Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2005, Qupperneq 64
JT*/1 i* í* íj jj í. 0 ÍJ Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhrínginn. Fyrir hvert fréttaskot sem
birtist, eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið íhverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar
^nafnleyndar er gætt. ~j Q fj ^J fj
^ ^ ^ ' 1111(1111
SKAFTAHUÐ24, WSREYKJAVIK [STOFNAÐ1910] SIMISSOSQOO 5 "690710n11112411
© Þær fregnir berast
ofan úr Lynghálsi
að ÞórhaÚur Gunn-
arsson, sem hefur
stjórnað íslandi í
dag við góðan
orðstír síðustu ár,
sé orðinn leiður á þættinum og vilji
hætta hið fyrsta. Þátturinn náði
miklu flugi þegar hann og Jóhanna
Vilhjálmsdóttir voru flutt úr morg-
unsjónvarpinu yfir á kvöldin, enda
þjörmuðu þau oft rækilega og
skemmtilega að viðmælendum. Jó-
hanna hætti síðan í
vetur og Svanhildur
Hólm tók við. Lítil
hætta er á því að
Þórhallur snúi aftur
til leikhússins, sem
hann lærði til. Frek-
ar þykir liklegt að staða fréttaþular
heilli, enda hefur fólki þótt vanta
atkvæðamikinn karlkyns þul við
hlið Páls Magnússonar...
HvarvarJames Bond?
Með kampavín í Mgalla
Fvripsætnr fara í hvalaskoOun
J ldo4c
„Fara þessar fyrirsætur ekki að
koma,“ sagði Einar, skipstjóri á
hvalaskoðunarskipinu Eldingu, þeg-
ar erlendu fyrirsæturnar tuttugu
voru búnar að láta bíða eftir sér í
klukkutíma síðastliðið fimmtudags-
kvöld. Spennan leyndi sér reyndar
ekki hjá honum og Steina vélstjóra.
Það fór enda ekki á milli mála af
hvetju stúlkurnar voru flognar til ís-
lands þegar þær loksins mættu.
Kanada, Danmörk, Indland,
Slóvakía, Grikkland, Svíþjóð, Finn-
land og England. Þjóðlönd stúlkn-
anna voru nærri jafnmörg og þær
sjálfar, enda er tískuheimurinn einn
sá alþ óðlegasti. Fegurðin fæðist í
öllum liornum heimsins. „Það er svo
gaman að fá tækifæri til að ferðast í
þessum bransa. Ég hef aldrei komið
til íslands áður en alltaf langað til
þess," segir Emily frá Kanada. Líkt
og stöllur sínar hóf hún ferðina frek-
ar léttklædd. Það leið hinsvegar ekki
á löngu þar til hafgolan gerði vart við
sig og þær rifust um kraftgallana.
Ekta íslensk sjóstemmning.
Stelpurnar komu beint af æfingu
fyrir tískusýningu Mosaic Fashion,
sem haldin var í Skautahöllinni í
gær. Kvöldið fyrir sýningu var lítið
um stress að sjá. Fagmennskan var í
fyrirrúmi og því var búið að opna
fyrstu kampavínsflöskuna áður en
Eldingin sigldi út úr Reykjavíkur-
höftr. Kampavínið heillaði sumar
þeirra reyndar meira en sjómennsk-
an og hélt stór hluti hópsins því til
innandyra allan tímann.
Eitthvað létu hvalirnir á sér
standa þetta kvöldið. Einar brá því á
það ráð að leyfa fyrirsætunum að
veiða með sjóveiðistönginni. Nokkr-
ar gripu tækifærið en aðrar drifu sig
aftur inn. Þegar leið á ferðina fór
sjórinn að segja til sín og enduðu
nokkar með magamálið í haflnu.
Eitthvað virtust þær bera sig fag-
mannlega við þá iðju og hún hafði
engin áhrif á stuðið, enda var haldið
beint á barinn þegar komið var í
höfn. Eftir stóðu Einar skipstjóri og
Steini vélstjóri og gengu frá Elding-
unni.
Flink með stöngina
Fyrst hvalirnir létu á sér
standa varsjóveiði-
stöngin dregin fram.
%