Freyr

Årgang

Freyr - 01.09.1947, Side 7

Freyr - 01.09.1947, Side 7
FREYR 265 í deild garðyrkjumanna var reistur pýramídi, en hliðar hans voru þaktar grœnmeti. verið unnið. Mannfjöldi hér á landi er ekki meiri en sá, sem staðið hefir að baki landshlutasýningum erlendis, þar sem ég hefi átt hlut að og verið leiðbeinandi eða áhorfandi, og skal fullyrt, að sumt var á Landbúnaðarsýningunni veglegra en það sem ég hefi bezt séð. Þetta gildir að minnsta kosti um garð- yrkjusýninguna og handiðnaðarsýninguna, að ógleymdri sýningu kjötbúðanna, sem ef til vill var það fullkomnasta, er Land- búnaðarsýningin geymdi. Höfuðgalli sýn- ingar vorrar var, að ýmsu utan dyra var nokkuð áfátt og sumt af því misheppnað með öllu. Vér íslendingar erum enn skammt á veg komnir í búfjárræktinni og höfum auðvitað ekki annað að sýna þar en það sem til er. Huggun er þó, að kost- ir skepnanna munu fleiri og betri en af ytra einkennum verður séð. Auk hinna einstöku deilda, sem sýning- arráð og framkvæmdastjórn hafði for- göngu um, fékk mikill fjöldi fyrirtækja — verzlana og iðnvera — rúm til þess að sýna vörur sínar og framleiðslu í auglýs- inga skyni. Sjálfri sýningunni, sem nið- ur var raðað frá hendi sýningarráðs, var skipað í deildir, en fyrir hverri deild stóð nefnd manna, sem annaðizt fram- kvæmdir og undirbúning, með aðstoð arkitekts sýningarinnar og teiknara. Skal hér í stuttu máli drepið á deildir þessar. Nákvæm greinargerð hefði verið vel viðeigandi, en þar eð ákveðið mun að gefa út bækling um sýninguna, má nægi- legt telja að lýsing sú, sem þar verður gefin á hinum einstökum deildum, geym- ist sem gagn, er greini frá því sem var til sýnis almenningi árið 1947, á Land- búnaðarsýningunni í Reykjavík. Þó mun Freyr verja nokkru rúmi um komandi mánuði til þess að gera grein

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.