Freyr - 01.09.1947, Page 21
FRE YR
279
sem eðlilega ráðstöfun og í samræmi við
það tók stjórn Stéttarsambandsins reglu-
gerð sína um framleiðsluráð landbúnað-
arins til endurskoðunar og undirbjó hana
sem lög. Þannig frá gengið var kaflinn
um framleiðsluráð tekinn inn í frum-
varp það til laga um framleiðsluráð land-
búnaðarins, verðskráningu, verðmiðlun og
sölu á landbúnaðarvörum o. fl., sem rík-
isstjórnin flutti á síðasta þingi og sam-
þykkt var sem lög, er fengu staðfestingu
á öndverðu þessu sumri.
Þar eð lög þessi verða að teljast mikils-
verð fyrir íslenzka bændastétt, en bændur
yfirleitt hafa ekki greiðan aðgang að
Stjórnartíðindunum, er viðeigandi að birta
þau í Frey þótt þau taki nokkurt rúm í
blaðinu, og fara þau hér á eftir. Sem á er
minnst var hljótt um starfsemi Stéttar-
sambandsins um tíma, meðan það beið
eftir hlutverkum þeim, sem því skyldu í
hendur fengin samkvæmt löggjöf þessari.
Þegar eftir að lögin voru staðfest, hóf-
ust störfin. Til þess að annast umsjón
daglegra starfa á vegum framleiðsluráðs,
réði Stéttarsambandið Svein Tryggvason,
ráðunaut, sem framkvæmdastjóra. Sam-
kvæmt 1. gr. nefndra laga er framleiðslu-
ráðið skipað sem hér segir: 5 mönnum,
kosnum af Stéttarsambandi bænda á full-
trúaráðsfundi þess, og sé einn þeirra for-
maður framleiðsluráðs, og 4 mönnum. er
stjórn Stéttarsambandsins skipar sam-
kvæmt tilnefningu frá Samb. ísl. samvinnu-
féiaga, Mjólkursamsölunni í Reykjavík,
Sláturfélagi Suðurlands og mjólkiirbúun-
um utan mjólkursölusvæðis Reykjavíkur
og Hafnarfjarðar.
f framleiðsluráði eiga sæti eftirgreindir
menn:
1. Frá Stéttarsambandi bænda:
Sverrir Gíslason, bóndi, Hvammi
Jón Sigurðsson, alþm., Reynistað
Einar Ólafsson, bóndi, Lækjarhvammi
Pétur Jónsson, bóndi Egilsstöðum
Sigurjón Sigurðsson, bóndi, Raftholti.
2. Frá Sambandi ísl. samvinnufélaga:
Kristjón Kristjónsson, fulltrúi, Rvík.
3. Frá Sláturfélagi Suðurlands:
Björn Birnir, bóndi, Grafarholti.
4. Frá Mjólkursamsölunni í Reykjavík:
Sr. Sveinbjörn Högnason, Breiðabólsst.
5. Frá mjólkurbúunum:
(Ekki vitað þegar blaðið fór í prentun)
Samkvæmt 4. og 5. gr. laganna skal
framleiðslukostnaður og verðgrundvöllur
söluvara landbúnaðarins fundinn og mið-
aður við það, að heildartekjur þeirra, er
landbúnað stunda, verði í sem nánustu
samræmi við tekjur annarra stétta.
Verðgrundvöllurinn skal fundinn af
nefnd manna, þrem fulltrúum tilnefnd-
um af Stéttarsambandi bænda, einum
fulltrúa frá Alþýðusambandi íslands, ein-
um frá Landssambandi iðnaðarmanna og
einum frá Sjómannafélagi Reykjavíkur.
Nefnd þessi hefir setið á rökstólum um
undanfarnar vikur, en í henni áttu sæti:
Tilnefndir af Stéttarsambandi bænda:
Steingr. Steinþórsson, búnaðarmálastj.
Sverrir Gíslason, bóndi, Hvammi
Sigurjón Sigurðsson, bóndi, Raftholti.
Tilnefndur af Alþýðusamb. íslands:
Ingólfur Gunnlaugsson, Reykjavík.
Tilnefndur af Landssamb. iðnaðarm.:
Einar Gíslason, Reykjavík.
Tilnefndur af Sjómannafél. Reykjavíkur:
Sæmundur Ólafsson, Reykjavík.
Þar eð af lögunum verður séð hver verk-
efni liggja fyrir framleiðsluráði, er um
leið auðsætt, hvert verður meginhlutverk
Stéttarsambandsins um komandi tíma, því
að þótt famleiðsluráð sé samkvæmt lög-