Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2005, Qupperneq 42
42 LAUGARDAGUR 7. MAÍ2005
Helgarblað DV
Hví er Reykjavík svona Ijót?
Ég vil biðja ykkur að skoða
myndirnar sem fylgja með þessari
grein. Á fyrstu myndinni hefur Par-
ís, sá hluti hennar sem er innan
hringvegarins sem liggur um borg-
ina - svokallaðrar „périphérique"-
brautar, verið speglaður inn í
Jlíeykjavík. Á þessu svæði býr á
þriðju milljón manna og fer ágæt-
lega um það fólk. Eins og sjá má er
auðveldlega hægt að koma allri Par-
ís fyrir f höfuðborginni. Hún myndi
ná sirkabát að mörkum Seltjarnar-
ness, upp í Grafarvog, í Efra-Breið-
holt og Kópavog. Á höfuðborgar-
svæðinu búa um 180 þúsund
manns. íbúafjöldinn hefur fjórfald-
ast síðan 1940, en landþörfin hefur
fertugfaldast á þessu tímabili. Það
er óskaplegt bruðl með land.
Er Reykjavík borg?
önnur myndin sýnir þéttleika
byggðar í mismunandi borgum.
Þarna má sjá að byggðin í meðal-
talsborg í Evrópu er um það bil
inun sinnum þéttari en hér. Nú eru
16 íbúar á hektara í höfuðborginni.
Þrátt fyrir fyrirheit um þéttingu
byggðar í aðalskipulagi er sýnt að
frekari grisjun verður; það stefnir í
að þéttleikinn verði 14 fbúar á hekt-
ara árið 2024. Þéttleiki evrópskrar
meðalborgar er 80 íbúar á hektara. í
París innan hringvegar búa 268 íbú-
ar á hektara.
Þannig er tæplega hægt að segja
að við búum í borg. Þetta er nær því
að vera einhvers konar sveit, dreif-
býli, flæmi. Reykjavík er sennilega
útþynntasta borg í Evrópu. Hún er
öll srmdurslitin. Mörk þess að geta
haldið uppi góðum almennings-
samgöngum eru talin vera 50 íbúar
Á hektara. Þetta er smáborg, en það
'utheimtir tíma og amstur að komast
leiðar sinnar líkt og um stórborg
væri að ræða.
Sjúklingar á endalausum
göngum
Þriðja myndin er af flugvallar-
svæðinu eins og það mun líta út ef
síðustu hugmyndir borgarstjórnar-
innar ná fram að ganga. Flugvöllur-
inn er þarna áfram, í aðeins smækk-
aðri mynd, en það er verið að byggja
á litlum skæklum í kringum hann.
Landspítalinn tekur stórt svæði, en
fegna flugvallarins er ekki hægt að
yggja sjúkrahúsið upp í loft heldur
breiðir það. sig yfir mikið flæmi.
Almennt er það ekki talið gott fyrir
slíka starfsemi; það er þægilegra að
flytja sjúklinga milli hæða en milli
húsa og eftir endalausum göngum.
Dauður stíll iðnaðarhúsnæð-
is
í Nauthólsvíkinni eiga að rísa ný-
byggingar fyrir Háskólann í Reykja-
vík. Fátt bendir til annars en að það
verði í hinum dauða stíl iðnaðar-
húsnæðis sem er allsráðandi í bygg-
Logarlist hér; skemmuleg hús með
stórum bílastæðum og auðum gras-
flötum á miUi. í meginatriðum verð-
ur þetta svipuð uppbygging og í
Skeifunni; bflastæðin munu þekja
stærri flöt en byggingarnar sjálfar.
Allt bendir tii að hér séu vond
skipulagsmistök í uppsiglingu. Eitt
meginatriðið í góðu skipulagi eru
Jengsl við nánasta umhverfi. Svæðið
er umlukið flugstarfsemi á aðra
hönd, útivistarsvæði á hina. Þarna
er engin starfsemi sem tengist há-
skólamenntun - Háskóh íslands er
hinum megin í Vamsmýrinni (jafn
ömurlega illa skipulagður). Það
verður ekki tekið mið af háskóla-
borgum erlendis - best að bera sig
ekki saman við svoleiðis. Vegna
flugvallarins er líka ómögiflegt að
sjá hvernig skólinn getur tengst
framtíðarskipulagi svæðisins.
Niðurgreitt plott Sturlu
Þarna í grenndinni á að rísa sam-
göngumiðstöð sem er ekkert annað
en dulbúin flugstöð. Beinh'nis
hönnuð til að niðurnjörva flugvöll-
tpn í Vatnsmýrinni um aldur og ævi.
Að öðru leyti er þetta óþarft mann-
virki sem borgarstjórnin er búin að
láta teyma sig á asnaeyrunum til að
samþykkja. Merkilegt að til séu pen-
r
Egill Helgason
pælir I skipulags-
málum sem honum
sýnast I molum.
Laugardagsk j allar i
ingar í svona vitleysu; ríkið mun
þurfa að niðurgreiða þetta plott
Sturlu og félaga um ókomin ár.
Austur-Evrópublokkir
Lítum upp á Valssvæði. Þar eiga
að rísa blokkir í úrsérgengnum
funkisstfl sem enginn kannast við
að hafa ákveðið að yrðu byggðar.
Þetta er eins og kisan í Lísu í Undra-
landi - þegar maður reynir að finna
einhvern sem ber ábyrgð er ekkert
eftir nema dularfullt glott. Bak við
þetta eru furðuleg landakaup af fót-
boltafélaginu Val; til að ekki þurfi að
greiða því of mikla peninga er pass-
að upp á að hafa nýtingarhlutfallið
eins lélegt og hægt er. Verktakar
munu sjálfsagt hagnast á þessu, en
ásýnd borgarinnar hrakar enn. Er of
seint að hætta við?
Hraðbraut sem enginn vildi
Skurðgröfurnar hafa verið að
moka í kringum Hringbrautina í
heilt ár. Þetta er ennþá stærra og
ferlegra en maður hélt að það yrði.
Sker byggðina alveg í sundur; á bak
og burt er hinn lífræna tenging sem
marga dreymdi um að yrði milli
Miðbæjarins, Tjarnarinnar og
Vatnsmýrarinnar. í staðinn sitjum
við uppi með hraðbraut sem engin
þörf er fyrir - og enginn vildi í raun-
inni.
Hvar er íbúabyggðin?
Maður ætti lfldega að vera von-
dapur. Borgarstjórnin er í raun búin
að fallast á að flugvöllurinn fari ekki
neitt; þótt kannski sé hægt að setja á
ræður um nýja aðferðafræði eða
eitthvað slflct. Menn eru í óða önn
að byggja á litlum bleðlum allt í
kringum flugvöflinn. Svona verður
landinu sólundað smátt og smátt;
einn kassi hér, annar kassi þar, bfla-
stæði umhverfis. Alltaf höldum við
áfram að byggja í stfl iðnaðarhverfa.
Stóð ekki annars til að leggja Vatns-
mýrina að megninu til undir íbúa-
byggð?
Misheppnaðar framkvæmdir
Það er ein spurning sem borgar-
stjórnin þyrfti að svara: Af hverju er
Reykjavík svona ljót? Maður gæti
nánast haldið að það sé opinber
stefna að hafa hana ljóta. Hví eru
flestallar framkvæmdir svona mis-
heppnaðar? Hvers vegna virðumst
við ekki ráða við annað en að byggja
iðnaðarhverfi eða dreifa misljótum
úthverfum út um hvippin og hvapp-
inn? Hverjum er um að kenna?
Ofurvald verkfræðinga
Eitt sem hefur lítið verið fjaflað
um er ofurvald verktaka og verk-
fræðinga - gröfukarla. Verktakar eru
tengdir inn í stjórnmálaflokka, hafa
meiri ítök þar en nokkurn gnmar.
Þeir passa upp á að gröfumar hafi
sífellt eitthvað að sýsla. Þegar kem-
ur að skipulaginu eru það svo verk-
fræðingar sem ráða ferðinni. Það
var löngum talið að borgarverk-
fræðingur væri valdamesti maður-
inn í Reykjavík. Verkfræðingar hafa
ákveðnar hugmyndir um hagnýti;
þar á ímyndunaraflið eða hið fagra
og smáa yfirleitt ekki mikið upp á
pallborðið.
Helqunarsvæði og
umferðarrýmd
Kreddan sem er ríkjandi er um
stofnbrautir með stór „helgunar-
svæði". Byggðin er svo likt og á eyj-
um milli bflabrautanna. Líklega
væri bannað að byggja hverfi eins
Þingholtin, Skólavörðuholtið og
Miðbæinn samkvæmt núverandi
kröfum um „umferðarrýmd".
Þannig fara 322 fermetrar á íbúð
í samgöngumannvirki (götur, bfla-
stæði, helgunarsvæði) í Staðar-
hverfi í Grafarvogi; á Grettisgötu er
Merkilegt að til séu
peningar í svona vit-
leysu; ríkið mun þurfa
að niðurgreiða þetta
plott Sturlu og félaga
um ókomin ár.
þessi tala 41 fermetri á íbúð. Þannig
eru gerðar verkfræðilegar kröfur
sem eiga að leysa vandamál, en
skapa svo einungis ennþá stærri
vandamál - lélega landnýtingu,
aukinn umferðarþunga og almenna
sóun.
Hví ekki fallega brú?
Hér hefur lflca ríkt fyrirlitning á
öllu öðru en hráu notagildi. For-
maður samgöngunefndar Alþingis
gerði nýlega stólpagrín að hug-
mynd um að byggja brú yfir Sundin
í tengslum við lagningu Sunda-
brautar. Honum þótti þetta alveg
fáránlegt; kallaði það járnarusl og
víravirki.
En hví skyldi ekki mega reisa fal-
lega og tígulega brú í Reykjavík? Eru
brýr ekki einmitt höfuðprýði
margra borga sem við komum tfl?
Fráhrindandi umhverfi
Afleiðing ljótleikans og hins frá-
hrindandi umhverfis er hin skelfi-
lega umgengni sem maður sér víða
í bænum; fólk ber ekki virðingu fyr-
ir umhverfi sínu vegna þess að það
er ekki hægt að láta sér þykja vænt
um það - það höfðar ekki til fegurð-
arskynsins eða göfgar tilfinningarn-
ar eins og falleg borgarhverfi geta
gert. Því er allt f lagi að sóða út og
eyðileggja. Þetta er þekkt fýrirbæri;
svona hefur til dæmis lengi verið
ástandið í hnignandi borgum á
Bretlandseyjum.
Hvað er karlmannlegt?
Maður leyfir sér samt að vona að
það sé að verða viðhorfsbreyting -
þótt ekki sé beinlínis uppörvandi
að sjá hina fáránlegu bandarísku
jeppa sem ekki seljast lengur vestra
en eru fluttir hingað í stórum stfl.
En ég held að ungt fólk taki upp tfl
hópa ekki í mál að flytja í Norð-
lingaholt eða Úlfarsfell þar sem á að
hola því niður. Kröfurnar eru aðrar.
Um daginn talaði ég á fundi um
flugvallarmálið hjá Sjálfstæðis-
flokknum. Þar var áberandi kyn-
slóðabil - mikið af ungu fólki en
nokkuð um dónalega gamla karla
sem virtust hafa þá hugsjón að
Reykjavík haldi áfram að vera
ómynd. Hlógu fýrirlidega að öllu
öðru. Eins og það sé karlmannlegt
að vilja borg sem er aðallega fyrir
flugvélar og bfla; hitt sé bara fýrir
veimfltítur.
Mynd 1 Eins og sjá má er auöveldlega hægt að koma allri Paris fyrir ihöfuöborginni.
Brútióþéttleiki byggðar - helsta kennistærð í skipulagi borga
22B(4aCýbÚÉf/hfl
lóiíteykíflAaðoa
• •««««
■\rotsiminn
nn
nn
nn
nn
nn
nn
nn
aa
nnnnnnnnnnnnn
nnnnnnnnnnnnn
nn I
MbrmUriúnhMt MtQ táirf bo*iAóá. 'HMIlwufi 1&\ vmlnmMBMr. 8ttuUo
SlMtxiiOiOoqjL Ham aruitarWHrl«aar.Qtt)rd»ðliur$dr
1 |as» tofio élwwú fA ntaOlitRMoéröSflWrtúarðrdltfmff vúvttour (*■*«*>*« tdtur*
___. -------------_ ---------„--JMöflrorflhruoff VfUktrpur btmmMb&k*timtr* tmðtMt áit»*Uto fmuonwti
HÖFUÐBORGAR8AMT0WN - ÖRN 8!OURS«SON ARWTEKT- Mt 0W3 - 822. 0383 wtomöWnat * - Aprfl 2003
Mynd 2 Byggðin í meðaltalsborg í Evrópu er um það bil fimm sinnum þéttari en hér.
öskjuhllð
Mynd 3 Flugvallarsvæðiö eins ogþað mun lita útefnýjustu hugmyndir borgarstjórnarinnar
ná fram aö ganga.