Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2005, Side 50
50 LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ2005
Lesendur DV
Sex daga stríðinu lauk
Þennan dag, árið 1967, lauk hinu
svokallaða sex daga stríði milli ísra-
els og Palestínu. Það hófst 6. júní
árið 1967 með árás ísraelsmanna á
nágrannaþjóðir sínar, en mikil
spenna hafði ríkt á milli þeirra. Árás-
in var til komin vegna ítrekaðra hót-
ana frá Egyptum og Sýrlendingum.
Stríðið var mikill sigur fyrir ísraela,
en mannfall þeirra var ekki mikið.
Talið er að mannfall í stríðinu hafi
verið innan við þúsund manns, en
arabaríkin misstu um 25 þúsund
manns. Land Palestínumanna var
hertekið af ísraelum í stríðinu og var
það Gazasvæðið og Jórdaná vestan-
megin. Mikil spenna hefur nánast
alla tíð síðan ríkt milli ísraels og ná-
grannaþjóða þeirra, en ísraelar nutu
alþjóðlegs stuðning til árásinnar.
Landtakan var mikill missir fyrir
Palestínumenn, en þeim hafði verið
úthlutað rúmlega helmingi af land-
svæði Palestínu af Sameinuðu þjóð-
unum, tuttugu árum áður. Ástand
þjóðanna í dag er litlu skárra en á
tímum sex daga stríðsins. ísraels-
menn halda enn herteknum svæð-
um sínum, þrátt fyrir ítrekaða gagn-
rýni frá þjóðum víðast hvar úr heim-
inum. Alþjóðlegar kröfur og tilskip-
anir hafa verið lagðar fram en lítið
virðist getað haggað ísraelsmönn-
um.
Úr bloggheimum
X'ian?
„Ég fór I kínverskt nudd ígær
meö þeim Valgeiri og Stein-
grimi. Það var sérstakt að
leyfa smávöxnum kinverja að
ganga á bakinu á sér, lemja fast
á lappirnar og toga loks I fingurna
svo fast að það small í þeim. Menn voru
ekki sammá/a um gæði þjónustunnar, en
ég var svona ágætlega sáttur með þessa
llfsreynslu, er hinsvegar ekki viss um að ég
geri þetta að vikulegri rútínu, liklegast að-
eins ofdýrt til þess..."
Jón Bjarki Magnússon.
www.jonbjarki.blogspot.com
—
Þú sem veist allt!
„Þú sem veist allt, hvar er Oddi
spurði maðurinn sem bankaði á
gluggann hjá mér á bllastæÖinu
beintfyrir framan Odda ímorgun. Þetta
minnti mig óþægilega mikið á fyrsta
skóladaginn minn... say no more
Ég vildi hins vegar að ég hefði vitað meira
þegar ég fórog keypti bremsudiskana hjá
Bílanaust I dag. Ég leit út eins og staðal-
týpan sem menn setja upp afkonum þeg-
ar talað er um bíla. Ég vissi ekki árgerðina,
vélarstærðina né biinúmerið (skeikaði
reyndar bara um eina tölu). ÚFF! mikið
var gott að geta hringt I Frey og fengið
réttar upplýsingar."
Auður Lilja. www.kommunan.is/audur
Einusinni var
„Éfég gæti fariö aftur I tlm-
ann.........hefði ég aldrei
fengið mér visa kort.... ákveð-
inn aðili átti þessa snilldar
setningu I kvöld!"
CuðnýÞóra Cuðmundsdóttir.
www.blog.central.is/gudnythora
„Ég verð að hættta...
...aðskrifa um kúk.Aumingja
mamma hringdi áðan. Sagðist
ekki lengur geta lesið bloggið mitt
fyrir dónalegheitum, hvað þá litið
framan í annað fólk.„Ég meina mamma
og pabbi hans Óla lesa bloggið þittjó-
hannes, svo eru linkar út um allt og fullt af
fólki sem les þetta og og og.. Mamma
var bara orðlaus. Það hefur gerst sirka
þrisvar á slðastliðnum þrjátiu árum eða
svo. Svo skaut ég þvi inn hvort hún hefði
séð son sinn I mogganum?:„Jesús minn Jó-
hannes þúmátt ekki skrifa neitt svona
dónalegt I blööin...!!! Gvöööööð..!!!„
Neinei mamma min ég skal ekki verða þér
til skammar I mogganum. Þú getur ennþá
horft framan I fólkið sem les bara prent-
miðlana. En því miður, þú veröur vlst að
finna þér nýja vinilstaðinn fyrir þá sem
lesa netið. Tala nú ekki um efþeir hafa
komist I klámóperuna. úff."
Jóhannes Þór Skúlason.
www.blog.central.is/obsidian
Lesendur DV eru hvattir til að senda okkur tölvupóst á netfangið ritstjorn@dv.is og láta í Ijós skoðanir sínar á málefnum liðandi stundar.
kelandair er ekki
traust fyrirtæki
Inga Fríöa skrífar:
Mig langaði að tala um
Icelandair. Málið er það að ég flaug á
milli London Heathrow og Islands í
febrúar 2000 og tapaði þá troðfull-
um svörtum ruslapoka af ýmsu dóti.
Ég þurfti að gefa skýrslu um hvað
var í pokanum sem ég geirði. Hann
fannst í einhverju landi en aldrei
fékk ég pokann né bætur fyrir það
sem var í honum.
Lesendur
Ég flaug síðan á milli Glasgow og
íslands 8. maí síðastliðinn og var
með það mikinn farangur að ég
þurfti að borga 30 þúsund krónur í
yfirvigt. Flugfélagið tapaði þrjátíu
lítra Samsunite-ferðatösku fyrir mér
á því ferðalagi. Ég lét vita af því á
flugvellinum og var sagt að hafa
samband daginn eftir.
Ég hringdi aftur þegar ég kom
heim og þá þurfti ég að gefa skýrslu í
gegnum símann vegna þess að það
var ekki tekin skýrsla af mér uppi á
flugvelli eins og átti að gera. Mér var
sagt að ég fengi töskuna innan sólar-
hrings, ég gaf skýrslu og greinargóða
lýsingu á því hvað var í töskunni.
Síðan var ég spurð að því hvort ég
væri tryggð. Ég hélt það nú því ég
hafði keypt miðann með VISA. Ég
komst hins vegar að því að þar sem
ég er með almennt VISA-kort þá
tryggir það ekki farangurinn. Ég lét
Icelandair vita og þeir heimtuðu
kvittanir fyrir því sem ég hafði keypt
í ferðinni. Ég var ekki með þær þar
sem ég er ekki vön því að geyma
kvittanir þegar ég versla erlendis, en
þeir báðu mig að sanna að ég hefði
haft peninga út, báðu um yfirlit
bæði á debet- og VISA-kortinu.
Ég skilaði öllu þessu inn en það
kom hins vegar babb í bátinn þegar
ég átti að fá tjónið borgað. Þá var
sagt við mig að ég væri ekki tryggð,
ég hefði ekki tilkynnt á flugvellinum
að taskan væri týnd og að það hefði
ekki týnst taska á milli Glasgow og
íslands í heila mannsævi. Mér leið
eins og svikara. Ég sannaði allt sem
ég þurfti að sanna en þegar kom að
því að borga þá var sagt við mig að
ég fengi ekki neitt. Ég tapaði því 180
þúsund krónum en fyrirtækið held-
ur áfram að auglýsa sig sem traust
fýrirtæki.
Ég vil fá það sem þeir týndu árið
2000 og ég vil fá það sem þeir týndu
8. maí, en því miður er ég bara núll í
þeirra augum. Ef einhver þekktur
hefði verið í minni stöðu þá væru
þeir búnir að borga strax. Ég mæli
með því að þið snúið viðskiptum
ykkar til Iceland Express og séuð ör-
ugglega tryggð.
í daqr
árið 197íTlést
stórleikarinn John Wayne
eftir erfiða baráttu við
lungnakrabba
Ráðist inn á Palestínu Flermenn gera sig
klára fyrir árásina, sem markaði upphafið að
sexdaga stríðinu.
Sylvía Dögg
Halldórsdóttir
spáirí trú, vald,
heimsku og heila
þvott.
Myndlistaneminn segir
Ríki og kirkja - úrelt
Maður spyr sig nánast daglega
hvað sé að gerast í heiminum, ef ekki
þrisvar á dag. Nú er það meðal ann-
ars hin endalausa fáfræði í Bannaríkj-
unum eins og ég kýs að kalla þau. Um
40% segja í skoðunarkönnun sem
AP-fféttastofan gerði, að trúarleið-
togar eigi að reyna að hafa áhrif á þá
sem fara með valdið! Með öðmm
orðum, að ríki og kirkja eigi að hald-
ast í hendur. Ég er ekki viss hvar fólk
byrjar að trúa. Ekki trúir fólk á sjálft
sig, virðist vera, sem er engu nema
hræðsluáróðri Bannaríkjaforseta að
kenna, segi ég, svo við gleymum ekki
hinum heilaga boðskap sem kennir
okkur að við brennum í helvíti ef við
ekki fylgjum vegi Guðs. Því er öllu
einfaldara fyrir einfeldinginn að setja
örlög sín í hendur himnaföður.
Hinn almenni Bandaríkjamaður
segir trúna sér mjög mikilvæga og að-
eins sorgleg tvö prósent trúa ekki á
Guð!
Ég veit ekki hvar ég fór á mis við
heilaþvottinn, eða fékk sjálfstraust til
að trúa á eingöngu á sjálfa mig og
móður náttúm. En þetta virðist vera
svipað og í gamla daga - taktu trúna
eða sverðið - miðað við geðveikina
sem er við fýði í heiminum daglega
úti um allt finnst mér ekki skrítið, svo
sem, að fólkhugsi sig tvisvar um áður
en það afneitar hinni svörtu metsölu-
bók allra tíma með reglum lífsins. Þó
það væri ekki nema til vonar og vara
að vera „trúaður".
Ríki og kirkja mega ekki haldast í
hendur því kirkjan endurspeglar ekki
nútímann, hvað þá nútímamanninn!
Úrelt? Já!
Eina hlutabréfið er í menningararfleifð Jónasar Hallgrímssonar
„Nú hvað, er það ekki mikill
heiður?" segir BCristinn H. Gunnars-
son þingmaður Framsóknarflokks-
ins þegar DV tilkynnti honum að
hann hefði verið valinn maður dags-
ins.
„Við þingmennirnir erum að
sumu leyti komnir í sumarstörf og
menn í hinum og þessum verkum út
um allar grundir. Við höfum líka
verið að tala um málefnin í okkar
hópi og ég vonast til að með
haustinu sjái þess merki í samstillt-
um og ákveðnum málefnaáherslum.
Nú var ég að koma af stjómar-
fundi hjá Tryggingastofiiun Ríkisins
en við vomm á löngum fundi í
morgun. í dag liggur leiðin norður á
Akureyri þar sem ég verð viðstaddur
brautskráningu stúdenta frá Há-
skólanum á Akureyri á laugardag, og
á sunnudag er áformað að vera á
Hrauni í Öxnadal, þar sem Jónas
Hallgrímsson fæddist. Þar ætía að
hittast hluthafar í hlutafélaginu
Þetta er eina hluta-
bréfið sem ég á, og
eini arðurinn sem ég
tek er tengdur menn-
ingu.
Hrauni í öxnadal efh. sem er hluta-
félag um minningu og arfleifð
Jónasar, svona menningartengt fé-
lag.
Þetta er eina hlutabréfið sem ég
á, og eini arðurinn sem ég tek er
tengdur menningu. Það má segja að
þarna sé manngildið ofar auðgildi.
Þetta er hlutafélag sem gengur ekki
út á gróða, heldur það að eiga jörð-
ina Hraun
í Öxnadal
Hallgrímssonar. Ég held að það sé
ekkert ákveðið þak á fjölda hluta-
bréfa í þessu félagi og ef einhvern
langar að kaupa í því held ég að það
sé öllum opið.
Næsta verkefni er að flytja, en við
hjónin vomm að kaupa hús í Bol-
ungavík af fýrrverandi alþingis-
manni Karvel Pálmasyni. Við emm
aðeins byrjuð að pakka niður bú-
slóðinni og mála nýja húsið og gera
fínt í kringum okkur þar áður en við
flytjum inn. Ætíi maður reyni ekki
að fara svo að vinna í nýja garðinum
og ganga á fjöll, það er allaf vinsælt
og svo kannski situr maður lappirn-
ar upp í loft á kvöldin til að fá
smáhvíld."
Kristínn H. Gunnarsson nennti ekki að svara ásökunum flokkssystur
lofti minn-
tngu
Jónasar
um að hrakfarir Framsóknarflokksins
væru sér að kenna. Kristinn hefur verið umdeildur innan floktelns
vinsældir Kristins hafa aldrei verið meiri hjá almennumflokksféog-
i, þótt hann sé ekki alltaf vel liðinn innan þlngflokksins. Kristinn er
’ * „ / •__' am • Cilfri Fnik.
Framsóknarmaður ársins á hrifla.is og f Sllfri Egils.