Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2005, Qupperneq 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ2005
Fréttir DV
Stefán er heiðursmaöur, fróð-
ur, fyndinn og sannur hug-
sjónum sínum. Hann kann að
meta gott viskl og er mikill
Framari. Allt sem Stefán tekur
sér fyrir hendur gerir hann vel.
Stefán hefur óeðlilega mik-
inn áhuga á knattspyrnuHð-
inu Luton town. Hann er
mikill plottari og ekki eru
allir sammála pólitiskum
skoðunum hans.
„Ég er nú algerlega and-
laus þegar kemur að því
að lýsa mannkostum og
löstum fólks. En ég get
sagt að Stefán er heiö-
ursmaður og Ijúfmenni. Hann er
snjall ræðumaður og það sem
hann tekur sér fyrir hendur gerir
hann vel. Eini gallinn hans sem
mér dettur í hug er þessi Luton-
áhugi hjá honum. Þetta er ein-
hver meinloka hjá honum sem
ég hefaldrei skilið."
Sverrir Jakobsson, háskólakennari og
vinur Stefáns.
„Stebbi er auðvitað eins
og menn þekkja bæði
fróður og fyndinn í meira
lagi en hann hefur llka
hjarta úr guiti sem er öllu
mikilvægara. Síðan kann hann
lika vel að meta góð skosk viskí
og það er alltaf merki um vand-
að fólk. Stebbi er hins vegar ekki
gallalaus, hann mætti til dæmis
koma meira I vörnina I fótbolt-
anum og svo á hann það til að
gleyma sér við að plotta - sem
erauövitað stórskemmtilegt‘
Sveinn H. Guðmarsson, blaðamaður og
vinur Stefáns.
„Kostir Stefáns eru nátt-
úrulega helst að hann
er Framari eins og ég.
Mér finnst hann vera
málefnalegur, skemmti-
iegur og fyndinn náungi. Hann
er afburða fróður og sannur
hugsjónum slnum þrátt fyrir aö
ég sé ósammála þeim. Þar kem
ég inn á hans helstu galla sem
eru að hann er algerlega út úr
kú I sinni pólitík og skiptir þá
engu máli hvort það er í lands-
málum eða öryggismálum."
Siguður Kári Kristjánsson alþingis-
maður.
Stefán Pálsson er fæddur I Reykjavík 8. apríl
árið 1975. Hann er með BA-prófl sagnfræði
frá Háskóla íslands og hefurlokið fram-
haldsnámi frá Edinborgarháskóla. Stefán
stýrir minjasafni Orkuveitu Reykjavlkur, er
formaöur Samtaka herstöðvaandstæðinga
og I stjórn Iþróttafélagsins Fram aukþess
að hafa verið dómari I Gettu betur slðast-
liðin tvö ár. Hann er I sambúð með Stein-
unni Þórunni Árnadóttur og eiga þau sam-
an hálfs mánaðar gamalt stúlkubarn,
Óllnu Stefánsdóttur.
Krían komin
á Raufarhöfn
Krían kom til Raufar-
hafiiar á sunnudagskvöld-
ið. „Jens K Klein var búinn
að frétta af kríu í nágrenn-
inu og hafði auga með lík-
legum stöðum. Þrjár kríur
komu svo fljúgandi inn yfir
tjömina og settust í hólm-
ann klukkan 21.07 í gær-
kvöldi og telst það opinber
mætingartími. Nú í morg-
un leynir sér ekki á hljóð-
unum hér í kring, að þær
em komnar miklu fleiri en
þijár. Ég er svo næsta viss
um að ég sá spóa á flögri
héma úti á höfðanum á
miðvikudaginnvar,'‘ skrif-
ar tíðindamaður á raufar-
hofn.is.
Deilan um Grafarholtið vindur upp á sig. Dagur B. Eggertsson reynir að breiða
yfir pólitíska íhlutun sína í málið með tölvupósti þar sem hann talar um „dellu-
fréttir“. Guðmundur B. Ólafsson, formaður Fram, segir Dag B. berjast á móti veru
Fram í Grafarholtinu og formaður íþrótta- og tómstundaráðs segir Dag hugsa eins
og Árbæingur.
Þafi eina sem stendnr í
veni fyrir nkkur er Dsnur
Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi heldur áfram að beijast fyrir því
að hans gamla félag Fylkir fái Grafarholtið undir sína starfsemi.
Guðmundur B. Ólafsson, formaður Fram, segir Dag einan standa
á móti því að Fram geti hafið störf í Grafarholtinu. „Dellufrétt-
ir,“ segir Dagur, ósáttur við fjölmiðlaumfjöllun um málið.
f harðorðum pósti sem Dagur B.
Eggertsson, borgarfulltrúi og fyrr-
verandi leikmaður Fylkis,
sendi í gær frá sér gagnrýnir
hann frétt DV af deilunni
um Grafarholt sem birtist
um helgina.
Þar var fjallað um
þann hnút sem hefur
myndast vegna samkomu-
lags sem borgin gerði við
Fram um að liðið fengi
aðstöðuna í Úlfarsárfelli
nokkru eftir að ÍTR
hafði bókað að
Fylkir hæfi
barnastarf í
Grafarholt-
inu. Hverfin
liggja þétt
saman og vilja
Framarar sitja
einir að öllu
Grafarholtinu i
stað þess að
berjast við
annað félag.
Dagur berst
hins vegar fyrir
sift félag og
hefur lýst því
yfir að Grafar-
holtið sé og
verði Fylkis-
hverfi.
Grafarholt-
ið skilyrði
„Það eina
sem stendur í
vegi fyrir að
við fáum Graf-
arholtið er
Dagur," segir
Guðmundur
Dagur B. Eggerts-
son borgarfulltrúi
Er gamall Fylkismaður
sjálfur.
B. Ólafsson, formaður Fram. Hann
segir það rétt hjá Degi að ÍTR hafi
gert samkomulag við Fylki um
barnastarfið en vegna
þeirrar staðreyndar að
Fram fái Úlfarsárfellið,
með þeirri íþróttaað-
stöðu sem rísa muni
þar, telji stjórn Fram
fráleitt að tvö félög eigi
að berjast um hverfið.
„Við höfum sett það
sem skilyrði fýrir því að
fara upp eftir að við
fáum Grafarholtið og
erum tilbúnir að hefja
þar starf strax í
haust."
Erfið deila
Anna Kristinsdótt-
ir, formaður íþrótta-
og tómstundaráðs,
harmar þá deilu sem
upp er komin. „Við
viljum ekki hafa
þennan ágreining
og munum stefna
að því að leysa
þetta mál á næstu
vikum," segir
Anna. Hún segir
eðlilegt að þegar
Fram verði komið
með aðstöðu í
Úlfarsárfelli
muni það einnig
þjóna Grafarholt-
inu. „Það er ekki rétt
sem Dagur hefur
sagt að Grafarholtið
sé og verði Fylkis-
hverfi þótt þeir sjái
um barnastarfið í
augnablikinu. Ætli
,Það er ekki rétt sem Dagur
hefur sagt að Grafarholtið sé
og verði Fylkishverfi þótt
þeirsjái um barnastarfið
í augnab!ikinu.‘
hann
hugsi
þetta ekki
sem fyrrver-
andi Árbæjar-
búi.‘‘
Ósáttur Dagur
í tölvupóstinum
segir Dagur sinn þátt í
málinu aðeins að greiða
úr þeirri óvissu með því
að leita staðfestingar á því
að samþykkt íþrótta- og
tómstundaráðs frá 2001 sé
enn í gildi. Sú samþykkt er
enn í gildi og sinnir Fylkir
því barnastarfi í hverfinu.
Samþykktin var hins veg-
ar gerð áður en ákveðið
var að Fram færi í Úlf-
arsárfellið og vill Fram
forðast þá stöðu að
þegar félagið komi
loks upp í Úlfarsfell
verði allt Grafarholt-
ið orðið Fylkis-
hverfi.
simon@dv.is
Anna Kristinsdóttir, formaður
Iþrótta- og tómstundaráðs
Segist vonast eftir sátt í málinu.
Ásta Ragnheiður segir svar við fyrirspurn ekki áfellisdóm
Þingmaður vill málefnalega umræðu
„Ástæðulaust er að taka um-
ræðu, eins og fram fór á föstudag-
inn á Alþingi um svar ráðherra við
fyrirspurn minni, sem áfellisdóm
yfir foreldrum barna með athyglis-
brest og ofvirkni, eins og sumir hafa
gert.‘‘ Þetta kemur fram á heima-
síðu Ástu Ragnheiðar Jóhannes-
dóttur, þingmanns Samfylkingar-
innar.
Að sögn Ástu þarf að eiga sér
stað málefnaleg umræða um
ástæður þess að notkun geðlyfja
meðal barna hefur aukist jafn mik-
ið og raun ber vitni. í svari heil-
brigðisráðherra við fyrirspurn Ástu
kom fram að notkun geðlyfja hefði
aukist gríðarlega á síðustu árum og
eigum við íslendingar nú heimsmet
í notkun lyfja tengdum athyglis-
bresti og ofvirlcni hjá börnum:
„í svona umræðu þarf að fara
varlega og er hún vissulega vanda-
söm, en engu að síður verð-
ur að vera hægt að ræða
þessi mál þegar upplýs-
ingar koma fram eins og
í svari heilbrigðisráð-
herra. Annað væri
ábyrgðarleysi af
stjórnmálamönnum."
Ásta segir ennfrem-
ur að þrátt fyrir að lyf
sem þessi séu mikil-
væg fyrir börn sem eru
veik og nauðsynleg
þeim sé samt sem áður
undarlegt að notkun
þeirra skuli vera jafn
almenn hér á
landi og raun
ber vitni.
Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir Segir
umræðuna vanda-
sama.
Ríkið styrkir
menningarhús
Staðarblaðið Feykir á Sauðár-
króki greindi frá því í gær að rfldð
hygðist leggja 280 milljónir króna til
byggingar menningarhúss í Skaga-
firði gegn því að sveitastjómimar í
Skagafirði legðu ffam 40% heildar-
upphæðarinnar á móti. Ráðgert er
að nota peninginn í viðbyggingu
sunnan við Safnahúsið á Sauðár-
króki og til endurbóta á Miðgarði í
Varmárhlíö. Eftir breytinguna verð-
ur Miðgarður fjölnota tónleikahús
og gert verður ráð fyrir að bar verði
í húsinu.