Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2005, Síða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ2005
Sport DV
Áhorfendur
velja mann
leiksins
Knattspyrnuunnendum gefst
færi á að velja besta leikmann
leiksins með SMS-kosningu á öll-
um leikjum Landsbankadeildar-
innar {sumar. Það er Og Vodafone
sem stendur fyrir kosningunni en
ágóði SMS-skeytanna mun renna
til liðanna. Þátttakendur í kosn-
ingunni fara sjálfkrafa í pott og
verður vinningshafi dreginn út af
handahófi. f lok tíambilsins er
dregið úr hópi þeirra sem tóku
þátt í SMS-kosningunni um sum-
arið og verða ýmis verðlaun í boði;
áritaðar fótboltatreyjur, GSM-sími
o.fl. Þá mun Og Vodafone standa
fyrir vali á sérstöku stjörnuliði í
sumar og því er ætlað að taka þátt
í ýmsu kynningarstarfi s.s. heim-
sóknum í knattspyrnuskóla og á
sumarnámskeið. Einnig mun
fyrirtækið standa fyrir uppákom-
um á leikjum í Landsbankadeild-
inni þar sem áhorfendur eiga þess
kost á að taka þátt og hljóta vegleg
verðlaun.
lohannsson
styður
Liverpool
Lennart Johansson, forseti
Evrópska knattspyrnusambands-
ins, er nýjasti talsmaður málstað-
ar Liverpool, sem berjast við að
vera veittur réttur til að verja titil
sinn í meistaradeildinni á næsta
ári ef svo fer að þeir sigra í keppn-
inni í ár. Johansson er yfirlýstur
stuðningsmaður Liverpool og
hann hefur einfalda skoðun á
málinu. „Við skulum nú bíða eftir
því að úrslit liggi fyrir í leiknum í
Istanbul. Ef Liverpool vinnur
keppnina, myndi það hjálpa mái-
stað þeirra í að sækja um undan-
þágu. Mér finndist skrítið að leyfa
meisturunum ekki að verja titil
sinn árið eftir," sagði Johansson.
Áður hefur Jolm Toshack, fyrr-
verandi leikmaður Liverpool tjáð
sig opinberlega um málið og er
sömu skoðunar og Johansson.
Fyrirliðarnir Allir fyrirtiöar félaganna I efstu
deild karla mættu blaðamannafundinn í gær
og stilltu sér upp I myndatöku. Þeir eru:
Gunnlaugur Jónsson hjá lA, Rikharður
Daðason hjá Fram, Kristján Finnbogason hjá
KR, Valur Fannar Glslason hjá Fylki, Sinisa
Valdimar Kekic hjá Grindavík, Birkir Kristins-
son hjá IBV, Páll Einarsson hjá Þrótti, Guð-
mundur Steinarsson hjá Keflavík og Sigur-
björn Hreiðarsson hjá Val.
SPÁIN í HEILD SINNI
Sæti Stig
1.FH 279
2. KR ^T'?&M꤃l 258
3.Valur . - v. 207
4.ÍA 202 |
S. Fylkir 193
6. Keflavik ’1'', 'sr 134
7. Fram 117
8. Þróttur 99
9.ÍBV 89
10. Grindavík 72 I
„Það er lykilatriði að
við sjálfir höfum trú á
okkur."
Efnt var til blaðamannafundar í Smárabíói í gær þar sem spá fyrirliða, þjálfara og
forráðamanna var kunngjörð. Samkvæmt spánni mun titilinn fara til Hafnarfjarð-
ar að loknu móti annað árið í röð en Grindavík er spáð botnsæti deildarinnar.
Árleg spá fyrir fyrirliða, þjálfara og forráðamanna félaga í Lands-
bankadeildinni var kynnt á blaðamannafundi í Smárabíói í gær.
FH var spáð titlinum en fast á hæla Hafnarfjarðarliðsins í annað
sætið fylgdi lið KR úr Vesturbænum. Nýliðar Valsmanna hafna í
þriðja sæti samkvæmt spánni. Athygli vakti að lærisveinar þjálf-
arans Guðjdns Þórðarsonar, Keflvíkingar, höfnuðu í sjötta sæti
en nágrannar þeirra í Grindavík verma botnsætið.
„Spár eru bara til að hafa gaman
af og að mörgu leyti tel ég þessa spá
vera ósköp raunhæfa," sagði Guðjón
Þórðarson I samtali við DV Sport.
Liðin sem eru fyrir ofan okkur eru öll
mjög sterk og mörg lið I deildinni
hafa bætt sig miHð og mæta sterk til
leiks."
„Það er mikið verk að
vinna í Keflavík - að
styrkja liðið og allt
sem að þvístendur."
Guðjón fullyrti að að KR og FH
væru með langöflugustu leikmanna-
hópana í dag. „Ég á hins vegar von á
töluvert jafnara móti en menn eru að
velta fyrir sér en held samt að það sé
raunhæft að álykta sem svo að KR og
FH muni beijast um titilinn. Svo var
Þrótti spáð frekar neðarlega í deild-
inni en liðið hefur gert það mjög gott
á vormánuðum og gaman að fýlgjast
með hvað Ásgeir [Elíasson, þjálfari
Þróttar] er að gera - hann kemur
alltaf með skemmtileg fótboltalið,"
sagði Guðjón og bætti því við að í
Keflavík þyrftu menn að huga að
ýmsum þáttum. „Það er mikið verk
að vinna í Keflavík til að styrkja liðið
og allt sem að liðinu stendur. Það
gerist ekki á einni nóttu þannig að
það er mikil vinna framundan. Það
er reyndar langt síðan ég hef verið í
deildarbaráttunni þannig að ég þarf
að átta mig á því hvernig þetta virkar
núna og það skýrist fljótlega."
Verjumst og berjumst sem lið
Grindvikingum er spáð neðsta
sæti deildarinnar en Milan Jankovic,
þjálfari liðsins, sagði að það gæfi lið-
inu byr undir báða vængi.
„Þessi spá gerir það að verkum að
við ætlum að sanna að við erum með
eitt af bestu liðum landsins og ætlum
að leggja allt okkar í það. Okkar tak-
mark er að gera betur en í fyrra og ég
er alveg viss að með okkar mannskap
munum við geta það," sagði
Jankovic. „Það eina sem okkur vant-
ar er stærri hópur og það er okkar
veikleiki. Hópurinn sem við höfum
er þó jafn og góður og við munum
verjast sem hð og sækja eins og lið."
Fáir eiga von á því að nýliðar
Valsmanna muni þurfi að beijast fýr-
ir tilverurétti sínum í deildinni og lið-
inu spáð þriðja sæti. Willum Þór
Þórsson, þjálfari Vals, sagði greini-
legt að menn hefðu trú á Valsmönn-
um.
„Það er hins vegar lykilatriði að
við höfum trú á okkur sjálfir," sagði
Willum sem fullyrti að menn mættu
eiga von á sterkri liðsheild Valsliðs-
ins í sumar. „Við leggjum ríka
áherslu á hðsheildina og að nýta
okkar styrkleika eftir mætti. Við
erum einnig með mjög hratt fót-
boltahð og ég vona að það geti nýst
okkur."
Samkvæmt spánni mim titilinn
fara í Hafnarfjörð annað árið í röð en
FH hampaði sínum fýrsta íslands-
meistaratith á síðasta ári eftir að KR-
ingum hafði verið spáð tithnum.
„Þetta leggst ágætlega í okkur þó
svo að við spiluðum ekki jafn vel
núna á þessum árstíma miðað við
t.d. í fýrra," sagði Heimir Guðjóns-
son, fýrirhði FH. „Núna höfum við
einhvem tíma til að ná okkur af stað
og meistarakeppnin fín æfing fýrir
mótið. Við erum ákveðnir í að vera í
toppbaráttunni í sumar."
Fyrstu leikirnir í undanúrslitum deilda í NBA voru háðir í fyrrinótt
Meistarabraqur á San Antonio Spurs
Miami Heat vann auðveldan sig-
ur á Washington Wizards í iýrrinótt,
án verulegs framlags frá lykilmönn-
um sínum og fyrrverandi meistarar
San Antonio nýttu sér fjarveru Rays
Ahen og rúlluðu yfir Seattle Super-
sonics, sem gætu orðið án aðalskor-
ara síns í næsm leikjum og það veit
ekki á gott.
Miami Heat náði strax góðri for-
ystu gegn Washington Wizards á
sunnudagskvöldið, þar sem Shaq-
uille O’Neal fór mikinn í sóknarleik-
num og virðist hann vera að ná sér
af meiðslunum sem hafa hrjáð hann
undanfarið. Þegar tröhið þurfti að
fara af vehi vegna villuvandræð,
gengu leikmenn Wizards á lagið og
jöfiiuðu lefldnn með mikilli baráttu.
Það kom því mestmegnis í hlut vara-
manna heimaliðsins að klára leikinn
og þeir gerðu það með stakri prýði.
Mestu munaði um framlag Keyons
Dooling, sem skoraði 15 stig í leikn-
um og er nú með um 70% skotnýt-
ingu í úrslitakeppninni.
„Washington-hðið er allt að ein-
beita sér að því að stöðva Shaq og
Dwayne Wade og þannig fáum við
hinir tækifæri til að láta að okkur
kveða í sókninni," sagði Dooling
eftir leikinn.
Meiðsli Kjá Sonics
í Vesturdeildinni hófst keppni í
annari umferð á leik San Antonio
Spurs og Seattle Supersonics, en sá
leikur varð aldrei spennandi.
Spurs náðu strax forskoti í leikn-
um og þegar þeir Vladimir Radma-
novic og Ray Allen voru báðir farnir
tognaðir af leikvehi í öðrum leik-
hluta, gerðu Spurs út um leikinn
með því að ná 30 stiga forystu um
miðbik leiksins. Lið Spurs slakaði
virkhega á klónni í síðari hálfleikn-
um og leikmenn liðsins þurftu afar
Iítið að hafa fyrir hlutunum á loka-
sprettinum þar sem gestirnir virtust
hafa gefist upp.
„Þetta er gríðarlegt áfah fyrir þá.
Að missa Ahen er eins og ef við
myndum missa Tim Duncan í
meiðsli. Það yrði hræðilegt," sagði
Gregg Popovich, þjálfari Spurs, sem
greinilega hafði mikla samúð með
kollega sínum Nate McMihan hjá
Seattle, sem gæti þurft að vera án
síns besta manns í næsta leik.
Popovich hrósaði sínum mönnum
fýrir frammistöðuna í leiknum.
„Tony Parkervar frábær í kvöld.
Hann var.ágengur og keyrði inn í
teig þeirra hvað eftir annað," sagði
þjálfarinn
Auðvelt hjá Miami og San
Antonio
Leikmenn Seattle virkuðu hrein-
lega ekki tilbúnir í slaginn gegn
Spurs í fyrsta leiknum og létu slá sig
algerlega út af laginu. Meiðsh Ray
Allen eru ekki tahn mjög alvarleg, en
þó getur enginn sagt til um hvenær
hann nær sér að fuhu og þangað tíl á
liðið ekki möguleika í San Antonio.
Hið sama má segja um hð Was-
hington, en eini möguleiki þeirra
liggur í að keyra upp hraðann við
hvert tækifæri sem gefst, en lið Mi-
ami er að öhum líkindum einfald-
lega númeri of stórt fýrir þá. Eins og
þessi tvö einvígi fara af stað, má í
besta fahi búast við að Washington
og Seattle vinni einn leik í rimmum
sínum við sér sterkari hð.
baidur@dv.is
| Á fljúgandi ferð
Manu Ginobili og
félagar hjá San
Antonio Spurs eru
líklegirtilafreka.