Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq

Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2005, Qupperneq 44

Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2005, Qupperneq 44
44 LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ2005 Sport DV X ________________________ ------Tla biVtafinn fögnuðu CisSB nloq stuð'lingrhikorinn Nirn 1 Liverpool hefur verið veittur þátttökuréttur í Meistara- deild Evrðpu á næsta keppnistímabili, þó svo að liðið hafi ekki verið meðal efstu fjögurra liðanna, en þau sæti veita rétt til þátttöku. Liverpool vann hins vegar keppnina í vor og því ákvað framkvæmdastjórn evrópska knattspyrnu- sambandsins að hleypa fimmta liðinu inn. „Englending- arnir voru á hnjánum," sagði Eggert Magnússon, formað- ur KSÍ og framkvæmdastjóranarmeðlimur. Komist FH- áfram úr 1. umferðinni getur liðið mætt Liverpool. Bænir Liverpool-manna um allan heim hafa verið bæn- | heyrðar. Það kostaði þó nokkuð j þref og eru sumir, þrátt fyrir allt, ekki sáttir þar sem liðinu er gert j að taka þátt £ 1. umferð for- I keppninnar sem hefst eftir rétt | rúman mánuð. Það lítur því út fyrir að Liver- I pool þurfi að aflýsa þeim æf- j ingaleikjum sem liðið var búið I að auglýsa í sumar, gegn Leverkusen og Köln í Þýskalandi I og tveimur leikjum f Japan. Vilji liðið komast alla leið í riðla- j keppnina þarf Liverpool að ! komast áfram í gegnum þrjár i forkeppnisumferðir sem eru I leiknar með útsláttarfyrirkomu- lagi og gilda samanlögð úrslit ! eftir að leikið hefúr verið heima og að heiman. íslandsmeistarar ; FH þurfa að gera slíkt hið sama en það er þó ekki mögulegt fyrir liðin að dragast saman fyrr en í j 2. umferð þar sem liöin eru f j sama styrkleikaflokki í 1. um- ferðinni. Þau eru í flokki sterkari liðanna í drættinum sem drag- j ast gegn veikari liðum sem eru í til dæmis frá Færeyjum, j Aserbaídsjan og Kazakhstan. fslensku fiðunum hefur þó ! ekki alltaf gengið vel í meistara- I deildinni, í fyrra mætti KR írska liðinu Shelboume og þrátt fyrir að hafa verið talið sterkara liðið | töpuðu KR-ingar. „Jú, væri það bara ekki fínt að mæta þeim í annari umferð," sagði Heimir Guðjónsson, fyrir- liði FH-inga. „Það yrði alla- vega troðfullt á vellinum og ekkert verra y fyrir okkur að fá þá frekar en einhverja aðra." Að- spurður um hverrar skoðunar Heimir væri varð- andi stöðu Liver- pool kvaðst hann sáttur við ákvörðun UEFA. „Þeir eiga þetta nú skilið þar sem þeir unnu deild- ina.“ Enskir á hnján- um Einn þeirra sem tók ákvörðun um ör- lög Liverpool í meistaradeildinni var Eggert Magnús- son, formaður KSÍ og meðlimur í fram- kvæmdarstjórn UEFA. Og hann er sáttur, rétt eins og Heimir, enda var ákvörðun stjórnar- meðlima einróma. „Þetta er fyrst og fremst sanngjarnt fyrir fótboltann sem er aðalmálið," sagði Eggert og bætti því við að einnig hafi verið teldn ákvörðun um að ef sigur- vegarar meist- aradeildar- innar tryggja sér ekki sæti í meist- aradeildinni með viðunandi árangri í heimalandi sínu, vflci síðasta lið- ið sem gerði það fyrir meistur- unum. Hingað til hefúr það leg- ið í höndum viðkomandi knatt- spyrnusambanda hvaða lið þeir senda til keppni en nú hefur þessi regla tekið gildi. „Enska sambandið er búið að liggja á hnjánum og biðja um að flmmta liðið fái að fara inn,“ segir Eggert en nú liggur fyrir að þegar það hefur gengið í gegn munu sjónvarpstekjurn- ar skiptast á milli fleiri liða. Talið er að Chelsea, Manchester United, Arsenal og Everton verði af allt að 5 milljón- um punda vegna þessa. „Þetta vildi sambandið og þeir hljóta því að tala fyrir hönd allra enskra liða.“ Ekki meisturunum bjóð- andi Ekki eru allir sáttir og segja sumir stuðningsmanna y liðsins að það sé hneyksli að sjálfir ' meistararnir þurfí að ganga í gegnum for- keppnina. Það sé liðinu ekki bjóðandi. Liverpool mun ekki njóta „landverndar“ í keppninni og getur því dregist gegn Everton í 3. umferð forkeppninnar sem og í riðlakeppninni og á það einnig við Chelsea. Vegna röðunar í pottana sem dregið verður úr í riðlakeppnina getur Liverpool ekki dregist með Arsenal og Manchester United. Þá fagna Tyrkir en vegna þessa fær Fenerbahce nú beinan aðgang í riðlakeppnina vegna þessara skipulagsbreytinga. eirikurst@dv.is San Antonio vann sigur á Detroit í fyrsta leik liðanna í úrslitum NBA Manu Ginobili fór hamförum Fyrsti leikur liðanna var mjög harður eins og búast mátti við og Ijóst að hvorugt liðið ætlaði sér að tapa, en það var öðrum fremur Argentínumaðurinn Manu Ginobili hjá San Antonio sem tók málin í sínar hendur í síðari hálfleik og gerði út um leikinn með frábærum sóknarleik. San Antonio hafði sigur 84-69 í leiknum, sem bauð upp á fjórða lægsta stigaskor í sögtnuú, sem ber glögglega vott um að hér eru á ferðinni bestu vamarlið deild- arinnar. Ginobili var stigahæstur á vellin- um með 26 stig og hirti 9 fráköst, en hann hitti úr níu af tíu skotum sín- um í hálfleiknum og skoraði 15 í lokaleikhlutanum. „Ég náði mér ekki á strik í fyrri hálfleik og reyndi því að koma enn grimmari til leiks í þeim síðari. Þar fann ég fljótlega taktinn og mér fannst eins og mér myndi takast allt sem ég ætlaði mér. Það var góð tilfinning, því þetta eru loka- úrslitin og þetta var sennilega einn af hápunktum tímabilsins fyrir mig,“ sagði Ginobili ánægður. Spiluðum fína vörn „Við spiluðum fínan varnarleik í seinni hálfleiknum, náðum fráköst- um og gerðum þessa hluti sem þurfa að vera í lagi til að vinna. Það var hinsvegar Ginobili sem bar okkur sóknarlega - hann var ótrúlegur," sagði Gregg Popovich, þjálfari San Antonio. Leikmenn Detroit áttu fá svör við tapinu eftir leikinn. „Þeir börðust einfaldlega betur en við í kvöld, ég hef ekkert annað að segja," sagði Ben Wallace hjá Detroit. Chauncey Billups var eini maðurinn sem náði sér á strik sókn- arlega hjá Detroit og hann vildi meina að það hefði verið Ginobili sem gerði útslagið. „Hann er orku- bolti sem getur keyrt upp að körf- unni og skotið utan af veÚi og hann gerði alla þessa hluti í kvöld," sagði Billups. - bb Frábær Manu Ginobili var maöurinn á bak við sigur San Antonio með ótrú- legum leik sínum I loka- leikhlutanum. Reuters Ragga fer á HM Sundkonan Ragnheiður Ragn- arsdóttir keppti á lágmarksmóti sem fram fór í Laugardalslaug á fimmtudagskvöld. Hún náði þar HM lágmarki í 50m skriðsundi á tímanum 26,34 sek en HM lág- markið í greininni er 26,42 sek- úndur. Hjörtur Már Reynisson, sem keppir fyrir KR lflct og Ragn- heiður, var einungis 10/100 úr sekúndubroti frá lág- markinu £ 50m flugsundi þegar hann synti á tfm- anum 25,02 sek- úndum. Auk Ragn- heiðar hafa Örn Arn- arsson, Jakob Jó- hann Sveinsson m og Jón Oddur Sigurðsson náð lágmörkum fyrir Heimsmeistara- mótið sem fram fer £ byrjun ágúst £ Montreal. Hakan Yakin og Grétar Svissneski landsliðsmaðurinn Hakan Yakin hefur skrifað undir þriggja ára samning við Young Boys i heimalandinu, liðið sem Grétar Rafn Steinsson leikur með. Þessi 28 ára sókndjarfi miðjumað- ur var leystur undan samningi við þýska liðið VFB Stuttgart £ vikunni en hann hefur átt misheppnaðar tilraunir til að slá £ gegn utan heimalandsins. Hann yfirgaf Ba- sel 2003 og fór til Paris St Germa- in en féll £ ónáð hjá stjóm félags- ins og hélt aftur heim. Þaðan fór hann til Stuttgart þar sem hann komst ekki £ lið og var lánaður til Galatasaray £ Tyrklandi en þar tók ekkert betra við. Ekki dauður úr öllum æðum Þráti fyrir að vera orðinn 72 ára ganialJ þá segist Sir Bobby Robson alveg geta hugsað sér að snua tíl baka f fótboltaheiminn. Hann var rekinn frá starfi fram- kvæmdarstjóra Newcastle í ágúst i fyrra og hefur fengið ijöldan all- an af tilboðum héðan og þaðan en segist vera að bfða eftir þvf rétta. „Ég ætla mér að hætta á toppnum, hef ekki löngun til neins annars. Ef það kemur ekk- ert nægilega stórt þá hef ég alveg nóg að gera," sagði Sir Bobby. Vala flosnaði upp úr stönginni Vala Flosadóttir er hætt keppni f stangarstökki. Hún tók þá ákvörðun að vel fgrunduðu máli en hún hefur vart náð sér á strik siðan hún vann bronsið fræga á Ólympiuleikunum £ Sidney árið 2000. „Ég er 27 ára gömul og hef þvf nægan tfma til að gera eitt- hvað annað og njóta þess að stunda fþróttir, sem ég mun aldrei hætta að gera þó svo að mfnum ferli £ spjótkastinu er lok- ið," sagði Vala. „Ég hef alla ævi haft mikla gleði af því að stunda fþróttir, sama hvað það er og hvar. Ég á núna eftir að prófa fleiri fþróttir ef eitthvað er.“ Vala er fyrrverandi Evrópumeistari f greininni og silfurverðlaunahafi á heimsmeistaramóti auk þess sem hún tvfbætti heimsmetið /x innanhúss árið 1998. " *tk*m 1
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.