Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2005, Qupperneq 39
DV Síöast en ekki síst
ÞRIÐJUDAGUR 10. MAl2005 39
Leynilegu fangelsin í Afganistan
Fréttamenn segja að í höfuðborg
Afganistan, Kabúl, sé nú mikil gull-
öld fyrir fjárfesta og braskara sem
eru á höttunum eftir arðgæfum
samningum um fjarskiptakerfi,
vatnsveitur og aðra mannvirkjagerð.
Þetta hefur leitt af sér þvflika
sprengingu í húsnæðisverði að Kab-
úl er orðin næstum því eins dýr borg
að koma sér fyrir í og Tólá'ó eða
London.
En utan höfuðborgar (og stund-
um innan hennar líka eins og ís-
lenskir friðargæslifliðar vita) rflcja
óöld og lögleysur, sumir fréttamenn
segja ástandið verra en á dögum
Talíbana.
Undarleg „lýðræðisþróun"
Því er gjarna haldið á lofti að ver-
ið sé að byggja upp lýðræði í Afgan-
istan. En Bandarflcjamenn, sem hafa
vel búið 17 þúsund manna Uð í land-
inu, eru sakaðir um að nota hið sér-
stæða ástand í landinu til að gera
Afganistan að einskonar miðstöð
fangelsakerfis sem á sér útibú víða
um heim. Þar eru þeir sem Banda-
rflcjamönnum dettur í hug að gruna
um aðild að hryðjuverkasamtökum
hafðir í haldi án þess nokkrar upp-
lýsingar séu um þá gefiiar og látnir
sæta pyntingum að því er talið er.
Haft er eftir Michael Posner, fulltrúa
bandarísku mannréttindasamtak-
anna Human Rights First, að fang-
elsin í Afganstan séu „algjörlega
utan við alþjóðleg lög og rétt, og þau
eru ekki nema hluti af mun stærra
og skuggalegra neti fangelsa sem við
erum rétt byrjaðir að átta okkur á“.
Talsmenn mannréttindanefndar
Afgana sjálfra, sem upphaflega var
komið á fót til að rannsaka glæpi
innlendra herstjóra og tryggja ffarn-
gang kvenréttinda, segjast nú ekki
hafa annað að starfa en taka við
kvörtunum um framgöngu banda-
ríska hersins. Dr. Rafiullah Bider
segir í samtali við breska blaðið Gu-
ardian: „Þeir hafa handtekið þús-
undir manna og haldið í fangelsi.
Þeir sem sleppa segja að þeir hafi
setið inni með erlendum föngum
sem fluttir hafa verið til Afganistan
til að sæta yfirheyrslum. Enginn er
ákærður. Enginn er nafngreindur.
Engir fulltrúar frá alþjóðasamtökum
fá aðgang að þessum fangelsum
Bandarflcjamanna". Munu þau vera
hátt á þriðja tug og veit enginn hve
margir gista þau. Ýmsir afganskir
áhrifamenn, meira að segja ráðherr-
ar, hvísla því að breskum frétta-
mönnum (sem sumir hafa lent í
klónum á bandarískri herlögreglu,
einkum þeir sem hafa asískt útlit),
að þeir séu búnir að missa alla trú á
Árni Bergmann
segir Bandaríkjamenn
brjóta mannréttindi á
föngum sem þeir feli
utan iögsögu eigin
lands.
Kjallari
Þar eru þeir sem
Bandaríkjamönnum
dettur í hug að gruna
um aöild að hryðju-
verkasamtökum hafðir
í haldi án þess nokkrar
upplýsingar séu um þá
gefnar og þeir látnir
sæta pyntingum að því
er talið er.
lýðræðistali Bandaríkjamanna. Það
er, segir einn slflcur, verið að „breyta
Afganistan í stórt bandarískt fang-
elsi."
í stað Guantanamo
Þessar fregnir frá Afganistan eiga
sér þá skýringu að það land og nokk-
ur önnur eru látin koma í staðinn
fyrir „aðstöðuna" sem Bandaríkja-
menn komu sér upp árið 2002 í her-
stöð sinni í Guantanamo-flóa á
Kúbu. Þar töldu þeir sér óhætt að
beita hörkulegustu aðferðum gegn
föngum - sem höfðu flestir verið
teknir í Afganistan og voru sakaðir
um aðild að Ai Queda - og brjóta
með margvíslegum hætti gegn regl-
um réttarrflds. Vegna þess að til Gu-
antanamo næðu hvorki ákvæði
bandarísku stjórnarskrárinnar né
heldur Genfarákvæði um meðferð
stríðsfanga. Þetta breyttist með úr-
skurði hæstaréttar Bandarflcjanna í
fyrrasumar, en samkvæmt honum
var hægt að taka fyrir í réttarhöldum
í Bandarflcjunum sjálfum mál er
vörðuðu stöðu þessara fanga og
meðferð á þeim.
Það þurfti því að flytja hina ljós-
fælnu meðferð á föngum í margum-
ræddu „stríði gegn hryðjuverkum"
út fyrir eiginlega bandaríska lög-
sögu. Síðan hefur í vaxandi mæli
verið gripið til þess fangelsakerfis
sem Bandarflcjamenn höfðu verið að
byggja upp næstliðin þrjú ár - utan
við evrópskt og bandarískt réttar-
kerfi. Eins og sést t.d. á því að í mars
sem leið tilkynnti Pentagon að flytja
ætti um helming þeirra fanga sem
eru í Guantanamo til fangelsa í
Afganistan og Saudi Arabíu.
„Réttvísi með hraði".
Síðan árásin var gerð á tmnana
tvo í september 2001 hefur það ver-
ið ein helsta aðferð Bandaríkja-
manna í „stríði gegn hryðjuverkum"
að fangelsa hvern mann sem grun-
aður er um einhverja aðild að
hryðjuverkasamtökum. Samið hefur
verið við fangelsisyfirvöld í ýmsum
löndum um að taka við þeim og
komið upp leynilegum yfirheyrslu-
miðstöðum CIA þar og í tengslum
við bandarískar herstöðvar. Þetta
fangelsakerfi er í felum og engar
upplýsingar um það fáanlegar.
Grunaðir menn „eru í meðferð" á
tugum staða í Pakistan, Úzbekistan,
Jórdaniu, Egyptalandi og Malasíu -
en einkum þó í Afganistan. Tala
þessara „draugafanga" eins og þeir
eru kallaðir er lfldega um tíu þús-
und.
Með þessu móti hefur fundist að-
ferð til að koma á „réttlæti með
hraði" eins og Alberto Gonzales,
einn af ráðgjöfum Bush kemst að
orði - með öðrum orðum: til að
komast hjá reglurn réttarrflcja. Þess
vegna eru draugafangar faldir í
löndum þar sem mannréttindi eru
lítt virt - væntanlega telja ráðamenn
þeirra að með því að gera Ameríkön-
um slflcan greiða muni þeir frekar
komast upp með ails konar mann-
réttindabrot gegn eigin þegnum án
afskipta Vesturveldanna. Og þeir
sem hafa sloppið úr meðferð í þess-
um leynifangelsum hafa nákvæm-
lega sömu sögu að segja og þeir fáu
sem hafa sloppið úr haldi frá Guant-
anamo og myndirnar frá Abu Ghrai,
fangelsinu illræmda í Badgad,
sýndu: sögu illrar meðferðar, niður-
læginga og pyntinga.
■
f m mcrguny
;;
.
Nokkur
vlndjir
Skin og skúrir er dagskipun
veðurfræðinganna (dag.
Mesta glætan og mildustu
hitatölurnar eru sagðar
verða á Austurlandi. Þar
geta menn
spókað sig
um
áhyggju- , -
lausir
utandyra.
tkur **'
£3
«* '
Gola
£3
5 ««
„ Nokkur
vindur
f Gola
Nokkur
vindur
t2>
€3
Gb
Nokkur
vindur
2t»f/
Nokkur
vindur
Gola
,
10
Nokkur
vindur
♦ *'
Strekkingur
Nokkur
vindur
Kaupmannahöfn 12 París 15 Alicante 28
Oslo 12 Berlín 11 Milanó 17
Stokkhólmur 12 Amsterdam 10 NewYork 21
Helsinki 13 Madrid 22 San Francisco 18
London 15 Barcelona 21 Orlando/Flórída 30
..Cb Cb
Qö> Qib
<&>
13
Sólarupprás Sólarlag ( Árdegisflóð 0730
í Reykjavík Reykjavík Slðdegisflóð 19.47
0439 22.22
Jakob Bjarnar Grétarsson
® Ljóst er að sjón-
varpsstjörnurnar
Þórhallur Gunnars-
son og Svanhildur
Hólm þurfa að kom-
ast í sumarfrí lflct og
allur almenningur.
Þær sögur heyrast að
það séu ekki neinir nýgræðingar
sem eigi að leysa þau af. Brynhildur
Ólafsdóttir og Egill Helgason hafa
verið nefnd til að fylla skarðið með-
an Þórhailur og Svanhildur njóta sól-
ar og sumars. Koma þessar sögu-
sagnir nokkuð á óvart, einkum hvað
varðar Egil sem er vanur að taka sér
langt sumarfrí til að safna kröftum
fyrir veturinn...
• SigmarVilhjálmsson, Simmiíldol,
heftir verið ráðinn
sem sérlegur verkeín-
isstjóri Idol-þáttanna
sem bendir ótvírætt
til þess að þriðja sería
þessara vinsælu sjón-
varpsþáttaraðar verði
að veruleika. Talað
hefur verið um að breytingar kunni
að verða í röðum dómaranna en vilji
er fyrir því að Einar Bárðarson komi
þar iim sem dómari enda hefur hann
sýnt og sannað að hann veit hvað
virkar og hvað ekki í poppinu. Hvort
Einar bætist við eða verði hluti af nýju
dómaratríói er hins vegar ekki vitað...
• Og enn um sjónvarpsmenn. Síð-
asti þáttur „Þú ert í beinni" á Sýn
stendur nú fyrir dyr-
um enda hafa Valtýr
Bjöm Valtýsson og
Böðvar Bergsson nú
horfið í blaðabrans-
ann - em nú starfs-
menn Karls Garöars-
sonar á Blaðinu. Þeir
munu þó vera að gæla við að stofna
til útvarpsþáttar á XFm. Þriðji maður-
inn, og alls eklá sá sísti, Hans Steinar
Bjamason, stjómar hins vegar tækn-
inni á Talstöðinni og mun
væntanlega láta til sín taka á Sýn í ná-
inni framtíð. Enda fáir eins vel að sér í
íslenska boltanum og einmitt hann...
• Reyndar er það svo að allur fjöl-
miðlageirinn er á fleygiferð. Á RÚV
em sviptingar og þannig mun Sig-
tryggur Magnason,
sem hefur haft yfir
Dægurmálaútvarp-
inu að segja, hafa
sagt upp störfum og
er á leið á Fréttablað-
ið. Er meiningin að
hann taki að sér
menningarritstjóm þar á bæ. Þar er
fyrir nokkur fjöldi fyrrverandi RÚV-
ara og útvarpsmanna: Bjöm Þór Sig-
bjömsson, Sveinn Guðmarsson, Jó-
hann Hauksson og Sigurður Þór Sal-
varsson. Allir þessir láta svo einnig til
sín taka á Talstöðinni...
• Ef að lflcum lætur mtm Útvarps-
ráð loks koma saman í dag en þar
hefur ekki verið haldinn fundur síð-
an 5. aprfl, eða
þegar loks var
að slota fárviðr-
inu í tengslum
við fféttastjóra-
stöðuna. Til
umfjöllunar verður meðal annars
laus staða fréttaritara á Austurlandi
og herma heimildir að mælt verði
með Ágústi Ólafssyni sem einmitt
var fréttaritari Stöðvar 2 þar eystra á
sínum tíma. Ýmsir hafa fett fingur út
í það að Ágúst taki að sér starfið sök-
um þess að hann hefur starfað að
fjölmiðla- og markaðsráðgjöf fyrir
mörg af stærri fyrirtækjunum fyrir
•austan sem einn af eigendum At-
hygli. En á móti kemur að fáir eru
jafn reyndir á þessu sviði og um leið
jafn mörgum hnútum kunnugir á
Austurlandi og Ágúst...