkaup svo ég hef
nóg að gera."
Elín er í Eurovision-hópnum
sem heldur til Kíev í Úkraínu 19.
maí næstkomandi en Elín er for-
fallinn aðdáandi Eurovison og þvf
er ákveðinn draumur að rætast hjá
henni. „Ég er algjör Eurovision-
nörd og var yfir mig ánægð þegar
Selma hringdi í mig og bað mig um
að taka þátt. Þetta var alltaf
draumurinn sem nú er að rætast
og mér finnst það firábært," segir
hún hlæjandi. „Ég hef aldrei misst
af Eurovision og er þegar búin að
fara í gegnum öll lögin á netinu og
horfa á myndböndin," segir hún
spennt og bætir aðspurð við að
hún sé líklega einna mest hrifin af
sænska laginu. „Verst að Svíþjóð
vann þegar Selma keppti síðast en
ég held líka að Selmu eigi eftir að
ganga rosalega vel, hún gæti alveg
unnið þetta."
Fyrsta No Name-stúlkan
Eftir Hollywood-keppnina var
Elín valin No Name-stúlka og var
sú fyrsta sem hlaut þann titil. Hún
keppti samt aldrei í hefðbundinni
fegurðarsamkeppni enda fannst
henni nóg að hafa tekið þátt í
einni slíkri. í kjölfar Ungfrú Holly-
wood tók við strangur undirbún-
ingur fyrir Miss Queen of the
World en keppnin var felld niður
þar sem Persaflóastríðið var í al-
gleymingi á þeim tíma. Eftir
Hollywood-keppnina hélt hún til
Spánar til að sitja fyrir í auglýsing-
um og þegar hún var að taka sig til
fýrir heimferðina fékk hún sfm-
hringingu um að hætt hefði verið
við stóru keppnina.
„Vinkona mín var fararstjóri á
Spáni og í staðinn fyrir að drífa
mig heim framlengdi ég ferðina
um mánuð og skemmti mér vel,
„Mér finnst allir líta
beturr út með aldrin-
um. Aldur er líka eitt-
hvað sem maður á
ekki að hafa áhyggj-
ur af, það eldast allir
með manni hvort
sem er."
dauðfegin að hafa ekki þurft að
fara heim og í stranga megrun,"
segir Elín hlæjandi þegar hún rifj-
ar þetta upp.
Langar í þriðja barnið
Elín hefur verið áberandi í
skemmtanalífinu í gegnum tíðina
enda ekki annað hægt en taka
eftir henni hvar sem hún fer.
Dökka hárið er í fallegum lokkum
og það er eiginlega ótrúlegt að
þessi kona skuli vera 36 ára göm-
ul. Sjálf segist hún taka aldrinum
fagnandi enda ekki annað hægt.
„Mér líst mjög vel á að eldast enda
verður alltaf skemmtilegra og
skemmtilegra hjá mér," segir hún
hlæjandi. „Ég verð líka alltaf
ánægðari með mig enda finnst
mér allir líta betur út með aldrin-
um. Aldur er líka eitthvað sem
maður á ekki að hafa áhyggjur af,
það eldast allir með manni hvort
sem er. Svo er líka alltaf hægt að
skella sér í einhverja fegrunarað-
gerð," segir hún hlæjandi og í
gríni. „Ég viðurkenni alveg að mér
finnst skemmtilegt að kíkja út á
lífið enda er ég mikil félagsvera.
Ég get ekki verið mikið lokuð
heima hjá mér og finnst gaman að
vera með fólki."
Hún segist ekki vera í barna-
hugleiðingum þótt hún væri til í
að eignast þriðja barnið. Nú
sé lífið hins vegar orðið
afar þægilegt og börnin
löngu hætt að nota bl-
eyju. „Ég er mjög ham-
ingjusöm í dag enda er
ég alltaf svo jákvæð. Einn
af stóru draumunum mín-
um er í þann veginn að rætast
og ég er búin að eignast börn, það
var alltaf takmarkið, en svo á ég
eftir að verða ríkari," segir hún
hlæjandi. „Ég gæti heldur ekki
verið hamingjusamari með vinn-
una enda hentar þessi vinnutími
mér mjög vel og ég er ekki ein af
þeim sem gæti unnið 9-5 vinnu.
Starfið mitt er fjölbreytt og ég á
góða fjölskyldu svo ég gæti ekki
haft það betra."
indiana@dv.is