Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2005, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2005, Page 16
16 LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ2005 Helgarblað DV bO títA Fra því að DV var endurreist í nóvember 2003 hefur blaðið verið duglegt við að segja ^ fréttir af íslenskum raunveruleika sem aðrir fjölmiðlar kæra sig ekki um. Gott dæmi um þetta eru fréttir af komu Vítsengla frá Norðurlöndunum í fylgd íslenskra manna '|| sem stöðvaðir voru í Leifsstöð. Annar íslendinganna sem voru með Vítisenglunum i a* för réðst við þetta tækifæri að lögreglunni nefbraut einn lögregluman. Sá þorði ekki • einu sinni að kæra málið. Á næstu vikum mun Helgarblað DV fjalla um nokkur þessara mála, þar sem aðrir Qölmiðlar þögðu þegar DV þorði. Helís flngels á Islandi Meintum Vftisenglum vísað úr landi *eK~£?— SsSœ <æa Mótorhjólafélagsskapurinn Hell's Angels hefur lengi þótt vera með þeim hættulegri. Hell's Angels stjórnar fíkniefhamarkaðnum í mest allri Vestur-Evrópu og glæpastarf- semi þeirra teygir sig víðar. Á Norð- urlöndunum hafa tveir hópar, Hell's Angels annars vegar og Bandidos hins vegar, háð baráttu um yfirráð á fíkniefnamarkaðnum. Þessu hefur fylgt talsvert ofbeldi og nokkur morð eru framin á hverju ári sem rekja má til hópa á borð við Vítisenglana. Þeir hafa reynt að leggja undir sig heilu bæjarfélögin og skapa ótta hvar sem þeir sjást. DV leiðandi í umfjöllun DV tók af skarið síðari hluta árs- ins 2003, þegar nokkrum Vítisengl- um sem ætíuðu að koma hingað til lands var vísað úr landi, og hóf að fjalla um hættuna sem steðjaði að íslensku samfélagi ef samtökum á borð við Hell's Angels væri leyft að koma sér hér fyrir. Nokkrum dögum síðar, föstudaginn 7. desember, komu svo níu Vítisenglar frá Noregi til landsins í fylgd tveggja íslend- inga, þeirra Jóns Trausta Lúthers- sonar og Brynjólfs Þórs Jónssonar, meðlima í mótorhjólaklúbbnum Fáfni. Norðmennirnir voru stöðvað- ir af lögreglu við komuna til landsins þar sem margir þeirra voru með fjölda brota á sakaskrá. Þar fyrir utan vildu íslensk lögregluyfirvöld koma í veg fyrir að mennirnir kæmust inn í landið þar sem samtökin sem þeir tilheyra stjórna eiturlyfjadreifingu á Norðurlöndunum með harðri hendi, samkvæmt upplýsingum er- lendra lögregluyfirvalda. DV ákvað að fylgja málinu rækilega eftir á meðan aðrir fjölmiðlar létu eins og þetta skipti litíu sem engu máli. Morgunblaðið 8. desember 2003 Fréttir Morgun- blaðsins af mál- inu Stutt og skorin- ort grein um komu I Vltisenglanna. Þetta varþað eina I sem Morgunblaðið birti um málið. Ótti eða áhugaleysi fjölmiðla DV var í Leifs- stöð þegar Vft- isenglarnir komu til iandsins. Þar brut- ust út átök þegar Jón Trausti Lúthersson sló til lögreglumanns sem nef- brotnaði við höggið. Fjölda lögreglumanna þurfti til að yfirbuga manninn sem var handtekinn á staðnum. Daginn eftir birti DV ítar- lega frétt um málið þar sem allar staðreyndimir vom lagðar á borðið og birtar myndir af atburðinum. Fréttir annarra fjölmiðla af þessu, sem vissulega verður að telj- ast með því fréttnæmasta sem gerð- ist þessa vikuna, vom aftur á móti fyrirferðarlitíar. Málið hafnaði á for- síðu DV á meðan Morgunblaðið sagði frá því í smágerðri, myndlausri frétt á baksíðu. Þar kom lítið annað fram en að meintir Vítisenglar hefðu verið stöðvaðir og einn íslendingur handtekinn. í raun var aðeins vitnað til upplýsinga frá sýslumanninum á Keflavíkurflugvelli og það sama var uppi á teningnum hjá Fréttablaðinu. Ekkert var minnst á nefbrotna lög- reglumanninn. Um ári síðar kom svo á daginn að lögreglumaðurinn hefði ekki þorað að kæra nefbrotið af ótta við hefndaraðgerðir. Á það var ekki minnst einu orði í öðrum ljölmiðlum á meðan DV sagði frá því í bæði máli og myndum. Mörgum spurningum enn ósvarað Með því að birta fféttatilkynning- ar frá lögreglu og sýslumanns- embættinu á Keflavíkurflugvelli litu Ryskingar í Leifsstöð Jón Trausti Lúthersson kom ásamt Brynjólfí Þóri Árnasyni, félaga slnum úr mótorhjólaklúbbnum Fáfni, til landsins ásamt I nokkrum meðlimum Hells Angels. Við komuna I til landsins lenti hann I I átökum við lögreglu- j menn og nefbraut einn S þeirra. Aðeins var lltillega i minnst á málið I öðrum 1 fjölmiðlum. ________ Frettablaðið 8. og 9. des- ember 2003 Fréttir Fréttablaðsins af málinu Birt var stutt frétt daginn eftir komu vitisengl- annaþar sem ekkert kom fram annað en að mennirnir hefðu verið stöðvaðir og ís- lendingur sem varmeð þeim íför handtekinn. Daginn eftir birtist grein um að Vítisengl- unum hefði verið vísað úr landi og þar með varþvi málið lokið að hálfu Frétta- blaðsins. flestir fjölmiðlar á það sem svo að umfjöllun af komu Vítisenglanna hingað væri lokið. Allir nema DV. Næstu daga, vikur og mánuði á eftir var málið skoðað enn frekar og nýjar mikilvægar upplýsingar komu fram. Rætt var við Rúnar Ben Maitsland, einn forsprakkanna í Stóra fíkni- efnamálinu, sem sagðist hafa verls- að með fíkniefni við Vítisengla og skemmt sér með nokkrum þeirra hér á landi fyrir nokkrum árum áður. Viðtal birtist við Brynjólf Þór Jónsson, tals- mann mótor- hjólaklúbbs- ins Fáfiiis, sem var með Vítisengl- unum í för við kom- una til landsins. Þá kom einnig fram að hæst setti maðurinn í fíkniefnadreifingu Vítisengla í V- Evrópu hefði komið hingað til lands ári áður til að kynna sér aðstæður. DV hélt áffarn að grennslast fyrir um Vítisenglana og tilganginn með heimsókn þeirra hingað til lands enda var mörgum spurningum ósvarað. Viðtöl birtust við Troels Ul- rich, blaðamann og sérffæðing Ekstra Bladet í Danmörku um mál- efhi mótorhjólagengja, og kollega hans hjá hinu norska Dagbaldet, Gunnar Hulpgreen. Þeir fullyrtu að Hell's Angels hefðu þegar skotið rót- um á íslandi og flest fíkniefnavið- skipti færu í gegn- um þá. Þrátt fyrir þetta létu aðrir Atok á ritstjórn DV Ritstjórn DVhéltáfram að fjalla um málefni Vítisengla og íslenskra mótorhjólagengja sem endaði með óvæntri heimsókn þeirra I húsakynni DV. Myndin var tekin að heimsókninni lokinni. ÁV- .. V Norsfcir Vitisensuur ráóa ráöum sinum yficr flréttafiutningi af Islandsferö Vinir Fáfnis vildu ekki fréttir ***•*&. ■wrt'—Ma» »mU sttf— &*;*?!"**+*•*'» ?~?*J***'*+*** íslenskir fjöl- miðlar málið afskiptalaust og eina fréttin sem birtist um málið annars staðar en í DV var í hinu norska Fir- daposten. DV þorir Þegar líða tók á árið 2004 birtust nokkrar fréttir tengdar komu norsku Vítísenglanna eða íslendinganna sem með þeim voru í för á síðum DV. M.a. kom í ljós að skömmu eftir að meðiimunum níu var vísað frá ís- landi upplýsti lögreglan í Noregi um smygl á tíu kflóum af hassi sem þeir tengdust. Fréttir birtust af Jóni Trausta Lútherssyni og öðrum Fáfn- ismönnum sem endaði með óvæntri heimsókn þeirra á ritstjórn DV. Þeir sögðust vera mættir til að ræða myndbirtingar við ritstjóra blaðsins, en heimsóknin endaði með því að fréttastjóri var tekinn kverkataki. Dæmin hér að ofan eru aðeins brot af þeim málum þar sem DVhef- ur þorað að taka af skarið og fjalla um málin af fullum þunga. ■ iö. aesemoer og fólk sem hafði reynslu afþeim þersónulega svo eitthvað sé nefnt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.