Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2005, Side 13
UV Fréttir
LAUGARDACUR 18.JÚNÍ2005 13
iffSP
í felum fyrir vandamálinu
Þegar mál eins og þetta kemur upp í fallegu í]öl-
skylduhverfi í Reykjavík myndi maður fyrirfram bú-
ast við því að skóli, kirkja og foreldrar myndu sam-
einast um aðgerðir tii að reyna að leysa vandamálið
á sem farsælastan hátt og möguleiki er í svona
máli. í þessu tilviki virðast þessir aðilar þó loka
augunum fyrir vandamálinu. Formaður foreldrafé-
lagsins í skólanum í hverfinu skellti til að mynda á
blaðamann DV rétt áður en hún hreytti út úr sér að
hún vildi ekki tala um þetta mál. Þrátt fyrir ítrekað-
ar tilraunir náðist ekki í hana aftur. Skólastjórinn í
skólanum gat ekki heldur gefið sér tíma til að ræða
við blaðamann þar sem hann var að mála. Prestur-
inn í hverfinu var einnig á hraðferð, en virtist ekki
kannast við málið. Það virðist því vera að í stað
þess að horfast í augu við vandamálið loki þetta
fólk frekar augunum og voni að vandamálið hverfi.
Ekki öll kurl komin til grafar
„Ég lét vita af grun um misnotkun á dóttur minni
fyrir fimm árum. Þá komst ég að því að hann hafði
tekið hana og klætt úr öllum fötum og rassskellt
tveimur árum áður," segir móðir tveggja stúlkna sem
nú eru til meðferðar í Barnahúsi vegna meintrar mis-
notkunar af hálfu barnaníðingsins í Smáíbúðahverf-
inu. Móðirin segir að dætur hennar tvær sem nú eru
tíu og sautján ára gamlar hafi verið vinkonur dætra
níðingsins enda búið í sömu götu og sótt sama skóla.
„Ég hafði ekkert f höndunum sem ég gat byggt kæru
á, en eftir þetta fengu dætur mínar ekki að fara heim
til mannsins nema undir eftirliti. Þær sýndu heldur
ekki áhuga á að fara þangað og áður en ég vissi nokk-
uð þótti mér það einkennilegt," segir móðirin. Þegar
myndir af annarri döttur hennar fundust í tölvu
mannsins beið hún ekki boðanna og kærði níðing-
inn. Móðirin segist hafa rætt við fleiri mæöur í göt-
unni og að grunur leiki á að fleiri börn hafi orðið fyrir
misnotkun af hálfu mannsins. „Það er ótrúlegt að
hann skuli getað gengið inn á heimili sitt aftur eins
og ekkert hafi í skorist. Dætur mínar þurfa að búa við
að hann sé í næsta húsi og geta alltaf átt von á að
rekast á kvalara sinn. Enn furðulegra er að á heimili
hans eru dætur hans, alveg óvarðar. Það er staðreynd
að ef hann hefur misnotað önnur börn þá eru meiri
líkur en minni á því að hans eigin dætur hafi orðið
fyrir misnotkun líka. Mér finnst Barnaverndamefnd
ekki hafa staðið sig í stykkinu í þessu máli og get ekki
séð að hún hafi hagsmuni barnanna í fyrirrúmi."
Konan segir að nú gangi barnaníðingurinn um og
horfi beint í augu annarra foreldra í götunni eins og
ekkert hafi í skorist. Það megi heita mikil ósvífni enda
hafi hann viðurkennt brot sín. „Hver getur sagt að
hann haldi ekki áfram að misnota börn og þrátt fyrir
að foreldrar í götunni hafi rætt við böm sín og varað
við honum? Auk þess sem bamanna sé sérstaklega
gætt. Það er óverjandi að hafa manninn í næsta húsi
á meðan dætur mínar eru í meðferð hjá sálfræðingi
og viðtölum í Barnahúsi," segir þessi móðir, sem ótt-
ast mjög að ekki séu öll kurl til grafar komin í þessu
skelfilega máli í Smáíbúðahverfinu.
I Fjölskylduhverfi Smá-
I búðahverfið virðist við fyrstu
I sín vera fullkominn staður til
I að ala upp börn. En undan-
I farin ár hafa börn og foreldr-
I ar lifað ístöðugum ótta við
I barnaníðing sem býr í hverf-
I inu. Þrátt fyrir fjórar kærur
I gengur maðurinn enn laus.
? ■ 1
Barnaníðingur Misnotaði fjórar stúlkur og var
með tugi barnaklámmynda I tölvunni smmAö
sögn ibúa gengur hann glottandi um hver ið og
skelfir börn og foreldra. Myndin er gerð óskyrð
I til að vernda hagsmuni þolenda hans.
FB M I ■ ■ ~T
Móðirín sem féllst á að koma í viðtal í DV er ekki
nafngreind vegna hagsmuna fórnaríambsins. Nánar
er fjallað um stefnu blaðsins í leiðaranum á síðu 2.
Uppboð á óskilahrossi
Uppboð á óskilahrossi fer fram lau-
gardaginn 25. júní 2005 kl. 12:30 við hes-
thús hjá Stekkjarhól í Nesjum.
Um er að ræða ómarkaða tveggja til
þriggja vetra hryssu, og án allra auðkenna
og örmerkja.
Sýslumaðurinn á Höfn