Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2005, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 18. JÚNl2005
Helgarblað DV
Blaðamaður DV hitti Jamie Koufman á Hótel
Nordica. Yfir morgunverði lýsti Dr. Jamie
Koufman baráttunni við sjálfan sig. Hann
fæddist sem strákur sem vissi alltaf að hann
væri stelpa. Fyrir íjórum árum lagðist hann
undir hnífinn og byrjaði fjögurra ára strembið
ferli. í dag lifir hún hamingjusömu lífi. Hún
hefur loksins fengið að vera hún sjálf. Stelpan
sem hún vissi alltaf að hún væri.
■
/,'
Jamie Koufman Erstödd
á Islandi vegna norræns
„ háls-, nef- og eyrnaþings
„Fyrir þá karlmenn sem ekki
skilja þetta, þá krefst það meira
hugrekkis að gangast undir svona
pínlega aðgerð en nokkur maður
gæti hugsað sér. Að klífa Mt. Everest
og að komast á tunglið er eins og
tjaldútilega í samanburði við það
sem ég hef gengið í gegnum," er það
fyrsta sem Jamie Koufman segir við
blaðamann DV yfir morgunverði á
Nordica. En Dr. Jamie Koufman er
stödd hér á landi við norrænt þing
háls-, nef- og eyrnalækna.
Fólkið í kringum okkur hlustar
með öðru eyranu á Jamie tala, og
veit ekki alveg hvemig það á að haga
sér. Jamie lætur það eldd á sig fá. „Ef
þessum manni eða konu finnst ég
furðuleg, til helvítis með þau. Ég er
hamingjusöm,“ bætir Jamie við.
Jamie Koufman er af rússneskum
ættum og ættingjar hennar komu til
Boston auralaus með ekkert annað í
farteskinu en drauma um betra líf í
Bandaríkjunum. Afi hennar var
höfuð fjölskyldunnar. Byggingaver-
taki án menntunar. Hans heitasta
ósk var sú að öll börnin í fjölskyld-
unni menntuðu sig.
Var giftur í 17ár
Frá fimm ára aldri byrjaði Jamie
að máta kjóla móður sinnar ásamt
vinkonu sinni. „Vá, var það fyrsta
sem kom út úr mér þegar ég mátaði
kjól af mömmu. Mamma tuskaði
mig alltaf til þegar hún fann í mig í
kjólum af henni. Þegar ég var átta
ára var þetta orðið mjög alvarlegt
vandamál. Mér var bannað að eiga
vinkonur. Ég byrjaði að leika stráka-
hlutverkið og ég gerði það mjög vel,“
segir Jamie. Hann missti fjölskyld-
una sfna ungttr og flutti til frænku
sinnar og ffænda á táningsárunum.
f felum stundaði hann hommaböð-
in og segir að hann hafi fengið lífs-
tíðarfélagsaðild. „Ég var eldheitur
Faxafióahafnir
Associated Grundartangi
: útboð_______________________
Faxaflóahafnir sf. óska eftir tilboðum í stálþil og
stagefni fyrir endurbyggingu hafnarbakka í
Vesturhöfn. Útboð efnisins var auglýst á Evópska
efnahagssvæðinu þann 25. maí sl., merkt
FAX0105.
Útboðið nefnist:
Vesturhöfnin, Reykjavík Harbour
Steel Sheet Piling and Anchorage Material
Áætlað magn efnis er:
Stálþil: 4000 tonn
Stagefni: 500 tonn
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Hönnunar að
Grensásvegi 1, frá og með þriðjudeginum 21. júní
n.k. á 3000 kr hvert eintak. Tilboð verða opnuð
á sama stað þriðjudaginn 26. júlí, n.k. kl 10:00.
HÖNNUN
þá,“ segir Jamie og hlær og bætir við:
„í menntaskóla deitaði ég
aðalklappstýruna. Innst inni langaði
mig að vera hún.“
Víetnamstríðið skall á og Jamie
ákvað að leggja stund á læknisfræði.
Bandarísk yfirvöld gerðu undan-
þágu gegn herskyldu ef nemendur
lögðu stund á læknisfræði. „Ég byrj-
aði í læknisfræði. Ég kynntist konu.
Gifti mig og var giftur í 17 ár. Okkur
kom aldrei vel saman. Við rifumst
mikið, en ég fór ekki frá henni vegna
bamanna," segir Jamie.
Koufman-fjölskyldan flutti til
Norður-Karólínu 1986. Koufrnan
varð framsækinn og fjölliæfur lækn-
ir og opnaði fyrstu miðstöð tileink-
aða raddböndum í Bandaríkjunum
þar sem hann hjálpar fólki alls stað-
ar að úr heiminum. Hann kynnti
einnig vélindabakflæði fyrir lækna-
stéttinni 1983.
Lét laga fæðingagalla
Hjónabandið gekk ekki og Jamie
sótti um skilnað. Hann hafði verið
fyrri eiginkonu sinni ótrúr með karl-
mönnum.
Ári seinna gifti Jamie sig aftur.
Hann hafði fundið sálufélaga sinn í
Mörshu, sem var læknaritarinn hans
á þeim tíma. Marsha átti tvö ung
böm úr fyrra sambandi. „Ég ætt-
leiddi þau. Við vomm hamingjusöm
fjölskylda. Við áttum stórt og fallegt
hús. Ég sá fyrir henni. Ég var 35 ára
prófessor og læknir. Þetta var full-
komið líf. En það ólgaði inn í mér
eins og eldfjall. Ég var alltaf á netinu
að stunda netkynh'f. Ég hugsaði með
mér: „Þetta gengur ekki upp svona.“
Ég sagði konunni minni að ég væri
hommi. Ég hellti mér út í þann
heim, en það var ekki.fyrir mig. Ég
var klæðskiptingur um tíma, nema í
vinnunni. Þegar vinnutímanum
lauk var ég alltaf í kvenmannsföt-
um,“ segir Jamie.
Hann leitaði lengi að sjálfum sér
og í gegnum netið fann hann grein
um diethylstilbestrol (DES), sem eru
lyf gefin af læknum frá árunum 1938
til 1979 til að auka estrógenmagnið í
konum sem misst höfðu fóstur.
Móðir Jamie hafði einmitt tekið
þessi lyf og segir Jamie þau vera
orsök þess að hann sé kynskipting-
ur. Hægt er að finna margar rann-
sóknir um DES á vefsíðu „Center for
disease control" og tengsl þess við
kynskiptinga. „Ég vissi að mig lang-
aði að vera kvenmaður. Ég var búinn
að komast að því að ég væri kyn-
skiptingur. Þá spurði ég sjálfan mig
hvað ég ætti að gera í málunum. Ég
byrjaði að lesa mig til, tala við kyn-
skiptinga og ég ákvað að taka það
skref að verða kona það sem eftir er
í fótbolta Jamie tók þátt I öllum
Iþróttum i menntaskóla.
Fyrirsaeta Jamie pósaði
oft fyrir myndavélina á sln-
umyngri árum.
Massaður Jamie
Fyrir aðgerð
! Svona leitJamie
var body-builderá i —
slnumtíma. ? ut fynr aðgerðma.
BK
I Klæðskiptingur
Jamie dressaði sig
uppsemklæð-
skiptingur viö
hvert tækifæri.
Ballettdansari Hættil
ballett vegna meiðsla.
Fannst æðislegt að vera
" fþröngu buxunum.
án þess að skammast mín fyrir það,“
segir Jamie með tárin í augunum.
„Þegar fólk spyr mig hvort ég hafi
verið karlmaður, segi ég alltaf nei. Ég
hef alltaf verið kona. Ég beið bara of
lengi með að láta laga fæðingargall-
ana,“ segir Jamie og þurrkar tárin.
Skipti um heima
Fyrir fjórum árum byrjaði hún í
hórmónameðferð. Svo byrjaði hún í
andlitsaðgerðum. „Þegar ég horfi til
baka var þetta það pínlegasta og
sársaukafyllsta reynsla sem sem ég
hef nokkurn tímann upplifað.
ímyndaðu þér að láta rífa allar negl-
urnar af þér á nokkrum klukkutím-
um til þess að setja þær aftur á og
rífa þær aftur af. Þetta er lífsreynsla
sem fólk myndi svipta sig lífi yfir.
Þeir brutu öll bein í andlitinu mínu,
t.d. kjálkann og nefið og bein í enn-
inu. Eftir þá aðgerð gerðist eitthvað
innan í mér. Ég vissi að ég myndi
aldrei verða sama manneskjan. Ég
fór úr karlmannsheiminum yfir í
kvenmannsheiminn." Allar tilfinn-
ingar Jamie breyttust snögglega.
„Sem karlmaður var ég hvass,
vondur, hæðinn, krefjandi og til-
finningalaus. öll þessi persónu-
einkenni hurfu eins og dögg fyrir
sólu. í ár þurfti ég að lifa sem kona
og fór síðan í lokaaðgerðina þar sem
kynfærunum var breytt. Það var ekk-
ert mál. Nú er allt á réttum stað,“
segir Jamie og hlær.
í dag er Jamie í sambandi með
manni. Þau eru hamingjusöm
saman. Hana langar til þess að
grennast meira og fara niður í 60
kíló. Henni finnst hún ennþá of
mössuð. Synir hennar og fjölskylda
eru búin að sætta sig við breyting-
arnar þótt þær hafi verið erfiðar fyrir
þau. „Auðvitað hafa bömin mín
misst föður sinn og syrgja hann. En
ég eignaðist bamabarn
um daginn. Sonur minn og kona
hans vom ekki viss hvað barnið ætti
að kalla mig. Þá sagði ég í gríni:
Hann getur kallað mig „tranny" í
staðinn fyrir granny". Þeim fannst
það þó ekki fyndið," segir Jamie
hlæjandi.
„En það em allir sáttir, líka
frænkur og frændur. Ég er nánari
þeim núna en ég hef nokkurn tím-
ann verið." En Jamie tekur það skýrt
fram að það sem skiptir hana mestu
máli er umræðan um kynjaskiptin.
„Börn em alin upp í bleiku eða bláu.
Með dúkku eða bolta, í pilsi eða
buxum. Ég hef lifað í báðum heim-
um. Ég veit hver forréttindi karl-
manna em. Stúlkum er kennt að
þær þurfi að vera grannar og líta vel
út til þess að ganga vel í h'finu. Konur
þurfa að hætta að vera svona undir-
gefnar og aðþrengdar. Við þurfum
að koma saman og taka völdin, sér-
staklega í pólitík. Testósterón er
hættulegt. Við, konur, erum mála-
miðlarar sem þurfum að binda enda
á ofbeldi karlmanna í heiminum.
Konur þurfa að hætta að labba með-
fram mörktmum. Ég kalla þetta
samúðarfullan femínisma," segir
Jamie.
Jamie Koufman hefur gefið út
heimildarmynd um breytingu sína
sem kallast „In Broad Dayhght" og
er hún í þann mimd að klára bók um
kynskiptinga. Jamie býr í Winson-
Salem í Norður-Karólínu þar sem
hún vinnur og kennir. „Ég hef eign-
ast fleiri vini á síðustu þremur árum
en ég hef gert alla mína ævi. Ég er
betri læknir og betri hlustandi. Þetta
er ekki hfsstfll. Þetta er ég. Það er
fullt af fólki sem skilur þetta ekki en
ég er orðin heil núna. Það er eitt-
hvað sem margir geta látið sig
dreyma um.“