Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2005, Qupperneq 15
DV Fréttir
FÖSTUDAGUR 6. MAÍ2005 15
Að lifa í lyginni
Það var fyrir um 75 árum síðan
sem hin svokallaða „Stóra bomba”
sprakk er Helgi Tómasson yfir-
læknir á Kleppssjúkrahúsi sakaði
þáverandi dómsmálaráðherra,
Jónas Jónsson frá Hriflu, um að
vera geðveikur. Helgi hafði þó ekki
skoðað Jónas sem læknir og engin
Jón Einarsson
lögfræöingur á Sauð-
árkróki skrifar um
Jónas og Stóru
bombu.
læknisfræðileg gögn studdu full-
yrðingu hans. Reyndar hafði Helgi
ekkert fyrir sér annað en andúð á
Jónasi sem fulltrúa skoðana sem
Helga voru ekki pólitískt þóknan-
legar.
Með fullyrðingu sinni braut
Helgi Tómasson bæði lög og siða-
reglur lækna. Það var og er brot á
góðum læknisháttum að geðlæknir
sendi ffá sér fullyrðingar um geð-
sýki manns sem hann hefur ekki
skoðað. Slíkt er misnotkun á lækn-
isnafninu, misnotkun á því trausti
sem almenningur ber til lækna og
til þess fallið að á heilbrigða menn
verði litið sem sjúka, þeim sjálfum
og aðstandendum til angurs. Röng
sjúkdómsgreining er alltaf slæm.
En læknir sem lýgur sjúkdómum
upp á fullfrískt fólk í því skyni að
klekkja á því er sokkinn djúpt,
dýpra en orð fá lýst. Hinn dýri eið-
stafur Hippókratesar er slíkum
manni hjóm eitt, óhelg orð tröðkuð
niður í svaðið til þess eins að koma
höggi á pólitískan andstæðing.
A vefritinu Deiglan.com er
hneykslast á nýrri prófessorsstöðu
við Viðskiptaháskólann á Bifröst,
kenndri við Jónas á Hriflu, og látið
líta út fyrir að um gabb eða brand-
ara hljóti að vera að ræða. Þó hygg
ég að enginn einn maður hafi gert
meira fyrir íslendinga en einmitt
Jónas frá Hriflu. Hvar væri Háskóli
íslands ef Jónas hefði ekki eflt hann
og stutt og byggt yfir hann? Hvern-
ig væru heilbrigðismálin ef Jónas
hefði ekki haft forgöngu í byggingu
Landspítalans? Þáttur Jónasar frá
Hriflu í fr amförum og farsæld lands
og lýðs á 20. öld er slíkur að full
ástæða er til að sett sé á stofn pró-
fessorsstaða til að rannsaka nánar.
Hví finnast enn menn sem vilja
viðhalda 75 ára lygasögu og neita að
horfast í augu við þá staðreynd að
Helgi Tómasson laug sjúkdómum
upp á heilbrigðan mann? Vita þeir
ekki að almenningur er löngu búinn
að sjá í gegnum lygina?
Jónas frá Hrifiu
Ranglega sakaöur um geðveiki.
Sorgleg linkind
gagnvart illmennum
Björn Bjarnason Dómsmálaráðherra á að muna hverkrafa fótksins er, segir bréfritari.
DV-mynd Pjetur
VUhjálmur Siguiösson skrífar.
Er það lögreglan eða ákveðinn
mjög lekur lögmaður sem lekur í
glæpalýðinn?
Það er sorglegt að maður sem
vinnur fyrir lögregluna sé ekki frið-
helgur gagnvart glæpalýðnum, ann-
aðhvort er það lögreglan eða lög-
maður sem kjaftar í glæpalýðinn,
ákveðinn lögmaður er mjög líklegur
og ætti tafarlaust að svipta hann lög-.
mannsréttindum, alla vega um
sttmdarsakir. Fjölskyldu læknis sem
ráðist var á var líka hótað og var í
hættu. Eðlileg krafa er að illmennið
verði dæmt um leið og það losnar,
hann meira að segja hældi sér af ill-
Lesendur
virkinu. Ég skora á DV að halda
þessu á lofti og birta myndir af ill-
menninu.
Annað sem ég vil spyrja um er
hvort sýslumenn í Keflavík og Mos-
fellsbæ séu búnir að gleyma að hjá
þeim eru tveir MORÐINGJAR. Á ekíd
að dæma þá?
Ég vil spyrja Guðjón Þórðarson
hvort Scott Ramsay verði í liði
Keflavíkur? Lögregluyfirvöld í
Keflavík, Akureyri og Mosfellsbæ
hafa glatað trausti fólks. Á götum
Reykjavíkur sést ekki lögregla nema
ef umferðarslys verður, þá koma
þeir. Ég ásaka alls ekki hinn al-
menna lögreglumann, heldur yfir-
stjórnina, sem í blindni trúir því að
líicamsárásir og ofbeldi hafi
minnkað, öðru nær, því miður og
ég fordæmi alla linkind við glæpa-
lýðinn. Hann hlær að okkur. Mann
sem ræðst á saklausan mann á alls
ekki að láta lausan, þótt hann játi.
Hann á að vera í hlekkjum upp á
vatn og brauð. Það er krafa fólksins.
Mundu það, Björn Bjarnason.
Ósáttur við álagningu
verslunar
Guðjón Hjálmarsson skipstjóri
hafði samband:
Verslunin við Hátún lOa afsakar
hátt vöruverð með því að þurfa að
kaupa inn á heildsöluverði. Þeir sem
eru mjög fatlaðir og komast ekki í Bón-
us eða aðrar álíka verslanir fá skrifað,
hjá versluninni löngu fyrir mánaða-
Lesendur
mót og eftir fáeina daga fá þeir að láta
skrifa hjá sér aftur og eru þess vegna í
vítahring.
Einar verslunarstjóri leggur allt að
100% álagningu á vörur og mitt álit er
að þetta sé þjófnaður.
Virðingarfyllst, Guðbjöm Hjálm-
arsson skipstjóri, Hátúni 10.
Hindenburg-slysið
Þann 6. maí árið 1937 fórst
Hindenburg-loftskipið, stolt nas-
istaflokksins í Þýskalandi. Hinden-
burg lagði upp í jómfrúarferð sína
frá Frankfurt í Þýskalandi og var hún
sú fyrsta af tíu áætluðum ferðum yfir
Atlantshafið að flotastöðinni í Lake-
hurst í New Jersey. Um borð í
loftskipinu
vom 61
manna áhöfh
og 36 farþeg-
ar. Þegar skip-
ið ætlaði að
festa landfest-
ar í Lakehurst
braust
skyndilega út
mikill eldur
um borð í
skipinu, líklega eftir að neisti komst í
í dag
árið 1940
fékk John
Steinbeck
Pulitzer-
verðlaunin
fyrir bók sína
Þrúgur reið-
innar
vetniskjama skipsins. Féll þá skipið
til jarðar á gríðarlegum hraða og
varð skrokkur skipsins að ösku á
svipstundu. 13 farþegar, 21 meðlim-
tir áhcifnarinnar og einn óbreyttur
borgari á jörðu niðri týndu lífi og
þeir sem lifðu af slösðust flestir mjög
mikið. Útvarpsmaður NBC, Herb
Morrison, sem kom til Lakehurst til
að fylgjast með komu skipsins, gerði
atburðinn ódauðlegan í sinni frægu
lýsingu í beinni útsendingu. í geðs-
hræringu sinni mælti hann þessi
fleygu orð: „Oh, the humanity," og
urðu þau ekki síst til þess að festa at-
burðinn í huga þeirra sem á hlust-
uðu. Farþegaflug með loftskipum
átti á brattann að sækja eftir
Hindenburg-slysið og eftir seinni
heimsstyrjöldina lögðust þau
algerlega af.
Hindenburg loftfarið
Sprakk i loft upp.
Reykjavíkurborg
Skipulags- og byggingarsvið
Auglýsing um breytingar á
deiliskipulagsáætlunum í Reykjavík.
í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997, með síðari breytingum, eru hér með auglýstartil
kynningar tillögur að breytingum á deiliskipulags-
áætlunum í Reykjavík.
Ártúnshöfði - Axarhöfði
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir Ártúnshöfða,
vegna götunnar Axarhöfða.
Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að gatan Axarhöfði., sem áður
var aðkomugata fyrir hús við Bíldshöfða 8-18, verði
almenn umferðargata með tvístefnuakstri. Ný aðkoma
mun koma frá Breiðhöfða að Bíldshöfða og mun gatan
verða frá Bíldshöfða 8 til 20. Lagt er til að lóðarmörkum
verði breytt og lóðir stækkaðar við Axarhöfða. Gert er ráð
fyrir hraðatakmörkum í götu og nýtast þær sem upp-
hækkaðar stígatengingar til að komast að gangstíg við
nýja götu. Göngustígur fyrir almenna umferð verður
sunnan við aðkomuveg. Kvöð er á að aðkomuvegur skuli
liggja í gegnum lóð Húsgagnahallarinnar við Bíldshöfða
20 og verði þannig tenging milli Bíldshöfða og Höfða-
bakka.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Hamrahlíð 10.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Menntaskólans við
Hamrahlíð 10 og Háuhlíð 9.
Deiliskipulagstillagan sýnir afmörkun lóðanna Hamra-
hlíðar 10 og Háuhlíðar 9 og gerir m.a. ráð fyrir tveimur
nýjum viðbyggingum við menntaskólann. Viðbygging I,
íþrótta- og kennsluhús, 4000m2 og viðbygging II,
kennsluhús, 1985m2. Tengihús við núverandi hús skal
taka mið af núverandi húsnæði skólans. Á uppdrætti
hefur verið afmarkaður byggingareitur fyrir þessi mann-
virki. Sérstakar kvaðir eru fyrir viðbyggingar og allir hlutar
húss skulu standa inna byggingarreits. Tvær bráðabirgða
kennslustofur eru á lóð og er gert ráð fyrir að þær verði
fjarlægðar þegar viðbygging II verður reist. Bílastæðaþörf
fyrir skólann verður fullnægt á lóð skólans. Bygging að
Háuhlíð 9 verður óbreytt.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Hádegismóar.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir Hádegismóa.
Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að byggingarreitur verði
stækkaður um 640m2 við suðurenda lóðarinnar fyrir
nýbyggingu skrifstofuhúss. Breytingin nær eingöngu til
lóðarinnar nr. 3 við Hádegismóa. Að öðru leyti gilda eldri
skilmálar áfram.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillögurnar liggja frammi í upplýsingaskála skipulags- og
byggingarsviðs Reykjavíkurborgar í Borgartúni 3, 1. hæð,
virka daga kl. 8:20 - 16:15, frá 6. maí til og með 17. júní
2005. Einnig má sjá tillögurnar á heimasíðu sviðsins,
skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að
gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og
athugasemdum við þær skal skila skriflega eða á
netfangið skipuiag@rvk.is, til skipulags- og byggingar-
sviðs (merkt skipulagsfulltrúa) eigi síðar en 17. júní 2005.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests,
teljast samþykkja tillögurnar.
Reykjavík, 6. maí 2005
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur
BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVlK • SÍMI 563 2600 • MYNDSENDIR 562 3219